Morgunblaðið - 24.03.2020, Qupperneq 4
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
Þórunn Kristjánsdóttir
„Við teljum okkur á réttri leið en
eigum langt í land að hápunkti
faraldursins verði náð, hvað þá að
hann sé í rénun,“ segir Víðir
Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá
Ríkislögreglustjóra. Skv. tölum
sem birtar voru í gær hafa nú alls
588 manns á Íslandi smitast af kór-
ónuveirunni, þar af 249 innanlands
en uppruni 144 smita er óþekktur.
Frá sunnudegi til mánudags
greindist 21 smit. Alls hafa sýni úr
10.301 manns verið tekin og sam-
tals hefur 51 náð sér af veirunni og
sjö sem lágu inni á Landspítalanum
af hennar völdum eru útskrifaðir.
13 manns lágu á sjúkrahúsinu í
gær vegna veirunnar en enginn þó
á gjörgæsludeild.
Viðbúnaður út júnímánuð
Kórónuveirunnar varð fyrst vart
á Íslandi í byrjun mars og síðan þá
hefur vöxtur hennar verið hraður.
„Samkvæmt faraldsfræðinni og því
spálíkani sem við fylgjum verður
veiran sex vikur að ná hápunkti,
það er um miðjan apríl, og fer nið-
ur á jafn löngum tíma. Þetta verða
tólf vikur alls. Svo geta komið alls
konar frávik, þannig að við gerum
ráð fyrir að halda þurfi uppi við-
búnaði út júnímánuð,“ segir Víðir
Reynisson. „Hvernig ýmsum
varúðarráðstöfunum, svo um
samkomubanni og fjarlægð milli
fólks, verður háttað verður síðan
metið eftir framvindunni. En ef við
líkjum þessum faraldri núna við
fjallgöngu, þá erum við enn ekki
komin í miðja hlíð þótt sjáist í
toppinn. Að ganga niður í móti er
síðan alltaf auðveldara, þótt slíkt
geti líka tekið í.“
Hætta á að börn smitist sín í
millum af kórónuveirunni virðist
ekki mikil, en alls hafa þrjú börn á
Íslandi yngri en tíu ára greinst
með veiruna. Er það skv. 268 sýn-
um sem tekin hafa verið og greind
á Landspítalanum. Þá hefur ekkert
af þeim 433 börnum sem komu til
sýnatöku hjá Íslenskri erfðagrein-
ingu verið greint með veiruna.
„Út frá þessum tölum er ekkert
sjáanlegt verulegt smit milli
barna,“ sagði Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir í gær á daglegum
blaðamannafundi stjórnvalda um
kórónaveiruna. Hann telur vísbend-
ingar um að baráttan við veiruna sé
á réttri leið. Skortur á sýnatöku-
pinnum sé þó áhyggjuefni og menn
séu með allar klær úti að reyna að
fá slíka.
Í dag eru tvö þúsund pinnar til-
tækir í landinu, en skortur á þeim
hefur meðal annars haft áhrif á
getu Íslenskrar erfðagreiningar til
sýnastöku. Frá því fyrir viku hafa
fá sýni verið tekin og því er nú
skoðað hvort framleiða megi pinna
hér innanlands. Brýnt hefur verið
fyrir heilbrigðisstarfsfólki að taka
aðeins sýni úr þeim sem eru veikir
eða bera einkenni veirunnar. Þegar
fleiri pinnar verða tiltækir má aftur
stækka hóp þess fólks sem sýni eru
tekin úr.
Öll heilbrigðisþjónusta
endurskipulögð
Vegna faraldursins hefur öll heil-
brigðisþjónusta í landinu verið
endurskipulögð. Af því leiðir að frá
deginum í dag verður öllum val-
kvæðum aðgerðum, speglunum og
umfangsmeiri rannsóknum á
sjúkrahúsum og einkastofum lækna
frestað, að því er fram kom í máli
Ölmu Möller landlæknis á blaða-
mannafundi í gær. Þessi ráðstöfun
er viðleitni til þess að koma í veg
fyrir að heilbrigðisstarfsfólk og
sjúklingar smitist. Brýnum aðgerð-
um er þó sinnt.
Biðlað hefur verið til starfsfólks í
heilbrigðisþjónustunni, sem nú er í
breyttu starfsumhverfi, að skrá sig
í bakvarðasveit sem sinnt gæti fólki
sem er smitað. Einnig er kallað eft-
ir því að nemar í hjúkrunar- og
læknisfræði gefi sig fram og er í
skoðun hvort gefa megi út tíma-
bundin starfsleyfi fyrir læknanema.
Alls höfðu 578 manns skráð sig í
bakvarðasveitina í gær – en stjórn-
völd leggja nú mikla áherslu á að
þétta raðirnar í almannaþjónustu.
Undir þeim formerkjum lagði
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra í gær fram á Al-
þingi frumvarp til breytinga á lög-
um um almannavarnir um borg-
aralega skyldu starfsmanna hins
opinbera á hættutímum. Í frum-
varpinu er gert ráð fyrir því að lög-
unum skv. verði opinberum aðilum
heimilt að fela starfsmönnum tíma-
bundið breyttar starfsskyldur til að
sinna forgangsverkefnum á hættu-
stundu, enda njóti þeir óbreyttra
launakjara.
Langt er í hápunkt faraldursins
Kórónuveiran breiðist hratt út 12 vikna ferli Smit milli barna óverulegt Skortur á sýnatöku-
pinnum áhyggjuefni Bakvarðasveitin efld Dómsmálaráðhera skerpir á lögum um almannavarnir
Fjöldi eftir landshlutum
Óstaðsett 6 85
Útlönd 0 3
Austurland 0 75
Höfuðborgarsvæði 473 4.497
Suðurnes 29 285
Norðurland vestra 11 363
Norðurland eystra 5 318
Suðurland 59 798
Vestfirðir 1 179
Vesturland 4 213
Smit
Sóttkví
Uppruni smits
Innanlands Erlendis
Óþekktur
42%25%
33%
10.301 sýni hafa verið tekin
36 einstaklingar hafa náð bata
1.193 hafa lokið sóttkví
14 einstaklingar eru á sjúkrahúsi
552 manns eru í einangrun
Fjöldi staðfestra smita frá 28. febrúar
28.2.29.2. 1.3. 2.3. 3.3. 4.3. 5.3. 6.3. 7.3. 8.3. 9.3. 10.3. 11.3. 12.3 13.3. 14.3. 15.3. 16.3. 17.3. 18.3. 19.3. 20.3. 21.3. 22.3.
Upplýsingar eru fengnar af
588 smit voru staðfest
í gær kl. 11.00
6.816 hafa verið settir í sóttkví
600
500
400
300
200
100
588
Morgunblaðið/Eggert
Upplýsingar Á daglegum blaðamannafundi almannavarna og heilbrigðisyfirvalda í gær. Allt er uppi á borðum.
Nægar birgðir af öllum neyslu-
vörum eru til í landinu, svo sem
mat og eldsneyti. Fylgst er
grannt með stöðu þessara mála
og er það hluti af viðbúnaði
stjórnvalda vegna kórónuveir-
unnar, að sögn Víðis Reynis-
sonar yfirlögregluþjóns.
Nokkuð hefur borið á því síð-
ustu daga að fólk hamstri
lausasölulyf eða leysi út margar
afgreiðslur í einu samkvæmt
fjölnota lyfseðlum. Til að
sporna gegn slíku gaf heil-
brigðisráðherra í gær út reglu-
gerð sem felur í sér takmarkanir
sem eiga að koma í veg fyrir að
fólk geti sankað að sér margra
mánaða lyfjaskammti sem leitt
getur til þess að aðrir líði skort.
Skipta verði jafnt og rétt og til
þess sé reglugerðin líka sett.
„Birgðastaðan er mjög góð,
nánast sama hvaða þátta í
starfsemi okkar er litið til,“ seg-
ir Eggert Þór Kristófersson, for-
stjóri Festar sem rekur meðal
annars N1 og Krónuna. „Skip
með eldsneyti sem kom hingað
frá Noregi er núna í höfn og ver-
ið er að dæla á tankana í Örfir-
isey. Í innflutningi okkar á
neysluvöru hefur sömuleiðis allt
gengið eftir áætlun. Einasta
höktið sem ég veit um er að ein-
hver minniháttar seinkun hefur
verið á sendingum á berjum og
ávöxtum frá vesturströnd
Bandaríkjanna enda liggur flug
Icelandair þangað niðri. Kost-
inum frá Kaliforníu er því ekið
þvert yfir landið til Boston og
nú um miðja vikuna fáum við
sendingu þaðan.“
Birgðastaðan
er sögð góð
MATUR, LYF OG ELDSNEYTI
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur