Morgunblaðið - 11.04.2020, Blaðsíða 48
Útvarpsleikhús Rásar 1 frumflytur nú páskana nýtt
gamanleikrit eftir Jón Gnarr og nefnist það Ferðalög.
Verkið er flutt í fjórum hlutum og voru þeir fyrstu frum-
fluttir á skírdag og föstudaginn langa og þeir næstu á
morgun, páskadag, og annan í páskum. Hægt er að
hlusta á fyrstu tvo hlutana á vef RÚV. Verkið gerist á
óræðum tíma þegar Alþingi hefur samþykkt ný lög um
ferðalög Íslendinga til útlanda, að því er fram kemur á
vef RÚV. Jón leikstýrir verkinu sjálfur og með helstu
hlutverk fara Eggert Þorleifsson, Katrín Halldóra Sig-
urðardóttir og Þórey Birgisdóttir.
Ferðalög Jóns í Útvarpsleikhúsinu
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 102. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Frábærir leikmenn
hafa sagt ýmsar
magnaðar sögur af
körfuknatt-
leikskappanum
Michael Jordan síð-
ustu árin, löngu eftir
að hann hætti að
spila. Þessar frá-
sagnir veita fólki
meiri innsýn og fara
með hinn almenna
áhugamann á bak
við tjöldin og inn á
völlinn í mörgum til-
fellum. Morgunblaðið rifjar upp nokkrar áhugaverðar
sögur af Jordan í blaðinu í dag. Voru þær sagðar í fjöl-
miðlum af frægum köppum: Dominique Wilkins, Byron
Scott, Jason Kidd, Grant Hill, Reggie Miller, Isaiah Ri-
der, Kevin Garnett og Doug Collins. »40-41
Gat gert það sem honum sýndist
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þríeykið og síðan Helgi Björns, Vil-
borg Halldórsdóttir, eiginkona hans,
og Reiðmenn vindanna ásamt gestum
hafa komið landsmönnum í gegnum
kórónuveiruna undanfarnar vikur. Í
síðarnefnda hópnum er trommarinn
Ingólfur Sigurðsson og segja má að
hann hafi slegið taktinn fyrir þjóðina
með innlifun sinni og útgeislun á tón-
leikunum Heima með Helga Björns,
sem hafa verið
í beinni útsend-
ingu Sjónvarps
Símans þrjú
laugardags-
kvöld í röð og
verða í fjórða
sinn í kvöld:
Heima með
Helga um
páskana.
„Hugmynd Helga hefur alfarið
gengið upp, tónleikarnir hafa tekist
ótrúlega vel og viðbrögðin hafa verið
eftir því,“ segir Ingólfur. Hann hefur
verið mjög „lifandi“ í útsendingunum
og segir tjáninguna fylgja hljómfall-
inu. „Ég er stöðugt að radda og það
tekur í að syngja út í eitt án þess að
hreyfingarnar fylgi með.“
Byrjaði að tromma 13 ára
Þegar Ingólfur var 13 ára var hann
búinn að safna fyrir trommusetti með
því að bera út dagblöð og hann byrj-
aði að æfa sig úti í bílskúr vorið 1983.
„Fyrsta „alvöru“ hljómsveit mín var
Rauðir fletir og við gáfum út tvær
plötur 1986 og 1987,“ rifjar hann upp.
Bætir við að þá hafi Helgi Björns
heyrt sig spila og boðið sér á æfingu
með Síðan skein sól. „Allir voru búnir
að stilla sér upp og það var hræðilegt
fyrir mig, 17 ára strák blautan á bak
við eyrun, að koma og setjast við
trommurnar, en við smullum strax
saman og þarna varð til lagið „Einn
plús“ sem kom út á fyrst plötu
SSSól.“
Eftir um fjögur góð ár í bandinu
gekk Ingólfur til liðs við æskufélaga í
hljómsveitinni Orgil. Hann kom líka
við í Pláhnetum, þar sem Stefán
Hilmarsson var á meðal liðsmanna,
og hefur verið í Greifunum frá 1997.
2017 voru haldnir vel heppnaðir tón-
leikar í tilefni þess að hljómsveitin
SSSól hafði verið stofnuð 30 árum áð-
ur. „Gamla bandið var í forgrunninum,
ég gekk aftur til liðs við Helga og hef
spilað með honum undanfarin þrjú ár,“
segir Ingólfur og er greinilega ánægð-
ur með gang mála.
Tónlistarmenn þurfa að vera í góðu
líkamlegu ástandi og Ingólfur hefur
haldið sér við með því að hlaupa með
hundana sína tvo. „Ég var líka dag-
hlaupari hjá Fréttablaðinu í tólf ár, en
hætti því 2018,“ segir hann.
Hlaupin skila sér heim í stofu og
Ingólfur situr úti í horni og gefur tón-
inn á cajun-trommurnar. „Ég er eini
trommarinn, sem hefur eitthvað að
gera um þessar mundir,“ segir hann
kankvís. Bætir við að ekkert annað sé
reyndar á dagskrá hjá sér og því gef-
ist góður tími til undirbúnings. „Við
hittumst alltaf á föstudögum, því þá
liggur fyrir hverjir verða sérstakir
gestir, og förum yfir það sem við ætl-
um að gera. Svo tökum við gott
rennsli eftir hádegi á laugardögum
áður en tónleikarnir hefjast klukkan
átta.“
Oft hefur verið sagt að trommarinn
sé mikilvægasti hlekkur hverrar
hljómsveitar, því hann slái taktinn og
haldi mönnum í réttri tóntegund. Ing-
ólfur segir að þetta sé gömul klisja.
Engin keðja sé sterkari en veikasti
hlekkurinn og því skipti allir máli.
„Maður verður bara að passa að
halda einbeitningunni og láta ekkert
trufla sig.“
Trommarinn slær
taktinn fyrir þjóðina
Ljósmyndir/Mummi Lú
Einbeittur Ingólfur Sigurðsson lifir sig inn í tónlistina og kann sitt fag.
Ingólfur Sigurðsson byrjaði að spila með Helga Björns 1987
Í stofunni Ingólfur, Stefán Magnússon og yfirmeistarinn Helgi Björns.
G e i r s g a t a 4 - 5 1 9 4 4 9 0 - v i ð H a f n a r t o r g
Suðurlandsbraut 54 568 9512 bláu húsin (við faxafen)
Kringlunni 552 8600
567 0120
Opið í dag
frá kl.12 til 16
Lokað páskadag og
annan í páskum
552 2201
og kringlan.isSkoðaðu vöruúrvalið hjá okkur á
Frí heimsending
á höfuðborgarsvæðinu
568 9234 544 2410