Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.04.2020, Blaðsíða 32
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við ætlum bara að hafa gaman af þessu. Meðan við höfum tíma höldum við áfram,“ segir Guðný Lára Gunn- arsdóttir, sem leitt hefur hóp net- verja í tilraun til að hrekja burt kór- ónuveiruna með söng. Íslensk útgáfa Guðnýjar og fjölda annarra af laginu Eye of the Tiger hefur vakið athygli að undanförnu og nýtt lag er í bí- gerð. Guðný og eiginmaður hennar, Stefán Örn Viðarsson, eru búsett á Selfossi. Hún segir að þau hjónin sitji sjaldnast auð- um höndum, eru til að mynda virk í Leikfélagi Sel- foss, og því tóku þau kór- ónuveirufaraldrinum, með tilheyr- andi innilokun og samkomubanni, sérstaklega illa. Bróðir Guðnýjar er Helgi Har- aldsson á Seyðisfirði og hann stofn- aði hópinn Syngjum veiruna í burtu á Facebook. Hópurinn var stofnaður í lok mars og á fyrstu 20 dögum hans höfðu 20 þúsund manns skráð sig til leiks og alls um tvö þúsund mynd- bönd verið send inn. „Við hjónin höfum verið heima- vinnandi að mestu leyti síðan sam- komubann var sett á. Allt hefur þetta gengið mjög vel og hefur tónlistin einna helst hjálpað okkur á heimilinu mikið við að bíða faraldurinn af okk- ur,“ segir Guðný en öll fjölskyldan hefur vitaskuld tekið þátt í að syngja veiruna burt á Facebook. Segir hún að það hafi vissulega stytt stundirnar en rétt fyrir páska hafi eirðarleysi og hangs verið orðið allsráðandi á heim- ilinu. Þá hafi þeim hjónum dottið í hug að tína út nokkra söngfugla úr facebookhópnum og „reyna að skapa eitthvað stórkostlegt með þeim heiman úr stofu“, eins og hún orðar það. „Við vorum og erum hreinlega agndofa yfir öllu þessu hugrakka hæfileikaríka fólki á öllum aldri,“ segir hún en upptökum frá fjölda söngvara var skeytt saman í mynd- band sem finna má á Youtube. Fyrir valinu varð lagið Eye of the Tiger með nýjum íslenskum texta þeirra hjóna. „Textinn fjallar um innri og ytri baráttu okkar við að kljást við þetta ástand sem nú ríkir í heiminum, með slatta af húmor að sjálfsögðu, því það er ekkert mik- ilvægara en að halda í gleðina.“ Meira er á teikniborðinu hjá kór- ónukórnum. Í gær var hafist handa við upptökur á íslenskri útgáfu hins kunna bítlalags All You Need Is Love. „Er það ekki þannig að í dag þurfum við bara knús?“ spyr Guðný Lára að endingu. Kórónukórinn snýr sér nú að Bítlunum Söngur Kórónukórinn reynir að hrekja veiruna á brott með söng.  Fyrst var það Eye of the Tiger en næst er All You Need Is Love Atorkusöm Guðný Lára og Stefán Örn stýra öllu úr stofunni á Selfossi. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is DUCA model 2959 L 215 cm Áklæði ct. 83 Verð 395.000,- L 215 cm Leður ct. 25 Verð 585.000,- ESTRO model 3042 L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,- GOLF model 2945 L 216 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,- L 176 cm Leður ct. 10 Verð 339.000,- KIPLING model 3088 L 214 cm Áklæði ct. 70 Verð 345.000,- L 180cm Áklæði ct. 70 Verð 325.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla JEREMY model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,- ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 112. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. ÍÞRÓTTIR MENNING „Ég verð vissulega án félags í sumar þegar samningur minn rennur út en það er margt verra í gangi í heim- inum í dag og ég ætla alls ekki að setja sjálfan mig í eitthvert fórnarlambshlutverk. Ég hef mína heilsu og fjölskyldunni minni líður vel og það er fyrir öllu. Það sem kemur kemur og ef það kemur ekki þá er það bara þannig. Það er ýmislegt annað til í lífinu en að elta handbolta þótt ég sé búinn að gera það í þó nokkur ár,“ segir Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsfyrirliði í hand- bolta. »27 Margt verra í gangi í heiminum Listamannaspjall um Oleanna Ólafur Darri Ólafsson og Vala Kristín Eiríks- dóttir taka þátt í listamannaspjalli í beinu streymi Borgarleikhúss- ins í dag kl. 12. Þar ræða þau leikritið Oleanna eftir David Mamet sem þau frumsýna í byrjun næsta leikárs í leikstjórn Hilmis Snæs Guðna- sonar. Streymið er aðgengilegt á vef og youtube-rás leikhússins. Á morgun kl. 12 rifja leikarar Borgarleik- hússins upp þjóðþekkt lög sem eiga uppruna sinn í ís- lenskum leikverkum. Af öðrum viðburðum vikunnar má nefna að á laugardag kl. 12 verður sagan „Þar sem óhemjurnar eru“ lesin. Dagskrána í heild má nálgast á borgarleikhus.is. Þess má geta að allt listamannaspjall- ið sem sent hefur verið út í samkomubanni síðustu vikna, sem og leiklestrar og upplestur á barnasögum, er aðgengilegt í hlaðvarpi Borgarleikhússins á streym- isveitunni Spotify.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.