Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020 KÓRÓNUVEIRUSMIT Á ÍSLANDI Ragnhildur Þrastardóttir Teitur Gissurarson Alexander Gunnar Kristjánsson Freyr Bjarnason Kona úr bakvarðasveit Heilbrigðis- stofnunar Vestfjarða (HVEST), sem starfað hefur í vikunni á hjúkrunar- heimilinu Bergi í Bolungarvík, var handtekin í gærmorgun. Hún er grunuð um að hafa falsað skjöl um menntun og sjúkraliðastarfsleyfi sitt. Þá er hún grunuð um að hafa stolið eða reynt að stela lyfjum. Kon- an var færð í fangageymslur á Ísa- firði þar sem tekið var stroksýni vegna mögulegs Covid-19 smits. Henni hefur nú verið sleppt en rannsókn málsins er í fullum gangi. Mikið hefur mætt á Vestfirðingum undanfarið vegna fjölda kórónu- veirusmita. „Þetta er auðvitað hörmulegt at- vik. Okkur fannst við vera að ná vopnum okkar en svo kemur þetta ofan í allt sem á undan er gengið. Skjölum um menntun og starfs- reynslu var safnað þegar bakvarða- sveitin var sett saman, en við höfum því miður ástæðu til að halda að hún hafi framvísað fölsuðum gögnum,“ segir Gylfi Ólafsson, forstjóri HVEST, í tilkynningu. Nokkrar ábendingar bárust á fimmtudagskvöld og aðfaranótt föstudags um að ekki væri allt með felldu og var strax gripið til aðgerða. Lögreglunni á Vestfjörðum barst kæra frá forstöðumanni Heilbrigðis- stofnunar Vestfjarða fyrir hádegi í gær. Konan var handtekin í kjölfarið og var húsleit framkvæmd á dvalar- stað hennar. Aðspurður segir Gylfi að atvikið hafi komið honum í opna skjöldu og svona lagað eigi ekki að geta gerst. Starfsemi LSH umbylt Alma Möller landlæknir var á blaðamannafundi almannavarna í gær innt eftir svörum um það hvort atvikið gæfi tilefni til að endurskoða þá verkferla sem til staðar væru vegna inngöngu í bakvarðasveitirn- ar. „Það skiptir mestu máli að vera á varðbergi og læra af þessu og sjá hvað kemur út úr rannsókn til að tryggja að svona gerist ekki aftur,“ sagði Alma þá. Hún sagði einnig að allt liti út fyrir það að toppi í smitum kórónuveiru hefði nú þegar verið náð hérlendis. Þó eiga Íslendingar eftir að sjá topp innlagna á spítala og gjörgæslu. Þá er ekki útlit fyrir að faraldur- inn gangi jafn hratt niður og hann fór upp, að sögn Ölmu. Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans, talaði einnig á fundinum og sagði að starfsemi Landspítala hefði verið umbylt á síðastliðnum mánuði. Hann var sérstaklega spurður út í það hvort biðlistar væru að lengjast vegna veirunnar en öllum valkvæð- um aðgerðum á spítalanum var frestað fyrir nokkru. „Okkar biðlistar eru að lengjast. Það er engin spurning,“ sagði Páll sem bætti því við að það yrði ærið verkefni, þegar um hægðist, að vinna á biðlistum í aðgerðir sem hefur ver- ið frestað vegna kórónuveirunnar. Hann sagði einnig að væntanlega yrði aukinn kraftur settur í valkvæð- ar aðgerðir þegar faraldurinn væri genginn yfir og því myndu biðlist- arnir vonandi ekki fylgja Landspít- alanum of lengi. Grímur standast ekki kröfur Í gær kom til landsins flugvél á vegum Icelandair frá Kína sem flutti tæp sautján tonn af varningi fyrir Landspítala. Þar á meðal voru and- litsgrímur og hlífðargallar. Páll sagði að þó mestallur búnað- urinn uppfyllti allar ströngustu kröf- ur Landspítalans gerðu grímurnar það ekki. Spítalinn hefur ekki áður verslað við þá birgja sem spítalinn verslaði við nú. „Þegar verið er að kaupa varning frá framleiðendum sem hafa ekki verið notaðir áður, þá veit maður ekki alveg fyrr en maður fær vörurn- ar í hendurnar hversu hentugar þær eru,“ sagði Páll um málið. 65 smit hafa verið staðfest á Vest- fjörðum til þessa og er 321 í sóttkví. Mikill kraftur hefur áfram verið í sýnatöku, að sögn Gylfa, þá sérstak- lega á norðanverðum Vestfjörðum. Spurður hvort heilbrigðiskerfið á Vestfjörðum ráði við stöðuna segir Gylfi: „Við leggjum allt kapp á að veita góða og örugga þjónustu og höfum notið liðsinnis bæði Vestfirð- inga og heilbrigðiskerfisins á lands- vísu við það.“ Vestfirðingar hrintu af stað söfn- un fyrir HVEST nýverið svo hægt væri að fara í tækjakaup. Nokkrum milljónum var safnað en stofnunina hefur langað að kaupa fleiri súrefn- issíur, svæfingavél, ytri öndunarvél- ar og akútvagn um langa hríð. „Þetta eru tæki sem okkur hefur langað í um hríð. Vestfirðingar tóku svona svakalega vel við sér að safna fyrir þessu á svona stuttum tíma.“ Í gærmorgun lést kona á níræðis- aldri á Landspítalanum af völdum veirunnar. Því eru alls sjö látin hér á landi. Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 48 277 Útlönd 1 0 Austurland 7 42 Höfuðborgarsvæði 1.200 2.272 Suðurnes 75 145 Norðurland vestra 35 31 Norðurland eystra 47 161 Suðurland 167 337 Vestfirðir 65 321 Vesturland 30 92 Smit Sóttkví Uppruni smits Innanlands Óþekktur Erlendis 34.125 sýni hafa verið tekin 751 einstaklingar hafa náð bata 7 einstaklingar eru látnir 40 eru á sjúkrahúsi 11 á gjör-gæslu 918 eru í einangrun Fjöldi smita frá 28. febrúar til 9. apríl Heimild: covid.is og landspitali.is 1.675 smit voru staðfest í gær kl. 13.00 1.675 924 28. 29. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 1.500 1.250 1.000 750 500 250 þeirra sem hafa greinst voru í sóttkví 80% 54% 11,2% sýna tekin hjá LSH voru jákvæð og 0,75% sýna tekin hjá ÍE 14.846 hafa lokið sóttkví3.678 manns eru í sóttkví Staðfest smit Virk smit Grunuð um að hafa falsað skjöl  Kona úr bakvarðasveit Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða handtekin  Grunuð um að hafa reitt fram fölsuð skjöl um sjúkraliðamenntun og starfsleyfi  Sjö eru látin vegna kórónuveirunnar hér á landi Ljósmynd/Lögreglan Fundur Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma Möller landlæknir og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Brot Konan hafði starfað á hjúkr- unarheimilinu Bergi í Bolungarvík. Síðustu þrjá sólarhringa hefur ekkert nýtt smit COVID-19 greinst í Vestmanna- eyjum og er heildarfjöldi staðfestra smita sem tengjast Vestmannaeyjum því 102 talsins, að sögn Hjartar Kristjánssonar, umdæmislæknis sóttvarna á Suðurlandi. „Ég hef litla trú á því að þetta sé búið. Það hefur hitt þannig á að við höfum ekki greint nein til- felli síðustu sólarhringa. Stóra skimunin í síðustu viku leikur lík- lega stórt hlutverk í því. Tilfelli hafa fundist þá sem annars væru að koma upp seinna og það hef- ur líka hindrað dreifingu smits.“ Þrátt fyrir að toppi í fjölda til- fella í Eyjum hafi líklega verið náð segir Hjörtur að fólk þurfi enn að vera á varðbergi til að koma í veg fyrir að annar kúfur birtist í fjölda smita í Eyjum. „Ég hef áhyggjur af því að fólk verði of værukært núna þegar tölurnar fara að lækka og gæti ekki eins að sér í því að fara að reglum og ráðum. Það gæti þýtt það að faraldurinn næði sér á strik aftur. […] Þetta er lang- hlaup og það er ekki búið.“ Nokkrir tugir sýna eru teknir á Suðurlandi daglega. Þegar mest var voru 84 í einangrun í Eyjum en eins og staðan var eftir laug- ardaginn höfðu 39 samtals út- skrifast og því 63 í einangrun. Talsvert færri eru nú í sóttkví en þegar mest var. Tveir ein- staklingar hafa þurft að leggjast inn á Landspítala en eru báðir útskrifaðir og komnir aftur til Vestmannaeyja. Faraldrinum ekki lokið ENGIN NÝ SMIT Í EYJUM Hjörtur Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.