Morgunblaðið - 07.04.2020, Page 27

Morgunblaðið - 07.04.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 2020 „Við lifum á fordæmalausum tímum“ er setning sem heyrist oft þessa dagana. Það má alveg ganga svo langt að segja að orð- ið fordæmalaust sé ofnotað þessa dagana vegna kórónuveir- unnar sem nú herjar á heims- byggðina. Ógnvekjandi tímar kalla á einstakar aðgerðir og allt það og ef fólki líður betur með að viðra orðaforða sinn með slíkum hætti er það bara vel. Mikið hefur verið rætt og rit- að um fjárhag íslenskra íþrótta- félaga að undanförnu. „Að spenna bogann of hátt“ er önn- ur setning sem hefur farið mik- inn í tíðarandaum. Margir hafa látið í sér heyra, misfróðir, um það hversu illa íslensk íþrótta- félög eru rekin og að hér sé íþróttafólk sem er í meðallagi gott að þiggja allt of há laun fyr- ir sína vinnu, ef vinnu skyldi kalla. Það þarf ekki að horfa neitt lengra en til nágranna okkar á Englandi til þess að átta sig á stöðu mála. Þar blasir lítið ann- að en gjaldþrot við mörgum fé- lögum sem leika í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu, ef tímabilið verður ekki klárað. Leikmenn í stærstu knatt- spyrnuliðum heims hafa þurft að taka á sig launalækkanir hægri vinstri undanfarna daga svo skipið sigli ekki í strand. Stundum ganga hlutirnir vel og stundum ganga þeir illa, hvað svo sem veldur því. Núna er það þessi fjandans veira sem er að gera okkur lífið leitt og ís- lenskt íþróttalíf er í brekku þessa stundina. Þess vegna eiga allir sem vettlingi geta valdið að koma til hjálpar á þessum for- dæmalausu tímum. Flestir ef ekki allir þekkja einhvern sem hefur stundað eða stundar íþróttir og hefur þar af leiðandi séð öll góðu áhrifin sem íþrótt- irnar hafa á samfélagið okkar. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is VETRARFÓTBOLTI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Verða það KR, Valur og Breiðablik sem slást um Íslandsmeistaratitil karla í fótbolta þegar keppnis- tímabilið 2020 getur loks hafist? Geta KA-menn, Víkingar og Stjörn- unnar gert sig gildandi í efri hluta úrvalsdeildarinnar? Undirbúningstímabilið segir ekki alltaf alla söguna um hvernig liðin muni standa sig á komandi sumri en þessi niðurröðun á mögulegum lið- um í efri hluta deildarinnar er alfar- ið byggð á því hvernig þeim gekk í vetrarmótunum, frá nóvember 2019 og fram í miðjan mars 2020. Stóra spurningin er síðan hvaða áhrif yfirstandandi hlé vegna kór- ónuveirunnar hefur á liðin og mótið, og hvernig þau koma undan nýju undirbúningstímabili sem ekki var á dagskránni. Einhver þeirra gætu mögulega misst frá sér leikmenn af fjárhagsástæðum, þá helst erlenda. Þegar úrslit vetrarleikja liðanna tólf sem skipa Pepsi Max-deild karla 2020 eru tekin saman kemur í ljós þessi uppröðun á liðunum sem hér fer á eftir, hvað sex þau efstu varðar. Lítum nánar á ástæður þess að þau raða sér í sex efstu sætin en í blaðinu á morgun skoðum við hin sex liðin sem eru í sjöunda til tólfta sæti í „vetrardeild“ Íslandsmóts karla. 1: KR KR-ingar eru með bestan árangur allra liða deildarinnar í vetur. Þeir urðu Reykjavíkur- meistarar, kom- ust í úrslitaleik Bose-mótsins og höfðu unnið alla fjóra leiki sína í Lengjubikarnum þegar keppnin var blásin af. Alls unnu KR-ingar tólf af fjórtán leikjum sínum í vetur og eina tapið var gegn Val í úrslitaleik Bose- mótsins í desember, 3:2. Þeir unnu úrvalsdeildarlið FH, Gróttu, Vík- ings, Fylkis, Fjölnis, Vals og ÍA en sigurinn á Val var í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins, 2:0. Markatala KR í leikjunum fjórtán er 41:16 og þeirra markahæstu menn í vetur voru Tobias Thomsen með 7 mörk, Ægir Jarl Jónasson og Krist- ján Flóki Finnbogason með 6 mörk hvor. Rúnar Kristinsson er áfram með meistaralið KR sem hefur lítið breyst. Skúli Jón Friðgeirsson er hættur, Emil Ásmundsson kom frá Fylki en missir líklega af tímabilinu vegna meiðsla og Guðjón Orri Sig- urjónsson er kominn til að slást við Beiti Ólafsson um markmannsstöð- una. Beitir var nýbyrjaður að spila eftir meiðsli þegar keppni var hætt. Þá ristarbrotnaði miðvörðurinn ungi Finnur Tómas Pálmason í janúar. Alex Freyr Hilmarsson sleit kross- band síðasta sumar og var ekki byrj- aður að spila. 2: Valur Eftir mikil von- brigði með keppnistímabilið 2019 virðast Vals- menn hafa náð vopnum sínum að nokkru leyti á ný í vetur undir stjórn Heimis Guðjónssonar. Þeir unnu Bose- mótið fyrir áramótin, léku úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í byrjun febr- úar og voru í baráttu um sæti í und- anúrslitum Lengjubikarsins þegar keppni var hætt í mars. Valsmenn unnu níu af þrettán mótsleikjum sínum í vetur, gerðu tvö jafntefli og töpuðu tveimur leikjum, þar af úrslitaleik Reykjavíkurmóts- ins gegn KR. Sigurleikir gegn úr- valsdeildarliðum voru gegn Stjörn- unni, KA, KR, Fjölni og Víkingi. Markatala Vals í leikjunum þrett- án er 33:16 og Patrick Pedersen var á miklu flugi í vetur og skoraði 10 af þessum mörkum, er markahæstur allra í vetrarmótunum, en Sigurður Egill Lárusson kom næstur með 4 mörk, öll í Lengjubikarnum. Heimir tók við Val af Ólafi Jó- hannessyni og hópurinn hefur styrkst. Rasmus Christiansen er kominn aftur frá Fjölni, Magnus Eg- ilsson frá HB í Færeyjum og Birkir Heimisson frá Heerenveen í Hol- landi. Reyndasti maður liðsins, Bjarni Ólafur Eiríksson, er hins- vegar farinn til Vestmannaeyja. 3: Breiðablik Blikar unnu ekki leik í Bose- mótinu, í þremur fyrstu leikjunum undir stjórn Ósk- ars Hrafns Þor- valdssonar, en léku síðan til úr- slita í fótbolti.net- mótinu eftir þrjá sigurleiki í riðla- keppninni. Þeir höfðu unnið alla fjóra leikina í Lengjubikarnum þegar keppni var hætt, þar á meðal 7:1 stórsigur á Skagamönnum. Breiðablik vann sjö af ellefu móts- leikjum vetrarins, gerði tvö jafntefli og tapaði tveimur leikjum. Auk sig- ursins á ÍA vann Breiðablik úrvals- deildarlið HK og FH. Markatala Breiðabliks í þessum ellefu leikjum er 38:19.Thomas Mikkelsen skoraði flest markanna, 9 talsins, Gísli Eyjólfsson kom næstur með 6 mörk og Höskuldur Gunn- laugsson og Viktor Karl Einarsson með 4 mörk hvor. Óskar Hrafn tók við Breiðabliki af Ágústi Gylfasyni og Kópavogsliðið hefur endurheimt tvo af sínum mönn- um, Oliver Sigurjónsson frá Bodö/ Glimt og Kristin Steindórsson frá FH. Gunnleifur Gunnleifsson víkur úr markinu fyrir Antoni Ara Ein- arssyni sem kom frá Val en er áfram í leikmannahópnum. Andri Rafn Yeoman, leikjahæsti leikmaður Blika, er þegar kominn heim frá Ítalíu en til stóð að hann myndi missa af fyrri hluta tímabilsins og Kwame Quee er kominn aftur eftir lánsdvöl hjá Vík- ingi. Hægri bakvörðurinn Alfons Sampsted er farinn aftur af landi brott eftir lánsdvöl í Kópavogi. 4: KA Akureyrarliðið vann níu af fjór- tán mótsleikjum sínum í vetur en þess ber að geta að sex þeirra voru gegn liðum úr 1. og 2. deild í Kjarnafæðis- mótinu. KA gerði eitt jafntefli og tapaði fjórum leikjum í vetur. Eini sigurinn gegn úrvalsdeildarliði var gegn Breiða- bliki í nóvember. Markatala KA í þessum fjórtán leikjum er 38:22. Markahæstir norð- anmanna voru Gunnar Örvar Stef- ánsson og Bjarni Aðalsteinsson með 5 mörk hvor, Steinþór Freyr Þor- steinsson og Nökkvi Már Þórisson með 4 hvor. KA varð fyrir því áfalli að Elfar Árni Aðalsteinsson, helsti marka- skorari liðsins, sleit krossband í hné í byrjun febrúar og missir vænt- anlega alveg af tímabilinu. Lið KA, þar sem Óli Stefán Fló- ventsson er áfram við stjórnvölinn, er nokkuð breytt. Fjórir erlendir leik- menn eru farnir og Torfi Gunnarsson sneri aftur í Fjölni. Miðjumaðurinn Rodrigo Gómez er kominn frá Grindavík og tveir Danir eru í láni hjá Akureyrarliðinu, varnarmaðurinn Mikkel Qvist frá Horsens og fram- hejrinn Jibril Abubakar frá Midtjyll- and. Margir ungir leikmenn hafa fengið tækifæri með liðinu í vetur. 5: Víkingur R. Bikarmeistarar Víkings voru ekki sannfærandi framan af vetri, unnu tvo leiki af fimm í Bose- mótinu og Reykjavíkur- mótinu, en sprungu út í deildabikarnum þar sem þeir höfðu unnið alla fjóra leiki sína þegar keppni var hætt og skorað fimmtán mörk gegn engu. Þar unnu þeir m.a. stórsigur á KA, 6:0. Víkingar unnu sex af tíu móts- leikjum vetrarins, gerðu eitt jafntefli og töpuðu þremur. Auk sigursins á KA lögðu þeir úrvalsdeildarlið Gróttu og Fylkis. Markatala Víkinga í þessum tíu leikjum er 27:14. Óttar Magnús Karlsson var markahæsti leikmaður þeirra í vetur með 8 mörk, sjö þeirra í Lengjubikarnum, og Atli Hrafn Andrason skoraði 5 mörk. Arnar Gunnlaugsson þjálfari Vík- inga náði í enn einn unga leikmann- inn erlendis frá þegar Húsvíking- urinn Atli Barkarson kom til þeirra frá Fredrikstad í Noregi, og þá kom framherjinn ungi Helgi Guðjónsson frá Fram en hann gerði 15 mörk í 1. deildinni í fyrra. Ingvar Jónsson, einn af bestu markvörðum landsins, kom frá Viborg í Danmörku. Guð- mundur Andri Tryggvason er farinn aftur til Start í Noregi eftir lánsdvöl í Fossvogi. 6: Stjarnan Garðbæingar voru með í öllum þremur mótunum og náðu lengst í fotbolti.net-mót- inu þar sem þeir sigruðu ÍBV 3:1 í leik um þriðja sætið. Þeir áttu ennþá möguleika á að komast í und- anúrslit Lengju- bikarsins þegar keppni var hætt. Stjörnumenn unnu fimm af ellefu mótsleikjum vetrarins, gerðu þrjú jafntefli og töpuðu þremur leikjum. Þeir unnu þrjú úrvalsdeildarlið, Gróttu, KA og Fjölni. Markatala Stjörnunnar í þessum ellefu leikjum var 31:18 og Hilmar Árni Halldórsson var markahæsti maður liðsins með 9 mörk. Guðjón Baldvinsson kom næstur með 4 mörk. Ólafur Jóhannesson er kominn til liðs við Rúnar Pál Sigmundsson og þeir stýra nú Stjörnuliðinu saman. Baldur Sigurðsson fyrirliði síðustu ára er farinn til FH og Guðmundur Steinn Hafsteinsson fór til Koblenz í þýsku D-deildinni. Halldór Orri Björnsson er hinsvegar kominn aft- ur eftir dvöl hjá FH-ingum og þeir Emil Atlason og Björn Berg Bryde frá HK en Björn var í láni í Kópa- vogi á síðasta tímabili. KR-ingar sigruðu sjö úrvalsdeildarlið í vetur  Efstir í „vetrardeild“ á undan Val og Blikum  Pedersen markahæstur í vetur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Toppliðin? Guðjón Orri Sigurjónsson markvörður KR ver frá Valsmanninum Sigurði Agli Lárussyni í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins. KR og Valur raða sér í tvö efstu sætin þegar árangur í vetrarmótunum er tekinn saman. Tobias Thomsen Patrick Pedersen Gunnar Örvar Stefánsson Thomas Mikkelsen Hilmar Árni Halldórsson Óttar Magnús Karlsson Ýmsar stórar ákvarðanir voru tilkynntar í gær af þeim sem mestu ráða varð- andi mótahald í golfíþróttinni í heiminum. The Open Champ- ionship var aflýst og hefur það ekki gerst í 75 ár. Mót- ið hefur verið haldið síðan 1860 og féll niður meðan á heimsstyrjöldun- um tveimur stóð. Þar fyrir utan hef- ur því því aðeins einu sinni verið af- lýst og var það árið 1871. Tom Morris yngri hafði þá unnið beltið (verðlaunagripinn sem þá var keppt um) til eignar eftir að hafa sigrað þrjú ár í röð. Eftir það var keppt um silfurkönnuna frægu en mótið er eitt elsta íþróttamót í heiminum sem enn er við lýði. Golfsamband Íslands verður af einhverjum tekjum vegna þessa þar sem hagnaður af mótinu hefur að einhverju leyti verið látinn renna til golfsambanda vítt og breitt um heiminn. Stefnt er að því að halda Masters í nóvember, Opna bandaríska mótið í september og PGA-meistaramótið í ágúst. Þá er enn sem komið er óbreytt dagsetning í Ryder-bikarn- um í september. GSÍ verður af tekjum vegna The Open Tiger sigraði á Masters 2019.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.