Morgunblaðið - 24.03.2020, Side 21
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
RAGNHEIÐUR JÚLÍA GÍSLADÓTTIR
frá Súðavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eyri, Ísafirði, að
morgni 21. mars.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigurgeir Garðarsson Jónína Hansdóttir
Þráinn Ágúst Garðarsson Sawai Sara Kham
Gísli Garðarsson Kristín Jónsdóttir
Hansína G. Garðarsdóttir Finnbogi Hermannsson
Gerður Ragna Garðarsdóttir Ægir Sigurgeirsson
Smári Garðarsson Karítas Halldórsdóttir
Björn Jónsson
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
SIGFRÍÐUR ELSA INGVARSDÓTTIR,
Litlu-Brekku,
Álftanesi,
lést skyndilega þriðjudaginn 17. mars á
Landspítalanum í Fossvogi.
Í ljósi ástandsins í heiminum verður útförin auglýst síðar.
Gunnlaugur I. Ólafsson Elín L. Rúnarsdóttir
Fjóla S. Ólafsdóttir
Ingvar G. Ólafsson
Agnes Kaloshi Miklovan Kaloshi
Ingólfur F. Gunnlaugsson
Ólafur R. Gunnlaugsson
Ragnheiður E. Snæland
og barnabarnabörn
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2020
Herdís Ólína
Guðmundsdóttir,
góður nágranni og
dýrmæt vinkona,
er nú fallin frá. Mig langar til
að minnast hennar í örfáum
orðum og þakka henni samleið-
ina. Þótt hún hafi flutt suður
fyrir rúmum áratug áttum við
góða og einlæga vináttu, hvort
heldur voru árin hennar og
Gumma hér fyrir austan eða
fyrir sunnan eftir að þau fluttu
suður. Síðast áttum við
ánægjulega stund í janúar síð-
astliðnum og var það báðum
gefandi gleðistund.
Þótt aldursmunur nokkur
væri á milli okkar var það ekki
til að draga úr okkar vinskap,
enda Dísa bæði skemmtileg og
mikill mannvinur. Sameiginleg-
ur áhugi okkar á gönguferðum,
fuglum og blómum leiddi okkur
saman í skemmtilegar sam-
verustundir sem eru ómetan-
legar minningar á stundum
sem þessum.
Börnum okkar hjóna reynd-
ist hún ávallt vel, enda sam-
gangur milli húsa hér fyrir
austan í Víðimýri, þar sem við
bjuggum öll. Var ein dóttur-
dóttir okkar skírð á höfuðið á
okkur Dísu, og gefið nafnið
Sigdís, og helgaðist það af
Herdís Ólína
Guðmundsdóttir
✝ Herdís ÓlínaGuðmunds-
dóttir fæddist 12.
febrúar 1932. Hún
lést 8. mars 2020.
Útförin fór fram
í kyrrþey 16. mars
2020.
þeirri væntum-
þykju sem Dísa
sýndi fjölskyldu
okkar hér alla tíð.
Dísa var
skemmtileg og
hnyttin og sendi
okkur oft vísukorn
í gamansömum tón
ef hún var að færa
okkur eitthvað til
að undirstrika vin-
skapinn við okkur.
Dísa var ljósmóðir hér á
sjúkrahúsinu í allmörg ár og
veitti ómetanlegan stuðning er
sonur okkar Ölver fæddist.
Fæðingin var erfið, en Dísa,
með sinni nálægð og umhyggju,
auðveldaði margt í erfiðum að-
stæðum. Hún var alltaf heil í
gegn og traust sem klettur.
Dísa hét Herdís Ólína í höf-
uðið á skáldkonunum þeim
Ólínu og Herdísi og við hæfi að
láta fylgja með eitt lítið ljóð úr
Ljóðmælum þeirra:
Þeim sem gleyma Guði sínum,
glepja láta heyrn og sýn.
Sendu ljós frá ljósum þínum,
leið oss alla heim til þín.
x
Vertu styrkur veikleik mínum,
vit og þrek er brestur mig.
Lát mig ganga á leiðum þínum
lifa og deyja í trú á þig.
Með þökk fyrir samleiðina
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur til Guðmundar, Mar-
grétar, Hjörvars, Guðmundar
Sveins og Einars og fjölskyldna
þeirra.
Sigríður (Sigga) og
Þórarinn (Tóti).
✝ Dr. BjarniHelgason jarð-
vegsfræðingur var
fæddur 1. desem-
ber 1933. Hann
lést 21. febrúar
2020. Hann var
sonur hjónanna
Helga Tómasson-
ar, f. 25.9. 1896,
yfirlæknis á
Kleppi, og Krist-
ínar Bjarnadóttur
úr Engey, f. 29.5. 1894. Systk-
ini Bjarna voru Tómas yf-
irlæknir, f. 1927, og Ragnhild-
ur, fyrrverandi ráðherra, f.
26.5. 1930. Eftirlifandi bróðir
er Brynjólfur framkvæmda-
stjóri, f. 19.8. 1951. Hann er
sonur Helga Tómassonar og
seinni konu hans Ragnheiðar
Brynjólfsdóttur, f. 4.3. 1912.
Afkomendur Bjarna og
fyrrverandi eiginkonu hans,
Guðrúnar Kristínar Magn-
úsdóttur, f. 29.9. 1939, eru:
Magnús, f. 24.5. 1960, hann er
giftur Patricia Kelly, f. 9.3.
1954, og eiga þau dótturina
Roxanne Elísabet, f. 27.3.
1994.
Helgi, f. 26.5. 1965, sam-
býliskona hans er Anna Þórdís
Heiðberg, f. 19.7. 1972, og
eiga þau 3 börn, Lilju Sól, f.
9.6. 2005, Dag Hrafn, f. 25.4.
2008, og Önju Lind, f. 28.2.
2012.
lands og Landgræðslusjóðs,
var einn af forgöngumönnum
Varins lands, í Tilraunaráði
jarðræktar, í starfshópi OECD
um hagnýtingu mós til áburð-
arframleiðslu, formaður í Til-
raunaráði RALA, formaður
Félags íslenskra náttúrufræð-
inga, átti sæti í sérfræðinga-
nefnd á vegum Evópuráðsins
um jarðvegseyðingu, í stjórn
RALA, í stjórnskipaðri nefnd
til að endurskoða lög um sölu
og dreifingu mjólkur, í stjórn-
skipaðri nefnd um neyt-
endamálefni, í stjórnskipaðri
nefnd vegna áburðarverðs-
hækkana og áhrifa þeirra á
landbúnað og almennt efna-
hagslíf, í stjórnskipaðri nefnd
um ræktun skjólbelta og
samningu reglna þar að lút-
andi, í stjórn Áburðarverk-
smiðju ríkisins, í starfshópi
Norrænu ráðherranefndarinn-
ar um samræmingu efna-
greininga í landbúnaði, í
stjórn skorar 13 í Norræna
búvísindafélaginu, formaður
skólanefndar Skóla Ísaks
Jónssonar, formaður stjórnar
Neytendasamtakanna, fulltrúi
BHM í ferðakostnaðarnefnd,
formaður Veiðifélags Þing-
vallavatns.
Út hafa komið fjölmargar
fræðigreinar eftir Bjarna bæði
hérlendis og erlendis. Bjarni
vann alla tíð ötullega að upp-
byggingu skógræktar í Haga-
vík í Grafningi.
Jarðarför Bjarna hefur far-
ið fram í kyrrþey.
Kristín, f. 8.10.
1966, hún er gift
Valtý Guðmunds-
syni, f. 7.11. 1956,
og á 3 börn:
Bjarna Þór, f.
4.10. 1987, og á
hann eitt barn,
Högna Frey, f.
17.9. 1991, og á
hann 3 börn, og
Þuríði Lilju, f.
5.12. 1994.
Hjalti, f. 1.11. 1969.
Bjarni ólst upp á Kleppi,
þar sem faðir hans var yf-
irlæknir. Hann varð stúdent
frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1953. Nam eftir það jarð-
vegsfræði við Háskólann í
Aberdeen, lauk því námi 1955
og doktorsprófi frá sama
skóla árið 1959. Lauk auk þess
BA-prófi í landafræði frá Há-
skóla Íslands árið 1956. Bjarni
var sérfræðingur við Bún-
aðardeild Atvinnudeildar Há-
skólans frá 1959 og hjá Rann-
sóknarstofnun landbúnaðarins
frá 1965 til loka starfsævi
sinnar, en þar var hann deild-
arstjóri jarðvegsdeildar frá
1980. Bjarni var í fjölmörgum
nefndum, starfshópum og
félagsstarfi, m.a. formaður Fé-
lags sjálfstæðismanna í Háa-
leitishverfi, í stjórn Félags
sjálfstæðismanna í Fossvogi, í
stjórn Skógræktarfélags Ís-
Frá barnsaldri vandist Bjarni
frændi minn við skógræktar-
vinnu og landbúnað. Hann var
tveggja ára þegar afi keypti
Hagavík í Grafningi og byrjaði
þar skógrækt, sem Bjarni tók
sívaxandi þátt í, eftir því sem
þroski krafta og vitsmuna
leyfði. Hann fylgdist með bú-
störfum í Hagavík og á Klepps-
búinu og var í sveit í Borgar-
firði. Hann lærði svo
jarðvegsfræði í Aberdeen í
Skotlandi og beitti henni í land-
búnaði alla starfsævina.
Bjarni var unglingur þegar
amma dó. Afi giftist síðan Ragn-
heiði Brynjólfsdóttur og áttu
þau nokkur góð ár saman, en afi
veiktist og Bjarni missti föður
sinn 24 ára gamall. Ragnheiður
var Bjarna og systkinum hans
mikil stoð meðan hún lifði.
Rannsóknir Bjarna í Aber-
deen voru á jarðvegi í landnámi
Ingólfs. Einhvern tímann var
farið í bíltúr í sunnanvert Ölfus-
ið að safna sýnum, afi, Ragn-
heiður, Bjarni og við Brynjólfur
bróðir hans. Við pollarnir feng-
um glæra plastpoka, sem ég þá
hafði aldrei séð áður, og vorum
sendir upp í hól að sækja smá-
steina. Við komum til baka með
slatta í poka af flottum steinum
sem Bjarni sturtaði úr og sendi
okkur aftur eftir venjulegum
steinum. Hið venjulega getur
víst líka verið merkilegt við-
fangsefni vísindanna.
Eftir fráfall afa árið 1958
plantaði Bjarni áfram, mest sta-
fafuru og sitkagreni, sem nú
mynda skógarbelti í hlíðum og
brekkurótum, eða standa í akri
á sléttlendi. Hann kom oft í
Hagavík, var lengi, bar á sjálf-
um sér plöntur, verkfæri, girð-
ingarefni og áburð og gaf sér
tíma til að horfa á skóginn
dafna. Þegar kraftarnir minnk-
uðu hætti nýplöntun og girðing-
in hætti að vera fjárheld. Hann
hélt áfram að koma og átti þá
innhlaup hjá okkur frændfólki
sínu í öðrum húsum á svæðinu
til að spjalla, borða samlokuna
sína eða þiggja eitthvað og
kynntist þannig yngra frænd-
fólki líka, sem kunni að meta
hlýjuna. Bjarni var félagslyndur
og hafði gaman af öllum fréttum
og af snörpum umræðum. Hann
hafði eindregnar skoðanir, og
stundum harðar, á mönnum og
málefnum – og verklagi. Hann
var þó einyrki og undi því illa að
geta ekki séð um sig alveg sjálf-
ur síðustu árin.
Að leiðarlokum þakka ég
langa og trausta vináttu.
Helgi Þórsson.
Bjarni var tengdafaðir dóttur
minnar, Önnu Þórdísar, og því
var það að við hittumst í afmæl-
um og öðrum hátíðum fjölskyld-
unnar. Það var mér mikil bless-
un að kynnast Bjarna, því hann
var bæði margfróður og kunni
vel að segja frá.
Á yngri árum ferðaðist þessi
ungi doktor í jarðvegsfræðum
til bænda til að leiðbeina þeim í
jarðræktinni. Stundum var að
bóndinn var ekki heima er
Bjarni kom og frúin bauð hon-
um inn í stofu, að Bjarni sagði:
„Má ég ekki bara sitja hjá þér
frammi í eldhúsi og ræða við þig
þar til bóndinn kemur?“ og var
það að sjálfsögðu velkomið.
Þegar bóndinn kom sagði hann
við frúna: „Hvað, býður þú ekki
manninum til stofu?“
Bjarni var í Menntaskólanum
í Reykjavík og fyrstur sinna
bekkjarsystkina til að verða
doktor.
Ég óska Bjarna blessunar í
því lífi sem nú tekur við hjá hon-
um. Einnig óska ég börnum
hans og öðrum nákomnum
styrks og blessunar Guðs á
þessum erfiða tíma.
Eyþór
Heiðberg.
Bjarni Helgason
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
SVEINN ÁRMANN EYFELL
EGGERTSSON,
Sörlaskjóli 42,
lést þriðjudaginn 17. mars á
Landspítalanum við Hringbraut.
Jarðarförin hefur þegar farið fram í kyrrþey.
Rósa Kristjánsdóttir
Smári Grétar Sveinsson Ragnhildur Sigurðardóttir
Baldvin Mar Smárason Katie Innes
Sigurður Sveinn Smárason
Lilja Dís Smáradóttir
Brynja Lind Smáradóttir
barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
GUÐRÚN JÓNA JÚLÍUSDÓTTIR,
Kornättgrånd 5,
Staffanstorp,
Svíþjóð,
lést föstudaginn 20. mars í Staffanstorp.
Haraldur Karlsson
Ingibjörg Stella Haraldsdóttir
Júlíus Reynar Haraldsson
Elísabet Ragna Haraldsdóttir
Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir og
föðurbróðir,
JÓN LOGI ÞORSTEINSSON
bóndi í Vestri-Garðsauka,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut laugardaginn 14. mars.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sjöfn Halldóra Jónsdóttir
Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR RAFN INGIMUNDARSON
Furugerði 1
lést laugardaginn 21. mars á
Landspítalanum í Fossvogi.
Hjördís Guðmundsdóttir Jónmundur Þór Eiríksson
Ingibjörg Guðmundsdóttir Óttar Guðjónsson
Hermann R. Guðmundsson Magnea S. Sverrisdóttir
Sigurður K. Guðmundsson
Birgir Sigmundsson Ásdís Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Samkomubann og óvenjulegar aðstæður í þjóðfélaginu
hafa leitt til þess að útfarir eru nú með breyttu sniði.
Morgunblaðið hefur brugðist við með því að rýmka reglur
um birtingu á minningargreinum.
Minningagreinasíður blaðsins standa opnar öllum þeim
sem vilja minnast ástvina eða sýna aðstandendum samúð
og samhug.
Í ljósi aðstæðna hefur verið slakað á fyrri verklagsreglum
hvað varðar útfarir í kyrrþey. Ekkert er því til fyrirstöðu að
birta minningargreinar sama dag og útför einstaklings er
gerð hvort sem hún er háð fjöldatakmörkunum eða gerð í
kyrrþey.
Starfsfólk greinadeildar Morgunblaðsins er boðið og búið
að aðstoða þá sem hafa spurningar um ritun minningar-
greina eða hvernig skuli senda þær til blaðsins.
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina.
Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar.
Birting minningagreina
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar