Morgunblaðið - 07.04.2020, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 07.04.2020, Qupperneq 16
L ífið er bakstur. Ég set á mig svuntuna og næ í áhöldin. Skál, sleif og mæliglas. Tek til hráefnin sem ég ætla að nota. Sérhvern morgun ákveð ég hvað ég ætla að baka í dag. Og dagsformið mitt ræður oft hver út- koman verður. Ég mæli hráefnin í réttum hlutföllum og slæ þessu saman. Læt það hefast og svo hnoða ég deigið. Það endurnýjar huga minn og hjarta að leyfa deig- inu að leika í höndum mínum. Hug- arflækjur leysast og draumar og áform verða til. Stundum langar mig að baka eitthvað sem ég hef ekki gert áður, en gömlu og góðu uppskriftirnar mínar verða oftar fyrir valinu. Það veitir mér gleði og hamingju að sjá bakkelsið renna ljúft ofan í litla og stóra munna. Líklegast eigum við öll okkar sannfæringar um lífið. Ég hef heyrt ýmsar: Lífið er bókasafn; líf- ið er hjólatúr; lífið er ævintýri; lífið er golfvöllur. Og þannig mætti áfram telja. Hver er þín sannfæring um lífið? Segir það eitthvað um, hvernig þú tekst á við aðstæður daganna, hver afstaða þín til lífsins er? Í lífinu eigum við okkur fyrir- myndir, sem hjálpa okkur til að ná markmiðum okkar og velja farsæl- ar leiðir á lífsins leið. Amma mín og nafna var ein af mínum góðu fyrirmyndum sem ég lærði mikið af og naut að verða samferða í rúma fjóra áratugi. Amma fæddist árið 1919 og upplifði ótrúlegar breytingar á lífsháttum fólks og miklar tækniframfarir. Fróðlegt var að heyra ömmu rifja upp ýmis- legt frá því að hún var ung og greina frá því sem hafði gert hana að þeirri konu sem hún var, þegar hún kvaddi södd lífdaga og sátt við lífshlaup sitt rúmlega níræð. Bakstur var ein af ástríðum ömmu, sem bakaði mikið og var þess fullviss að leiðin að hjartanu lægi í gegnum magann. Alltaf átti hún eitthvað til með kaffinu og okkur ömmubörnunum hennar þóttu hveitikökurnar og ástar- pungarnir alltaf það besta. Bæði á gleði- og sorgarstundum bakaði amma hveitikökurnar sínar. Dag- inn sem tengdasonur hennar og pabbi minn dó bakaði amma hveiti- kökur og bragðbætti með tárum sínum. Amma bjó yfir mörgum styrk- leikum sem hún hafði eflt og þroskað með sér. Mér fannst gott að finna í fari hennar húmor, hlýju og góð- vild. Amma kunni svo vel að njóta hvers dags og leita lausna. Hún þurfti ekki ný tæki og tól til að fanga hamingjuna. Hún leysti hugarflækjur og endurnýjaði kraft og þrótt með því að fletja út deig og seðja svanga munna, prjóna eða taka í spil. Amma átti einlæga og sterka trú. Hún fór með bænirnar sínar og hvíldi í þeirri öruggu vissu að yfir sér og sínum væri vakað. Á hverju kvöldi þakkaði hún fyrir daginn, bað fyrir fjöl- skyldunni og hafði yfir faðirvorið. Amma raulaði mikið við hin daglegu störf, gjarnan sálma og í sérstöku uppáhaldi var sálmurinn Ó, þá náð að eiga Jesú. Núna finnum við mörg fyrir óró- leika og ótta. Covid-19-veikin skekur heiminn okkar og tilveru. Það er margt sem leitar á hugann og fær okkur til að spyrja spurn- inga sem varða öryggi okkar og framtíð. Við erum hrædd um okk- ar nánustu, sérstaklega þau sem eru í áhættuhópum. Við vitum ekk- ert hvað morgundagurinn ber í skauti sér. En þannig er það nú yf- irleitt, við getum bara dvalið í núinu, stundinni hér og nú. Alla daga er gott að lesa í Biblí- unni, en kannski sérstaklega á dögum ótta og ringulreiðar. Þar er að finna huggun og hvatningu, reynslu og leiðir til farsældar. Víða í guðspjöllunum heyrum við Jesú benda á leiðina til að takast á við aðstæð- ur lífsins. Hvernig mæta eigi meðbyr og mótlæti, takast á við gleði og sorg. Jesús segir okkur að hamingjuna sé að finna hið innra, í huga okkar og hjarta. Hér má nefna sem dæmi sæluboðin í upphafi 5. kafla Matteus- arguðspjalls. Jesús talar til fólks með ólíkan bakgrunn, fólks sem hafði upplifað mót- læti í lífinu og stund- um verið með vind- inn í fangið. Líka til fólks sem hafði gengið vel og náð markmiðum sínum. Við fáum að vera meðal þeirra, sem Jesús talar til. Við með okkar ólíku reynslu. Við sem hvern dag erum að reyna að standa okkur og gera okkar besta. Og Jesús hvetur okk- ur til að halda áfram og hann vill leiða okkur og styðja sérhverja stund. Og það er okkar að þiggja. Mundu að þú ert ekki ein eða einn. Guð hefur sent okkur hvert annað til að fylgjast að á lífsins leið og við eigum að hvetja og styðja hvert annað. Mundu að þú býrð yf- ir mörgum styrkleikum til að tak- ast á við aðstæður daganna. Megir þú mæta deginum í dag með þakk- læti og vongleði. Njóttu dagsins og nærðu huga þinn og hjarta, kannski með því að líta í góða bók, baka eða fara í hjólatúr. Kirkjan til fólksins Morgunblaðið/Ómar Þú ert ekki ein/n Hugvekja Sigríður Munda Jónsdóttir Höfundur er sóknarprestur í Ólafsfjarðarprestakalli. sigridur.munda.jonsdottir@kirkjan.is Sigríður Munda Jónsdóttir Mundu að þú ert ekki ein eða einn. Guð hefur sent okkur hvert annað til að fylgjast að á lífs- ins leið og við eigum að hvetja og styðja hvert annað Daglegt líf „Guð hefur sent okkur hvert annað til að fylgjast að á lífsins leið og við eigum að hvetja og styðja hvert annað.“ Kynlegur sparnaður Hundraða milljóna króna sparnaður hjá spítalanum við Hring- braut (HRBR) segir Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf., í Mbl. 8. febrúar. Ekki veitir af eftir alla fram- úrkeyrsluna og taf- irnar við að koma já- eindaskannanum sem Kári gaf í gagnið og byggingu sjúkrahót- els, sem ekki er flókin bygging. Sparnaðinn rökstyður hann með lágmörkun umhverfisáhrifa skv. Breeam-umhverfisvottun. Allar framkvæmdir við spítalann við HRBR fara í gegnum Breeam-um- hverfisvottun. Úr grunninum koma 25.000 vörubílshlöss af sprengdu grjóti. Hærra Breeam-skor er að keyra grjótið í Sundahöfn en keyrsla og urðun í Bolaöldum við Vífilfell. Heilbrigð skynsemi segir styttri keyrslu hagstæðari og óþarfi til að geta tekið ákvörðun að setja þessa tvo möguleika inn í Breeam-reikni- líkan. Sprengt grjót er verðmæti sem Reykjavíkurhöfn keypti hér áður fyrr. Margir kostir eru betri en að henda grjótinu í sjóinn utan við Sundahöfn: Borgin hefur kynnt tengingu Reykjavíkur og Kópavogs með brú yfir Fossvog. Báðum megin þarf landfyllingu að brúnni. Reykjavík- urmegin er margfalt styttri akstur að brúarstæði en í Sundahöfn og þar með minni kostnaður og minna slit á vegum. Kópavogsmegin er nákvæm- lega jafn langt frá HRBR og frá HRBR í Sundahöfn. Hvað skyldi Breeam-skor vera miklu hærra fyrir þennan kost? Í bónus verður ekki mikill kostnaður við öflun sprengds grjóts fyrir brú- artenginguna. Einnig væri hægt að keyra grjótið út á Granda og geyma þar til kemur að landfyllingu frá Granda að Sel- tjarnarnesi. Grjótið yrði notað í ytri garð og lausu efni dælt inn fyrir hann. Landið sem þar fengist fyrir iðnað og íbúðir gæti orðið stæra en það sem fæst með eyðileggingu flug- vallarins í Vatnsmýrinni. Grjótið mætti líka nota í vegteng- ingu frá Örfirisey yfir á Sæbraut. Þá þyrfti ekki að keyra olíubíla frá Ör- firisey í gegnum miðbæinn eða íbúð- arhverfi. Í leiðinni leysist umferðar- teppan við Hafnartorg sem Seltirningar segja að jafngildi því að Seltjarnarnes sé fangi Reykjavíkur. Einnig væri hægt að gera við- legukant fyrir skemmtiferðaskip ut- an við Sæbraut. Farþegarnir gætu þá gengið að Hörpu og í miðbæinn undir brú sem kæmi yfir hafnar- kjaftinn. Líklegast hefur upp- gröftur úr grunnum fyrir Marriot- og Landsbankabyggingar í höfninni verið keyrður upp í Bolaöldur við Vífilfell. Sparnaður borg- arinnar hefði getað orð- ið margfalt meiri en við grunn spítalans ef upp- gröfturinn hefði farið í pramma og verið losaður fyrir utan Granda. Sjórinn hefði séð um að færa efnið upp á grynningarnar. Spurning er hvort mengaður upp- gröftur úr höfninni gæti haft áhrif á Gvendarbrunnavatnsbólið. Einhvers staðar sá ég að það ætti að byggja skrifstofur fyrir Faxaflóa- hafnir á fyllingunni við Sundahöfn. Sé það rétt vil ég benda á að hús Orkuveitunnar á Ártúnshöfða stend- ur mikið til autt. Hægt væri að setja skrifstofurnar þar með útsýni yfir Faxaflóann. Þar væri líka hægt að setja vita í staðinn fyrir þann á Sjó- mannaskólanum, sem borgin byggði fyrir. Fyrir mörgum árum skrifaði ég og rökstuddi hversu miklu hag- kvæmara væri að byggja spítalann í Fossvogi en við Hringbraut. Það var ekki eitt heldur allt. Umhverfismál voru ekki eins mik- ið í umræðunni þá og nú. Í saman- burðinum benti ég þó á að í Fossvogi væri mestmegnis mokað upp gróð- urmold, sem mætti nýta í borgar- landinu. Við Hringbraut aftur á móti væru miklar og dýrar sprengingar. Síðan þyrfti að keyra sprengda grjótið burt, sem myndi skemma göturnar. Við það bættust umferðartruflanir og ónæðið af sprengingunum. Nú hefur allt á Hringbraut skolfið og nötrað í hátt á annað ár. Þeir sem hafa verið hjá ástvinum á gjörgæslu- deild Landspítalans hafa kynnst því. Allan daginn eru loftpressur og högghamrar á fullu. Viðvörunarvæl kemur áður en sprengt er. Ég er ekki í nokkrum vafa um að Breeam-umhverfisvottun fyrir allan spítalann frá A til Z í upphafi hefði gefið miklu hærra Breeam-skor fyr- ir Fossvoginn en Hringbraut. Sýnt betri og ódýrari spítala með lægri rekstrarkostnað um alla framtíð. Þar fyrir utan hefði verið hægt að byrja grunninn fljótlega eftir hrun, sem hefði verið góð innspýting í hag- kerfið. Í stað þess voru jarð- vinnslutæki hirt af verktökum og seld úr landi. Eftir Sigurð Oddsson »…Breeam-umhverf- isvottun fyrir allan spítalann frá A til Z í upphafi hefði gefið miklu hærra Breeam- skor fyrir Fossvoginn en Hringbraut Höfundur er verkfræðingur og eldri borgari. Sigurður Oddsson 16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020 Fasteignir Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður Við erum hér til að aðstoða þig! -- • Sérsmíðaðir skór • Skóbreytingar • Göngugreiningar • Innleggjasmíði • Skóviðgerðir Erum með samning við sjúkratryggingar Íslands Tímapantanir í síma 533 1314 LÉLEG RAFHLAÐA? Við skiptum um rafhlöðu samdægurs Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.