Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 28
Dugnaður og þraut- seigja eru meginstyrk- leikar þjóðarinnar. Ljóst er að formæður og -feður hafa oft á tíð- um þurft að beita miklu hugviti til að lifa af erfiða tíð og nátt- úruhamfarir. Eigin- leika og þekkingu þjóðarinnar þurfum við að rækta, nýta vel tímann á næstu misserum og styðja við mannauðinn okkar, svo við kom- um sterk út úr núverandi að- stæðum. Um alla veröld er fólk að fást við farsótt og hvernig verja megi heilbrigði þjóða. Þessi orrusta mun taka tíma en öllu máli skiptir hvernig við verjumst veirunni og hvernig við styrkjum viðnámsþrótt samfélagsins. Íslenskt samfélag hef- ur alla burði til að standa sterkt ef forgangsraðað er á réttan hátt. Alþjóðahagkerfið á tímum farsóttar Alþjóðahagkerfið verður fyrir miklum búsifjum vegna COVID-19. Slökkt hefur verið tímabundið á hagkerfum veraldarinnar vegna far- sóttarinnar. Efnahags- og framfara- stofnunin (OECD) telur að heims- hagvöxtur dragist saman um 2% á mánuði, þegar algjört samkomu- bann er í gildi. Samdráttur í lands- framleiðslu margra ríkja samkvæmt OECD eru um 15-30% og er ólíkur eftir samsetningu hagkerfa. Áfallið er af þrennum toga. Eftir- spurnaráfall, þar sem eftirspurn eft- ir vörum og þjónustu hefur hrunið á tímum samkomubanns. Framboðs- áfall vegna þess að hin alþjóðlega virðiskeðja hefur rofnað og að lok- um fjármálakerfisáfall vegna þeirr- ar umfangsmiklu óvissu sem hvílir á fjármálamörkuðum. Hrávöruverð hefur hrunið og endurmat á áhættu á sér stað eru fylgifiskar ástandsins. Fjármagnsflæði milli ríkja hefur stóraukist og fjárfestar leita í ör- yggi. Nýmarkaðsríki upplifa mikinn fjármagnsflótta með þeim afleið- ingum að gjaldmiðlar þeirra veikj- ast og skuldastaða versnar. Þessi þróun gerir það að verkum að tugir ríkja leita eftir fjárhags- aðstoð til að halda hagkerfi sínu gangandi. Atvinnuleysi í Bandaríkj- unum hefur aukist gríðarlega á stuttum tíma og nú blasa við at- vinnuleysistölur sem hafa ekki sést síðan í kreppunni miklu. Velferð- arsamfélögin á Norðurlöndunum sýna styrk sinn í þessu áfalli, þar sem heilbrigðiskerfið og atvinnu- leysistryggingar grípa fólkið. Þessi kerfi eru að sanna gildi sitt og sátt ríkir innan samfélag- anna um að náð sé ut- an um borgara með þessum hætti. Niður- sveiflan verður meiri hjá þeim ríkjum sem hafa ekkert slíkt ör- yggisnet. Ísland er sjálfbært Ísland er lítið og til- lögulega opið hagkerfi sem hefur reitt sig á utanríkisviðskipti til að auka hagsæld sína. Al- þjóðaviðskipti eru mikilvægari smærri hagkerfum en stórum og því verðum við að einblína á að allar viðskiptaleiðir séu sem greiðastar. Landsframleiðslan er að taka á sig högg en mun rétta úr kútnum. Einkaneysla minnkar verulega á tímum samkomubanns, samneyslan eykst umtalsvert sem viðbragð hins opinbera og svo er verið að auka fjárfestingar. Hins vegar eru við- skiptahættir að taka breytingum, þar sem vöruviðskipti eiga sér stað í auknum mæli í gegnum tækni og neyslumynstur er að breytast. Við- skiptajöfnuðurinn tekur tímabundið breytingum vegna farsóttarinnar. Á þessari stundu vitum við ekki hversu lengi þessar aðstæður vara. Mikill afgangur hefur verið á við- skiptajöfnuði, hrein erlend staða er jákvæð og gjaldeyrisvaraforðinn er mjög myndarlegur. Vegna aðstæðna munu heildargjaldeyristekjur þjóð- arbúsins dragast saman tímabundið, en á móti mun innflutningur á þjón- ustujöfnuðinum líka minnka. Vegna þessa þurfum við að tryggja að vöruviðskipti við okkar helstu við- skiptaríki séu sem greiðust. Það er okkar gæfa, að hérlendis eru framleidd til útflutnings hágæða matvæli og eftirspurn er viðvarandi. Það skapar meira jafnvægi í greiðslujöfnuði þjóðarbúsins en annars væri. Eðli faraldursins sem skekur heimsbyggðina er þess eðlis, að fólk flytur hana milli landsvæða og ríkja. Við þurfum að búa okkur undir það, að þjónustujöfnuðurinn verði fyrir tímabundnu áfalli. Við verðum að leggja ríka áherslu á inn- lenda ferðaþjónustu sem hefur allar forsendur til að blómstra enda er búið að fjárfesta ríkulega í henni með innviðum og þekkingu. Um leið og birtir til munum við sjá ferða- þjónustuna blómstra aftur. Ísland hefur upp á mikið að bjóða og við erum gestrisin þjóð. Staða þjóðarbúsins hagfelld í upphafi farsóttar Áður en farsóttin geisaði var ljóst að slaki hafði myndast í hagkerfinu og höfðu stjórnvöld þá þegar gripið til aðgerða til að örva hagkerfið og leyfa sveiflujöfnun þess að virka. Nú hefur hið opinbera, ríkisvald og sveitarfélög, tilkynnt um umfangs- miklar aðgerðir til viðbótar til að mæta þeim áskorunum sem blasa við. Staða ríkissjóðs í upphafi far- sóttar var sterk, þar sem hrein skuldastaða var um 20% af lands- framleiðslu. Til samanburðar er skuldastaða Ítalíu vel yfir 120%. Skuldasamsetningin er einnig hag- felld, þar sem erlendar skuldir eru hlutfallslegar lágar. Það sama má segja um fjármálakerfið sem er fjármagnað að mestu með inn- lendum sparnaði, eiginfjárstaðan er sterk og lausafjárstaðan rúm. Fjár- málakerfið hefur verið styrkt með þjóðhagsvarúðartækjum og um- gjörðin öll er orðin styrkari en áður. Hagkerfið okkar hefur verið drifið áfram af útflutningi, heimili og fyrirtæki hafa styrka eiginfjárstöðu og þjóðhagslegur sparnaður hefur verið mikill. Gjaldeyrisforði þjóð- arbúsins er tæpir þúsund milljarðar króna og hefur ekki verið eins stór í nútímahagsögunni. Þessi staða ger- ir þjóðinni mun betur kleift að fást við þær miklu áskoranir sem far- sóttin leggur okkur til. Við þurfum að sjálfsögðu að vanda til verks og hugsa hvernig við ætlum að koma sem sterkust út úr þessu. Við verðum öll að leggjast á árarnar til að örva hagkerfið, svo að ekki hljótist varanlegur skaði af far- sóttinni. Atvinnuleysi hefur aukist mikið og vinna verður gegn því af öllum mætti. Örva verður einka- neyslu, velferðarhagkerfið okkar eykur samneysluna verulega og við verðum að hugsa stórt varðandi fjárfestingu. Þegar þessir þættir fara allir saman á skipulagðan og agaðan hátt, þá munum við yfirstíga erfiðleikana sem samfélag. Fjárfest í mannauði Við ætlum að sækja fram og efla alla menntun og menningu í land- inu. Því hefur átt sér stað umfangs- mikil vinna í mennta- og menning- armálaráðuneytinu til að tryggja að menntakerfið geti tekið á móti sem flestum sem vilja auka þekkingu og menntun sína. Menningin verður efld og við reiðum okkur á skapandi greinar til framtíðar. Við ætlum að auka fjárveitingar til verk- og tæknigreina og tryggja að há- skólastigið geti mætt þeirri eftir- spurn sem verður til vegna stöð- unnar. Mikill vöxtur hefur verið í iðngreinum og mikil vakning í þeim efnum. Það er sannkallað fagnaðar- efni að sjá þennan mikla vöxt í verk- og tæknigreinum enda hefur það verið markmið í langan tíma að gera betur þar og það er að takast. Við munum leggja mikla áherslu á framhaldsfræðslu og styrkja ís- lenskunám fyrir innflytjendur. Grunnurinn að öflugu menntakerfi er að tryggja öflugt og framsækið kennaranám. Þar höfum við séð mikinn vöxt og grósku og stóraukn- ingu í aðsókn í kennaranám. Þar höldum við áfram og viljum að Ís- land sé í fremstu röð. Markmið þessara aðgerða er að styrkja færni íslensks efnahagslífs, sem lengi hef- ur einkennst af færnimisræmi á vinnumarkaði. Þessu ætlum við að breyta og styrkja vinnumarkaðinn. Menntastefna til ársins 2030 liggur fyrir í drögum og verður þingsálykt- un þess efnis lögð fyrir Alþingi Ís- lendinga á haustþingi. Menningin hefur sannarlega komið sterk inn í þær aðstæður sem uppi eru og veitt huggun og hughreyst. Ljóst er að þar er einn okkar mesti auður og viljum við rækta hann áfram. Ég er sannfærð um að tíminn mun nýtast vel á næstunni til að efla menntun og menningu. Innviðafjárfestingar þurfa að vera miklar Fjárfestingar eru einn af lykil- þáttunum til að örva hagkerfið okk- ar. Mikill vöxtur hefur verið í opin- berum fjárfestingum á síðustu misserum og ljóst að við þurfum að halda áfram á þeirri braut. Í febrúar 1936 birtist byltingar- kennd hagfræðikenning fyrst á prenti. John M. Keynes hafði legið undir feldi við rannsóknir á krepp- unni miklu, þar sem neikvæður spí- rall dró kraftinn úr hagkerfum um allan heim. Niðursveifla og mark- aðsbrestur snarfækkaði störfum, minnkaði kaupmátt og í leiðinni tekjur hins opinbera. Stjórnvöld þess tíma dýpkuðu kreppuna og ollu óbætanlegu tjóni, þar var atvinnu- leysi verst vegna þess að það dró úr þrótti fólksins. Keynes sagði að í þessari stöðu ætti hið opinbera að örva efnahagskerfið með öllum til- tækum ráðum, ráðast í opinberar framkvæmdir og eyða tímabundið um efni fram. Þannig væru ákveðin umsvif í hagkerfinu tryggð, þar til kerfið yrði sjálfbært að nýju. Þegar þeim áfanga yrði náð, ætti hið opin- bera að draga saman seglin og safna í sjóði, svo hagkerfið ofhitnaði ekki. Stjórnvöld munu standa með fólkinu í landinu og vinna að því af öllu afli að minnka áhrif farsóttarinnar á hagkerfið. Leiðarljósið er ávallt að stuðla að heilbrigði þjóðarinnar til að hún geti svo tekið þátt í upp- byggingunni. Til að ná tökum á stöðunni þarf fernt að gerast. COVID-kúrfan þarf að ná toppi sínum og verða niður- hallandi svo innlenda hagkerfið taki við sér, heilbrigðiskerfið þarf að vera nógu öflugt til að sinna vel veiku fólki, sóttvarnir þurfa áfram að vera til staðar þar til lækning finnst og, það sem mestu skiptir, við þurfum að ná vel utan um okkar við- kvæmustu þjóðfélagshópa. Nú stendur páskahátíðin og upprisan er framundan. Ég er sannfærð um að Ísland standi sterkt og rísi upp. Ég vil þakka öllum þeim sem komið hafa að því að vinna sleitulaust að því að sinna sjúkum, halda mennta- kerfinu okkar gangandi og lagt sig fram við að hlúa að okkar dýrmæta samfélagi. Sterkt íslenskt samfélag sem fjárfestir í framtíðinni Eftir Lilju Alfreðsdóttur » Stjórnvöld munu standa með fólkinu í landinu og vinna að því af öllu afli að minnka áhrif farsóttarinnar á hagkerfið. Leiðarljósið er ávallt að stuðla að heilbrigði þjóðarinnar til að hún geti svo tekið þátt í uppbyggingunni. Lilja Alfreðsdóttir Höfundur er mennta- og menningar- málaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins. Morgunblaðið/Ómar Uppbygging „Nú er páskahátíðin og upprisan framundan. Ég er sannfærð um að Ísland standi sterkt og rísi upp. “ 28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020 GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is www.gimli.is Mikil sala! Góður sölutími framundan. Óskum eftir öllum tegundum eigna á skrá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.