Morgunblaðið - 01.04.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 01.04.2020, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 2020 Litina hennar Sæju færð þú í Slippfélaginu GÆÐIN Ein af ástæðum þess að íslenskir hönnuðir velja Slippfélagið. Votur Volgur Ber Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík, Dalshrauni 11, Hafnarfirði Hafnargötu 54, Reykjanesbæ Gleráreyrum 2, Akureyri Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Sími 588 8000 • slippfelagid.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, Sölvhólsgötu 7, Reykjavík. Efni: Hlutfallsregla miskataflna örorkunefndar frá júní 2019. Starfs- hættir örorkunefndar. Ráðherra- ábyrgð. Í 2. 3. og 4. málsgreinum 10. greinar skaðabótalaga er kveðið á um örorkunefnd og í greinargerð með 2. mgr. 4. greinar laganna. Í reglugerð nr. 335/1993 er kveðið á um starfshætti örorkunefndar. Í 3. mgr. 10. greinar skaðabóta- laga segir að örorkunefnd skuli semja töflur um um miskastig. Með 9. grein laga nr. 37/1999 var gerð sú breyting á 10. grein skaða- bótalaga, að álit örorkunefndar var ekki lengur fyrsti áfangi við ákvörð- un miska og varanlegrar örorku á líkamstjóni vegna slysa. Varð nú heimilt að biðja um möt á afleið- ingum slysa utanréttar og án þess að leita til nefndarinnar. Í matsgerðum sjálfstætt starfandi lækna við að meta miska vegna lík- amstjóns fór að bera á því á árunum eftir 1999, þe. eftir breytinguna sem gerð var með 9. grein laga nr. 37/ 1999, að bandarísku miskatöflurnar væru notaðar við mat á miska, með vísan til þess, að samkvæmt íslensku miskatöfunum er vísað í þær töflur, sem helsta hliðsjónarrit örorku- nefndar við samningu íslensku miskataflanna. Hafa margir íslensk- ir læknar sem starfa hér á landi við örorkumöt menntað sig í Bandaríkj- unum í bandarísku miskatöflunum og titla sig „CIME“ sem staðfestir námskeið hjá bandarísku nefndinni og kunnáttu læknanna í notkun þessarra taflna. Með dómi Hæstaréttar Íslands, frá 14.3. 2013, í málinu nr. 608/2012, er kveðið á um, að bannað sé að nota bandarísku miskatöflunar við mat á miska samkvæmt íslensku skaða- bótalögunum, en svo segir um þetta í dómnum: „Í 3. mgr. 10. greinar skaðabóta- laga er kveðið á um að eitt hinna lög- bundnu hlutverka örorkunefndar sé að semja töflur um miskastig. Regl- ur skaðabótalaga um varanlegan miska eiga sér fyrirmynd í dönskum lagareglum um sama efni. Miska- tafla örorkunefndar hefur í stórum dráttum svarað til danskrar töflu um mat á varanlegum miska sem þó hef- ur í ýmsum efnum verið ítarlegri. Í framkvæmd hefur verið litið til mats á varanlegum miska samkvæmt dönsku miskatöflunni þegar hinni ís- lensku sleppir. Þessi framkvæmd hefur stoð í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi til skaðabótalaga þegar það var lagt fram á Alþingi. Á hinn bóginn liggur ekki fyrir að unnt sé að styðjast við þá bandarísku töflu um mat á varanlegri örorku (permanent impairment) sem dóm- kvaddir menn vísa til í matsgerð sinni enda ekkert upplýst um hvort sömu forsendur liggja henni til grundvallar og miskatöflu örorku- nefndar. Tilvísun til hinnar banda- rísku örorkutöflu í matsgerðinni verður, þrátt fyrir vísan matsmanna til þess að niðurstaða þeirra sé feng- in með hliðsjón af miskatöflu ör- orkunefndar, ekki skilin á annan veg en þann að fyrrnefnda taflan hafi haft áhrif á matið. Þegar af þessari ástæðu er ekki hægt að byggja á matsgerð dómkvaddra matsmanna við mat á sönnun um varanlegan miska áfrýjanda vegna líkamstjóns- ins.“ Niðurstaða Hæstaréttar Íslands í ofangreindum dómi er að það hafi ekki réttarlega þýðingu að nota bandarísku miskatöflurnar til hlið- sjónar við sönnun á miska, sam- kvæmt 4. grein íslensku skaðabóta- laganna. Ekki megi fara eftir bandarísku miskatöflunum. Þrátt fyrir þessa skýru afstöðu æðsta dómstóls þjóðarinnar leyfði örorkunefnd sér í júní síðastliðnum að gefa út nýja miskatöflu, með þeim breytingum, að við mat á miska sam- kvæmt 4. grein skaðabótalaga skuli styðjast við bandarísku miskatöfl- urnar. Nú er VIII. kafli íslensku miska- töflunnar hlutfallsregla bandarísku miskatöflunnar. Hefur það þá afleið- ingu að miski vegna líkamstjóna, þegar tjónþolar verða fyrir svoköll- uðum fjöláverkum, þ.e. áverkum á fleiri en einn líkamshluta (líffæri) í sama slysinu, að metinn miski vegna áfleiðinga áverkanna í flestöllum til- vikum verður mun lægri, þegar hlut- fallsreglunni er beitt, en án hennar. Þá er þessi aðferðafræði ekki í samræmi við skýrar leiðbeiningar með dönsku miskatöflunum sem far- ið hefur verið eftir hér á landi við mat á miska. Þar er höfuðreglan að verði líkamstjón á aðskildum líkams- hlutum, til dæmis á hálsi og á fæti í sama slysi, að miskamatið á háls- inum er óháð miskamatinu á fæt- inum. Sé bandarísku hlutfallsregl- unni hins vegar beitt lækkar metinn miski á fætinum miskamatið vegna hálsáverkans og miskamatið á háls- inum miskamatið vegna fótaráverk- ans og bætur fyrir líkamstjón vegna slysa lækka verulega, þar sem lækk- un á miska lækkar samkvæmt venju einnig mat á varanlegri örorku. Hér er því haldið fram að hlut- fallsregla örorkunefndar gangi í ber- högg við lög og sé brot á lögmæt- isreglunni, þeim réttarheimildum og þeirri réttarvenju sem sem gilt hafi við mat á varanlegu líkamstjóni hingað til hér á landi, en í því efni verður að hafa í huga, að réttindi manna er lúta að líkama og heilsu njóta stjórnskiplegrar rétt- arverndar. Hæstiréttur Íslands hefur svarað því í málinu nr. 13/2004, frá 12. 6. 2014, að örorkunefnd sé stjórnvald í merkingu 2. mgr. 1. greinar stjórn- sýslulaga nr. 37/1993. Spurningin er því sú hver hafi verið valdbærni ör- orkunefndar til að setja téða hlut- fallsreglu. Þegar horft er til settra laga um örorkunefnd, svo sem 3. mgr. 10. greinar skaðabótalaga, segir þar að- eins, að örorkunefnd skuli semja töflur um miskastig. Í reglugerð um starfshætti nefndarinnar, nr. 335/ 1993, er ekki kveðið nánar á um þessi atriði. En af þessu má ráða að staða nefndarinnar gagnvart yf- irstjórnunar- og eftirlitsheimildum ráðherra er ekki ótvíræð, til að taka slíka ákvörðun andstæða lögum, sem hlutfallsreglan er. Í ljósi þess að ákvarðanir stjórn- valda verði ávallt að hafa heimild í settum lögum gæti komið til ábyrgð- ar ráðherra, skerist ráðherra ekki í leikinn og afnemi hlutfallsregluna, en með afskiptaleysi um málið væri ráðherra að viðurkenna valda- framsal sem skert gæti réttaröryggi borgaranna en frekar. Leysir það ráðherra hins vegar ekki undan ábyrgð þar sem efni stjórnvaldsákvarðana verður á öll- um tímum að vera bæði rétt og lög- mætt. Mætti því segja að með af- skiptaleysinu væri svokölluð öryggisregla stjórnsýsluréttar brot- in sem er ein hin æðsta regla stjórn- sýsluréttarins til að réttinda borg- aranna verði gætt. Virðingarfyllst. Opið bréf til dómsmálaráðherra Eftir Steingrím Þormóðsson, Þormóð Skorra Steingrímsson og Fjölni Vilhjálmsson »Mætti því segja að með afskiptaleysinu væri svokölluð örygg- isregla stjórnsýslu- réttar brotin sem er ein hin æðasta regla stjórnsýsluréttarins til að réttinda borgaranna verði gætt. Steingrímur Þormóðsson Höfundar eru lögmenn á lögmannsstofunni Lögmenn Árbæ. Skorri Steingrímsson Fjölnir Vilhjálmsson Grunnskólar á Ís- landi búa enn við mikla miðstýringu þó að ýmsir ráðamenn haldi öðru fram. Al- mennt er talið að sjálfstæði og ábyrgð eigi að fara saman enda leiðir það til aukinnar ánægju allra sem málið snertir og mun betri árangurs í starfi. Rannsóknir á stjórnun skóla sýna að þegar sjálfstæði og ábyrgð skólastjórnenda er aukin leiðir það til betri árangurs nemenda og vax- andi ánægju starfsmanna. Árangur og sjálfstæði skóla Árum og áratugum saman hefur verið talað um aukið sjálfstæði skóla en minna hefur því miður bor- ið á breytingum í þá átt í skólakerf- inu á Íslandi. Nú þegar nokkuð er liðið á 21. öld er full ástæða til að taka málið nýjum tökum og reyna ýmsar úrbætur. Þær þjóðir sem komnar eru mun lengra en við í skólamálum og náð hafa betri ár- angri eiga það sameiginlegt að hafa stóraukið sjálfstæði skóla sinna á síðustu árum og áratugum. Það er eðlilegt að horfa til þeirra varðandi starfs- og stjórnunarhætti. Valddreifing Í þessu skyni má hafa til leið- sagnar hugmyndafræði um vald- dreifingu til skólastjóra og starf- manna þeirra (Decentralization and Schoolbased-management). Um þessa hugmyndafræði hafa verið ritaðar margar áhugaverðar bækur og greinar. Í grundvall- aratriðum er hugsunin sú að sem flestir starfsmenn hafi ákveðið sjálfstæði til framtaks og virkni en beri jafnframt vel skilgreinda ábyrgð. Samráð Hefja þarf skipulega umræðu á meðal stjórnvalda, skólanefnda, stjórnenda og starfsmanna skóla og foreldra um aukið sjálfstæði skól- anna og skoða hvaða leiðir eru fær- ar. Ætla þarf góðan tíma til um- ræðna og samráðs áður en farið er að marka tillögur til úrbóta. Í þessu sambandi er vert að geta þess að hin fyrstu ár eftir stofnun Fjöl- brautaskólans í Garðabæ árið 1984, sá Garðabær um allan almennan rekstur skólans annan en launa- kostnað. Garðabær gerði merkilega tilraun þegar skólanum var falið að sjá um reksturinn. Bærinn greiddi mánaðarlega ákveðna fjárhæð inn á reikning skólans, sem sá um ráð- stöfun fjár, að greiða reikninga og færa bókhald sem var síðan yfirfar- ið hjá bænum. Þessi tilraun tókst svo vel að ríkið notaði þessa aðferð á nær alla framhaldsskóla landsins. Með aukinni ábyrgð og sjálfstæði fylgir valdefling stjórnenda sem oftar en ekki eykur metnað og al- menna starfsánægju. Aukið sjálfstæði skóla á 21. öld Eftir Þorstein Þor- steinsson og Gunn- laug Sigurðsson Þorsteinn Þorsteinsson »Rannsóknir á skóla- stjórnun sýna að aukið sjálfstæði og ábyrgð skólastjórnenda leiðir til betri árangurs nemenda og vaxandi ánægju starfsmanna. Höfundar eru fyrrverandi skóla- stjórnendur í Garðabæ. thorsteinn2212@gmail.com Gunnlaugur Sigurðsson Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.