Morgunblaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.04.2020, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tap Rekstur álversins í Straumsvík hefur gengið brösulega síðustu ár. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Rio Tinto leitar nú allra leiða til að draga úr tapi sínu af rekstri álvers- ins í Straumsvík. Heimildir Morg- unblaðsins herma að ein sviðsmynd sem nú er unnið með gangi út á að stöðva framleiðsluna í tvö ár í von um að á þeim tíma muni alþjóðlegir markaðir með ál hafa jafnað sig. Ál- verið tapaði tæpum 13 milljörðum í fyrra og lagðist það tap ofan á sjö ára taprekstur árin þar á undan. Forsvarsmenn Rio Tinto telja að ein af forsendum þess að hægt verði að halda starfseminni áfram gangandi sé að raforkukaupasamningur við Landsvirkjun verði endurskoðaður. Er framlenging nýs kjarasamnings sem gerður hefur verið við starfs- fólk álversins bundin því skilyrði að nýr samningur takist við orku- fyrirtækið. Heimildir Morgunblaðsins herma að samhliða tilraunum til að ná nýj- um samningi undirbúi lögfræðingar Rio Tinto málaferli gegn Lands- virkjun sem ætlað er að losa fyrir- tækið undan stórum hluta þeirrar kaupskyldu á rafmagni sem fyrir- tækið er undir. Meðal þess sem þar er horft til séu meint vörusvik Landsvirkjunar. Rio Tinto hafi keypt raforkuna á þeim forsendum að hún væri framleidd með vatnsafli en frá árinu 2014 hafa raforkureikn- ingar frá Landsvirkjun sýnt að ork- an sé framleidd með kjarnorku- og kolavinnslu. Skýrist það af sölu svo- kallaðra upprunavottana sem Landsvirkjun hefur haft milljarða tekjur af á síðustu árum. Óviss framtíð álversins  Rio Tinto skoðar þann möguleika að loka álverinu í Straumsvík í tvö ár  Nýr kjarasamningur bundinn því skilyrði að Landsvirkjun semji upp á nýtt MSkoða lokun til tveggja ára »12 Þ R I Ð J U D A G U R 7. A P R Í L 2 0 2 0 Stofnað 1913  83. tölublað  108. árgangur  MARGT Í LÍFINU MIKILVÆGARA EN FÓTBOLTI AÐSTÆÐUR KALLA Á ÖÐRU- VÍSI LAUSNIR SÁLFRÆÐIKENN- INGAR Á SÖGU- PERSÓNUR 200 MÍLUR 24 SÍÐUR DOKTOR Í VIGDÍSI 28GLÓDÍS Í SVÍÞJÓÐ 26 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Við erum komin með það sem við þurfum í bili,“ sagði Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofn- unar Vestfjarða (HVEST), um liðsauka sem stofnuninni barst í gær. Þyrla Landhelgis- gæslunnar TF-GRO flutti tíu úr bakvarðasveit heilbrigðiskerfisins til Ísafjarðar, hjúkrunar- fræðinga og sjúkraliða. Gylfi sagði að fimm aðrir væru einnig komnir í hópinn þannig að liðsauk- inn væri orðinn um fimmtán manns. Með þyrl- unni komu einnig sýnatökupinnar og andlits- maskar. Nokkrir tugir sýna voru fluttir til Reykjavíkur í gær með þyrlunni. Auk þess fóru sýni frá sunnanverðum Vestfjörðum með flugi frá Bíldudal. Gylfi sagði að það fylgdi því mikill léttir að hafa náð utan um mannahaldið. Þá var útlit fyrir að náðst hefði utan um smitrakningu og smitin á Ísafirði og í Bolungarvík. Hertar aðgerðir tóku gildi í gær á Flateyri, Suðureyri, Súðavík og Þingeyri þannig að sömu takmarkanir gilda nú á öllum norðanverðum Vestfjörðum. Þar á meðal er samkomubann fyrir fleiri en fimm manns. Sjúklingur var fluttur á sjúkrahúsið á Ísa- firði í gær með einkenni um kórónuveirusmit. Ákveðið var að flytja hann á Landspítalann og fór hann suður með sjúkraflugvél í gærkvöld. Í gær höfðu greinst 42 smit á Vestfjörðum og 335 voru í sóttkví. Flestir þeirra sem voru í sóttkví bjuggu í Bolungarvík eða 242 íbúar. Þar höfðu 34 lokið sóttkví. Fimm voru í sóttkví á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík, tveir höfðu greinst smitaðir og þrír voru í einangrun vegna sjúkdómseinkenna. Beðið er niðurstaðna úr sýnatöku. Fimmtán starfsmenn HVEST voru í ein- angrun í gær, sex höfðu greinst með kór- ónuveirusmit og fimmtán voru í sóttkví. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bakverðir Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti heilbrigðisstarfsfólk til Ísafjarðar. Hjá HVEST eru 36 starfsmenn í sóttkví, einangrun eða smitaðir. Langþráður liðsauki  Tíu hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar til liðs við Heilbrigðisstofnun Vest- fjarða  Í gær voru 335 Vestfirðingar í sóttkví, þar af 242 í Bolungarvík MKórónuveiran »2-6, 10, 13-15  Dregið hefur úr pöntunum á sjávarafurðum sem Icelandic Asia, dótturfélag Brims, selur í As- íu í kjölfar út- breiðslu kór- ónuveirunnar. Agnes Guð- mundsdóttir, markaðs- og sölustjóri félagsins, segir mikilvægt að breyta áherslum til þess að mæta þessari áskorun, meðal annars með því að færast fjær heildsölu og nær neytandanum með netsölu og sölu í matvöruverslunum. »200 mílur Leita nýrra tæki- færa í samdrætti Agnes Guðmundsdóttir Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Ef ekkert verður að gert gæti svo farið að um helmingur ferðaþjón- ustufyrirtækja hér á landi yrði gjaldþrota. Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustu (SAF). Að sögn hans fer staðan versnandi dag frá degi. Fátt bendi til annars en að næstu mánuðir verði tekjulausir. „Almennt sjá fyrirtækin fram á al- gjört tekjuhrun næstu þrjá mánuði hið minnsta. Raunhæft séð er ekki hægt að ná tekjuháönn fyrr en sum- arið 2021,“ segir Jóhannes og bætir við að til að bregðast við ástandinu þurfi að grípa til afgerandi aðgerða. Fyrsti aðgerðapakki ríkisstjórnar- innar hafi aflétt ákveðinni óvissu, sem þó verði að teljast skammgóður vermir. „Að hluta til má segja að óvissan haldi áfram enda er um frestun að ræða. Fyrirtæki sem ekki á peninga til að greiða opinber gjöld og skatta í dag mun ekki eiga neina möguleika á því að vera í betri stöðu eftir þrjá mánuði. Það liggur því alveg ljóst fyrir út frá stöðunni að fella þarf nið- ur eitthvað, og í raun eins mikið og hægt er, af opinberum gjöldum og sköttum,“ segir Jóhannes. »6 Morgunblaðið/Eggert Tómlegt Fáir eru á ferli í miðborg Reykjavíkur þessa dagana. Kallar á afgerandi aðgerðir  Algjört tekjuhrun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.