Morgunblaðið - 01.04.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 01.04.2020, Síða 10
Fossvogsbrú Innkaupaferli hefur verið stöðvað um stundarsakir. Kærunefnd útboðsmála hefur stöðv- að forval fyrir hönnunarsamkeppni vegna brúarsmíði yfir Fossvog vegna ágalla á framkvæmd þess. Um er að ræða tvo aðskilda úrskurði sem beinast að því hvernig Vega- gerðin, Reykjavíkurborg og Kópa- vogsbær hafa haldið á málum. Ann- ars vegar kæru Ferils ehf. sem krafðist að hönnunarsamkeppni verði stöðvuð og mat á hæfi hönn- unarteymis Ferils verði endurtekin. Hins vegar er um að ræða kæru Úti og inni sf., Verkfræðistofu Suð- urnesja ehf., Aas-Jakobsen, Land- mótunar sf. og Liska ehf. Þessi fyrirtæki krefjast þess að samnings- gerð við sex hópa umsækjenda sem valdir voru í forvalinu verði stöðvuð og að felld verði úr gildi ákvörðun um val á þeim. Í úrskurði nefndarinnar segir að þær forsendur sem skyldu ráða vali þátttakenda hafi verið verulega matskenndar og stigagjöf byggði jafnframt að nokkru leyti á huglægu mati kaupenda á umsóknum þátt- takenda. „Gögn málsins bera með sér að til stiga hafi verið metnir þættir sem ekki var upplýst um eða mátti greina af forvalsgögnum,“ seg- ir í úrskurðinum. „Þegar af þessari ástæðu verður að miða við, eins og mál þetta liggur fyrir nú, að kærendur hafi leitt veru- legar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup við framkvæmd forvalsins sem geti leitt til ógild- ingar ákvörðunar eða annarra at- hafna varnaraðila [...]. Verður því fallist á kröfu kærenda um að hið kærða innkaupaferli verði stöðvað um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru í máli þessu,“ segir enn fremur. hdm@mbl.is Stöðva forval brúar- smíði yfir Fossvog  Verulegar líkur eru taldar vera á broti gegn lögum um opinber innkaup 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-150 Lariat Sport Litur: Svartur, svartur að innan. FX4 offroad- pakki, Sport-pakki, bakkmyndavél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart o.fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb-ft of torque. VERÐ 12.770.000 m.vsk 2019 RAM Limited 3500 35” Litur: Pearl red/ Svartur að innan. 6,7L Cumm-ins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund. Einn með öllu: RAM box, Aisin sjálfskipting, dual alternators 440 amps, loftpúðafjöðrun, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. VERÐ 11.980.000 m.vsk 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Dark Sky Metallic/ Dark walnut að innan. 2020 GMC Denali, magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira. VERÐ 12.490.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 Ford F-350 Lariat Sport Kominn með 10 gíra Allison sjálfskipt- ingu! Litur: Star white, svartur að innan, 6,7L Diesel ,475 Hö, 1050 ft of torque. Með Sport-pakka, Ultimate-pakka, FX4 offroad pakka, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, lyklalaust aðgengi, Bang Olufssen hljómkerfi, trappa í hlera. VERÐ 12.280.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ ATH. ekki „verð frá“ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson hafa tekið sig vel út undanfarið við bryggju- kantinn við Fornubúðir í Hafnar- firði, þar sem framtíðaraðsetur Haf- rannsóknastofnunar verður. Áætlun fyrir skip stofnunarinnar hefur tekið nokkrum breytingum síðustu daga eða síðan rannsóknaskipin komu úr marsralli eða togararalli. Þannig er ljóst að eitt leiguverkefni fellur niður með tilheyrandi tekjutapi og öðru hefur verið frestað, að sögn Sigvalda Egils Lárussonar, fjármálastjóra Hafrannsóknastofnunar. Bretar fresta leiðangri Breskur háskóli ætlaði að leigja Árna Friðriksson núna í apríl til rannsókna í Breiðafirði, en er skól- inn setti ferðabann á starfsmenn sína vegna kórónuveikinnar frestað- ist verkefnið. Nú er miðað við að far- ið verði í það í ágústmánuði. Ekkert verður af leigu á Árna Friðrikssyni til norsku hafrann- sóknastofnunina sem var fyrirhuguð í júní. Ástæðan er hagræðingarað- gerðir og fækkun skipadaga hjá norsku stofnuninni. Árni Friðriks- son var leigður í sambærileg verk- efni í fyrra, alls í 49 daga, og í ár áttu dagarnir að verða 30 talsins. Áætlað tekjutap Hafrannsóknastofnunar vegna þessa er um 100 milljónir króna. Minni breytingar hafa orðið á áætlun Bjarna Sæmundssonar, en hann fer á morgun í stuttan kvörð- unartúr. Eftir páska er fyrirhugað að hann fari í rannsóknir á rækju við Sæfellsnes. Að sögn Sigvalda er miðað að starfsemi Hafrannsóknastofnunar flytjist í nýjar höfuðstöðvar í maí- mánuði. Í vikunni tekur stofnunin við skemmu fyrir veiðarfæri og ann- að sem fylgir útgerð rannsóknaskip- anna við Fornubúðir. Þessa dagana starfa langflestir starfsmenn Hafró heima við, að undanskildum m.a. „kvarnalesurum“ sem vinna úr gögnum úr togararalli. Breytingar á leiguverkefn- um Hafrannsóknastofnunar  Norðmenn hag- ræða og hætta við Morgunblaðið/sisi Fornubúðir Skip Hafrannsóknastofnunar við bryggju í Hafnarfirði. Stofn- unin fær í vikunni skemmu til notkunar fyrir það sem fylgir útgerðinni. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Olíufélögin hafa hækkað álagningu sína verulega að undanförnu, enda hefur eldsneytisverð ekki fylgt heimsmarkaði og gengisþróun að öllu leyti. Þetta segir Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Algengt verð á bensíni á þjón- ustustöðvum olíu- félaganna á höf- uðborgarsvæðinu var í gærmorgun 218,90 kr. svo sem í Borgartúni í Reykjavík en 211,90 kr. til dæmis í Kópavogi og Hafnarfirði. Hjá Costco kostaði bensínlítrinn 180,90 kr. Aukin framleiðsla og minni eftirspurn „Meðalálagning olíufélaganna á hvern seldan bensínlítra í febrúar var ríflega 46 kr. en um 60 kr. í mars,“ segir Runólfur. „Heimsmark- aðsverð hefur farið lækkandi, meðal annars vegna aukinnar framleiðslu í Sádi-Arabíu og minni eftirspurnar sem má rekja til kórónufaraldursins. Þegar olíuverð á heimsvísu fer lækk- andi er ef til vill auðveldara hér inn- anlands að fela hærri álagningu, sem klárlega er veruleikinn.“ Vegna kórónufaraldursins hefur umferð á vegum landsins dregist mikið saman á síðustu dögum, eða um 21% séu marsmánuður í fyrra og í ár bornir saman. Sú staðreynd end- urspeglast svo í minni sölu á elds- neyti, eins og forstjórar tveggja olíu- félaga lýstu í Morgunblaðinu í gær. „Þegar viðskipti dragast saman er þekkt viðbragð kaupamanna að lækka verð og skapa viðspyrnu þannig. Slíkt höfum við séð forsvars- menn fjölda fyrirtækja gera að undanförnu og þetta gætu forsvars- menn olíufélaganna haft í huga núna við þessar mjög svo óvenjulegu að- stæður sem eru ríkjandi,“ segir Run- ólfur. Hann bendir á að svigrúmið til frekari verðlækkana sé umtalsvert, sbr. lækkun um 35 ísl. kr. á lítranum í Danmörku í nýliðnum marsmánuði. Á Íslandi sé lækkunin hins vegar að meðaltali 18 krónur á lítra. Því segi sig sjálft að frekari verðlækkanir séu líklegar, það er að segja ef markaðs- lögmálin virki eðlilega á Íslandi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dælt Fyllt á bílinn á Olísstöð. Umferð hefur dregist mikið saman og þess sér líka stað í minni eldsneytiskaupum. Eldsneytisverð ekki fylgt heimsmarkaði og gengi  Álagning hefur hækkað um 14 krónur milli mánaða 167 189193 Bensínverð á Íslandi í janúar til mars 2020 245 225 205 185 165 145 125 105 65 60 55 50 45 40 35 30 janúar 2020 febrúar 2020 mars 2020 Meðalverð, sjálfsafgreiðsla, kr/lítra Innkaup með opinberum gjöldum, kr/lítra Skattar, kr/lítra Útsöluverð mínus kostnaðarverð, kr/lítra 241 237 228 132 131 130 48 48 130 Heimild: FÍB Runólfur Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.