Morgunblaðið - 24.03.2020, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.03.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2020 24. mars 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 139.36 140.02 139.69 Sterlingspund 164.29 165.09 164.69 Kanadadalur 97.73 98.31 98.02 Dönsk króna 20.01 20.128 20.069 Norsk króna 12.82 12.896 12.858 Sænsk króna 13.532 13.612 13.572 Svissn. franki 141.92 142.72 142.32 Japanskt jen 1.2677 1.2751 1.2714 SDR 188.17 189.29 188.73 Evra 149.55 150.39 149.97 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.0517 Hrávöruverð Gull 1504.45 ($/únsa) Ál 1580.0 ($/tonn) LME Hráolía 28.1 ($/fatið) Brent ● Bréf Iceland Seafood Inter- national stóðu í stað í Kauphöll Ís- lands í gær. Önnur félög lækkuðu sem nam á bilinu 0,1- 22%. Mest lækk- uðu bréf Icelandair Group en minnst var lækkunin á bréfum Kviku banka. Fasteignafélögin þrjú tóku á sig frekari högg þegar Eik lækkaði um 5,9%, Reg- inn lækkaði um 2,7% og Reitir um 3,5%. Fjarskiptafélögin lækkuðu tals- vert. Síminn lækkaði þannig um 5,8% og Sýn um 5,9%. Þá lækkuðu trygg- ingafélögin einnig. Vátryggingafélagið mest eða um 5,8%, Sjóvá um 1% og TM um tæp 0,8%. Marel lækkaði um tæp 6,5%. Er fé- lagið hið langverðmætasta á mark- aðnum hér á landi og hefur það nú lækkað um 20% það sem af er ári. Nemur markaðsvirði þess nú rúmum 378 milljörðum króna. Eimskipafélagið lækkaði um 5,7%. Í gærmorgun bárust tíðindi þess efnis að Samherji Holding hefði selt sig undir 30% í félaginu til þess að forðast yfirtökuskyldu en 10. mars síðastliðinn var tilkynnt að félagið hefði aukið hlut sinn um 3,05% og ætti eftir þau 30,11% í Eimskipafélaginu. Öll félög utan eins lækkuðu í Kauphöllinni STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Icelandair Group heldur úti 14% af þeirri áætlun sem lagt var upp með áð- ur en kórónufaraldurinn setti allar flugsamgöngur heimsins úr skorðum. Enn mun félagið þurfa að draga úr umsvifum sínum þannig að farþega- flutningar munu leggjast að lang- stærstum hluta af á komandi vikum. Þetta staðfesti fyrirtækið í gær sam- hliða umfangsmiklum aðgerðum sem kosta 240 starfsmenn lífsviðurværi sitt. 92% þeirra starfsmanna sem eftir verða munu sæta lægra starfshlutfalli, flugstjórar og flugmenn verða til næstu tveggja mánaða færðir niður í 50% starfshlutfall og flugfreyjur og flugþjónar færast í 25% hlutfall yfir sama tímabil. Gera má ráð fyrir að flugstjórar verði fyrir hlutfallslega mestri kjaraskerðingu yfir tímabilið, þar sem laun þeirra eru í flestum til- vikum yfir þeim mörkum sem tryggja fólki hlutabætur úr atvinnuleysis- tryggingasjóði. Forstjóri félagsins mun lækka um 30% í launum, framkvæmdastjórar um 25% og aðrir þeir sem halda óskertu starfshlutfalli lækka um 20% í launum. Til að stöðva útflæðið Félagið segir í tilkynningu að ákveð- ið hafi verið að fara hlutabótaleiðina í tilfelli fyrrnefndra stétta til þess að tryggja betur lausafjárstöðu þess. Hefði komið til hreinna uppsagna hefði þurft að greiða full laun á uppsagn- arfresti í að minnsta kosti þrjá mánuði en í sumum tilvikum lengur. Fyrir- tækið rær nú lífróður og þarf að stöðva allt útstreymi lausafjár þar til rofar til á markaðnum og hægt verður að koma flugáætlun félagsins í einhverri mynd aftur í gagnið. Icelandair Group tók á sig enn einn risaskellinn í Kauphöll Ís- lands í gær. Lækkuðu hlutabréf þess um 22% þegar dagurinn var gerður upp en lækkunin var talsvert meiri í fyrstu viðskiptum. Stendur gengi bréfa félagsins nú í 3,08 og hafa þau lækkað um 59% frá áramótum. Nemur markaðsvirði félagsins 16,8 milljörðum króna. Bjuggust við fleiri uppsögnum Markaðsaðilar sem Morgunblaðið ræddi við í gær sögðu aðgerðir þær sem tilkynnt var um í gær hafa gengið of skammt. Meðal annars hefði komið á óvart að umfang uppsagna hefði ekki verið meira. Hins vegar er til þess að líta að félagið útilokar ekki frekari að- gerðir á komandi vikum eftir því sem mál þróast áfram. Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair, segir að allar félagsins séu í notkun en að með- altali séu 5 til 6 vélar í notkun á hverj- um tíma. Undirbúningur sé hins vegar hafinn við að leggja stærstum hluta flotans. „Það þarf ekki að gerast á öðrum eða þriðja degi eftir að umsvifin drag- ast saman en fljótlega þarf að koma vélunum í það ástand sem hentar þeg- ar þær eru ekki í notkun. Það fer best með flugvélar að hafa þær á flugi en þegar notkun er hætt í lengri tíma þarf að setja hlífar á hreyfla og viðkvæm mælitæki á skrokk vélanna. Þá er mestöllum vökva einnig tappað af vél- unum og í sumum tilvikum er öllu elds- neyti einnig tappað alveg af.“ Segir Jens að í þessari vinnu sé fylgt viðmiðum og leiðbeiningum frá fram- leiðanda vélanna. Nýtist jafnvel til fraktflutninga Hann segir ósennilegt að öllum vél- um félagsins verði lagt, enda verði ein- hverju flugi sinnt á komandi dögum. Þá sé m.a. verið að skoða að hvaða marki vélarnar geti nýst í fraktflutn- ingum. Það eigi ekki síst við um 767- 300ER vélar félagsins, breiðþotur, sem taka allmikla frakt undir farþega- rými. „Við sjáum mikla eftirspurn eftir fraktflutningum og ef verðið á þeirri þjónustu er með því móti að það geti borgað sig að fljúga vélunum án far- þega milli landa munum við skoða þann möguleika,“ segir Jens í samtali við Morgunblaðið. Meginþorra flotans lagt Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flotamál Icelandair er með þrjár tegundir Boeing-véla í förum, að stærstum hluta 757-200 vélar en einnig 767-300 breiðþotur og eina 737-800 sem félagið hefur á leigu. Nú verður þeim flestum lagt meðan stormurinn gengur yfir.  Icelandair býr sig undir nær algjöra lokun  Lækkar um 22% í Kauphöll Íslands  Flugstjórar taka á sig 50% launaskerðingu  Flugfreyjur lækka í 25% starfshlutfall Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís- lands hefur ákveðið að hefja bein kaup á skuldabréfum ríkissjóðs á eftirmarkaði. Kemur ákvörðun nefndarinnar í kjölfar þess að ríkis- sjóður greindi frá því að fjárþörf hans myndi aukast töluvert frá fyrri spám og að því yrði útgáfa ríkisbréfa á öðrum ársfjórðungi aukin um allt að 40 milljarða frá fyrri spám. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, bendir á að hin stór- aukna útgáfa hafi sett þrýsting á langtímavexti á ríkisskuldabréfum, sem hafi hækkað töluvert. „Í stuttu máli má segja að peningastefnunefnd hafi áttað sig á að það mætti ekki standa og að mikilvægt væri að langtímavextir hækkuðu ekki mikið,“ sagði Jón Bjarki í samtali við mbl.is í gær. Það er skammt stórra högga á milli hjá peningastefnunefnd, sem hefur lækkað meginvexti Seðlabank- ans um 1 prósentu í tveimur aðskild- um ákvörðunum í þessum mánuði. Yfirlýsingin um kaupin á ríkisbréf- um á eftirmarkaði var síðan tekin á aukafundi nefndarinnar sem haldinn var á sunnudag.Enn er ekki ljóst hvert umfang kaupanna verður en í yfirlýsingu nefndarinnar, sem var gerð opinber fyrir opnun markaða í gær, sagði að nánari upplýsingar um fyrirætlanir nefndarinnar yrðu birt- ar síðar. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum sem Morgunblaðið aflaði í gær hefur Seðlabankinn ekki keypt ríkisskuldabréf á eftirmarkaði í 27 ár, eða frá árinu 1993. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon SÍ Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar. Seðlabanki hyggst kaupa ríkisbréf  Fyrsta slíka íhlutun bankans frá árinu 1993 Ármúli 8 I 108 Reykjavík I Sími 516 0600 I www.birgisson.is HVÍTAR GÆÐA INNIHURÐIR Á GÓÐU VERÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.