Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2020
Það er óneitanlega sérsakt að
starfa sem íþróttafréttamaður
þessa dagana þegar engar
íþróttir eru á dagskrá. Þetta er
allt eitthvað svo óraunverulegt,
sérstaklega þegar maður skoðar
úrslitasíðurnar á netinu þar sem
bókstaflega öllum viðburðum og
leikjum hefur verið frestað.
„Hvernig er það eiginlega, er
eitthvað að gera hjá þér í
vinnunni?“ er vinsælasta grínið
á mig í dag hjá fólki sem ég
hitti sjaldan og vantar umræðu-
efni til þess að brjóta ísinn.
„Já blessaður vertu, það er
alltaf nóg að skrifa um!“ svara
ég oftast á móti og lýg engu um
það. Það getur verið krefjandi
að kokka upp gott efni þegar
það er líka grá lægð yfir land-
inu. Að sama skapi finnst mér
ég og samstarfsfélagar mínir á
íþróttadeild Morgunblaðsins
búnir að standa okkur afar vel í
að bjóða upp á ferskt og nýtt
efni í Morgunblaðinu á hverjum
einasta degi frá því að allt fór
úr skorðum hér á landi.
Það hryggir mig samt óneit-
anlega að hugsa til þess að úr-
slitakeppnin í handboltanum
hefði hafist í gær. Þá væri úr-
slitakeppnin í körfunni í fullum
gangi en undir eðlilegum kring-
umstæðum hefði hún byrjað í
byrjun apríl. Fyrsti leikur í
Pepsi-Max-deild karla hefði svo
verið á morgun þegar Íslands-
meistarar KR hefðu heimsótt
Valsmenn.
Ég skal alveg viðurkenna það
að ég stend sjálfan mig að því
trekk í trekk að blóta þessari
blessuðu kórónuveiru. Enginn
veit hvað átt hefur fyrr en misst
hefur og allt það og í dag er ég
löngu hættur að taka hlutunum
sem sjálfsögðum. Það eru for-
réttindi að geta hitt og faðmað
fólkið sitt, alveg eins og það eru
forréttindi að geta og fá að
fylgjast með íþróttum.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
HANDBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Mikil óvissa ríkir hjá Guðjóni Val
Sigurðssyni, fyrirliða íslenska karla-
landsliðsins í handknattleik, þessa
dagana en samningur hans við
franska stórliðið París SG rennur út
í sumar og er óvíst hvað tekur við
hjá hornamanninum.
Í síðustu viku tilkynntu forráða-
menn frönsku 1. deildarinnar að
tímabilinu í Frakklandi væri lokið
vegna kórónuveirunnar og var PSG
úrskurðað Frakklandsmeistari,
sjötta árið í röð, og í sjöunda sinn í
sögu félagsins.
Guðjón Valur, sem verður 41 árs
gamall í ágúst, vann þar með sinn
sjöunda meistaratitil í fjórða landinu
en hann varð danskur meistari með
AG Kaupmannahöfn 2012, Þýska-
landsmeistari með Kiel 2013 og 2014
og með Rhein-Neckar Löwen 2017.
Þá varð hann spænskur meistari
með Barcelona 2015 og 2016.
Endirinn vissulega sérstakur
„Maður er eins og flestir íþrótta-
menn í dag í ákveðinni biðstöðu ef
svo má segja, og endirinn á tíma-
bilinu var vissulega mjög sér-
stakur,“ sagði Guðjón Valur í sam-
tali við Morgunblaðið. „Ég hefði,
eins og allir í liðinu, viljað klára
þetta mót og það var skrítið að verða
meistari á þennan hátt. Persónulega
þá líður mér ekki eins ég hafi unnið
eitthvað þó þetta hafi vissulega litið
vel út hjá okkur.
Við þurftum fjóra sigra úr síðustu
átta leikjunum okkar og við vorum
allir sannfærðir um að við myndum
klára þetta á endasprettinum. Til-
finningin er hins vegar skrítin enda
var engin formleg verðlaunaafhend-
ing sem dæmi og því ekkert til þess
að loka tímabilinu ef svo má segja.
Aðstæður eru hins vegar þannig í
Evrópu og öllum heiminum í dag að
maður sýnir þessu fullan skilning og
það er mjög eðlilegt að íþróttir séu
ekki í gangi eins og ástandið er í
dag.“
Peningarnir stjórna ferðinni
PSG er komið áfram í sextán liða
úrslit Meistaradeildarinnar þar sem
liðið mætir Dinamo Búkarest frá
Rúmeníu en áætlað er að þeir leikir
fari fram í byrjun júní. EHF, evr-
ópska handknattleikssambandið, til-
kynnti svo í síðustu viku að úr-
slitahelgin myndi fara fram milli jóla
og nýárs í Köln í Þýskalandi, eins og
venjan en, en margir lykilmenn PSG
í ár verða þá horfnir á braut.
„Fyrir þá sem eru að renna út á
samningi í sumar þá er þetta afar
sérstakt svo ekki sé meira sagt. Eins
og staðan er í dag þá verður allt ann-
að PSG-lið sem mun klára tímabilið í
Meistaradeildinni en það sem hóf
leiktíðina. Leikmenn eins og Luc
Abalo og Sander Sagosen verða
báðir horfnir á braut og byrjaðir að
spila í riðlakeppni Meistaraadeild-
arinnar á nýjan leik með öðrum lið-
um. Þetta sýnir manni svart á hvítu
hversu miklu fjárhagslegu máli
þetta skiptir fyrir EHF.
Það er verið að fjölga liðum í
þýsku deildinni úr átján í tuttugu
sem þýðir að deildarleikirnir þar í
landi verða fleiri en ella. Svo á að
bæta við úrslitahelgi Meistara-
deildarinnar, korteri fyrir heims-
meistaramót. Eins og þetta horfir
við mér hefði mögulega verið hægt
að láta liðin hittast í júní til þess að
klára mótið, fyrst það á hvort sem er
að spila sextán liða úrslitin þá. Það
hefði frekar átt að aflýsa þessu en
það eru peningarnir sem ráða, ekki
heilsa leikmannanna.“
Engin töfralausn í boði
Eins og Guðjón Valur bendir
réttilega á þá er mikið álag á hand-
knattleiksmönnum en Evrópumótið
í handbolta er haldið annað hvert ár
á móti heimsmeistaramótinu sem á
að fara fram í Egyptalandi í janúar á
næsta ári. Guðjón Valur hefur áður
gagnrýnt Alþjóðahandknattleiks-
sambandið fyrir mikið leikjaálag en
hann ítrekar að handboltinn sé ekki í
sömu stöðu og fótboltinn þar sem fé-
lögin reiða sig einna helst á sjón-
varpstekjur.
„Það má alveg horfa á þetta þann-
ig að það sé lítill hljómgrunnur fyrir
því sem við leikmennirnir höfum
verið að segja varðandi álag og ann-
að en við þurfum líka að horfa raun-
sætt á þetta. Handboltinn er ekki í
sömu stöðu og fótboltinn og til þess
að fá þessa stóra styrki þá þarftu að
halda þessi stærstu mót. Handbolt-
inn rekur sig ekki á sjónvarps-
tekjum, ólíkt fótboltanum, heldur
áhorfendum og styrktarsamningum.
Í draumaheimi þá væru ekki fjór-
tán leikir í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar og svo sextán og átta
liða úrslit ofan á það áður en þú
kemst í sjálfa úrslitahelgina. Ég er
ekki með neina töfralausn á þessum
vanda sjálfur en ég sé fram á að
næsta ár geti orðið mjög strembið
fyrir marga. Það er eftir að spila
undankeppni HM, undankeppni Ól-
ympíuleikanna og undankeppni EM
og einhvers staðar þarf að koma öll-
um þessum viðburðum fyrir.“
Ýmislegt annað í
lífinu en handboltinn
Landsliðsfyrirliðinn hefur mögu-
leika á því að spila áfram erlendis
sem atvinnumaður og þá er einnig
möguleiki á því að hann snúi heim til
Íslands. Rekstur handboltafélag-
anna er afar erfiður í dag vegna kór-
ónuveirunnar og segir Guðjón Valur
erfitt að spá um framtíð margra
þeirra þegar tekist hefur að ráða
niðurlögum veirunnar.
„Ég verð vissulega án félags í
sumar þegar samningur minn renn-
ur út en það er margt verra í gangi í
heiminum í dag og ég ætla alls ekki
að setja sjálfan mig í eitthvert
fórnarlambshlutverk. Ég hef mína
heilsu og fjölskyldunni minni líður
vel og það er fyrir öllu. Það sem
kemur, kemur, og ef það kemur ekki
þá er það bara þannig. Það er ýmis-
legt annað til í lífinu en að elta hand-
bolta þótt ég sé búinn að gera það í
þó nokkur ár.“
Fjölskyldan nýtur sín saman
„Ég hef leitt hugann að því að
klára ferilinn hér á landi en maður
veit svo lítið eins og staðan er í dag
og það er erfitt að taka stórar
ákvarðanir þegar maður hefur lítið
til þess að byggja á. Ég hef talað við
lið erlendis og mér stendur eitthvað
til boða eins og staðan er núna.
Stelpurnar mínar eru báðar fluttar
heim til Íslands og við fjölskyldan
erum öll á Íslandi núna sem er nokk-
uð óvenjulegt fyrir okkur á þessum
tíma árs. Við nýtum tímann og njót-
um þess að vera saman.
Ég vona innilega að það verði
hægt að ná niðurlögum þessa farald-
urs og fólk geti farið að einbeita sér
að öðrum hlutum. Á sama tíma geri
ég mér grein fyrir því að ég er ekki
að yngjast og ég er ekki að bíða eftir
tveggja til þriggja ára samningi ein-
hvers staðar. Ef það er ekkert sem
manni líst vel á úti þá bara þakkar
maður fyrir sig og gengur sáttur frá
borði,“ bætti Guðjón Valur Sigurðs-
son við í samtali við Morgunblaðið.
Get gengið sáttur frá borði
Guðjón Valur gæti leikið á Íslandi næsta vetur Hefur rætt við íslensk félög
Kveður PSG sem franskur meistari Býst ekki við löngum samningi
Ljósmyn/Einar Ragnar Haraldsson
Methafi Guðjón Valur Sigurðsson skorar gegn Ungverjum á EM í Malmö í janúar. Hann er markahæsti landsliðs-
maður handboltasögunnar í heiminum og hefur skorað 1.875 mörk í 364 landsleikjum fyrir hönd Íslands.
Brynhildur Traustadóttir, afreks-
kona í sundi, hefur skrifað undir
samning við bandaríska háskólaliðið
University of Indianapolis og mun
hún keppa fyrir hönd skólaliðsins
samhliða háskólanámi í stærðfræði
frá og með haustinu 2020. Sagði hún
í samtali við Skagafréttir að draum-
ur væri að rætast en Hrafn, bróðir
Brynhildar, fór einnig í háskóla-
sundið í Bandaríkjunum. „Ég hef
stefnt að þessu frá því ég var tólf
ára,“ sagði hún. Brynhildur er 19
ára gömul og keppti m.a. á Norður-
landamótinu á síðasta ári.
Brynhildur samdi
í Indianapolis
Ljósmynd/Skagafréttir
Sund Brynhildur Traustadóttir
skrifar undir hjá Indianapolis.
Alphonso Davies, einn besti ungi
bakvörður heims, skrifaði í gær
undir nýjan fimm ára samning við
Þýskalandsmeistara Bayern
München. Gildir samningurinn til
ársins 2025. Davies kom til Bayern
frá Vancouver Whitecaps í janúar á
síðasta ári og hefur slegið í gegn í
Þýskalandi. Hefur hann spilað 31
leik á leiktíðinni og verið fyrsti
kostur í vinstri bakvarðarstöðuna
hjá Bayern. Davies var áður á
samningi til 2023, en hann hækkar
töluvert í launum með nýja samn-
ingnum.
Í Bæjaralandi
næstu fimm árin
AFP
München Alphonso Davies er einn
besti ungi bakvörður heims.
Færeyska knattspyrnusambandið
tilkynnti í gær að deildakeppnin í
fótboltanum þar í landi myndi hefj-
ast laugardaginn 9. maí, tæplega
tveimur mánuðum síðar en til stóð.
Leikið verður án áhorfenda í fyrstu
umferðunum. Fyrsta umferðin í úr-
valsdeild karla átti að fara fram 15.
mars og í úrvalsdeild kvenna 22.
mars, en miðað við daginn í dag
hefðu karlarnir verið búnir með sex
umferðir og konurnar með þrjár.
Færeyingar hafa staðið sig mjög
vel í baráttunni gegn kórónuveir-
unni en þar hefur enginn látist og
aðeins tvö smit verið greind frá 8.
apríl.
Færeyskum meistaraflokksliðum
var heimilað að hefja æfingar í gær,
mánudag, en æfingar yngri flokka
munu að óbreyttu hefjast á ný
mánudaginn 4. maí.
Enginn Íslendingur er við störf
hjá færeysku liði að þessu sinni en
Heimir Guðjónsson sneri aftur til Ís-
lands eftir að hafa unnið deildina og
síðan bikarinn sem þjálfari HB
undanfarin tvö ár og tók við þjálfun
Vals, og Guðjón Þórðarson kom aft-
ur heim í vetur eftir eitt ár hjá NSÍ
frá Runavík sem náði nokkuð óvænt
þriðja sæti undir hans stjórn á síð-
asta ári. Þá lék Brynjar Hlöðversson
með HB undanfarin tvö ár en er
kominn í sitt gamla félag, Leikni í
Reykjavík. vs@mbl.is
Færeyingar
fara aftur af
stað 9. maí