Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020 MOKKAKÖNNUR SMÁRALIND – KRINGLAN DÚKA.IS Frí heimsending á duka.is Sendum um allt land HA PPATALA • D AG SIN S ER • TIL HAMINGJU – ÞÚ HEFUR FUNDIÐ HAPPATÖLUNA! Farðu inn á mbl.is/happatala og gefðu upp töluna til að komast í pottinn. Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland vaknar á K100 á þriðjudagsmorgun. Þú gætir unnið glænýjan Samsung Galaxy S20+. 23 Franskir vísindaamenn greina frá því í nýjasta hefti tímaritsins Nat- ure, að þeir hafi uppgötvað stökk- breyttan lífhvata sem geti á aðeins nokkrum klukkustundum brotið nið- ur PET-plastefni og breytt því í hrá- efni. Í tilraunum franska líftæknifyrir- tækisins Carbios brutu ensímin nið- ur nær tonn af úrgangsplasti á tíu klukkustundum. Það sem til féll var síðan brúkað til að skapa nýjar flösk- ur úr gæðaplasti. Fyrirtækið stefnir að stórtækri endurvinnslu með lífhvatann að vopni innan næstu fimm ára. Til að gera það að veruleika hefur Carbios fengið fyrirtækin Suntory, Food Eu- rope og Nestle Waters til samstarfs. Carbios hefur þróað ensímið nýja í samstarfi við líftæknistofnun háskól- ans í Toulouse (TBI) og er gerð grein fyrir því í Nature hvernig brjóta megi stórsameind plastsins niður svo úr verði nýtt hráefni. Eigi þar sér stað afar skilvirk endurvinnsla plasts í nýjar flöskur. Úr PET-plasti eru framleiddar flöskur, flísfataefni, matvælabox og margt annað. Við endurvinnsluaðferð Carbios verður til raunveruleg notkunar- og vinnslu- hringrás plasts sem gæti átt eftir að draga úr plastmengun í höfunum og gera jörðina hreinni. agas@mbl.is AFP Endurvinnsla Plast hreinsað úr sjónum við Dakar í Senegal. Gríðarlegir möguleikar á endurnýtingu plasts eru taldir felast í nýrri hreinsitækni. Hægt að breyta plasti aftur í hráefni Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Hundruð milljóna manna um heim allan verða að halda sig innandyra á heimilum sínum um páskahelgina vegna kórónuveirunnar og verða af þeim sið að sækja messur á páskum. Ríki heims freista þess með marg- víslegum hætti að stöðva framgang veirunnar en dauðsföll af hennar völdum eru komin yfir 100.000 manna múrinn. Fyrirtækjum hefur verið lokað og ferðalög helmings mannkynsins hafa verið takmörkuð, allt með þeim af- leiðingum að efnahagslífið hefur nær stöðvast. Hefur Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn (IMF) varað við því að við blasi heimskreppa á borð við krepp- una miklu á fjórða áratug síðustu ald- ar. Mestu áhrifin í Bandaríkjunum Um 17 milljónir Bandaríkjamanna hafa misst atvinnuna frá því veiran hóf herför sína. Í þeim tilgangi að reisa efnahagslífið við hafa stjórnvöld samþykkt að verja til þess 2,3 bilj- ónum dollara. Bandaríkin eru á góðri leið að vera helsta athafnasvæði kór- ónuveirunnar. Rúmlega 1.700 manns létust á skírdag og 1.973 daginn áður. Þá hafa um 500.000 manns smitast af veirunni. Aðeins eru dauðsföll í einu ríki fleiri, á Ítalíu, enn sem komið er. Hvergi hafa jafn margir smitast og í Bandaríkjunum. Samkvæmt útreikn- ingum AFP hefur kórónuveiran smit- að 1,6 milljónir manna. Staðfest var í gær, föstudaginn langa, að rúmlega 100.000 manns væru látnir af völdum veirunnar. Til- kynnt var um tæpan helming þessara smita síðustu átta dagana. Bretum létti í gær er forsætisráð- herrann Boris Johnson var fluttur á venjulega legudeild eftir að hafa ver- ið í gjörgæslu þar í þrjá sólarhringa. „Baráttuandi hans er einkar ánægju- legur,“ sagði talsmaður ríkisstjórnar- innar. Embættis- og ráðamenn í Evrópu og Bandaríkjunum sögðu vissan létti vera í nýrri tölfræði sem var betri en dagana þar á undan. Dauðsföll á ein- um sólarhring í fyrradag voru þau fæstu í 17 daga. Varð það Pedro Sanchez forsætisráðherra ástæða til að lýsa því yfir að „við höfum náð undirtökum í bardaganum við eldana sem faraldurinn kveikti“. Frakkar skýrðu einnig frá því í gær að sjúklingum í gjörgæslu hefði fækkað í fyrsta sinn frá því farald- urinn hóf innreið sína þar í landi. Hafa 12.210 manns dáið af völdum veirunnar í Frakklandi, þar af 4.166 á elliheimilum. Kórónuveirufaraldur- inn eirir engum því hann hefur lagst á 50 sjóliða á hinu einkar fullkomna flugmóðurskipi Charles-de-Gaulle. Er skipið á leið til lands með hópinn til innlagnar á sjúkrahús í Nouvelle- Aquitaine við Biscayaflóa. Anthony Fauci, helsti sérfræðing- ur bandarískra stjórnvalda í farald- ursfræðum, kvaðst bjartsýnn á að þar í landi færi þróunin að „stefna í rétta átt“. Veiran spillir helgihaldinu  Dauðsföll vegna kórónuveirunnar rjúfa 100.000 manna múrinn  Heimskreppa blasir við að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins  1,6 milljónir manna hafa smitast AFP París Frúarkirkjan var vettvangur helgiathafnar í gær, rétt tæpu ári eftir að hún laskaðist í eldsvoða. Aðgangur að helgihaldinu var takmarkaður. Hálf öld var í gær liðin frá því bresku Bítlarnir, The Beatles, liðu endanlega undir lok sem hljóm- sveit. Olli það aðdáendum sveit- arinnar um heim allan miklu hug- arangri. Losarabragur var kominn á samstarf sveitarinnar sem gjör- breytti popptónlistinni. Paul McCartney rak svo smiðshöggið á það með fréttatilkynningu sem fylgdi útgáfu fyrstu plötu sólóferils hans. Birti götublaðið Daily Mirror hana 10. apríl 1970, um viku fyrir plötuútkomu McCartneys. Eins og þruma úr heiðskíru lofti kom sú yfirlýsing hans að hann sæi ekki fyrir sér að þeir John Lennon myndu semja fleiri lög saman og eins að Bítlarnir væru ekki lengur til sem starfandi sjálfstæð hljóm- sveit. Mörgum virtist ljóst hvert stefndi. Um mitt árið 1968 struns- aði Ringo Starr út úr hljóðverum þegar Bítlarnir unnu að Hvíta al- búminu svonefnda. George Harr- ison hætti um skeið í janúar 1969 og John Lennon staðfesti í september 1969 að hann hygðist hætta í Bítl- unum. agas@mbl.is BRETLAND Bítlarnir hættu fyrir hálfri öld AFP Tónlist Unnendur Bítlanna lögðu mikið á sig til að komast í kynni við goðin. Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, sagði björgunarpakka ESB vegna kórónuveirunnar „mikilvægt skref“ sem hrinda þyrfti í framkvæmd „eins fljótt og auðið er“. Eftir langar og erf- iðar viðræður náðu ESB-ríkin í fyrrakvöld samkomulagi um 500 milljarða björgunarsjóð til aðstoðar þeim aðildarríkjum sem verst verða úti. „Þetta er mikilvægur áfangi til sameig- inlegra viðbragða og evrópskrar samstöðu,“ sagði Merkel. Pakki ESB mikilvægur ÞÝSKALANDSKANSLARI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.