Morgunblaðið - 07.04.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
544 5151tímapantanir
Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR
Í LJÓSI AÐSTÆÐNA COVID19
Við hjá Bíljöfur höfum tekið upp nýjar vinnureglur varðandi bifreiðar sem
koma til viðgerða, bæði til að tryggja öryggi starfsmanna og viðskiptavina.
Bifreiðar sprittaðar fyrir og eftir viðgerðir.
Einnig bjóðum við upp á að:
• Fólk borgi reikning með símgreiðslu/millifærslu.
• Bifreið sé sótt heim eða í vinnu til eiganda á höfuðborgarsvæðinu og henni
skilað aftur eftir viðgerð.
Er kominn tími til að fara með bílinn í bifreiðaskoðun?
Við getum séð um það fyrir þig.
Sjá nánara fyrirkomulag á facebooksíðunni okkar
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ný 93 metra brú yfir Þverá í Rangárvallasýslu hefur
nú verið opnuð fyrir umferð. Brúin tengir saman Odda-
hverfi á Rangárvöllum og svonefnda Bakkabæi sem
eru um tíu talsins og sunnan við Þverá. Bæir þessir
eru í Rangárþingi ytra og brúin því innansveitarvegur
og tenging innan sveitarfélags. Landfræðilega eru
Bakkabæirnir þó í Landeyjunum sem eru hluti af
Rangárþingi eystra. Hugsanleg skýring á tengslum
Bakkabæja við Rangárvelli og Rangárþing ytra en ekki
Landeyjar er að Þverá hafi fyrrum runnið sunnan við
bæina en svo leitað í nýjan farveg.
Samstarf sveitarfélags og Vegagerðar
Um þrjú ár eru síðan brúargerðin hófst, en verkið
var tekið í áföngum og allra leiða til hagkvæmni leitað.
Heildarkostnaður við verkið er 170
milljónir króna. Þar greiðir sveitar-
félagið 50 milljónir en Vegagerðin
120 milljónir. Brúin er með timbur-
gólfi og er einbreið í sparnaðarskyni.
Er þó þannig hönnuð að lítið mál
verður að breikka hana til dæmis ef
umferð eykst eða aðrar aðstæður
kalla.
„Samstarf sveitarfélags og ríksins
í svona verkefnum er óvenjulegt en
þó ekki einsdæmi. Við töldum verk-
efnið hins vegar mikilvægt, þannig að sveitarfélagið
yrði ein heild, og í öryggisskyni var mikilvægt að bæta
tengingar Bakkabæja við Rangárvelli,“ segir Ágúst
Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra.
Áformað er að opna Oddabrú formlega þegar
samkomubanni lýkur.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Brú Leiðin er greið frá Odda og yfir nýju brúna á Þverá sem verður opnuð formlega þegar samkomubanni lýkur.
Oddabrúin nýja er nú
opin fyrir umferð bíla
Samgöngubót Bakkabæir tengjast við Rangárvellina
Ágúst
Sigurðsson
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Margir framhaldsskólar á höf-
uðborgarsvæðinu, þar á meðal
Menntaskólinn í Reykjavík, Versl-
unarskóli Íslands, Fjölbrautaskólinn
í Garðabæ og Kvennaskólinn, stefna
á að fara til Playa Del Carmen í
Mexíkó í tveggja vikna útskrift-
arferð í maí og júní nk. með viðkomu
í New York í Bandaríkjunum, eins
og mbl.is fjallaði um fyrr á árinu.
Ferðirnar eru farnar í gegnum
ferðaskrifstofuna Trans-Atlantic.
Kórónuveirufaraldurinn er hins-
vegar farinn að setja verulegt strik í
reikninginn, og mögulega verður
ferðunum frestað þar til síðar í sum-
ar.
„Við ætluðum að fljúga út 28. maí
nk.,“ segir Óttar Ómarsson, formað-
ur ferðanefndar Verslunarskólans, í
samtali við Morgunblaðið.
Hann segir að nú sé mikil óvissa
um framhaldið og enginn viti neitt.
Hann segir að Verslingar hafi ver-
ið búnir að greiða staðfestingargjald
og lokagreiðslu hafi átt að greiða í
lok mars. Henni hafi hinsvegar verið
frestað.
„Það er betra að hafa einhverja
ferð en enga,“ segir Óttar, og vísar
þar til mögulegrar frestunar.
„Við stefnum fulla ferð áfram, á að
fara í ferð. Ég hugsa að ef kannski
50 hætta við, og komast ekki síðar í
sumar, þá myndum við hin 200 samt
vilja fara.“ Um er að ræða 12 daga
ferð á svokallað „resort“ með öllu
inniföldu. Kostar ferðin 279.900
krónur.
Óttar segir að það sé súrt hvernig
málin eru að þróast, enda sé búið að
aflýsa mörgum spennandi við-
burðum hjá nemendum á lokaári í
Verslunarskólanum. „Þetta áttu að
vera bestu vikurnar. Í dag [á
fimmtudag í síðustu viku] hefðum
við þriðja árs nemar átt að vera að
leggja af stað til Póllands í hina ár-
legu Helför, sem alla dreymir um að
fara í. Þar ætluðum við að skoða út-
rýmingarbúðirnar í Auschwitch
meðal annars, en við erum í áfanga
sem fjallar um nasismann og helför-
ina.“
Óttar segir að nemendurnir hafi
verið búnir að borga ungverska flug-
félaginu Wizz air 60 þúsund krónur
fyrir ferðina, sem óvíst er hvort og
hvenær fáist endurgreiddar.
200 manns frá MR
Birgitta Rut Skúladóttir Hjörvar,
sem er fulltrúi í bekkjarráði 6.
Bekkjar í MR, segir að nemendur
geti lítið gert annað en beðið og séð
hvað verður. „Við erum búin að
borga staðfestingargjald, og getum
ekki fengið endurgreitt nema ferða-
skrifstofan hætti við ferðina. Við er-
um að velta fyrir okkur hvort við
frestum ferðinni, frekar en að hætta
við.“
Um 200 manns ætluðu að fara í
ferðina frá MR. „Við áttum að fljúga
fimm flugferðir með Icelandair til
New York, og þaðan til Cancun.“
Ómar R. Banine, framkvæmda-
stjóri Trans-Atlantic, segist í samtali
við Morgunblaðið eiga von á að búið
verði að opna á flug til Bandaríkj-
anna um mánaðamótin maí-júní nk.
þegar skólarnir fara í sínar ferðir.
„Við erum engu að síðu að skoða
með að færa ferðirnar fram í ágúst,“
segir Ómar.
Hann segir að allir taki jákvætt í
slíka frestun, nema að engin svör
berist frá Icelandair. „Hótelin í New
York og í Mexíkó, sem og erlenda
flugfélagið, hafa öll tekið jákvætt í
slíkar breytingar.“
Hann segir að Trans-Atlantic geri
allt sem hægt sé til að bjarga mál-
unum. „Veiran hefur verið tiltölu-
lega lítið í Mexíkó, og mér skilst að
hún lifi illa í hita. Við erum að gera
okkur vonir um að hún muni ekki
dreifast mikið þar.“
Ómar segir að hans fólk í Mexíkó
segi að engir túristar séu að koma
þessa dagana þangað, hvorki frá
Evrópu né Bandaríkjunum.
Hann segir að Icelandair hafi lof-
að svari eftir páska, um mögu-
leikann á frestun. „Við rukkum nem-
endurna ekki um lokagreiðslu fyrr
en allt er orðið skothelt.“
Ómar segir að Trans-Atlantic hafi
farið í ferðir til Mexíkó síðan árið
2005, og hann þekki svæðið þar eins
og lófann á sér. „Það er mjög mikil
ánægja með þetta svæði.“
Fyrirtækið er sveigjanlegt
Spurður um rekstrarstöðuna hjá
Trans-Atlantic, í ljósi hins erfiða
ástands vegna veirunnar, segir Óm-
ar að fyrirtækið sé sveigjanlegt.
Tveir starfsmenn vinni fast á skrif-
stofu allt árið, en öðru sé útvistað.
„Svo erum við með 15 fararstjóra.“
Hann segir að fyrirtækið sé einnig
að flytja inn ferðamenn til Íslands,
og hafi nýlega sett þá starfsemi í
sérstakt félag. Engar bókanir komi
þar inn núna fyrir sumarið, og búið
sé afbóka allt fram í maí.
„Þetta er ekki gott ástand.“
Útskriftarferðirnar eru í uppnámi
Framhaldsskólanemar á leið til Mexíkó skoða frestun þar til í ágúst Vikurnar fram undan áttu
að vera bestu vikurnar Vonar að kórónuveirufaraldurinn nái sér ekki mikið á strik í Mexíkó
Mexíkó Baðstrendurnar eru tómlegar þessa dagana vegna veirunnar.
Sól og menning
» Á áfangastaðnum í Mexíkó
geta útskriftarnemendur legið
í sólbaði á ströndinni, skoðað
svæði Maja indjána og pýra-
mída, farið í skemmtigarða og
kynnt sér náttúru og dýralíf.
» Útskriftarferð til Mexíkó
kostar 279.900 krónur, með
öllu inniföldu.
» Hundruð nemenda frá
mörgum skólum á höfuðborg-
arsvæðinu eru skráð.
AFP