Morgunblaðið - 11.04.2020, Qupperneq 28
Dugnaður og þraut-
seigja eru meginstyrk-
leikar þjóðarinnar.
Ljóst er að formæður
og -feður hafa oft á tíð-
um þurft að beita
miklu hugviti til að lifa
af erfiða tíð og nátt-
úruhamfarir. Eigin-
leika og þekkingu
þjóðarinnar þurfum
við að rækta, nýta vel
tímann á næstu misserum og styðja
við mannauðinn okkar, svo við kom-
um sterk út úr núverandi að-
stæðum. Um alla veröld er fólk að
fást við farsótt og hvernig verja
megi heilbrigði þjóða. Þessi orrusta
mun taka tíma en öllu máli skiptir
hvernig við verjumst veirunni og
hvernig við styrkjum viðnámsþrótt
samfélagsins. Íslenskt samfélag hef-
ur alla burði til að standa sterkt ef
forgangsraðað er á réttan hátt.
Alþjóðahagkerfið á
tímum farsóttar
Alþjóðahagkerfið verður fyrir
miklum búsifjum vegna COVID-19.
Slökkt hefur verið tímabundið á
hagkerfum veraldarinnar vegna far-
sóttarinnar. Efnahags- og framfara-
stofnunin (OECD) telur að heims-
hagvöxtur dragist saman um 2% á
mánuði, þegar algjört samkomu-
bann er í gildi. Samdráttur í lands-
framleiðslu margra ríkja samkvæmt
OECD eru um 15-30% og er ólíkur
eftir samsetningu hagkerfa.
Áfallið er af þrennum toga. Eftir-
spurnaráfall, þar sem eftirspurn eft-
ir vörum og þjónustu hefur hrunið á
tímum samkomubanns. Framboðs-
áfall vegna þess að hin alþjóðlega
virðiskeðja hefur rofnað og að lok-
um fjármálakerfisáfall vegna þeirr-
ar umfangsmiklu óvissu sem hvílir á
fjármálamörkuðum. Hrávöruverð
hefur hrunið og endurmat á áhættu
á sér stað eru fylgifiskar ástandsins.
Fjármagnsflæði milli ríkja hefur
stóraukist og fjárfestar leita í ör-
yggi. Nýmarkaðsríki upplifa mikinn
fjármagnsflótta með þeim afleið-
ingum að gjaldmiðlar þeirra veikj-
ast og skuldastaða versnar.
Þessi þróun gerir það að verkum
að tugir ríkja leita eftir fjárhags-
aðstoð til að halda hagkerfi sínu
gangandi. Atvinnuleysi í Bandaríkj-
unum hefur aukist gríðarlega á
stuttum tíma og nú blasa við at-
vinnuleysistölur sem hafa ekki sést
síðan í kreppunni miklu. Velferð-
arsamfélögin á Norðurlöndunum
sýna styrk sinn í þessu áfalli, þar
sem heilbrigðiskerfið og atvinnu-
leysistryggingar grípa fólkið. Þessi
kerfi eru að sanna gildi sitt og sátt
ríkir innan samfélag-
anna um að náð sé ut-
an um borgara með
þessum hætti. Niður-
sveiflan verður meiri
hjá þeim ríkjum sem
hafa ekkert slíkt ör-
yggisnet.
Ísland er sjálfbært
Ísland er lítið og til-
lögulega opið hagkerfi
sem hefur reitt sig á
utanríkisviðskipti til að
auka hagsæld sína. Al-
þjóðaviðskipti eru mikilvægari
smærri hagkerfum en stórum og því
verðum við að einblína á að allar
viðskiptaleiðir séu sem greiðastar.
Landsframleiðslan er að taka á sig
högg en mun rétta úr kútnum.
Einkaneysla minnkar verulega á
tímum samkomubanns, samneyslan
eykst umtalsvert sem viðbragð hins
opinbera og svo er verið að auka
fjárfestingar. Hins vegar eru við-
skiptahættir að taka breytingum,
þar sem vöruviðskipti eiga sér stað í
auknum mæli í gegnum tækni og
neyslumynstur er að breytast. Við-
skiptajöfnuðurinn tekur tímabundið
breytingum vegna farsóttarinnar. Á
þessari stundu vitum við ekki
hversu lengi þessar aðstæður vara.
Mikill afgangur hefur verið á við-
skiptajöfnuði, hrein erlend staða er
jákvæð og gjaldeyrisvaraforðinn er
mjög myndarlegur. Vegna aðstæðna
munu heildargjaldeyristekjur þjóð-
arbúsins dragast saman tímabundið,
en á móti mun innflutningur á þjón-
ustujöfnuðinum líka minnka. Vegna
þessa þurfum við að tryggja að
vöruviðskipti við okkar helstu við-
skiptaríki séu sem greiðust.
Það er okkar gæfa, að hérlendis
eru framleidd til útflutnings hágæða
matvæli og eftirspurn er viðvarandi.
Það skapar meira jafnvægi í
greiðslujöfnuði þjóðarbúsins en
annars væri. Eðli faraldursins sem
skekur heimsbyggðina er þess eðlis,
að fólk flytur hana milli landsvæða
og ríkja. Við þurfum að búa okkur
undir það, að þjónustujöfnuðurinn
verði fyrir tímabundnu áfalli. Við
verðum að leggja ríka áherslu á inn-
lenda ferðaþjónustu sem hefur allar
forsendur til að blómstra enda er
búið að fjárfesta ríkulega í henni
með innviðum og þekkingu. Um leið
og birtir til munum við sjá ferða-
þjónustuna blómstra aftur. Ísland
hefur upp á mikið að bjóða og við
erum gestrisin þjóð.
Staða þjóðarbúsins hagfelld
í upphafi farsóttar
Áður en farsóttin geisaði var ljóst
að slaki hafði myndast í hagkerfinu
og höfðu stjórnvöld þá þegar gripið
til aðgerða til að örva hagkerfið og
leyfa sveiflujöfnun þess að virka.
Nú hefur hið opinbera, ríkisvald og
sveitarfélög, tilkynnt um umfangs-
miklar aðgerðir til viðbótar til að
mæta þeim áskorunum sem blasa
við. Staða ríkissjóðs í upphafi far-
sóttar var sterk, þar sem hrein
skuldastaða var um 20% af lands-
framleiðslu. Til samanburðar er
skuldastaða Ítalíu vel yfir 120%.
Skuldasamsetningin er einnig hag-
felld, þar sem erlendar skuldir eru
hlutfallslegar lágar. Það sama má
segja um fjármálakerfið sem er
fjármagnað að mestu með inn-
lendum sparnaði, eiginfjárstaðan er
sterk og lausafjárstaðan rúm. Fjár-
málakerfið hefur verið styrkt með
þjóðhagsvarúðartækjum og um-
gjörðin öll er orðin styrkari en áður.
Hagkerfið okkar hefur verið drifið
áfram af útflutningi, heimili og
fyrirtæki hafa styrka eiginfjárstöðu
og þjóðhagslegur sparnaður hefur
verið mikill. Gjaldeyrisforði þjóð-
arbúsins er tæpir þúsund milljarðar
króna og hefur ekki verið eins stór í
nútímahagsögunni. Þessi staða ger-
ir þjóðinni mun betur kleift að fást
við þær miklu áskoranir sem far-
sóttin leggur okkur til.
Við þurfum að sjálfsögðu að
vanda til verks og hugsa hvernig við
ætlum að koma sem sterkust út úr
þessu. Við verðum öll að leggjast á
árarnar til að örva hagkerfið, svo að
ekki hljótist varanlegur skaði af far-
sóttinni. Atvinnuleysi hefur aukist
mikið og vinna verður gegn því af
öllum mætti. Örva verður einka-
neyslu, velferðarhagkerfið okkar
eykur samneysluna verulega og við
verðum að hugsa stórt varðandi
fjárfestingu. Þegar þessir þættir
fara allir saman á skipulagðan og
agaðan hátt, þá munum við yfirstíga
erfiðleikana sem samfélag.
Fjárfest í mannauði
Við ætlum að sækja fram og efla
alla menntun og menningu í land-
inu. Því hefur átt sér stað umfangs-
mikil vinna í mennta- og menning-
armálaráðuneytinu til að tryggja að
menntakerfið geti tekið á móti sem
flestum sem vilja auka þekkingu og
menntun sína. Menningin verður
efld og við reiðum okkur á skapandi
greinar til framtíðar. Við ætlum að
auka fjárveitingar til verk- og
tæknigreina og tryggja að há-
skólastigið geti mætt þeirri eftir-
spurn sem verður til vegna stöð-
unnar. Mikill vöxtur hefur verið í
iðngreinum og mikil vakning í þeim
efnum. Það er sannkallað fagnaðar-
efni að sjá þennan mikla vöxt í verk-
og tæknigreinum enda hefur það
verið markmið í langan tíma að gera
betur þar og það er að takast. Við
munum leggja mikla áherslu á
framhaldsfræðslu og styrkja ís-
lenskunám fyrir innflytjendur.
Grunnurinn að öflugu menntakerfi
er að tryggja öflugt og framsækið
kennaranám. Þar höfum við séð
mikinn vöxt og grósku og stóraukn-
ingu í aðsókn í kennaranám. Þar
höldum við áfram og viljum að Ís-
land sé í fremstu röð. Markmið
þessara aðgerða er að styrkja færni
íslensks efnahagslífs, sem lengi hef-
ur einkennst af færnimisræmi á
vinnumarkaði. Þessu ætlum við að
breyta og styrkja vinnumarkaðinn.
Menntastefna til ársins 2030 liggur
fyrir í drögum og verður þingsálykt-
un þess efnis lögð fyrir Alþingi Ís-
lendinga á haustþingi. Menningin
hefur sannarlega komið sterk inn í
þær aðstæður sem uppi eru og veitt
huggun og hughreyst. Ljóst er að
þar er einn okkar mesti auður og
viljum við rækta hann áfram. Ég er
sannfærð um að tíminn mun nýtast
vel á næstunni til að efla menntun
og menningu.
Innviðafjárfestingar
þurfa að vera miklar
Fjárfestingar eru einn af lykil-
þáttunum til að örva hagkerfið okk-
ar. Mikill vöxtur hefur verið í opin-
berum fjárfestingum á síðustu
misserum og ljóst að við þurfum að
halda áfram á þeirri braut.
Í febrúar 1936 birtist byltingar-
kennd hagfræðikenning fyrst á
prenti. John M. Keynes hafði legið
undir feldi við rannsóknir á krepp-
unni miklu, þar sem neikvæður spí-
rall dró kraftinn úr hagkerfum um
allan heim. Niðursveifla og mark-
aðsbrestur snarfækkaði störfum,
minnkaði kaupmátt og í leiðinni
tekjur hins opinbera. Stjórnvöld
þess tíma dýpkuðu kreppuna og ollu
óbætanlegu tjóni, þar var atvinnu-
leysi verst vegna þess að það dró úr
þrótti fólksins. Keynes sagði að í
þessari stöðu ætti hið opinbera að
örva efnahagskerfið með öllum til-
tækum ráðum, ráðast í opinberar
framkvæmdir og eyða tímabundið
um efni fram. Þannig væru ákveðin
umsvif í hagkerfinu tryggð, þar til
kerfið yrði sjálfbært að nýju. Þegar
þeim áfanga yrði náð, ætti hið opin-
bera að draga saman seglin og safna
í sjóði, svo hagkerfið ofhitnaði ekki.
Stjórnvöld munu standa með fólkinu
í landinu og vinna að því af öllu afli
að minnka áhrif farsóttarinnar á
hagkerfið. Leiðarljósið er ávallt að
stuðla að heilbrigði þjóðarinnar til
að hún geti svo tekið þátt í upp-
byggingunni.
Til að ná tökum á stöðunni þarf
fernt að gerast. COVID-kúrfan þarf
að ná toppi sínum og verða niður-
hallandi svo innlenda hagkerfið taki
við sér, heilbrigðiskerfið þarf að
vera nógu öflugt til að sinna vel
veiku fólki, sóttvarnir þurfa áfram
að vera til staðar þar til lækning
finnst og, það sem mestu skiptir, við
þurfum að ná vel utan um okkar við-
kvæmustu þjóðfélagshópa. Nú
stendur páskahátíðin og upprisan er
framundan. Ég er sannfærð um að
Ísland standi sterkt og rísi upp. Ég
vil þakka öllum þeim sem komið
hafa að því að vinna sleitulaust að
því að sinna sjúkum, halda mennta-
kerfinu okkar gangandi og lagt sig
fram við að hlúa að okkar dýrmæta
samfélagi.
Sterkt íslenskt samfélag
sem fjárfestir í framtíðinni
Eftir Lilju
Alfreðsdóttur
» Stjórnvöld munu
standa með fólkinu í
landinu og vinna að því
af öllu afli að minnka
áhrif farsóttarinnar á
hagkerfið. Leiðarljósið
er ávallt að stuðla að
heilbrigði þjóðarinnar
til að hún geti svo tekið
þátt í uppbyggingunni.
Lilja Alfreðsdóttir
Höfundur er mennta- og menningar-
málaráðherra og varaformaður
Framsóknarflokksins.
Morgunblaðið/Ómar
Uppbygging „Nú er páskahátíðin og upprisan framundan. Ég er sannfærð um að Ísland standi sterkt og rísi upp. “
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. APRÍL 2020
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Mikil sala!
Góður sölutími framundan.
Óskum eftir öllum tegundum
eigna á skrá.