Morgunblaðið - 21.04.2020, Side 11

Morgunblaðið - 21.04.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty MATILDA Brjóstahaldari 9.990,- Buxur 4.650,- SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND ÚT APRÍL FULL BÚÐ AF FLOTTUM VÖRUM Mundu, þú gætir verið á skrá hjá okkur, þá er minna mál að panta. SÉRSMÍÐI Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Sérsmíðum eftir óskum hvers og eins. Þú kemur með hugmyndina og við látum hana verða að veruleika með vandaðri sérsmíði og flottri hönnun. Landsvirkjun og MýSilica hafa undirritað samning um rannsóknir, þróun og framleiðslu á kísilríkum húð- og snyrtivörum úr jarðhita- vatni virkjana á starfssvæði Lands- virkjunar á Norðurlandi, einkum úr Bjarnarflagi. Byggð verður upp að- staða sem mun nýtast fyrir nýsköp- un og fjölnýtingu og verður Mý- Silica fyrsta sprotafyrirtækið til að nýta aðstöðuna, segir í tilkynningu frá Landsvirkjun. Verkefnið gengur út á að vinna steinefnaríkt, sér í lagi kísilríkt, hráefni úr jarðhitavatni sem fellur til við orkuvinnslu. Þetta hráefni verður svo nýtt til þess að framleiða náttúrulegar húðvörur. Markmið samningsins er að auka verðmætasköpun úr þeim efnum sem verða til við orkuvinnslu Landsvirkjunar og hafa hingað til ekki verið nýtt sérstaklega. Verk- efnið bætir þannig nýtingu. MýSilica er nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, fram- leiðslu og markaðssetningu á húð- vörum. Hjá MýSilica starfa sér- fræðingar með mikla reynslu í nýtingu auðlinda og framleiðslu á verðmætum úr skiljuvatni jarð- varmavirkjana. Snyrtivörur þróaðar úr jarðhitavatni Morgunblaðið/Baldur Mývatn Vörur MýSilica eru meðal annars unnar úr kísil úr Mývatni. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Í ár verður 35 milljónum króna úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða varið til framkvæmda við heim- skautsgerði á Raufarhöfn, en greint var frá 200 milljóna króna viðbótar- úthlutun í gær. Stærstur hluti út- hlutunarinnar, eða 43%, rennur til verkefna á Norðurlandi eystra. Þá renna 28% til verkefna á Suðurlandi. Að sögn Jónasar Friðriks Guðna- sonar, eins forystumanna um bygg- ingu heimskautsgerðisins, hafa framkvæmdir staðið yfir í um 15 ár. Gerðið hefur vakið athygli og ferða- menn sótt í að skoða mannvirkið. Meira að segja undanfarið hafa sést stöku bílar við Melrakkaás þar sem gerðið stendur og tveir bílar með fimm manns stoppuðu þar í gær. Jónas Friðrik segir að verkefnin séu ærin. Búið er að reisa hlið gerð- isins, en eftir að klára topp miðsúlu, skúlptúra innan gerðisins og fleira. Í sumar er m.a. ráðgert að setja hand- rið á göngustíg og jafnvel lýsingu meðfram honum, en stígurinn nefn- ist Bifröst. Bílastæði verður lagfært, vatns- og rafmagnslagnir undir- búnar og farið að vinna að salernis- aðstöðu á svæðinu. Heimskautsgerðið er byggt þann- ig að sex metra há hlið vísa til höf- uðáttanna og verða fjórir skúlptúrar inni í gerðinu, hver með sínu sniði. Á heimasíðu Samtaka um söguferða- þjónustu segir meðal annars að heimskautsgerðið muni virkja mið- nætursólina við heimskautsbaug og rísa utan um goðsögulegan hugar- heim og dvergatal Völuspár. Það verði 52 metrar í þvermál og innan þess dvergastígur með nöfnum 72 dverga sem mynda árhring. Í miðj- unni verði átta metra há súla með toppi sem varpi geislum sólar um gerðið. Áningarstaður við ysta haf Af úthlutuninni núna fara 30 millj- ónir til Hafnarbakka á Bakkafirði undir heitinu áningarstaður við ysta haf. Þar er fyrirhugað að gera lag- færingar á tanganum upp af gömlu höfninni á Bakkafirði, þar sem gamla verslunarhúið stendur. Um er að ræða frágang á svæðinu, hellulagn- ingu og gerð göngustíga, grjót- hleðslu og þjónustuhúss á tanga- sporðinum. Þaðan er fallegt útsýni út á Bakkaflóann, yfir á Langanes- ströndina. 21,5 milljónir fara til Akureyrar- bæjar vegna stígagerðar og brúunar á Glerárdal frá bifreiðastæði að Lamba, skála ferðafélags Akur- eyrar. Af stórum verkefnum annars stað- ar má nefna að Skógræktarfélag Reykjavíkur fær 17 milljónir vegna tengileiðar frá Mógilsá að Kolla- fjarðará. Þá verður 16,2 milljónum varið í minningarreit í Dalabyggð um Sturlu Þórðarson sagnaritara. Þá fara 19 milljónir í Þorláksleið, sem er gönguleiðarverkefni frá Skálholti. Ljósmynd/Jónas Friðrik Raufarhöfn Heimskautsgerðið setur óneitanlega svip á umhverfið. Ærin verk- efni við heim- skautsgerði  Viðbótarúthlutun til ferðamannastaða „Ég er spennt fyrir komandi tímum og full af eldmóði til að takast á við þessa krefjandi tíma í hagsmuna- baráttu stúdenta Erfið staða stúd- enta á vinnumarkaði, fjármögnun háskólastigsins, staða skrásetning- argjalda í HÍ, lánasjóðsmál og geðheilbrigðismál eru dæmi um áskoranir sem ég hlakka til að tak- ast á við,“ segir Isabel Alejandra Díaz, nýr forseti Stúdentaráðs Há- skóla Íslands. Isabel var valin á kjörfundi í gær ráðsins í gegnum fjarfundabúnað og tekur formlega við embættinu í næsta mánuði. Hún er fyrst allra af erlendum uppruna til að gegna stöðu forseta Stúdentaráðs, en hún er frá El Salvador í Mið-Ameríku. Lýkur BA-gráðu í stjórnmálafræði og spænsku í júní næstkomandi en jafnhliða námi hefur hún meðal annars sinnt tungumála- kennslu. Isabel brautskráðist frá Menntaskólanum á Ísafirði árið 2016 og hlaut verðlaun fyrir hæstu meðal- einkunn í tungu- málum á stúd- entsprófi. Isabel var í 1. sæti á framboðslista Röskvu í kosningum meðal stúdenta til háskólaráðs HÍ og hlaut hún kjör með flest greidd atkvæði nú í mars síðastliðnum. Hún mun því sitja í háskólaráði samhliða störfum sínum sem forseti Stúdentaráðs. Þá hefur hún verið varafulltrúi í Stúdentaráði og sviðsráðum síðastliðin tvö ár, fyrir hug- og félagsvísindasvið. Isabel nýr forseti Stúdentaráðs HÍ  Ísfirðingur með rætur í El Salvador Isabel Alejandra Díaz

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.