Morgunblaðið - 07.04.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020
Fjarþjónusta
fyrir betri heyrn
ReSound Smart3D
Afgreiðslutími 10:00-14:00 • Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Við bendum þeim á sem komast ekki í heyrnarþjónustu til okkar
að nýta sér forritið ReSound Smart3D í snjalltækjum
og fá þar heyrnartækin sín fínstillt og uppfærð.
Með fjarþjónustunni er snjalltæki notað til að senda
heyrnarfræðingum beiðni um að breyta stillingu ReSound Linx 3D
og Quattro heyrnartækjanna.
Við svörum eins fljótt og auðið er.
Nánari upplýsingar er á finna á www.heyrn.is eða í síma 534 9600.
Niðurstöður könnunar Samtakaatvinnulífsins, sem Morgun-
blaðið sagði frá í gær, eru
ískyggilegar. Könnunin er gerð
meðal forsvarsmanna fyrirtækja
og telja 90% þeirra að tekjur muni
minnka á milli ára á öðrum fjórð-
ungi ársins, að meðaltali um helm-
ing.
Hjá 80% fyrirtækjanna minnk-uðu tekjurnar í mars og var
samdrátturinn 36% að meðaltali.
Samkvæmt þessu telja forsvars-
menn fyrirtækja ástandið fara
versnandi. Þá áætla forsvarsmenn
fyrirtækja verulegar uppsagnir og
þeirra hefur þegar séð stað.
Ekki er síst áhugavert að sjáhve langvarandi þessir aðilar
telja að áhrif kórónuveirufarald-
ursins verði. Innan við 10% telja
að áhrifanna muni aðeins gæta í
einn til tvo mánuði, en 37% telja
að þetta tímabil muni vara í átta
mánuði eða lengur. Aðrir eru
þarna á milli, líta á þetta sem
nokkurra mánaða áfall.
Um þetta veit auðvitað enginnfyrir víst, en þessi niðurstaða
sýnir alvöru málsins og í það
minnsta hve miklar áhyggjur for-
svarsmenn fyrirtækja hafa.
Svo er að sjá sem sumir í for-ystu launþegasamtakanna hafi
minni áhyggjur eða að þeir telji ef
til vill að staða fyrirtækjanna hafi
lítið eða ekkert með kjör starfs-
manna fyrirtækjanna að gera.
Það er þá alveg stórfurðulegsýn á samspil atvinnulífs og
kjara launamanna.
Hvernig getur sýn-
in verið svo ólík?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Innrennsli í miðlanir Landsvirkj-
unar á hálendinu hefur verið mjög
slakt í vetur, enda hefur tíðin verið
mög óhagstæð.
Á Þjórsársvæði hefur veturinn
verið kaldur og mjög þurr og inn-
rennsli með minnsta móti, segir í
frétt á heimasíðu Landsvirkjunar.
Yfirborð Þórisvatns er nú rúmum
fimm metrum lægra en það var í
byrjun apríl í fyrra.
Við Blöndu hefur staðan verið lítið
betri. Vatnsyfirborð Blöndulóns er
nú um einum metra lægra en það
var á sama tíma í fyrra. Innrennsli á
Austurlandi hefur komið best út en
hefur samt verið undir meðallagi,
segir Landsvirkjun. Vatnsyfirborð
þessa mikla lóns er nú um átta metr-
um lægra en það var í byrjun apríl í
fyrra.
Niðurdráttur miðlunarlóna hófst
upp úr miðjum október og hefur ver-
ið eindreginn síðan. Vetrarblotar
hafa ekki náð upp á hálendið og
staða miðlunarforða í lok vetrar er
undir meðallagi. Staðan nú um 700
GWh verri en á sama tíma í fyrra.
Í hönd kemur óvissa um tíðarfar
og tímasetningu vorflóða. Þrátt fyrir
stöðuna nú telur Landsvirkjun að
ekki þurfi að grípa til sérstakra ráð-
stafana til að spara vatn í miðlunar-
lónum og ef tíðarfar verður hagfellt í
sumar muni miðlunarlón ná að fyll-
ast í haust. sisi@mbl.is
Mjög hefur gengið á vetrarforðann
Innrennsli í miðlanir Landsvirkjunar á hálendinu hefur verið slakt í vetur
Morgunblaðið/RAX
Hálslón Mun minna vatn en í fyrra.
Gissur Sigurðsson
fréttamaður lést á
Landspítalanum laug-
ardaginn 5. apríl síð-
astliðinn, 72 ára að
aldri, eftir stutta
sjúkrahúslegu vegna
lungnasjúkdóms.
Gissur fæddist 7.
desember 1947 í
Hraungerði í Flóa.
Foreldrar hans voru
Stefanía Gissurardóttir
og séra Sigurður Páls-
son vígslubiskup og var
Gissur næstyngstur sjö
systkina. Níu ára gam-
all flutti Gissur með fjölskyldu
sinni á Selfoss og átti heima þar í
bæ fram undir tvítugt.
Á unglingsárum starfaði Gissur
við hin ýmsu störf til sjós og lands,
stundaði flugnám og aflaði sér rétt-
inda sem einkaflugmaður.
Hinn 1. október 1970 hóf Gissur
störf sem blaðamaður á Alþýðu-
blaðinu og starfaði þar í tæplega
fjögur ár. Var svo um skeið rit-
stjóri Sjávarfrétta, en kom til
starfa á Dagblaðinu í byrjun árs
1976. Gissur varð fréttamaður á
Ríkisútvarpinu árið 1984 og gat sér
þar orð meðal annars fyrir ýmsar
mannlífs- og sjáv-
arútvegsfréttir. Hann
færði sig svo yfir á
Bylgjuna 1997 og
starfaði þar fram á
síðasta ár. Þar var
hann umsjónarmaður
morgun- og hádeg-
isfrétta í um ald-
arfjórðung. Vakti þar
eftirtekt og naut hylli
fyrir skemmtilega
pistla og frásagn-
argleði í morgunþætt-
inum Í bítið hjá þeim
Heimi Karlssyni og
Gunnlaugi Helgasyni.
Til hliðar við fréttamennskuna
kom Gissur meðal annars að gerð
fræðslu- og kynningarefnis og
greinaskrifum. Þá brá leikaranum
Gissuri fyrir sem vofu Hauks Mort-
hens söngvara í myndinni Úr ösk-
unni í eldinn sem sýnd var í sjón-
varpi árið 2000.
Gissur lætur eftir sig fjögur
börn, sem eru Guðbjörg útgefandi,
Gissur Páll óperusöngvari, Jón
Grétar, kvikmynda- og þáttagerð-
armaður, og Hrafnhildur, myndlist-
armaður og sýningarstjóri. Fóst-
urdóttir Gissurar er Helga
Auðardóttir sálfræðingur.
Andlát
Gissur Sigurðsson