Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020 Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00 Mikið úrval af KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM fyrir allar gerðir bíla Hagnaður Marels á fyrsta fjórðungi þessa árs nam 13,4 milljónum evra, samanborið við 32,2 milljónir evra yf- ir sama tímabil í fyrra. Tekjur félags- ins drógust saman um 23 milljónir evra milli ára. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kem- ur fram að það hafi orðið fyrir áhrif- um af völdum kórónuveirunnar og að starfsfólk hafi þurft að laga sig að nýjum veruleika, sýna útsjónarsemi og nýta tæknilausnir í enn meiri mæli en áður. Þrátt fyrir hökt á heimshagkerfinu hefur Marel tekið á móti miklu magni nýrra pantana og hafa þær aldrei verið meiri að umfangi en á nýliðnum fjórðungi, eða fyrir jafnvirði 352 milljónir evra. Dreifast þær á milli stærri verkefna, staðlaðra lausna úr vörulínum fyrirtækisins og vara- hlutapantana. Bendir fyrirtækið á að kjúklingaiðnaðurinn, sem er stærsta og arðbærasta rekstrareining fyrir- tækisins hafi byrjað árið með lága pantanabók en að viðsnúningur hafi orðið í þeim efnum. Eignir Marel í lok fyrsta ársfjórðungs námu rúmum 2,2 milljörðum evra og jukust um 384,4 milljónir evra frá áramótum. Skuldir félagsins jukust um 437,8 milljónir evra og stóðu í rúmum 1,3 milljörðum evra í lok fjórðungsins. Eigið fé fé- lagsins nam 902,4 milljónum evra og hafði lækkað um 53,4 milljónir evra frá áramótum. Félagið bendir á að þrátt fyrir útbreiðslu kórónuveir- unnar búi það að góðri dreifingu tekna milli markaða og iðnaða í gegn- um sölu- og þjónustunet sitt. Ekki sé vitað hver fjárhagsleg veirunnar muni verða á Marel en að félagið standi við vaxtarmarkmið sín til meðallangs og langs tíma. Hagnaðurinn snarminnkar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Marel Er stærst í Kauphöll Íslands. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þegar lífskjarasamningarnir voru undirritaðir í byrjun apríl í fyrra var óvissa í efnahagslífinu enda aðeins vika liðin frá gjaldþroti WOW air. Þrátt fyrir bakslagið voru vænt- ingar um hægan bata í hagkerfinu. Það gekk ekki eftir. Óvissan hefur sjaldan eða aldrei verið meiri. Því er spurning hvort þessi bratta niðursveifla muni hafa áhrif á þriðju launahækkunina sem áformuð er næstu áramót (sjá grafið). Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir mikilvægt að launafólk fái umsamdar hækkanir næstu áramót. „Lífskjarasamningarnir halda þangað til annað kemur í ljós en við getum ekki átt við samninginn í sjálfu sér fyrr en í september. Þá er endurskoðun beggja aðila. En mark- miðið, eins og sakir standa, er að verja samninginn með öllum tiltæk- um ráðum og sömuleiðis að reyna að varðveita kaupmáttinn.“ Meiri líkur á hækkunum Ragnar Þór telur aðspurður meiri líkur en minni á að umsamdar launa- hækkanir nái fram að ganga. „Við munum ekki afsala okkur þessum launahækkunum heldur frekar reyna að ná þríhliða sam- komulagi til að verja samninginn milli stjórnvalda, atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar. Það má fara aðrar leiðir til þess að koma til móts við fyrirtækin ef þess þarf. En við munum ekki gefa hækkanirnar sem slíkar eftir. Almenningur þarf lífsnauðsynlega á þessum hækkun- um að halda,“ segir Ragnar Þór. Haldi aftur af hækkunum Spurður hvaða leiðir séu færar í þessu efni segir Ragnar að lífeyris- leiðin – að lækka tímabundið afborg- anir í lífeyrissjóð – hafi verið slegin út af borðinu. Nú sé horft til þess að lækka tryggingagjald tímabundið sem mótvægisaðgerð við niðursveifl- una. Jafnframt þurfi samningsaðilar að sammælast um að halda aftur af verðlagshækkunum. Meðal annars séu nánast allir leigusamningar hjá einstaklingum og fyrirtækjum vísi- tölutryggðir en á því þurfi að taka. Gengi krónu hefur gefið eftir að undanförnu. Til dæmis var miðgengi evru um 140 krónur í lok febrúar en er nú um 158 krónur. Því er hætt við að innfluttar vörur hækki í verði. Uppgjör fram undan Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir ákveðið uppgjör fram undan í kjara- málum í september en þá virkjast opnunarákvæði kjarasamninganna. Það sé of snemmt að meta að- stæður þegar fyrirhuguð launahækk- un á að taka gildi 1. janúar 2021. „Ég reikna með að mjög fáir séu farnir að horfa til áramótanna heldur erum við aðallega að undirbúa okkur og reyna að gera okkur grein fyrir hvernig staðan verður í september, eftir sumarið. Það er því ekki tíma- bært að ræða þetta,“ segir Drífa. Þannig sé ómögulegt að sjá langt fram í tímann við þessar aðstæður. „Ég hef hins vegar unnið út frá því að lífskjarasamningarnir haldi og að samningsaðilar reyni að róa öllum ár- um að því að svo verði.“ Óraunhæfar hækkanir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins (SA), segir atvinnulífið „full- komlega vanbúið“ að takast á við um- samda launahækkun 1. janúar nk. Hann vísar í því efni til bréfs SA til Alþýðusambands Íslands í aðdrag- anda launahækkana 1. apríl sl. sem komi til greiðslu 1. maí nk. Sá mál- flutningur SA hafi styrkst vegna ný- liðinna atburða enda sé atvinnulífið lamað vegna kórónuveirunnar. „Allt sem þar stendur á líka við um næstu launahækkun. Það segir sig sjálft að launahækkun ofan í þessar hamfarir er eins og að hella olíu á eld. Hún væri til þess fallin að auka atvinnuleysi og hægja enn frekar á viðspyrnu atvinnulífsins,“ segir Halldór Benjamín. Með hliðsjón af versnandi efna- hagsástandi sé launahækkun um næstu áramót óraunhæf en hann tjá- ir sig ekki um viðbragð SA í framtíð, þær viðræður eigi eftir að fara fram. Spurður hvað beri að gera þegar hægt verður að opna samninginn í september kveðst Halldór Benjamín ekki vilja tjá sig um það. Margir áfangar séu fram undan áður en endurskoðunarákvæðin virkjast. Spurður hvort til greina komi að grípa til mótvægisaðgerða, til dæmis með milligöngu ríkisvaldsins, til að greiða fyrir launahækkunum segir hann að ein leiðin væri að draga úr öðrum launatengdum kostnaði. Þannig mætti jafna út launahækk- unina. Núverandi launakostnaður sé ósjálfbær við nýjar og breyttar að- stæður og það sé kjarni máls. Óviðunandi atvinnuleysi „Við hljótum sem samfélag að geta komist að sameiginlegum skiln- ingi á því að það sé óviðunandi að 50 þúsund starfsmenn, eða jafnvel fleiri, séu án atvinnu. Við hljótum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma starfsfólki í vinnu en ekki að hækka laun þeirra sem þó halda vinnunni. Það er sama hvert horft er í heiminum. Það er engin þjóð að hækka laun í þessu ástandi enda er það skaðlegt og eykur atvinnuleysi,“ segir Halldór Benjamín. Rætt um mótvægisaðgerðir vegna meiri launahækkana  Þriðja launahækkun lífskjarasamninganna er fyrirhuguð um næstu áramót Lífskjarasamningurinn – launahækkanir Umsamdar krónutöluhækkanir 2019-2022* 1. 4. 2019 1.4. 2020 1. 1. 2021 1. 1. 2022 Taxtahækkun 1. 4. 2019 1.4. 2020 1. 1. 2021 1. 1. 2022 Almenn hækkun 17.000 26.00026.000 17.000 24.00018.000 24.000 15.750 25.000 17.250 *Við þetta bætist hugsan- legur hagvaxtarauki Orlofsuppbót 2.5. 2019, greiðist einu sinni Orlofsuppbót 2.5. 2019, greiðist einu sinni Almenn hækkun alls 68.000 kr. Taxtahækkun Alls 90.000 kr. Ekki þarf lengur að gera lýsingu vegna hlutafjárútboðs undir átta milljónum evra, eða 1,3 milljörðum íslenskra króna, eftir að ný lög tóku gildi hér á landi í byrjun mánaðarins. Að sögn Baldurs Thorlacius, fram- kvæmdastjóra sölu- og viðskipta- tengsla hjá Nasdaq, eiga lögin að virka sem hvatning til fyrirtækja að sækja sér fé á markað og skrá sig í kauphöll án þess að kostnaðurinn verði of mikilll. Hann segir að kostn- aður af útboðslýsingu geti þurrkað út ábatann af útgáfunni ef útboðin eru mjög lítil. Lögin taka mið af nýlegri Evrópu- löggjöf sem miðar að því að hvetja lítil og meðalstór fyrirtæki til skrán- ingar í kauphöll. 90% íslenskra fyrir- tækja teljast lítil eða meðalstór. Baldur segir að það sé ánægjulegt að íslensk stjórnvöld hafi ákveðið að fara alla leið og nýta sér rammann til fulls sem Evrópulöggjöfin býður upp á. „Það sýnir að þeim er alvara með að styðja lítil og meðalstór fyrirtæki og hjálpa þeim að fara þessa leið.“ Baldur vonast til að löggjöfin geti hjálpað einhverjum, ekki síst nú þeg- ar mörg fyrirtæki vanti fé inn í reksturinn vegna kórónuveiru- faraldursins. „Við erum byrjuð að tala fyrir því að fyrirtæki afli sér hlutafjár á þessum tímum í staðinn fyrir að þau fleyti sér áfram á aukn- um lánveitingum. Þarna gætu legið talsverðir möguleikar fyrir fyrir- tæki. Við sjáum það í nágrannalönd- unum að þar eru fyrirtæki ekkert endilega að hætta við sínar fyrirætl- anir um hlutafjárútboð og skráningu á markað. Það er uppörvandi að sjá.“ Fjármagn Gerð útboðslýsingar getur verið flókið og dýrt ferli. Lýsing óþörf undir 1,3 milljörðum  Á að virka sem hvatning til að sækja fé á markað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.