Morgunblaðið - 21.04.2020, Síða 27

Morgunblaðið - 21.04.2020, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020 Það er óneitanlega sérsakt að starfa sem íþróttafréttamaður þessa dagana þegar engar íþróttir eru á dagskrá. Þetta er allt eitthvað svo óraunverulegt, sérstaklega þegar maður skoðar úrslitasíðurnar á netinu þar sem bókstaflega öllum viðburðum og leikjum hefur verið frestað. „Hvernig er það eiginlega, er eitthvað að gera hjá þér í vinnunni?“ er vinsælasta grínið á mig í dag hjá fólki sem ég hitti sjaldan og vantar umræðu- efni til þess að brjóta ísinn. „Já blessaður vertu, það er alltaf nóg að skrifa um!“ svara ég oftast á móti og lýg engu um það. Það getur verið krefjandi að kokka upp gott efni þegar það er líka grá lægð yfir land- inu. Að sama skapi finnst mér ég og samstarfsfélagar mínir á íþróttadeild Morgunblaðsins búnir að standa okkur afar vel í að bjóða upp á ferskt og nýtt efni í Morgunblaðinu á hverjum einasta degi frá því að allt fór úr skorðum hér á landi. Það hryggir mig samt óneit- anlega að hugsa til þess að úr- slitakeppnin í handboltanum hefði hafist í gær. Þá væri úr- slitakeppnin í körfunni í fullum gangi en undir eðlilegum kring- umstæðum hefði hún byrjað í byrjun apríl. Fyrsti leikur í Pepsi-Max-deild karla hefði svo verið á morgun þegar Íslands- meistarar KR hefðu heimsótt Valsmenn. Ég skal alveg viðurkenna það að ég stend sjálfan mig að því trekk í trekk að blóta þessari blessuðu kórónuveiru. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og allt það og í dag er ég löngu hættur að taka hlutunum sem sjálfsögðum. Það eru for- réttindi að geta hitt og faðmað fólkið sitt, alveg eins og það eru forréttindi að geta og fá að fylgjast með íþróttum. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is HANDBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Mikil óvissa ríkir hjá Guðjóni Val Sigurðssyni, fyrirliða íslenska karla- landsliðsins í handknattleik, þessa dagana en samningur hans við franska stórliðið París SG rennur út í sumar og er óvíst hvað tekur við hjá hornamanninum. Í síðustu viku tilkynntu forráða- menn frönsku 1. deildarinnar að tímabilinu í Frakklandi væri lokið vegna kórónuveirunnar og var PSG úrskurðað Frakklandsmeistari, sjötta árið í röð, og í sjöunda sinn í sögu félagsins. Guðjón Valur, sem verður 41 árs gamall í ágúst, vann þar með sinn sjöunda meistaratitil í fjórða landinu en hann varð danskur meistari með AG Kaupmannahöfn 2012, Þýska- landsmeistari með Kiel 2013 og 2014 og með Rhein-Neckar Löwen 2017. Þá varð hann spænskur meistari með Barcelona 2015 og 2016. Endirinn vissulega sérstakur „Maður er eins og flestir íþrótta- menn í dag í ákveðinni biðstöðu ef svo má segja, og endirinn á tíma- bilinu var vissulega mjög sér- stakur,“ sagði Guðjón Valur í sam- tali við Morgunblaðið. „Ég hefði, eins og allir í liðinu, viljað klára þetta mót og það var skrítið að verða meistari á þennan hátt. Persónulega þá líður mér ekki eins ég hafi unnið eitthvað þó þetta hafi vissulega litið vel út hjá okkur. Við þurftum fjóra sigra úr síðustu átta leikjunum okkar og við vorum allir sannfærðir um að við myndum klára þetta á endasprettinum. Til- finningin er hins vegar skrítin enda var engin formleg verðlaunaafhend- ing sem dæmi og því ekkert til þess að loka tímabilinu ef svo má segja. Aðstæður eru hins vegar þannig í Evrópu og öllum heiminum í dag að maður sýnir þessu fullan skilning og það er mjög eðlilegt að íþróttir séu ekki í gangi eins og ástandið er í dag.“ Peningarnir stjórna ferðinni PSG er komið áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar þar sem liðið mætir Dinamo Búkarest frá Rúmeníu en áætlað er að þeir leikir fari fram í byrjun júní. EHF, evr- ópska handknattleikssambandið, til- kynnti svo í síðustu viku að úr- slitahelgin myndi fara fram milli jóla og nýárs í Köln í Þýskalandi, eins og venjan en, en margir lykilmenn PSG í ár verða þá horfnir á braut. „Fyrir þá sem eru að renna út á samningi í sumar þá er þetta afar sérstakt svo ekki sé meira sagt. Eins og staðan er í dag þá verður allt ann- að PSG-lið sem mun klára tímabilið í Meistaradeildinni en það sem hóf leiktíðina. Leikmenn eins og Luc Abalo og Sander Sagosen verða báðir horfnir á braut og byrjaðir að spila í riðlakeppni Meistaraadeild- arinnar á nýjan leik með öðrum lið- um. Þetta sýnir manni svart á hvítu hversu miklu fjárhagslegu máli þetta skiptir fyrir EHF. Það er verið að fjölga liðum í þýsku deildinni úr átján í tuttugu sem þýðir að deildarleikirnir þar í landi verða fleiri en ella. Svo á að bæta við úrslitahelgi Meistara- deildarinnar, korteri fyrir heims- meistaramót. Eins og þetta horfir við mér hefði mögulega verið hægt að láta liðin hittast í júní til þess að klára mótið, fyrst það á hvort sem er að spila sextán liða úrslitin þá. Það hefði frekar átt að aflýsa þessu en það eru peningarnir sem ráða, ekki heilsa leikmannanna.“ Engin töfralausn í boði Eins og Guðjón Valur bendir réttilega á þá er mikið álag á hand- knattleiksmönnum en Evrópumótið í handbolta er haldið annað hvert ár á móti heimsmeistaramótinu sem á að fara fram í Egyptalandi í janúar á næsta ári. Guðjón Valur hefur áður gagnrýnt Alþjóðahandknattleiks- sambandið fyrir mikið leikjaálag en hann ítrekar að handboltinn sé ekki í sömu stöðu og fótboltinn þar sem fé- lögin reiða sig einna helst á sjón- varpstekjur. „Það má alveg horfa á þetta þann- ig að það sé lítill hljómgrunnur fyrir því sem við leikmennirnir höfum verið að segja varðandi álag og ann- að en við þurfum líka að horfa raun- sætt á þetta. Handboltinn er ekki í sömu stöðu og fótboltinn og til þess að fá þessa stóra styrki þá þarftu að halda þessi stærstu mót. Handbolt- inn rekur sig ekki á sjónvarps- tekjum, ólíkt fótboltanum, heldur áhorfendum og styrktarsamningum. Í draumaheimi þá væru ekki fjór- tán leikir í riðlakeppni Meistara- deildarinnar og svo sextán og átta liða úrslit ofan á það áður en þú kemst í sjálfa úrslitahelgina. Ég er ekki með neina töfralausn á þessum vanda sjálfur en ég sé fram á að næsta ár geti orðið mjög strembið fyrir marga. Það er eftir að spila undankeppni HM, undankeppni Ól- ympíuleikanna og undankeppni EM og einhvers staðar þarf að koma öll- um þessum viðburðum fyrir.“ Ýmislegt annað í lífinu en handboltinn Landsliðsfyrirliðinn hefur mögu- leika á því að spila áfram erlendis sem atvinnumaður og þá er einnig möguleiki á því að hann snúi heim til Íslands. Rekstur handboltafélag- anna er afar erfiður í dag vegna kór- ónuveirunnar og segir Guðjón Valur erfitt að spá um framtíð margra þeirra þegar tekist hefur að ráða niðurlögum veirunnar. „Ég verð vissulega án félags í sumar þegar samningur minn renn- ur út en það er margt verra í gangi í heiminum í dag og ég ætla alls ekki að setja sjálfan mig í eitthvert fórnarlambshlutverk. Ég hef mína heilsu og fjölskyldunni minni líður vel og það er fyrir öllu. Það sem kemur, kemur, og ef það kemur ekki þá er það bara þannig. Það er ýmis- legt annað til í lífinu en að elta hand- bolta þótt ég sé búinn að gera það í þó nokkur ár.“ Fjölskyldan nýtur sín saman „Ég hef leitt hugann að því að klára ferilinn hér á landi en maður veit svo lítið eins og staðan er í dag og það er erfitt að taka stórar ákvarðanir þegar maður hefur lítið til þess að byggja á. Ég hef talað við lið erlendis og mér stendur eitthvað til boða eins og staðan er núna. Stelpurnar mínar eru báðar fluttar heim til Íslands og við fjölskyldan erum öll á Íslandi núna sem er nokk- uð óvenjulegt fyrir okkur á þessum tíma árs. Við nýtum tímann og njót- um þess að vera saman. Ég vona innilega að það verði hægt að ná niðurlögum þessa farald- urs og fólk geti farið að einbeita sér að öðrum hlutum. Á sama tíma geri ég mér grein fyrir því að ég er ekki að yngjast og ég er ekki að bíða eftir tveggja til þriggja ára samningi ein- hvers staðar. Ef það er ekkert sem manni líst vel á úti þá bara þakkar maður fyrir sig og gengur sáttur frá borði,“ bætti Guðjón Valur Sigurðs- son við í samtali við Morgunblaðið. Get gengið sáttur frá borði  Guðjón Valur gæti leikið á Íslandi næsta vetur  Hefur rætt við íslensk félög  Kveður PSG sem franskur meistari  Býst ekki við löngum samningi Ljósmyn/Einar Ragnar Haraldsson Methafi Guðjón Valur Sigurðsson skorar gegn Ungverjum á EM í Malmö í janúar. Hann er markahæsti landsliðs- maður handboltasögunnar í heiminum og hefur skorað 1.875 mörk í 364 landsleikjum fyrir hönd Íslands. Brynhildur Traustadóttir, afreks- kona í sundi, hefur skrifað undir samning við bandaríska háskólaliðið University of Indianapolis og mun hún keppa fyrir hönd skólaliðsins samhliða háskólanámi í stærðfræði frá og með haustinu 2020. Sagði hún í samtali við Skagafréttir að draum- ur væri að rætast en Hrafn, bróðir Brynhildar, fór einnig í háskóla- sundið í Bandaríkjunum. „Ég hef stefnt að þessu frá því ég var tólf ára,“ sagði hún. Brynhildur er 19 ára gömul og keppti m.a. á Norður- landamótinu á síðasta ári. Brynhildur samdi í Indianapolis Ljósmynd/Skagafréttir Sund Brynhildur Traustadóttir skrifar undir hjá Indianapolis. Alphonso Davies, einn besti ungi bakvörður heims, skrifaði í gær undir nýjan fimm ára samning við Þýskalandsmeistara Bayern München. Gildir samningurinn til ársins 2025. Davies kom til Bayern frá Vancouver Whitecaps í janúar á síðasta ári og hefur slegið í gegn í Þýskalandi. Hefur hann spilað 31 leik á leiktíðinni og verið fyrsti kostur í vinstri bakvarðarstöðuna hjá Bayern. Davies var áður á samningi til 2023, en hann hækkar töluvert í launum með nýja samn- ingnum. Í Bæjaralandi næstu fimm árin AFP München Alphonso Davies er einn besti ungi bakvörður heims. Færeyska knattspyrnusambandið tilkynnti í gær að deildakeppnin í fótboltanum þar í landi myndi hefj- ast laugardaginn 9. maí, tæplega tveimur mánuðum síðar en til stóð. Leikið verður án áhorfenda í fyrstu umferðunum. Fyrsta umferðin í úr- valsdeild karla átti að fara fram 15. mars og í úrvalsdeild kvenna 22. mars, en miðað við daginn í dag hefðu karlarnir verið búnir með sex umferðir og konurnar með þrjár. Færeyingar hafa staðið sig mjög vel í baráttunni gegn kórónuveir- unni en þar hefur enginn látist og aðeins tvö smit verið greind frá 8. apríl. Færeyskum meistaraflokksliðum var heimilað að hefja æfingar í gær, mánudag, en æfingar yngri flokka munu að óbreyttu hefjast á ný mánudaginn 4. maí. Enginn Íslendingur er við störf hjá færeysku liði að þessu sinni en Heimir Guðjónsson sneri aftur til Ís- lands eftir að hafa unnið deildina og síðan bikarinn sem þjálfari HB undanfarin tvö ár og tók við þjálfun Vals, og Guðjón Þórðarson kom aft- ur heim í vetur eftir eitt ár hjá NSÍ frá Runavík sem náði nokkuð óvænt þriðja sæti undir hans stjórn á síð- asta ári. Þá lék Brynjar Hlöðversson með HB undanfarin tvö ár en er kominn í sitt gamla félag, Leikni í Reykjavík. vs@mbl.is Færeyingar fara aftur af stað 9. maí

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.