Morgunblaðið - 07.04.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020
SMÁRALIND
www.skornir.is
í fyrstu skónum frá Biomecanics
26% afsláttur
af Biomecanics skóm*
(*gildir til 14. apríl)
ÖRUGG
SKREF
ÚT Í LÍFIÐ
Stærðir: 18–24
Afmælisverð 7.396
Verð áður 9.995
Margir litir
Skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu
skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum
bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Þau
komast auðveldar áfram og af meira öryggi
þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá.
Netverslun www.skornir.is
Við erum6 ára
„TE! ÉG SAGÐI AÐ ÉG VILDI FÁ BOLLA AF
TEI!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að hugsa á sömu
nótunum.
VIÐ ÆTTUM AÐ ÁKVEÐA
AÐ GERA EITTHVAÐ
OG SVO GERA
ÞAÐ EKKI
HVERNIG ER ÞAÐ
FRÁBRUGÐIÐ
ÖÐRUM
STEFNUMÓTUM?
PÆLINGIN
MAMMA, LANGAR ÞIG EKKI Í
NÝJAN KJÓL FYRIR ENDUR-
FUNDINN MEÐ SKÓLA-
FÉLÖGUNUM?
JÚ, EN ÉG ER AÐ
BÍÐA EFTIR RÉTTA
TÆKIFÆRINU TIL
ÞESS AÐ BIÐJA
PABBA ÞINN AÐ
BORGA HANN!
VÁ! HELGA,
ÁSTIN MÍN, ÞÚ ERT BEST!
ÞETTA
ER RÉTTA
STUNDIN!!
ÉG VAR LÍKA
AÐ HUGSA
ÞETTA
„ÞÚ FÆRÐ EINGÖNGU SÖLUÞÓKNUN –
SVO ÞAÐ FER ALGERLEGA EFTIR ÞÉR
HVORT ÞÚ NÆRÐ LÁGMARKSFRAMFÆRSLU
EÐA EKKI.”
er fylgja mun heildarútgáfu kór-
laga Sigvalda Kaldalóns.“
Fjölskylda
Eiginkona Gunnlaugs er Auður
Adamsdóttir, f. 18.7. 1958, kennari
við Háaleitisskóla í Reykjavík. Þau
eru búsett í Reykjavík. Foreldrar
hennar voru Guðrún F. Hjartar, f.
24.3. 1926, d. 29.10. 2004, húsmóðir
og afgreiðslukona á Akranesi og
eiginmaður hennar, Adam Þór Þor-
grímsson, f. 30.9. 1924, d. 5.6. 2019,
múrarameistari og aðstoðarbygg-
ingafulltrúi á Akranesi.
Dóttir Auðar og stjúpdóttir
Gunnlaugs er Þórhildur Erla Páls-
dóttir, f. 9.4. 1989, íþróttafræðingur
og kennari, búsett í Reykjavík.
Systur Gunnlaugs eru Stefanía
R. Snævarr, f. 28.5. 1948, fyrrver-
andi kennari, búsett á Seltjarnar-
nesi; Ingibjörg A. Snævarr, f. 8.8.
1952, fyrrverandi fóstra og skrif-
stofumaður, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Gunnlaugs voru Stef-
án V. Snævarr, f. 22.3. 1914, d.
26.12. 1992, prestur í Valla-
prestakalli í Eyjafjarðarsýslu og
prófastur Eyfirðinga, lengst bú-
settur á Völlum í Svarfaðardal og á
Dalvík, og eiginkona hans frá 1.6.
1947, Jóna M. Snævarr, f. 9.2. 1925,
húsmóðir.
Gunnlaugur
V. Snævarr
Elín Árnadóttir
húsfreyja á Sökku
Þorgils Þorgilsson
bóndi á Sökku, frá
Minni-Borg í Grímsnesi
Rósa Þorgilsdóttir
húsfreyja á Sökku
Gunnlaugur Gíslason
bóndi á Sökku í Svarfaðardal
Jóna M. Gunnlaugsdóttir Snævarr
prestsfrú á Völlum í Svarfaðardal og á Dalvík
Ingibjörg Þórðardóttir
húsfreyja á Hofi
Gísli Jónsson
bóndi á Hofi í Svarfaðardal
ÞorgilsGunnlaugsson
bóndi á Sökku
Árni Snævarr
ráðuneytisstjóri í
iðnaðarráðuneytinu
Dagbjört G.
Stephensen
húsmóðir í Reykjavík
Ármann Snævarr
háskólarektor og
hæstaréttardómari
Ólafur Stephensen
framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda
Stefanía Stefánsdóttir
húsfreyja á Ormsstöðum
Erlendur Árnason
bóndi á Ormsstöðum
í Norðfirði
Stefanía Erlendsdóttir
húsfreyja á Húsavík og í Neskaupstað
Valdemar V. Snævarr
skólastjóri og skáld á Húsavík og í Neskaupstað
Rósa Sigurðardóttir
húsfreyja á Þórisstöðum,
síðar húskona víðar
Valves Finnbogason
hákarlaskipstjóri á Þórisstöðum á Svalbarðsströnd, drukknaði
Úr frændgarði Gunnlaugs V. Snævarr
Stefán V. Snævarr
prestur og prófastur Eyfirðinga
Ólafur Stefánsson skrifaði áLeirinn á pálmasunnudag:
Við lifum nú pínlega páska
með pandemic-veiru og háska.
Þá í heimveru er best
að hafa sem gest
meinhollan menningargáska.
Ingólfur Ómar skrifaði á laug-
ardag. „Nú hefur aldeilis bætt í
veðrið og spáin er ansi dökk fram
undan. Hér er mikill vindur með
hríðarkófi“:
Garri tíðum gellur hátt
galdur stríðan þylur.
Veldur kvíða, veikir mátt
vonsku hríðarbylur.
Fía á Sandi skaut inn:
Enginn nenni út að gá
engan gleður snjór.
Nú væri fegri sjón að sjá
sól og bjór.
Friðrik Steingrímsson bætti við:
Vetur ríkir vondur enn
veira sýkir landann,
vart út kíkja mega menn
mun það ýkja vandann.
Pétur Stefánsson:
Nú er víða vonskutíð,
vekur kvíða og trega.
Úrill hríðin ergir lýð
alveg gríðarlega.
Helgi Zimsen:
Hörkurok ef harmar þú,
helst til kvartar fljótt því
fæstir vilja ferðast nú
flestir kjósa sóttkví.
Sigmundur Benediktsson gerði
þá athugasemd, að sumir norð-
anmenn gerðust nú kulsæknir þótt
syðra væru:
Dúns á breiða værðar væng,
varla hugaðir.
Eiga hreiður undir sæng,
alveg bugaðir.
Fía á Sandi svaraði og verður
hugsað til Káins: „Já, satt segirðu.
Nú er enginn búmaður nema berji
sér“:
Þegar snjórinn þekur skjá
þylur harmakórinn:
„Nú væri fegri sjón að sjá
sólina skína á bjórinn.“
Og enn kvað hún:
Ef vælir úti vonsku hríð
verður smátt um grínið.
Biðjum Guð um góða tíð
svo glampi sól á vínið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af menningargáska
og veðri vondu