Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020
NBA
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Þegar keppnisferli er lokið hjá
heimsfrægum íþróttakempum þá
geta viðtölin orðið safaríkari en með-
an á ferlinum stóð. Þegar kempurnar
eru í fullu fjöri eru ýmsir hagsmunir
sem hafa áhrif á hvað þær láta frá sér
fara. Stórir samningar við samstarfs-
aðila og félögin eru í húfi ef viðkom-
andi er í liðsíþrótt. Ímyndin og orð-
sporið á sinn þátt í fjárhagslegu
öryggi þeirra.
Í kringum NBA-deildina hefur það
gerst í ríkari mæli að frægar kempur,
sem hættar eru að spila, segja sögur
frá ferlinum í alls kyns þáttum í sjón-
varpi, útvarpi og á netinu. Í ein-
hverjum tilfellum eru þetta leikmenn
sem eru nánast horfnir úr kastljósi
fjölmiðlanna og eru þá tilbúnir að
gefa sér tíma og rifja upp eitt og ann-
að.
Þegar menn eru spurðir út í
þekkta leikmenn þá er mjög áhuga-
vert að heyra sögur af Michael Jor-
dan sem gjarnan er nefndur til sög-
unnar sem besti körfuknattleiks-
maður heims frá upphafi. Frábærir
leikmenn hafa sagt ýmsar magnaðar
sögur af Jordan síðustu árin, löngu
eftir að hann hætti að spila. Þessar
frásagnir veita fólki meiri innsýn og
fara með hinn almenna áhugamann á
bak við tjöldin og inn á völlinn í mörg-
um tilfellum. Frásagnirnar lýsa
gjarnan keppnisskapinu sem bjó í
Jordan en benda einnig til þess að
maðurinn hafi haft algera yfirburði
gegn samtímamönnum sínum í körf-
unni. Hann virðist hafa getað skorað
nánast að vild í NBA-deildinni eins
og margir benda á. Þar sem Jordan
var ekki eigingjarn leikmaður sem
ekkert afrekaði, þá eru þessar frá-
sagnir enn athyglisverðari. Hann
varð jú sex sinnum NBA-meistari og
tvívegis ólympíumeistari.
Morgunblaðið tíndi til nokkrar
sögur af Jordan þar sem skemmt-
anagildið er einnig gott. Jordan er
frægur fyrir sálfræðihernað á vell-
inum sem vestan hafs er iðulega kall-
að „trash-talk“. Hann lét dæluna
ganga inni á vellinum og gat komið
mönnum úr jafnvægi. Hins vegar er
merkilegt að þegar hann varð sjálfur
reiður þá bitnaði það ekki á hans
frammistöðu. Þá virtist hann tæta
andstæðingana í sig.
„Fimmtíu“
Sá fyrsti sem vitnað er í er Byron
Scott, fyrrverandi samherji Péturs
Guðmundssonar hjá LA Lakers.
Margfaldur meistari með Lakers á
níunda áratugnum og maður sem
þurfti að gæta Jordan í vörninni þeg-
ar liðið mætti Chicago Bulls.
Scott lýsti samtali við Jordan í The
Dan Patrick Show. Liðin mættust í
Los Angeles og Scott var ekki leik-
fær og lenti á sjúkralistanum. Jordan
gaf sig á tal við hann fyrir leik þegar
hann sá að Scott var borgaralega
klæddur.
„Hver á þá að gæta mín í leiknum?
Ég sagði honum að það yrði Anthony
Peeler [sem þá var nýliði.] Oo-
ooohhhh. Fimmtíu, svaraði Jordan.“
Scott áttaði sig á því að Jordan
hefði átt við að þetta þýddi að hann
myndi skora 50 stig í leiknum gegn
Lakers. Sjálfur sagðist Scott aldrei
hafa sagt eða gert neitt sem myndi
æsa Jordan upp. Það væri heimsku-
legt. Afleiðingarnar af því væru þær
að Jordan gæti þá tekið upp á því að
skora 60 stig. Hann reyndi því að
halda honum niðri með vinsemd eins
og hann orðaði það. Scott fór til Pee-
ler og sagði honum að Jordan myndi
líklega reyna að skora 50 stig. Bað
Peeler vinsamlegast um að reita Jor-
dan ekki til reiði. Reyna að vera ró-
legur.
Svo fór að Jordan skoraði 54 stig.
„Maðurinn gat gert nokkurn veginn
það sem honum sýndist á körfubolta-
vellinum,“ bætti Scott við.
Sýndi Kidd nærgætni
Þegar Jordan var orðinn besti leik-
maður deildarinnar, og tekinn við af
Larry Bird og Magic Johnson sem
aðalmaðurinn, þá gerðu hrokafullir
nýliðar stundum þau mistök að láta
hafa eitthvað eftir sér opinberlega
áður en þeir mættu Jordan í fyrsta
skipti. Ef ummælin bentu til þess á
einhvern hátt að þeir teldu sig eiga
einhverja möguleika gegn Jordan þá
endaði það með ósköpum þegar að
leiknum kom. Þegar Jordan fékk
slíka hvatningu þá valtaði hann yfir
menn.
Jason Kidd kom inn í deildina með
nokkrum látum sem nýliði en gætti
þess að segja aldrei neitt neikvætt
um Jordan. Hann sagði skemmtilega
frá sinni fyrstu viðureign gegn Jor-
dan þegar Kidd var nýliði hjá Dallas
Mavericks.
„Í fyrsta skipti sem ég þurfti að
gæta hans í Dallas þá var ég tauga-
óstyrkur og Jordan tók sennilega eft-
ir því. Hann kom alla vega til mín og
sagði: Ekki hafa neinar áhyggjur. Ég
kann vel við þig og mun því ekki nið-
urlægja þig. Flott, svaraði ég en
spurði hvort niðurlæging þýddi að
hann skoraði 50 stig. Nei nei, sagði
Jordan. Ég mun taka það rólega gegn
þér.
Svo gerist það í leiknum að hann
snýr sér frá mér og fer meðfram
endalínunni. Stekkur upp að körfunni
og gat auðveldlega troðið með látum.
Ekki troða, hugsaði ég með mér. Þá
hékk hann í loftinu, fór undir körfuna,
og lagði boltann mjúklega ofan í hin-
um megin við hringinn. Þegar hann
hljóp til baka sagði hann við mig: Ég
sagði þér að ég myndi ekki niðurlægja
þig.
Þegar upp var staðið skoraði hann
35 stig í leiknum og þar af voru ekki
nema 20 þegar ég var að gæta hans,“
sagði Kidd og hló.
Garnett gekk í gildruna
Isaiah Rider og Kevin Garnett hafa
báðir sagt frá magnaðri atburðarás
þegar þeir léku með Minnesota Tim-
berwolves gegn hinu frábæra liði
Bulls árið 1996.
Minnesota var yfir þegar 3. leik-
hluta lauk og það í Chicago. Rider
þurfti að glíma við Jordan og hafði
gert það nokkrum sinnum áður. Rider
hafði vit á því að æsa ekki Jordan upp
að óþörfu og honum gekk mjög vel
fram að þessu. Hafði skorað 24 stig og
Jordan var með um 18 stig. Á sama
tíma gekk hinum kornunga Garnett
vel gegn Scottie Pippen og skoraði um
30 stig þegar upp var staðið.
Þegar menn gengu af velli að lokn-
um þriðja leikhluta var Garnett mjög
hátt uppi og fór að hvetja Rider
áfram. Sagði ýmislegt á þá leið að Jor-
dan ætti ekki möguleika gegn honum.
Rider væri of líkamlega sterkur fyrir
Jordan og þess háttar. Sagði samherj-
anum að halda áfram að sækja á Jor-
dan. Rider verður vandræðalegur og
bendir Garnett á að Jordan standi nú
bara nánast við hliðina á þeim. Gar-
nett segist vera alveg sama. Jordan
ráði ekkert við Rider. Isiah Rider
reyndi strax að minnka skaðann sem
strákurinn hafði valdið og segir við
Jordan: „Þetta er bara hvolpur. Hann
veit ekki neitt. Hann skilur ekki „regl-
urnar.““ Jordan horfði hvasst á þá
báða og sagði bara „ókei.“
Rider segir við Garnett í leikhléinu
á milli leikhluta: „Ég þarf að gæta
hans á vellinum en ekki þú.“ En Gar-
nett skildi bara ekki að svona töluðu
menn ekki við Jordan. Ekki var langt
liðið á fjórða leikhluta þegar Jordan
hafði bætt við 17 stigum og horfði til
skiptis á Rider og Garnett. Tvívegis
gerðist það að Minnesota náði ekki
„Svona talarðu ekki
við hinn svarta Jesú“
Öfugt við marga aðra virtist Michael Jordan spila betur ef hann reiddist
Ýmsar kempur hafa sagt athyglisverðar sögur af Jordan á síðustu árum
REUTERS
Kveður Snillingurinn Michael Jordan þakkar fyrir sig að loknum síðasta
heimaleik sínum með Washington Wizards í NBA-deildinni vorið 2003.
Hin bandaríska Simone Biles, besta
fimleikakona heims og fjórfaldur ól-
ympíumeistari, gæti verið hætt
keppni. Viðurkenndi hún í samtali við
Wall Street Journal að þátttaka henn-
ar á Ólympíuleikunum í Tókýó væri í
óvissu, nú þegar þeim hefur verið
frestað um eitt ár.
Biles hefur æft stíft síðustu mánuði
í undirbúningi fyrir leikana, en þeir
áttu að fara fram í sumar. Ætlaði Bi-
les að hætta eftir leikana, en nú er
óljóst hvort hún mætir til keppni í
Tókýó. Hefur hún gefið í skyn að lík-
aminn hafi fengið nóg.
Verður Biles með á
Ólympíuleikunum?
AFP
Sigursæl Simone Biles skríður
undir feld á næstunni.
Nágrannarnir sigursælu í Reykja-
nesbæ, Keflavík og Njarðvík, hafa
báðir nýtt tímann og samið við er-
lenda lykilmenn.
Litháinn Dominykas Milka, einn
besti leikmaður Dominos-deildar á
leiktíðinni, er búinn að semja við
Keflavík og mun leika með liðinu á
næsta tímabili.
Króatinn Mario Matasovic hefur
gert nýjan tveggja ára samning við
Njarðvík. Matasovic, sem hefur
þegar leikið tvö tímabil í Njarðvík,
var tíundi framlagshæsti leikmaður
deildarinnar.
Öflugir menn
verða hér áfram
Morgunblaðið/Skúli
Góður Dominykas Milka fann sig af-
ar vel með Keflavíkurliðinu.
11. apríl 1965
Karl Jóhannsson skorar 14
mörk fyrir KR sem gerir jafn-
tefli 31:31 í vin-
áttuleik í hand-
knattleik í
Hálogalandi
gegn dönsku liði
sem er í heim-
sókn og Morg-
unblaðið kallar
Gullfoss. Ellert B. Schram ver
þrjú vítaköst í marki KR.
11. apríl 1970
Íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik sigrar Dani,
67:61, á Norð-
urlandamótinu
í Bærum í Nor-
egi og hreppir
þar með brons-
verðlaunin.
Einar Bollason
tryggir sig-
urinn með því að skora 22 stig
á síðustu 12 mínútunum og 28
stig alls. Þorsteinn Hall-
grímsson skorar 14 stig.
11. apríl 1976
Axel Axelsson og Ólafur H.
Jónsson leika til úrslita í Evr-
ópukeppni bikarhafa í hand-
knattleik með vesturþýska lið-
inu Dankersen. Liðið má sætta
sig við tap 26:24 eftir fram-
lengdan leik fyrir spænska lið-
inu Granollers sem verður
Evrópumeistari fyrst
spænskra liða í íþróttinni. Ax-
el og Ólafur skoruðu 5 mörk
hvor í úrslitaleiknum.
11. apríl 1984
Ísland sigrar Frakkland,
12:10, í vináttulandsleik
kvenna í handknattleik í
Strandgötuhúsinu í Hafn-
arfirði og hefur þar með lagt
Frakkana þrisvar í röð á jafn-
mörgum dögum. Sigrún
Blomsterberg skorar fjögur
mörk og Guðríður Guðjóns-
dóttir þrjú.
11. apríl 1992
Ragnheiður Runólfsdóttir
vinnur allar sínar greinar á Ís-
landsmótinu
innanhúss í
sundi í Vest-
mannaeyjum
þrátt fyrir að
hafa fengið 40
stiga hita á
fyrsta keppn-
isdegi. Ragn-
heiður var kjörin Íþróttamað-
ur ársins 1991 en tilkynnir að
hún hafi keppt á mótinu í síð-
asta sinn þar sem hún ætli að
hætta keppni í sundi að Ól-
ympíuleikunum loknum.
11. apríl 1996
Íslenska karlalandsliðið í
handknattleik sigrar Japani,
28:17, á alþjóðlegu móti í
Kumamoto í Japan og hefur
þar með unnið fyrstu þrjá leiki
sína á mótinu. Róbert Sig-
hvatsson skorar fimm mörk,
Davíð Örn Ólafsson og Patrek-
ur Jóhannesson fjögur mörk
hvor.
11. apríl 2010
Pétur Eyþórsson sigrar þegar
keppt er um Grettisbeltið í
100. skipti í Íslandsglímunni.
Sigrar Pétur í fimmta sinn og
Svava Hrönn Jóhannsdóttir
fékk Freyjumenið í sjötta sinn.
11. apríl 2015
Bryndís Rún Hansen tvíbætir
Íslandsmetið í 50 metra flug-
sundi sama daginn á Íslands-
mótinu í 50 metra laug. Í úr-
slitum synti Bryndís á 26,92
sekúndum og tryggði sér
keppnisrétt á HM í Rússlandi.
Á ÞESSUM DEGI