Morgunblaðið - 07.04.2020, Qupperneq 11
hjá sérfræðinganefnd um framandi
lífverur sem skipuð er sérfræðingum
frá Náttúrufræðistofnun Íslands,
Landbúnaðarháskólanum, Líf- og
umhverfisvísindastofnun Háskóla Ís-
lands, Hafrannsóknastofnun og
sameiginlegum fulltrúa Skógrækt-
arinnar og Landgræðslunnar.
Auk sýningar og fræðslu verða
kóngulærnar mögulega notaðar
við meðferð á ofsahræðslu við kóngu-
lær. Talið er að þær lifi ekki af nátt-
úrulegar aðstæður hér á landi ef ske
kynni að þær slyppu úr búrum.
Umhverfisstofnun veitti nýverið
aðskilin leyfi til innflutnings á
annars vegar fjórum risa-
kóngulóm (tarantúlum) frá
Þýskalandi og hins vegar fjórum fés-
uglum frá Bretlandi. Fjölskyldu- og
húsdýragarðurinn fær kóngulærnar
til sýnis, að ákveðnum skilyrðum
uppfylltum. Þá fær Sigrún Kærne-
sted Óladóttir leyfi til innflutnings á
fjórum fésuglum til að hafa til sýnis
og fræðslu í sérútbúnu húsi með
áföstu búri.
Báðar umsóknir fengu umfjöllun
Risakóngulær fluttar inn
Umhverfisstofnun gaf einnig leyfi fyrir fjórum fésuglum
Risakónguló Fjórar á leiðinni.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Kjartan Lárus Páls-
son, fararstjóri og
blaðamaður lést á
Landspítalanum síð-
astliðinn föstudag, 3.
apríl, áttræður að
aldri.
Kjartan fæddist í
Keflavík 6. október
1939, sonur þeirra Páls
Ebenesers Sigurðs-
sonar og Ingibjargar
Bergmann Eyvinds-
dóttur. Var elstur
þriggja systkina, sem
bæði lifa bróður sinn.
Eftir að námi við
Melaskólann í Reykjavík lauk réð
Kjartan sig á togara. Sextán ára
munstraði hann sig á norskt farskip
og sigldi til Evrópuhafna, Asíu og
suður fyrir Afríku. Tvítugur hætti
hann svo til sjós, kom í land og
stofnaði fjölskyldu. Gerðist þá
strætisvagna- og leigubílstjóri en
mál þróuðust þannig að hann hellti
sér út í blaðamennsku. Kom þar til
að Kjartan var mikill áhugamaður
um íþróttir og snemma á sjöunda
áratugnum hóf hann að skrifa
íþróttafréttir fyrir Vísi undir
skammstöfunum -klp-. Kjartan
starfaði sem blaðamaður í um 25 ár
og skrifaði á löngum ferli sínum
ýmist íþróttafréttir og almennar
fréttir fyrir Vísi, Tímann og DV.
Kjartan var flakkari í eðli sínu og
svo atvikaðist að hann
gerðist fararstjóri,
fyrst samhliða blaða-
mannsstarfinu en síð-
an tók fararstjórn ann-
að yfir. Kjartan vann
fyrst hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn
og síðar hjá Úrvali-
Útsýn. Hann starfaði
við fararstjórn til að
mynda á Spáni, á Ír-
landi, Hollandi og Taí-
landi.
Kjartan fékk golf-
bakteríuna þegar hann
tók fyrst þátt í firma-
móti blaðamanna árið 1969 og
stundaði þá íþrótt af kappi eftir það.
Hann var liðsstjóri unglingalands-
liðs karla í golfi árið 1973 og á ár-
unum 1979-1986 var hann einvaldur
og liðstjóri karlalandsliðsins í golfi.
Hann átti um tíma Íslandsmet yfir
fjölda af holum í höggi og átti því
sæti í frægðarhöll Einherjaklúbbs-
ins, hvar hann gegndi formennsku
um árabil. Þá var Kjartan gjarnan
fararstjóri í golfferðum Íslendinga
erlendis.
Kjartan lætur eftir sig eiginkonu,
Jónínu S. Kristófersdóttur. Börn
þeirra eru Dagbjört L. Kjartans-
dóttir Bergmann og Jón Bergmann
Kjartansson, sem tók sér lista-
mannsnafnið Ransu. Barnabörnin
eru fimm og barnabarnabörnin sjö.
Andlát
Kjartan L. Pálsson
Frumvarp tveggja þingmanna
Flokks fólksins um breytingar á
höfundalögum fær óblíðar viðtökur
hjá öllum þeim sem sent hafa Al-
þingi umsögn um það.
Frumvarpið, sem borið er fram
af Guðmundi Ingi Kristinssyni og
Ingu Sæland, felur í sér aukinn
rétt húseigenda til að gera breyt-
ingar á eigin húsum og skerðir
jafnframt rétt höfunda mannvirkja.
Í greinargerð segir að markmiðið
sé að ekki þurfi lengur að leita
samþykkis höfundar ef breyta eigi
mannvirki. Þannig geti eigendur
mannvirkja breytt þeim án þess að
þurfa að leita samþykkis annarra.
Eftir sem áður sé vernd höfund-
arréttarins til staðar, enda sé hin
upprunalega hönnun vernduð og
myndir, teikningar og tölvugögn
um hönnunina varðveitt.
Flutningsmenn benda á til sam-
anburðar að ekki sé gert að skil-
yrði þegar tónverk er flutt að að-
eins megi flytja það með þeim
hljóðfærum sem höfundur þess til-
greinir eða í þeirri tóntegund.
Gagnrýna samlíkingu
Í umsögn Bandalags íslenskra
listamanna segir að hugmyndir
flutningsmanna lýsi verulegu skiln-
ingsleysi á höfundarréttarlögum
sem og byggingarlist.
Bent er á að í núgildandi höfund-
arréttarlögum séu fyrir verulegar
heimildir til breytinga á mann-
virkjum. Eiganda sé heimilt að
breyta mannvirki án samþykkis
höfundar, að því leyti sem það
verði talið nauðsynlegt vegna af-
nota þess, eða af tæknilegum
ástæðum. Það sé ágætlega skýrt
hvaða skilyrði og takmörk séu á
þeim heimildum í núverandi lögum
og greinargerð sem þeim lögum
fylgi.
Samtök arkitektastofa segja að
tilgangur frumvarpsins sé í raun að
afnema höfundarrétt hönnuða af
mannvirkjum. Gagnrýna þau sér-
staklega samlíkingu flutnings-
manna við tónverk. Samþykki tón-
höfundar þurfi ef tónverk sé stytt,
klipptur bútur úr því, bætt við við-
lögum eða erindum eða texta
breytt. Rökin eigi því á engan hátt
við sem forsenda fyrir þessum
breytingartillögum.
Í umsögn Arkitektafélagsins er
lagst gegn því að frumvarpið verði
samþykkt. Félagið segist þó hlynnt
því að höfundalögin verði endur-
skoðuð.
„Þau mætti skerpa allverulega,
bæði út frá hagsmunum höfunda og
hagsmunum eiganda, því allt of oft
virðist höfundaréttur á Íslandi á
reiki engum til heilla,“ segir í um-
sögninni.
Frumvarp fær
óblíðar viðtökur
Sagt lýsa verulegu skilningsleysi
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Arkitektúr Skuggi Hótel á Hverf-
isgötu er íslensk hönnun.
Frumvarp gagnrýnt
» Nokkrar umsagnir hafa bor-
ist um frumvarp Flokks fólks-
ins um breytingar á höfundar-
lögum.
» Flutningsmenn frumvarps-
ins eru Guðmundur Ingi Krist-
jánsson og Inga Sæland.
» Meðal þeirra sem hafa sent
inn umsögn eru Arkitektafélag
Íslands, Samtök arkitektastofa
og Bandalag íslenskra lista-
manna.