Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 39
DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020 verandi íþrótta- og æskulýðs- fulltrúi í Reykjanesbæ, og Svein- björn Bjarkason, f. 27.10. 1954, d. 18.11. 2007, sölumaður. Systkini Bjarkar sammæðra eru Þórdís Björnsdóttir, f. 9.1. 1956, hús- móðir á Ítalíu; Árni Haukur Björnsson, f. 26.4. 1958, fulltrúi sýslumanns í Reykjanesbæ, og Björn Bragi Björnsson, f. 18.7. 1962, d. 2.12. 1994, hljóðmaður. Systir Bjarkar samfeðra er Þór- unn María Bjarkadóttir, f. 3.9. 1974, lögfræðingur í Reykjavík. Foreldrar Bjarkar voru Bjarki Elíasson, f. 15.5. 1923, d. 21.1. 2013, yfirlögregluþjónn og skóla- stjóri Lögregluskólans, og Kristín Sveinbjörnsdóttir, f. 10.5. 1930, d. 31.12. 2006, húsmóðir í Reykjavík. Björk Bjarkadóttir Halldór Jónsson vinnurmaður í Hrísey og Kræklingahlíð Stefanía Jónsdóttir húsmóðir á Klængshól í Skíðadal Elías Halldórsson gullsmiður á Dalvík Friðrika Jónsdóttir húsmóðir á Dalvík Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn og skólastjóri Lögregluskólans Jón Björnsson bóndi á Hóli Ingibjörg Jónsdóttir húsmóðir á Hóli í Svarfaðardal Stefán Magnússon bóndi í Fagraskógi Ingimar Óskarsson náttúrufræðingur Auður Jónsdóttir rithöfundur Auður Björnsdóttir húsfr. í Fagraskógi Óskar Ingimarsson þýðandi ómas Jóhannsson erkam. á Siglufirði og í Reykjavík Björn Jónsson b. á Ölduhrygg í Svarfaðardal Jón Gunnar Ottósson forstjóri Náttúrufræðistofnunar Hildur Rúna Hauksdóttir náttúruverndarsinni Magnús Ingimarsson hljómlistarmaður og prentsmiður Jóhann Sveinbjörnsson tollv. á Siglufirði Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður Jón Halldórsson bátsformaður á óli á Upsaströnd Tómas Sigurðsson sjómaður á Dalvík og í Rvík H Ottó Jónsson kennari við MR Guðjón Tómasson sölum. í Rvík Sigurður Jóhannsson bóndi á Selá Anna Jóhannsdóttir húsmóðir á Selá á Árskógsströnd Sveinbjörn Sigurðson loftskeytamaður á Akureyri Ólafía Þuríður Pálsdóttir húsmóðir á Akureyri Páll Ólafsson múrari í Reykjavík Þuríður Hafliðadóttir húsmóðir í Reykjavík Úr frændgarði Bjarkar Bjarkadóttur Kristín Sveinbjörnsdóttir húsmóðir í Reykjavík T v Jóhann Tómasson læknir í Reykjavík „GÆTIRÐU HNEPPT FRÁ BUXUNUM. ÉG ÞARF AÐ HLUSTA Á HJARTAÐ.” „ANNAÐ HVORT KAUPIRÐU HANDA MÉR REIÐHJÓL EÐA ÉG LÆT ÆTTLEIÐA MIG.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar þú ert sá eini sem ég hugsa um. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann JÓN ER FYNDINN HVER VILL KOMA Í HNERRAKEPPNI?! ÉG HATA FYNDIÐ FÓLK ÞVÍ MIÐUR DREPUR AUGNARÁÐ EKKI … Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Glaðbeitt frúin kyssir kallinn. Kvefpest skæð mun þetta vera. Garmur sleikir grautardallinn. Gera þeir, sem hvalinn skera. Þessi er lausn Hörpu á Hjarð- arfelli: Að kyssa getur kallast flensa. Kvefpest skæð mun vera flensa. Depill hann vill dallinn flensa. Dugnaðarmenn hvalinn flensa. „Þótt margt sé í heiminum hverf- ult er Vísnahornið á sínum stað og það kallar nú á lausn vikunnar,“ segir Helgi R. Einarsson: Skurður, sleikur, kossar, kvef kalla nú á sama svar og þegar um mig hugsað hef held ég flensan gagnist þar. Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una svona: Konan flensar karlinn sinn, COVID flensu sinna. Um dallinn flensar Frakkur þinn. Flensaðan hval má vinna. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Frúin glaðbeitt flensar kallinn. Flensa kvefpest slæm er talin. Garmur flensar grautardallinn. Garpar flensa dauðan hvalinn. Þá er limra: Við flensur og fár við glímum á fordæmalausum tímum og yrkjum í næði ódauðleg kvæði, á meðan við heima hímum. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Morgunkaffið mitt ég drakk, í Moggann síðan leit ég. Gátu læt nú fara á flakk og fá mun greið svör, veit ég: Höfðinginn í hópnum er. Hann er smiður valinn. Margur hallt það maður ber. Mesta skáld er talinn. Bjarni Thorarensen orti þegar illa lá á honum og hann gekk með sjó fram: Sker hefur skrapið í firði, skrapir heims um aldur, en þess bringa brýtur boða nú sem áður. Minnkun er manni að vera minni kletti dauðum, og brjóst sitt bilast láta af boðum mótlætis. Bólu-Hjálmar kom að kirkju: Ber mjög lítið brúðarskraut bærinn Krists á þessum stað. Andlegt drynur inni naut, ætli Drottinn heyri það? Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Annað er flensa en flensari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.