Morgunblaðið - 24.03.2020, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2020
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Bergsveinn
S: 863 5868
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Magnús
S: 861 0511
Ólafur
S: 824 6703
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Sími 534 1020
Til leigu á jarðhæð 160 m² verslunarhúsnæði.
Laust strax. Um er að ræða mest opið verslunarrými með
litlum lager baka til.
Stórir verslunargluggar snúa út að Ármúla.
Bjart húsnæði með glugga á þrjá vegu.
Leiguverð 2.200 kr/m² + vsk.
Til leigu á 3. hæð 240 m² skrifstofuhúsnæði. Möguleiki er
á að leigja stakar skrifstofur. Húsnæðið skiptist í 8 lokaðar
skrifstofur, fundarherbergi, kaffistofu og tvö salerni. Annað
salernið er með sturtu. Bjart húsnæði með glugga á þrjá
vegu. Leiguverð 1.900 kr/m² + vsk.
Til leigu á 4. hæð 155 m² skrifstofuhúsnæði. Laust sam-
kvæmt samkomulagi. Húsnæðið er mest opið rými með
einu fundarherbergi. Kaffikrókur og tvö salerni eru innan
rýmis. Lagnastokkar með veggjum. Gluggar eru á þrjá vegu - mikið útsýni. Svalir. Nýleg lyfta er í sameign.
Leiguverð 1900 kr/m² + vsk.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali, s. 824-6703, olafur@jofur.is
TIL LEIGU
Ármúli 42, 108 Reykjavík
Stærð: Ýmsar stærðir í boði
Gerð: Verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Ragnar Þór Ing-
ólfsson, formaður
VR, kveðst munu
beita sér fyrir því
að vaxtalækkanir
Seðlabanka Ís-
lands (SÍ) skili
sér í lægri íbúða-
vöxtum hjá líf-
eyrissjóðunum.
Tilefnið er að
Lífeyrissjóður
verslunarmanna (LIVE) hefur hald-
ið föstum óverðtryggðum vöxtum til
5 ára óbreyttum síðan SÍ lækkaði
meginvexti um 0,5% í síðustu viku, í
annað sinn á viku. Meginvextir SÍ
eru nú 1,75% og hafa lækkað um 4%
frá ágúst 2016. Við undirritun lífs-
kjarasamninga í apríl í fyrra voru
meginvextir 4,5%. Kveðið var á um
vaxtalækkanir í samningunum.
Skýlaus krafa hjá VR
„Ég kem ekki að ákvörðun LIVE
um vexti en við eigum þarna 4
stjórnarmenn af 8. Það er alveg ský-
laus krafa af okkar hálfu, þ.e. VR, að
lækkun stýrivaxta skili sér til al-
mennings, hvort sem um er að ræða
banka eða lífeyrissjóði eða aðrar
fjármálastofnanir. Við munum fylgja
þessu mjög fast eftir, eins og við höf-
um sýnt hingað til. Einnig munum
við fylgja því vel eftir að lækkun
bankaskatts skili sér í lægri vöxtum
og kostnaði til viðskiptavina þeirra,“
segir Ragnar. baldura@mbl.is
Vaxtalækkun
skýlaus krafa VR
Formaður VR ætlar að beita sér
Ragnar Þór
Ingólfsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mikill samdráttur hefur orðið á um-
ferð á höfuðborgarsvæðinu og um
Hringveginn undanfarnar vikur
vegna kórónuveirufaraldursins. Um-
ferðin hefur minnkað um allt að 40%
á Hringveginum og um rúm 15% þar
sem fallið er mest á höfuðborgar-
svæðinu.
Upplýsingar úr sextán lykilmæli-
sniðum Vegagerðarinnar á Hring-
veginum sýna að um þau öll fóru
rúmlega 1.360.000 bílar fyrstu nítján
daga marsmánaðar, sem er 330 þús-
und bílum eða 19,5% minna en sama
tímabil árið áður. Í heildina hefur
umferðin á þremur lykilmælisniðum
á höfuðborgarsvæðinu dregist sam-
an um rúm 10% á þessum sama tíma.
Tæplega 3 milljónir bíla fóru þar um,
sem er 327 þúsund bílum minna en í
fyrra.
Fækkunin á Hringveginum var á
bilinu 12,5 til 40%. Minnst dróst
aksturinn saman á Hringveginum
við Úlfarsfell en mest á Mýrdals-
sandi. Veður og færð getur haft
meiri áhrif á þróun umferðar á
Hringveginum en á þjóðvegum á
höfuðborgarsvæðinu.
Mesta fækkunin á höfuðborgar-
svæðinu kemur fram á Hafnar-
fjarðarvegi við Kópavogslæk. Þar
hefur umferðin dregist saman um
rúm 15%, eins og sést á meðfylgjandi
grafi.
Umferð minnkar um allt
að 40% á Hringveginum
Kórónufaraldurinn hefur víða áhrif Umferðin dregst hlut-
fallslega meira saman á Hringveginum en höfuðborgarsvæðinu
Morgunblaðið/Hari
Umferðin Kórónuveirufaraldurinn hefur í för með sér minni umferð bíla.
1.076
1.001
1.220
1.109
926
785
-15%
2019 2019 20192020 2020 2020
-9%
-7%
Hrun í umferð á höfuðborgarsvæðinu
Samanlögð umferð 1.-19. mars 2019 og 2020 á þremur talningarstöðum
Hafnarfjarðarvegur
við Kópavogslæk
Reykjanesbraut
við Dalveg
Vesturlandsvegur
ofan Ártúnsbrekku
Þúsundir ökutækja
Samtals fóru nú um
10% færri öku-
tæki um talningar-
staðina þrjá en á
sama tímabili í fyrra
Heimild: Vegagerðin
Hreinsistöð fráveitu við Klettagarða
er nú óstarfhæf og fer óhreinsað
skólp í sjó. Ástæðan er gríðarlegt
magn af blautklútum, til að mynda
sótthreinsiklútum, í fráveitukerfinu.
Svo virðist sem magn slíkra klúta
sem hent er í salerni hafi aukist
margfalt undanfarna daga og hefur
það skapað mikið álag á allan búnað
hreinsistöðva og starfsfólk, að því er
segir í tilkynningu frá Veitum.
Tilkynning vegna þessarar aukn-
ingar var send út fyrir helgi þar sem
fólk var hvatt til að henda alls ekki
rusli eins og blautklútum í klósett en
ekki er að sjá að það hafi borið ár-
angur. Nú er svo komið að stöðva
hefur þurft dælur og verið er að
hreinsa þær og annan búnað.
Óstarfhæf vegna blautklúta
Ljósmynd/Mats Wibe Lund
Fráveita Hreinsistöð Klettagörðum.