Morgunblaðið - 21.04.2020, Page 10

Morgunblaðið - 21.04.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is samlegt ka nýmalað, engin h lki. á y – Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fiskifræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun er bjartsýnn á laxagöngur í sumar og að veiði taki vel við sér, að minnsta kosti á Vesturlandi. Enn liggur ekkert fyrir um það hvaða reglur munu gilda um komur er- lendra ferðamanna til landsins í sumar vegna kórónuveirunnar og þar með veiðimanna sem standa undir stórum hluta tekna veiðirétt- areigenda og veiðileyfasala. For- maður Stangaveiðifélags Reykja- víkur segir að þegar staðan skýrist verði unnið út frá henni í samvinnu við landeigendur og viðskiptavini. Félagið hafi alls ekki lagt árar í bát. „Ég er nokkuð bjartsýnn fyrir sumarið,“ segir Sigurður Már Einarsson, fiskifræðingur á starfs- stöð Hafrannsóknastofnunar á Hvanneyri. Hann rifjar upp að allar vísbendingar fyrir síðasta sumar hafi verið neikvæðar sem svo hafi orðið raunin í lélegu veiðisumri. „Út af tíðarfarinu í vetur eigum við von á mun betra vatnafari í ánum. Við eigum von á sterkari klakárgöngum og seiðin gengu í fyrra út í mun hlýrri sjó en árið áður. Hvað Vest- urland varðar á ég von á að göngur og veiði taki vel við sér,“ segir Sig- urður Már. Unnið með landeigendum Stangaveiðifélag Reykjavíkur (SVFR) er með fjölda veiðisvæða á leigu. Sumar árnar eru eingöngu leigðar félagsmönnum en leyfi í aðr- ar eru seld erlendum veiðimönnum á dýrasta tímanum. Langá á Mýrum er þar á meðal. Jón Þór Ólason, formaður SVFR, segir að mjög lítið sé um afpantanir á veiðileyfum erlendra veiðimanna, enn sem komið er. Menn vilji komast í veiðina. Óvissa með ytri aðstæður geti vissulega breytt því. „Það er verkefni sem við vinnum með land- eigendum. Við höfum átt gott samtal við þá og munum gera það besta úr stöðunni sem hægt er. En það er engin uppgjöf í okkur. Við bíðum og sjáum hvað verður,“ segir Jón Þór, þegar hann er spurður um afleið- ingar þess ef erlendu veiðimennirnir komast ekki til landsins. Nánar spurður að því hvort veiðiréttareig- endur muni taka hluta af tjóninu segir hann að málið sé enn ekki kom- ið á það stig. Þó sé ljóst að slíkt ástand sé ekki hægt að leggja á leigutaka eina. Ýmsar hugmyndir eru til umræðu á vettvangi félagsins um það hvernig hægt verði að bregðast við, til dæmis ef kröfur verða gerðar um að erlend- ir ferðamenn fari í sóttkví. Hægt sé að gera ýmsar ráðstafanir, meðal annars í veiðihúsunum. „Það eru ekki til betri staðir til að vera á í svona ástandi en úti í náttúrunni og auðvelt að virða tveggja metra regl- una við veiðar. Við munum fara eftir þeim reglum sem gilda hverju sinni, fylgja því sem stjórnvöld gefa út,“ segir formaðurinn. Engar brunaútsölur Sumir erlendir kaupendur veiði- leyfa greiða allt veiðileyfið við pönt- un en aðrir skipta greiðslum og eru fæstir búnir að greiða seinni greiðslu. Spurður um rétt þeirra til endurgreiðslu segir Jón Þór að meta þurfi aðstæður í hverju tilviki, í sam- vinnu við viðskiptavininn. Bendir hann á að sumir viðskiptavinir hafi fært veiðileyfi sín yfir á næsta ár. Þá segir Jón Þór að enginn sé far- inn að afskrifa sumarið og ekki verði neinar brunaútsölur á veiðileyfum. Það komi ekki til greina. Niðurstöður rannsókna fiskifræð- inga á lífríki Langár á Mýrum benda til að veiðistjórnun hafi ver- ið í góðu horfi hin síðari ár og laxa- stofn árinnar að öllu jöfnu sjálf- bær. Þær breytingar sem gerðar hafi verið á veiðifyrirkomulagi í ánni, þar sem nú eru eingöngu leyfðar veiðar á flugu, og aukin áhersla á sleppingar veiddra laxa, hafi haft jákvæð áhrif á stærð hrygningarstofnsins og aukið fisk- gengd í ána. „Ég var hræddur um lélegan árgang. Nú lítur þetta bara þokkalega út enda var tiltölulega lítið veitt af þeim fiski sem gekk í ána í fyrra. Veiðihlutfall lækkaði og miklu var sleppt,“ segir Sigurður Már Einarsson, verkefnisstjóri skýrslu Hafró um Langá. Veiðistjórnun í góðu horfi RANNSÓKNIR Á LANGÁ Á MÝRUM Fiskifræðingar eru bjart- sýnir á gott laxveiðisumar  Tekjur tapast ef erlendir laxveiðimenn fá ekki að koma til landsins í sumar Morgunblaðið/Einar Falur Við Langá Hópur veiðimanna reynir sig við laxinn í Langá, sem er ein af betri laxveiðám Vesturlands. Jón Þór Ólason Sigurður Már Einarsson Guðni Einarsson gudni@mbl.is Vanrækslugjald vegna ökutækja sem ekki eru skoðuð á réttum tíma mun hækka verulega taki reglugerð- ardrög, sem nýlega voru kynnt, gildi óbreytt. Reglugerðin var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda og barst m.a. athugasemd frá embætti sýslu- mannsins á Vestfjörðum en það hef- ur annast álagningu og innheimtu vanrækslugjaldsins frá því að álagn- ing þess hófst árið 2009. Gæti reynst þungur biti Fram kemur í umsögninni að á hverju ári séu 35-40 þúsund álagn- ingar vanrækslugjalds og tekjur af því 300-400 milljónir. Þá bendir embættið á að í reglugerðardrög- unum sé gert ráð fyrir að grunngjald vanrækslugjalds hækki úr 15 þús- und krónum í 20 þúsund á öll öku- tæki en í 40 þúsund á hóp- og vöru- bifreiðar. Þá er það nýmæli í reglugerðar- drögunum að sé vanrækslugjald ekki greitt við skoðun innan tveggja mánaða frá því að það var lagt á skuli það hækka um 100%. Þannig muni almenna gjaldið hækka í 40 þúsund krónur og með skoðunar- gjaldi kosti þá skoðunin samtals yfir 50 þúsund krónur. „Er hætt við þetta eigi eftir að reynast mörgum þungur biti og leiði jafnvel til að ökutæki verði ekki færð til skoðunar þegar svona er komið hjá eiganda. Í ljósi efnahagsþreng- inga sem búast má við í kjölfar kór- óna- eða COVID-19 veirunnar er spurning hvort ekki sé rétt að seinka gildistöku þessa ákvæðis eða lækka prósentuna úr 100% í 50% a.m.k. af almennum ökutækjum,“ segir m.a. í umsögn sýslumanns. Boða veru- lega hækkun Morgunblaðið/Ernir Skoðun Betra er að láta skoða bíl- ana og halda þeim í standi. Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Einhvern tíma hefði það þótt ótrúleg saga að stórhveli væri komið í Kolla- víkurvatn við Þistilfjörð í stað sil- ungs en sú er raunin. Hræ af stórum hval, líkleg búrhval, sást fyrst í vatn- inu núna í byrjun apríl. Kollavíkurvatn var áður gjöfult silungsveiðivatn en óveðrið sem gekk yfir landið um miðjan desem- ber hefur nú gjörbreytt vatninu í brimsalt sjávarlón. Morgunblaðið greindi frá því 16. janúar sl. að í þessu óveðri rauf brimið skarð í malarkambinn sem aðskildi vatnið og hafið og hæpið er að það skarð lokist aftur, að sögn Kollavíkur- bænda. Hefur þessi renna væntan- lega verið leið hvalsins inn í vatnið. Góður silungur hefur í gegnum tíðina veiðst í Kollavíkurvatninu en spurning er hvort lífríki vatnsins hefur breyst það mikið að ekki séu skilyrði þar lengur fyrir silunginn. Kollavíkurbændur lögðu net í vatnið fyrir skömmu en ekki fékkst branda í það enda er það ekki lengur stillt stöðuvatn. Mikil ókyrrð og öldu- hreyfingar eru í vatninu en þar gæt- ir einnig sjávarfalla. Hvalshræið marar enn í hálfu kafi í vatninu skammt frá bænum Kolla- vík og þykir bændunum það ekki góð sending. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Kollavíkurvatn Hvalhræið marar í hálfu kafi. Viðarfjall í bakgrunni. Búrhvalshræ í Kollavíkurvatni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.