Morgunblaðið - 21.04.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 21.04.2020, Síða 26
HANDBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Handknattleikskonan Anna Úrsúla Guðmundsdóttir tilkynnti í síðustu viku að hún væri hætt. Flestir leggja skóna á hilluna, en hjá Önnu fóru skórnir beint í ruslið, eins og hún orðaði það sjálf í tilkynningu á Face- book. Anna er 34 ára og hefur verið að glíma við erfið hnémeiðsli og ákvað því að nú væri réttur tími til að láta staðar numið. „Ég er búin að vera mjög slæm í hnénu síðustu fimm árin og fór í að- gerð seinasta sumar og vissi þá að það væru litlar líkur á að ég gæti spilað mikið meira. Aðgerðin gekk svo svakalega vel að ég leyfði mér að eiga smá vonarglætu og ég mætti á nokkrar æfingar. Ég fann það hins vegar um áramótin að þetta væri ekki að fara að gera sig og að það væri komið gott,“ sagði Anna við Morgunblaðið. Anna Úrsúla er ein sigursælasta handboltakona Íslands og því við hæfi að hún hafi lyft Íslandsmeist- arabikar eftir síðasta leik ferilsins. Anna var lykilmaður í liði Vals sem varð deildar-, bikar- og Íslands- meistari síðasta vetur. Hún lék hins vegar ekkert á þessu tímabili vegna meiðslanna. Grenjaði af sársauka í klefanum eftir leikina „Ég var mjög slæm þetta síðasta ár og var mikið upp á spítala með Jóa [Jóhanni Róbertssyni], sem sér um landsliðið. Hann var voðalega góður við mig og tók 200 millilítra vökva úr hnénu á mér á um það bil tveggja vikna fresti. Við spiluðum tvo Evrópuleiki í Hollandi á tveimur dögum og ég grenjaði af sársauka inni í klefa eftir leik, svo þetta var komið gott,“ sagði Anna, sem var vissulega ánægð með að enda fer- ilinn sem þrefaldur meistari. „Það var frábært að enda á svona góðum nótum. Það þarf að hlusta á líkam- ann þegar þetta er orðið svona, en maður er svo andskoti þrjóskur.“ Anna var ótrúlega sigursæl á sín- um ferli og varð sjö sinnum Íslands- meistari, fimm sinnum bikarmeist- ari og sjö sinnum deildarmeistari. Tvívegis varð hún Íslandsmeistari með Gróttu, einu sinni deildarmeist- ari og einu sinni bikarmeistari á ár- unum 2015 og 2016. Aðra titla vann hún með Val. Þá lék Anna meira en 100 landsleiki og fór á öll þrjú stór- mótin sem íslenskt kvennalandslið hefur komist á; EM 2010 í Dan- mörku og Noregi, HM 2011 í Bras- ilíu og EM 2012 í Serbíu. Brasilía stendur upp úr „Ég geng sátt frá þessum stóra parti af lífinu og ég get ekki annað en brosað út í eitt. Ég er ótrúlega ánægð að hafa fengið að taka þátt í svona stórum og mikilvægum leikj- um með bæði Val og Gróttu. Ég spil- aði með frábærum leikmönnum og þjálfurum sem kenndu mér mikið. Svo var frábært að fá að upplifa það að fara á þrjú stórmót með landslið- inu. Þar stendur Brasilía upp úr, mér fannst það ótrúlega flott hjá okkur og við getum verið rosalega stoltar af þeim árangri,“ sagði Anna, en Ísland vann bæði Þýskaland og Svartfjallaland á HM í Brasilíu og hafnaði að lokum í tólfta sæti. Get ekki annað en stutt Finn Anna er ekki búin að finna sér áhugamál sem á að koma í staðinn fyrir handboltann en hann verður áfram hluti af lífinu þar sem hún er gift Finni Inga Stefánssyni, leik- manni Vals. „Ég þarf eiginlega að finna út úr því hvað ég á að gera í staðinn,“ sagði hún og hló. „Nei, nei. Við eigum tvö börn og maðurinn minn er áfram í handbolta hjá Val og við verðum örugglega mikið á leikj- um með honum og krakkarnir halda áfram að fara á æfingar með honum. Það breytist kannski ekkert voða- lega mikið nema ég verð í aðeins lé- legra formi. Eftir að hafa þolað mig, mitt keppnisskap og allt vesenið á bak við mig öll þessi ár þá get ég ekki annað en stutt hann áfram og brosað með honum,“ sagði hún létt. Anna viðurkennir að keppnis- skapið hafi ekki alltaf verið vinsælt hjá mótherjum í gegnum tíðina, en það hafi hjálpað til. „Ég vildi vera erfiður mótherji og ég vildi fara í taugarnar á þeim sem ég var að keppa á móti. Ég vissi að það myndi skila mér ákveðnum árangri,“ sagði Anna, áður en hún viðurkenndi að hún hefði stundum verið erfiður samherji líka. Sumt sem ég lét flakka var ekki vinsælt „Ég get líka ímyndað mér að það hafi verið ansi erfitt að vera með mér í liði. Stundum lét ég suma hluti flakka sem voru ekki vinsælir en mér fannst eiga rétt á sér. Það féll ekki alltaf vel í kramið en meiningin var alltaf sú að maður væri að benda á eitthvað sem gæti nýst okkur og eitthvað sem við gætum gert betur. Það er ótrúlega mikið spennustig á æfingum og leikjum og ég veit að það var ekki alltaf dans á rósum með mér,“ sagði Anna, en hún lenti aldrei í stórum árekstri við samherja. „Nei, ég tel að það sé enginn munur á kon- um og körlum þegar kemur að íþróttum. Það á að láta allt flakka í leikjum og á æfingum og svo er það bara búið. Hvort sem það tengist mér, mótherja eða þjálfara, þá er það partur af leiknum. Konur eru íþróttamenn fram í fingurgóma,“ sagði Anna Úrsúla. Get ekki ann- að en brosað út í eitt  Anna Úrsúla Guðmundsdóttir vann 19 stóra titla á ferlinum og fór á öll stórmót kvennalandsliðsins Morgunblaðið/Golli Landsliðsjaxl Anna Úrsúla Guðmundsdóttir lék með íslenska landsliðinu á þeim þremur stórmótum þar sem það hefur verið meðal þátttakenda. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020 21. apríl 1962 Þórólfur Beck leikur til úrslita í skosku bikarkeppninni í knatt- spyrnu með St. Mirren fyrir framan 130 þús- und áhorfendur á Hampden Park í Glasgow. St. Mirren tapar fyr- ir Rangers 2:0 í úrslitaleiknum. Rangers hefur góð tök á leiknum og í frásögn Morgunblaðsins, sem var á leiknum, segir að Þórólfur hafi verið sá eini sem átti skottil- raunir að marki Rangers. Fjöldi Íslendinga flaug út til að sjá leikinn en boðið var upp á hópferð til Glasgow. 21. apríl 1976 Morgunblaðið fjallar um Norð- urlandamótið í júdó sem fram fór í Gautaborg um páskana en þar varð Gísli Þorsteinsson fyrstur Íslendinga til að vinna til gullverðlauna í flokki full- orðinna. Viðar Guðjohnsen, sem ári áður varð Norður- landameistari í unglingaflokki, hreppir bronsverðlaun í sínum þyngdarflokki á mótinu. 21. apríl 1984 KR-ingurinn Helga Halldórs- dóttir setur nýtt Íslandsmet í 400 metra grindahlaupi kvenna þegar hún sigrar í greininni á frjálsíþróttamóti í San José í Kaliforníu. Hún hleypur á 60,74 sekúndum og slær tveggja ára gamalt met Sigurborgar Guðmundsdóttur. 21. apríl 1990 FH-ingar tryggja sér sinn fjór- tánda Íslandsmeistaratitil í handknattleik karla og þann fyrsta í fimm ár með því að sigra ÍR, 25:21, í Breiðholtinu. Óskar Ár- mannsson skorar átta mörk fyrir FH og Héðinn Gilsson sjö en liðið hef- ur fjögurra stiga forystu fyrir lokaumferðina. 21. apríl 2001 Guðjón Valur Sigurðsson er hetja KA-manna þegar þeir leggja Aftureldingu eftir bráðabana í undanúrslitum Ís- landsmóts karla í handbolta, 29:28, á Akureyri. Guðjón skor- ar 13 mörk í leiknum, m.a. um- deilt jöfnunarmark úr auka- kasti í lok fyrri framlengingar, og skorar úr vítakastinu sem ræður úrslitum í bráðaban- anum. 21. apríl 2011 Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik sigrar Pólverja, 24:22, í vin- áttulandsleik í Antalya í Tyrk- landi en þar býr liðið sig undir umspils- leiki fyrir heimsmeist- aramótið 2012. Hrafnhildur Skúladóttir skorar 8 mörk fyrir Ísland og Rut Jónsdóttir 5. 21. apríl 2015 „Jón kom bara upp úr lauginni og benti mótshöldurum á að hann hefði sett heimsmet. Þá áttuðu þeir sig, skoðuðu málið betur og tilkynntu svo í kall- kerfinu að nýtt heimsmet hefði verið sett,“ segir Sverrir Gíslason, faðir Jóns Margeirs Sverrissonar, við Morgun- blaðið eftir að Jón setur tvö heimsmet á alþjóðlegu sund- móti fatlaðra í Þýskalandi. Á ÞESSUM DEGI Ásgeir Örn Hallgrímsson og Vignir Svavarsson, fyrrverandi landsliðs- menn í handknattleik, eru hættir eftir farsæla ferla. Léku þeir báðir með Haukum í vetur eftir langa veru sem atvinnumenn erlendis. Ásgeir er 36 ára og lék 247 landsleiki og skoraði í þeim 414 mörk. Hann var hluti af landsliðinu sem vann silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og brons á EM í Austurríki tveimur árum síðar. Tók hann alls þátt á sextán stór- mótum. Ásgeir hóf ferilinn með Haukum árið 2000 og vann tíu stóra titla áður en hann fór til Lemgo í Þýskalandi árið 2005. Þá lék Ásgeir einnig með GOG og Faa- borg í Danmörku áður en leiðin lá til Hannover-Burgdorf og síðan Frakklands þar sem hann lék með stórliði PSG og síðar Nimes. Þá varð hann Frakklands- og bikar- meistari með PSG og vann EHF- bikarinn með Lemgo. Vignir er 39 ára og hóf einnig ferilinn með Haukum árið 2000 og var afar sigursæll hér á landi áður en hann hélt til Skjern í Danmörku árið 2005. Eins og Ásgeir Örn lék Vignir einnig með Lemgo og Hann- over-Burgdorf. Þá lék hann með Minden í Þýskalandi og Midtjylland og Holstebro í Danmörku. Línu- maðurinn spilaði 234 landsleiki og skoraði í þeim 261 mark og var í bronsliðinu á EM 2010. Í atvinnu- mennsku varð Vignir EHF-meistari með Lemgo árið 2010 og tvívegis danskur bikarmeistari; 2015 með Midtjylland og 2017 með Hostebro. Ásgeir Örn og Vignir hættir Ljósmynd/Eva Björk Ægisdóttir Samherjar Ásgeir Örn og Vignir Svavarsson léku ófáa leikina saman. Belgíska knattspyrnufélagið Lok- eren, sem fjölmargir Íslendingar hafa leikið með á undanförnum áratugum, hefur verið lýst gjald- þrota í kjölfarið á fjárhags- vandræðum vegna kórónuveir- unnar. Lokeren var lengi í hópi bestu liða í Belgíu og lék nær samfleytt í efstu deild frá 1974 til 2019. Blóma- tíminn var um og upp úr 1980 þeg- ar liðið, með Arnór Guðjohnsen innanborðs, hafnaði í öðru sæti í Belgíu og lék til úrslita um bikar- inn, ásamt því að komast í átta liða úrslit UEFA-bikarsins. Arnór lék með liðinu í fimm ár, frá 1978 til 1983, en hann hóf að leika 17 ára gamall með liðinu eftir að hafa komið þang- að frá Víkingi í Reykjavík. Þá varð félag- ið bikarmeistari í fyrsta skipti árið 2012 og aftur árið 2014 en það eru einu stóru titlarnir í sögu félagsins, sem lék samtals tólf tímabil í Evr- ópukeppni frá 1976 til 2014. Lokeren féll úr A-deildinni síð- asta vor og sat á botni B-deildar- innar þegar keppni var hætt í mars- mánuði. Félagið var úrskurðað gjaldþrota í gærmorgun og formaðurinn Louis de Vries sagði við Het Laaste Nieuws að þeim úrskurði yrði ekki áfrýjað. Félaginu hefði ekki tekist að fá til sín nægilega marga styrktaraðila í tæka tíð til að koma í veg fyrir þessa niðurstöðu. Rúnar Kristinsson var þjálfari Lokeren á árunum 2016 og 2017 og Arnar Þór Viðarsson aðstoðarþjálf- ari á árunum 2015 til 2019. Báðir léku þeir lengi með liðinu, Rúnar frá 2000 til 2007 og Arnar frá 1997 til 2006 og Arnar var því lengst allra Íslendinga í röðum félagsins. Aðrir Íslendingar auk þeirra og Arnórs sem hafa leikið með Lok- eren eru Arnar Grétarsson (2000- 2006), Auðun Helgason (2000-2002), Marel Baldvinsson (2003-2006), Davíð Þór Viðarsson (2006), Alfreð Finnbogason (2011-2012), Sverrir Ingi Ingason (2015-2017) og Ari Freyr Skúlason. Ari lék með Lok- eren frá 2016 til 2019 en fór til Oostende eftir að liðið féll úr A- deildinni fyrir ári. vs@mbl.is Lokeren lýst gjaldþrota eftir mikil fjárhagsvandræði Arnór Guðjohnsen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.