Morgunblaðið - 24.04.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.04.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2020 Ágúst Ólafur Ágústsson og BjarniBenediktsson áttu orðaskipti á Alþingi í fyrradag. Ágúst var ekki allt of sáttur við nýkynntar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bregðast við kórónuveirufaraldrinum og sagði „afskaplega lítið í þessum pakka sem stuðlar til dæmis að því að búa til ný störf. Af hverju ekki að fjölga opin- berum störfum?“ Hann bætti við að fjölgun opinberra starfa væri í senn þörf og skynsamleg.    Bjarni brást viðmeð þessum orðum: „Þetta er einhver versta hug- mynd sem ég heyrt, að nú sé ástæða til að fara að stórfjölga opinberum störfum. Ég held að það sé ekki verkefnið. Við þurfum að gera okkur grein fyr- ir því hvert vandamálið er. Vanda- málið er störfin í einkageiranum sem eru að hverfa. Það er rót vand- ans eins og ég fór yfir áðan. Ef við vinnum ekki bug á því ástandi mun- um við ekki hafa efni á samneysl- unni eins og við höfum stillt út- gjaldastigið af á undanförnum árum. Við munum einfaldlega ekki hafa tekjur til ríkissjóðs til að greiða bætur almannatrygginga, reka menntakerfið, reka heilbrigðisþjón- ustuna, félagsþjónustuna, standa undir samgöngukerfinu og svo framvegis. Það er hættan sem við stöndum frammi fyrir þannig að að- gerðir okkar hljóta að eiga miðast við að örva að nýju starfasköpun í samfélaginu.“    Hugmyndin um fjölgun opin-berra starfa til að koma okkur út úr þessu ástandi er vissulega ein- hver sú versta sem fram hefur komið. Það er ekki síst vegna þess að opinber störf eru orðin allt of mörg. Þeim verður að fækka til að veita atvinnulífinu og þar með verð- mætasköpuninni eðlilegt svigrúm. Ágúst Ólafur Ágústsson Afleit hugmynd STAKSTEINAR Bjarni Benediktsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Bergrún Íris Sævarsdóttir, barnabókahöfundur og teiknari, var valin bæjarlistamaður Hafnar- fjarðar fyrir árið 2020 og hlaut 1,5 milljónir í viður- kenningarskyni, til að vinna áfram að list sinni. Kallað var eftir tillögum bæjarbúa við val á bæjar- listamanni Hafnarfjarðar. Bergrún hefur getið sér gott orð fyrir bækur sínar bæði hérlendis og erlendis. Fyrsta bók hennar, Vinur minn, vindurinn, kom út árið 2014 og naut strax mikillar athygli. Hlaut hún tilnefningar bæði til Fjöruverðlauna og Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norður- landaráðs. Bergrún er fædd árið 1985 og lauk prófi í list- fræði frá Háskóla Íslands og síðar námi í teikn- ingu frá Myndlistarskólanum í Reykjavík. Ákvað Bergrún að þakka fyrir sig með bókagjöf á allar deildir leikskóla Hafnarfjarðar. Gaf hún tvær bækur, bókina Næturdýrin og bókina Ró. Næturdýrunum fylgir ljúf tónlist eftir Ragnheiði Gröndal en Ró eftir Evru Rún Þorgeirsdóttur er myndskreytt með vatnslitamyndum eftir Berg- rúnu. Bergrún valin bæjarlistamaður  Kallað var eftir til- lögum frá bæjarbúum Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær Hafnarfjörður Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri segir Bergrúnu vel að viðurkenningunni komna. Nýja pítsustaðnum Spaðanum bár- ust yfir 600 umsóknir þegar auglýst var eftir tveimur starfsmönnum. Fjöldi fólks er á atvinnuleysisskrá vegna kórónufaraldursins og því mikill áhugi á lausum störfum. Stað- urinn mun einungis notast við raf- rænar greiðslur og verður opnaður nú í kringum mánaðamót á Dalvegi 32b í Kópavogi í miðjum faraldr- inum. Spaðinn er ólíkur öðrum mat- sölustöðum á Íslandi, þar sem allt söluferlið er rafrænt og því ekki tekið við peningum. Sjálfs- afgreiðslukassar verða á pítsu- staðnum, svipaðir þeim sem sjást víða erlendis, og þar getur við- skiptavinurinn pantað pítsu og síð- an sótt. Ekki verður boðið upp á heimsendingu. „Sérstaða Spaðans er sú að það er pantað í appi og sótt í sjálfs- afgreiðslustöðvar. Allt er rafrænt og greitt fyrir fram. Staðurinn verð- ur opinn alla daga frá 11 til 11 og engin tilboð, svo þú gengur alltaf að þessu vísu, “ sagði Þórarinn Ævars- son, stofnandi og framkvæmdastjóri Spaðans. veronika@mbl.is Yfir 600 umsóknir bár- ust um tvö laus störf Ljósmynd/Stefán Einar Stefánsson Spaðinn Lögð er rík áhersla á rafrænt ferli á nýja pítsustaðnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.