Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 48
Útvarpsleikhús Rásar 1 frumflytur nú páskana nýtt gamanleikrit eftir Jón Gnarr og nefnist það Ferðalög. Verkið er flutt í fjórum hlutum og voru þeir fyrstu frum- fluttir á skírdag og föstudaginn langa og þeir næstu á morgun, páskadag, og annan í páskum. Hægt er að hlusta á fyrstu tvo hlutana á vef RÚV. Verkið gerist á óræðum tíma þegar Alþingi hefur samþykkt ný lög um ferðalög Íslendinga til útlanda, að því er fram kemur á vef RÚV. Jón leikstýrir verkinu sjálfur og með helstu hlutverk fara Eggert Þorleifsson, Katrín Halldóra Sig- urðardóttir og Þórey Birgisdóttir. Ferðalög Jóns í Útvarpsleikhúsinu LAUGARDAGUR 11. APRÍL 102. DAGUR ÁRSINS 2020 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.196 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Frábærir leikmenn hafa sagt ýmsar magnaðar sögur af körfuknatt- leikskappanum Michael Jordan síð- ustu árin, löngu eftir að hann hætti að spila. Þessar frá- sagnir veita fólki meiri innsýn og fara með hinn almenna áhugamann á bak við tjöldin og inn á völlinn í mörgum til- fellum. Morgunblaðið rifjar upp nokkrar áhugaverðar sögur af Jordan í blaðinu í dag. Voru þær sagðar í fjöl- miðlum af frægum köppum: Dominique Wilkins, Byron Scott, Jason Kidd, Grant Hill, Reggie Miller, Isaiah Ri- der, Kevin Garnett og Doug Collins. »40-41 Gat gert það sem honum sýndist ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þríeykið og síðan Helgi Björns, Vil- borg Halldórsdóttir, eiginkona hans, og Reiðmenn vindanna ásamt gestum hafa komið landsmönnum í gegnum kórónuveiruna undanfarnar vikur. Í síðarnefnda hópnum er trommarinn Ingólfur Sigurðsson og segja má að hann hafi slegið taktinn fyrir þjóðina með innlifun sinni og útgeislun á tón- leikunum Heima með Helga Björns, sem hafa verið í beinni útsend- ingu Sjónvarps Símans þrjú laugardags- kvöld í röð og verða í fjórða sinn í kvöld: Heima með Helga um páskana. „Hugmynd Helga hefur alfarið gengið upp, tónleikarnir hafa tekist ótrúlega vel og viðbrögðin hafa verið eftir því,“ segir Ingólfur. Hann hefur verið mjög „lifandi“ í útsendingunum og segir tjáninguna fylgja hljómfall- inu. „Ég er stöðugt að radda og það tekur í að syngja út í eitt án þess að hreyfingarnar fylgi með.“ Byrjaði að tromma 13 ára Þegar Ingólfur var 13 ára var hann búinn að safna fyrir trommusetti með því að bera út dagblöð og hann byrj- aði að æfa sig úti í bílskúr vorið 1983. „Fyrsta „alvöru“ hljómsveit mín var Rauðir fletir og við gáfum út tvær plötur 1986 og 1987,“ rifjar hann upp. Bætir við að þá hafi Helgi Björns heyrt sig spila og boðið sér á æfingu með Síðan skein sól. „Allir voru búnir að stilla sér upp og það var hræðilegt fyrir mig, 17 ára strák blautan á bak við eyrun, að koma og setjast við trommurnar, en við smullum strax saman og þarna varð til lagið „Einn plús“ sem kom út á fyrst plötu SSSól.“ Eftir um fjögur góð ár í bandinu gekk Ingólfur til liðs við æskufélaga í hljómsveitinni Orgil. Hann kom líka við í Pláhnetum, þar sem Stefán Hilmarsson var á meðal liðsmanna, og hefur verið í Greifunum frá 1997. 2017 voru haldnir vel heppnaðir tón- leikar í tilefni þess að hljómsveitin SSSól hafði verið stofnuð 30 árum áð- ur. „Gamla bandið var í forgrunninum, ég gekk aftur til liðs við Helga og hef spilað með honum undanfarin þrjú ár,“ segir Ingólfur og er greinilega ánægð- ur með gang mála. Tónlistarmenn þurfa að vera í góðu líkamlegu ástandi og Ingólfur hefur haldið sér við með því að hlaupa með hundana sína tvo. „Ég var líka dag- hlaupari hjá Fréttablaðinu í tólf ár, en hætti því 2018,“ segir hann. Hlaupin skila sér heim í stofu og Ingólfur situr úti í horni og gefur tón- inn á cajun-trommurnar. „Ég er eini trommarinn, sem hefur eitthvað að gera um þessar mundir,“ segir hann kankvís. Bætir við að ekkert annað sé reyndar á dagskrá hjá sér og því gef- ist góður tími til undirbúnings. „Við hittumst alltaf á föstudögum, því þá liggur fyrir hverjir verða sérstakir gestir, og förum yfir það sem við ætl- um að gera. Svo tökum við gott rennsli eftir hádegi á laugardögum áður en tónleikarnir hefjast klukkan átta.“ Oft hefur verið sagt að trommarinn sé mikilvægasti hlekkur hverrar hljómsveitar, því hann slái taktinn og haldi mönnum í réttri tóntegund. Ing- ólfur segir að þetta sé gömul klisja. Engin keðja sé sterkari en veikasti hlekkurinn og því skipti allir máli. „Maður verður bara að passa að halda einbeitningunni og láta ekkert trufla sig.“ Trommarinn slær taktinn fyrir þjóðina Ljósmyndir/Mummi Lú Einbeittur Ingólfur Sigurðsson lifir sig inn í tónlistina og kann sitt fag.  Ingólfur Sigurðsson byrjaði að spila með Helga Björns 1987 Í stofunni Ingólfur, Stefán Magnússon og yfirmeistarinn Helgi Björns. G e i r s g a t a 4 - 5 1 9 4 4 9 0 - v i ð H a f n a r t o r g Suðurlandsbraut 54 568 9512 bláu húsin (við faxafen) Kringlunni 552 8600 567 0120 Opið í dag frá kl.12 til 16 Lokað páskadag og annan í páskum 552 2201 og kringlan.isSkoðaðu vöruúrvalið hjá okkur á Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu 568 9234 544 2410

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.