Morgunblaðið - 01.04.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2020
Í Bandaríkjunum hefur veriðfarið í margvíslegar og afar
umfangsmiklar efnahagsaðgerðir
vegna kórónuveirufaraldursins.
Ein þessara aðgerða er lán til
minni fyrirtækja (sem þar í landi
teljast þau
sem hafa 500
starfsmenn
eða færri og
teldust því
nokkuð stór
hér).
Lánin, semgeta
numið 1,4 milljörðum króna á
fyrirtæki, eru veitt í gegnum
smærri banka og aðrar fjár-
málastofnanir í samvinnu við
ríkisvaldið. Þau eiga að stuðla að
því að koma fyrirtækjum í gegn-
um þá erfiðleika sem nú ganga
yfir með áherslu á að verja störf-
in.
Athygli vekur að fyrirtækjumer mögulegt að fá niðurfell-
ingu lánanna ef að þeim tekst að
halda starfsmönnum á launaskrá
og greiða reikninga á meðan far-
sóttin gengur yfir, en annars eru
lánin greidd niður á allt að tíu
árum.
Þessi aðgerð er athyglisverðenda hugsunin sú að hjálpa
fyrirtækjum í gegnum vandann,
hvetja þau til að segja ekki upp
starfsfólki og um leið að koma í
veg fyrir að þau verði með óhóf-
lega skuldabagga til framtíðar.
Til að ná sama markmiði mættifara aðrar leiðir, ekki síst
þar sem skattar á laun eru háir,
líkt og hér á landi. Niðurfelling
tryggingagjalds, til dæmis næsta
árið mundi án efa verða til að
verja fjölda starfa og mundi um
leið gera fyrirtækin lífvænlegri
til framtíðar í stað þess að fresta
vandanum til næsta árs.
Störfin varin
STAKSTEINAR
Hinn svonefndi Veðurstofuvetur
er liðinn og vorið tekið við með
komu aprílmánaðar.
Marsmánuður virðist ætla að
verða kaldastur vetrarmánaðanna
fjögurra, en með naumindum, seg-
ir Trausti Jónsson veðurfræðingar
á bloggi sínu. „En það þarf annan
aukastaf í nákvæmni til að greina
marshitann frá febrúarhitanum –
og einn dagur lifir enn þegar
þetta er skrifað,“ segir Trausti.
Mars var kaldur framan af en hlý-
indi undanfarið hafa híft með-
altalið upp.
Meðalhiti vetrarins nú er -0,3
stig, -0,7 stigum neðan meðallags
síðustu tíu ára og -0,2 stigum neð-
an meðallags 1991 til 2020, segir
Trausti. Fimm vetur á öldinni
voru lítillega kaldari en þessi.
Trausti segir að á kalda tímabilinu
1965 til 2000 hafi veturinn verið
meðal hinna hlýrri – enda +0,9
stigum ofan meðallags vetra á
þeim tíma – og hitinn nú er meira
að segja +0,2 stigum ofan með-
allags vetra hlýja tímabilsins 1931
til 1960.
„Þó að veturinn hafi óneitanlega
verið erfiður hvað tíðarfar varðar
er í raun ekki hægt að kvarta
undan hitafari hans – nema því að
almennt má kveina undan vetrar-
hita á Íslandi,“ segir Trausti.
sisi@mbl.is
Mars kaldastur vetrarmánaðanna
Mars kaldur framan af en hlýindi síðustu daga hafa híft meðaltalið upp
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mars Mánuðurinn hefur verið um-
hleypingasamur, kaldur og hlýr.
Fjórir sóttu um stöðu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sem nýverið
var auglýst laus til umsóknar. Umsóknarfrestur rann út á mánudag og á
vef dómsmálaráðuneytisins kemur fram að umsækjendur eru þau Halla
Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, Helgi Valberg
Jensson, aðallögfræðingur Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Hulda
Elsa Björgvinsdóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Jón
H.B. Snorrason, saksóknari við embætti ríkissaksóknara.
Sem kunnugt er var Sigríður Björk Guðjónsdóttir, fyrrverandi lög-
reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, nýverið skipuð ríkislögreglustjóri.
Fjórar umsóknir um stöðu lögreglustjóra
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty
SENDUM FRÍTT UM ALLT LANDTIL 15. APRÍL
Ekkert mál að skipta og skila
Ein stærð
passar á S-XL
Verð 2.650,-
7 litir í boði
EINSTAKLEGA MJÚKAR OG SAUMLAUSAR
NÆRBUXUR
544 5151tímapantanir
Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR
Í LJÓSI AÐSTÆÐNA COVID19
Við hjá Bíljöfur höfum tekið upp nýjar vinnureglur varðandi bifreiðar sem
koma til viðgerða, bæði til að tryggja öryggi starfsmanna og viðskiptavina.
Bifreiðar sprittaðar fyrir og eftir viðgerðir.
Einnig bjóðum við upp á að:
• Fólk borgi reikning með símgreiðslu/millifærslu.
• Bifreið sé sótt heim eða í vinnu til eiganda á höfuðborgarsvæðinu og henni
skilað aftur eftir viðgerð.
Er kominn tími til að fara með bílinn í bifreiðaskoðun?
Við getum séð um það fyrir þig.
Sjá nánara fyrirkomulag á facebooksíðunni okkar
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/