Morgunblaðið - 01.04.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.04.2020, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2020 Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is Við búum til minningar myndó.isljósmyndastofa NJÓTUMMINNINGANNA www.aman.is Tangarhöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 533 1020 • aman@aman.is er okkar fag Víngerð Nýttu þér frábæra netverslun Ámunnar www.aman.is KÓRÓNUVEIRUFARALDUR Helgi Bjarnason Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Þór Steinarsson Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir mikilvægt að skoða hvort einhver tengsl eru á milli breytileika í erfðamengi kórónu- veirunnar og þess hvernig fólk veik- ist. Við raðgreiningu sýna hjá fyrir- tækinu hafa komið í ljós að minnsta kosti 40 stökkbreytingar á veirunni og að minnsta kosti einn einstakling- ur hefur greinst með tvö afbrigði af henni. „Það sem skiptir máli núna er ekki bara að sjá allan þennan fjölbreyti- leika í veirunni heldur að byrja að skoða hvort það eru einhver tengsl á milli breytileika í erfðamengi veir- unnar og þess hvernig fólk fer út úr sjúkdómnum,“ segir Kári og útskýrir nánar: „Sumir fá milt kvef en aðrir enda í öndunarvél. Spurning er hvað það er sem gerir það að verkum að menn fara svona misjafnlega út úr veirunni. Einn möguleiki er að það eigi rætur að rekja í mismunandi raðir í erfða- mengi veirunnar og það búi til mis- munandi svar fólks sem sýkist. Hinn möguleikinn er sá að það sé breyti- leiki í erfðamengi fólksins eða ein- hver samblanda af þessu tvennu.“ Skima úti á landi Íslensk erfðagreining er að undir- búa það að skima fólk víðar en á höf- uðborgarsvæðinu. Kári nefnir Vest- mannaeyjar og Austurland sem staði sem hugsanlega yrði byrjað á og Norðurland kæmi þar á eftir. Enn er verið að taka sýni úr fólki sem átti bókaðan tíma í Turninum í Kópavogi en ekki var hægt að af- greiða vegna skorts á pinnum. Kári segir að opnað verði fyrir bókanir mjög fljótlega. Aðeins 29% þeirra sem greindust með kórónuveirusmit á síðasta sólar- hring voru í sóttkví. Er það talsvert lægra hlutfall en verið hefur því hlut- fallið hefur verið að meðaltali yfir 50% og það hefur verið talið benda til góðs árangurs aðgerða yfirvalda. Nú liggja 35 sjúklingar á spítala, 5 fleiri en í gær, og þar af 11 á gjör- gæslu. Níu þeirra eru í öndunarvél. Almannavarnir hafa verulegar áhyggjur af því álagi sem gæti skap- ast á heilbrigðiskerfið virði fólk ekki leiðbeiningar um að ferðast sem minnst um páskana. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarna- deild ríkislögreglustjóra, sagði á upp- lýsingafundi í gær að fyrir þessum tilmælum væru þrjár ástæður sem allar snúa að hugsanlega auknu álagi á lítillar heilsugæslu á stórum sum- arhúsabyggðum. Veruleg hætta væri á umferðar- slysum þegar margir væru á ferðinni. Þá gætu þúsundir safnast saman á tiltölulega litlum svæðum. Loks væri það mikið áhyggjuefni að fólk sem hópaðist saman fjarri heimilum sín- um gleymdi sér í nýju umhverfi, breytti um venjur, og skapaði þannig aukna smithættu. Taldi Víðir þó ekki koma til greina að herða samkomubannið fyrir páska né að banna fólki að fara í sumarbú- staði eins og gert er til dæmis í Nor- egi við litlar vinsældir íbúanna. Rakningarappið kynnt í dag Hönnun og öryggisprófanir á smit- rakningarappi er á lokastigum. Allar líkur eru á því að smáforritið komist í gagnið í dag. Þetta upplýsti Alma D. Möller landlæknir á upplýsingafund- inum í gær, en hún fjallar um appið í grein í Morgunblaðinu í dag. Notkun smáforritsins byggir á tvö- földu samþykki. Fólk þarf að sam- þykkja að hlaða því inn á símann. Appið safnar þá uppýsingum um ferðir fólks í gegn um GPS-tæknina og geymir þær í símanum. Ef notandi greinist með smit verður hann aftur að veita smitrakningarteyminu leyfi til að nota upplýsingarnar sem appið hefur safnað. Sagði Alma að mikið öryggi væri í appinu og það hefði verið vottað af óháðum aðila. »15 Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 30 1.751 Útlönd 0 0 Austurland 5 190 Höfuðborgarsvæði 853 4.489 Suðurnes 51 393 Norðurland vestra 22 363 Norðurland eystra 33 399 Suðurland 114 782 Vestfirðir 4 194 Vesturland 23 318 Smit Sóttkví Uppruni smits Innanlands Erlendis Óþekktur 17.904 sýni hafa verið tekin 198 einstaklingar hafa náð bata 6.214 hafa lokið sóttkví 35 eru á sjúkrahúsi 2 einstaklingar eru látnir 11 á gjör-gæslu 935 manns eru í einangrun Fjöldi staðfestra smita frá 28. febrúar Upplýsingar eru fengnar af covid.is og landspitali.is 1.135 smit voru staðfest í gær kl. 13.00 8.879 manns eru í sóttkví 1.000 800 600 400 200 1.135 28. 29. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 65% 9% 26% Vill kanna ástæður veikinda  Kári Stefánsson segir mikilvægt að skoða ástæður þess að sumir veikjast lítið en aðrir mikið  Áhrif breytileika erfðamengis veirunnar könnuð  Almannavarnir hvetja fólk til að ferðast sem minnst um páska Ljósmynd/Lögreglan Í sviðsljósinu Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason, Alma D. Möller, Páll Matthíasson og Hulda Hjartardóttir. Spálíkan um heildarfjölda virkra smita Fjöldi greindra smita að frádregnum fjölda þeirra sem hafa náð bata Við erum hér Líklegasta spá Svartsýn spá Staðfestur fjöldi Byggt á spálíkani á covid.hi.is frá 30.3. 2020 LÍKLEGASTA SPÁ: Hámark í fyrstu viku apríl, um 1.200 manns með virkan sjúkdóm 1.800 1.600 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 2.3. 9.3. 16.3. 23.3. 30.3. 6.4. 13.4. 20.4. 27.3. SVARTSÝN SPÁ: Um 1.800 með virkan sjúkdóm Fjörutíu og tveggja ára kona sem var útskrifuð af bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi á fimmtu- daginn í síðustu viku lést innan við sólarhring eftir heimkomu. Andlát- ið hefur verið tilkynnt til embættis landlæknis. „Þetta er alvarlegt atvik,“ sagði Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans, þegar hann var spurður um málið á upplýsingafundi Al- mannavarna í gær. Málið er til skoðunar innan spít- alans og telur Páll ekki viðeigandi að hann tjái sig frekar um það á þessu stigi. Samkvæmt upplýsingum spít- alans hefur álag á bráðamóttöku verið með minna móti frá því kór- ónuveirufaraldurinn hóf að breið- ast út hér á landi en meðal annars er skoðað hvort einhver álags- toppur hafi haft áhrif í þessu tilviki. erla@mbl.is Andlát tilkynnt til landlæknis Ákveðið hef- ur verið að makar og aðrir að- standendur fái ekki að vera við- staddir á skurðstofu þegar keis- araskurðir eru gerðir. Kom þetta fram í máli Huldu Hjartardóttur, yfirlæknis fæð- ingarþjónustu á kvenna- og barnasviði Landspítala, á upp- lýsingafundi vegna kórónu- veirufaraldursins. Sagði hún að maki eða annar frískur aðstandandi fengi að heimsækja móður og barn þegar þau væru komin aftur inn á deild. Hulda tók fram að ekkert benti til þess að þungaðar konur verði sérstaklega veikar, eins og í fyrri sambærilegum faröldrum, heldur virtust þær þvert á móti veikjast eins og annað ungt fólk og jafnvel síður en jafnaldrar. Sama sé að segja um nýbura, þeir virðist ekki fá veikindin og þau smitist ekki í gegnum fylgju. Hún sagði að þær íþyngjandi aðgerðir sem gripið hefur verið til á deildinni og tilmæli til þung- aðra kvenna um að gæta sín væru til að vernda starfsemina. Heilbrigðisþjónustan hér væri viðkvæm og einangruð og fáir sérfræðingar í hverri grein. Því þurfi að gera allt sem mögulegt er til að vernda starfsemina svo hún geti sinnt sínu hlutverki. Fylgjast ekki með keisara REGLUR Á FÆÐINGARDEILD Hulda Hjartardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.