Morgunblaðið - 24.04.2020, Blaðsíða 27
SÖGUSTUND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hlauparinn með stóra brosið, Mo
Farah, uppskar verðskuldaða að-
dáun þegar honum tókst að sigra
bæði í 5 og 10 þúsund metra hlaupi
á tvennum Ólympíuleikum í röð.
Náði hann því 2012 og 2016. En
hver var fyrstur að afreka slíkt?
Finninn Lasse Virén náði því
fyrstur, en Finnar eiga glæsilega
hefð á hlaupabrautinni. Íþrótta-
deildin fékk hvatningu um að dusta
rykið af Virén í Sögustundinni og
er sjálfsagt að gera það, en Virén
hélt merki Finna hátt á lofti á átt-
unda áratugnum. Finnar áttu
mikla afreksmenn í hlaupum á
þriðja áratugnum. Hannes Koleh-
mainen, Ville Ritola og Paavo
Nurmi unnu allir til margra verð-
launa á Ólympíuleikum en sá
síðastnefndi er þeirra frægastur og
var kallaður Finninn fljúgandi. Um
hálfri öld síðar tók Virén við kefl-
inu.
Lasse Virén sigraði í 5 þúsund
og 10 þúsund metra hlaupi á hin-
um frægu Ólympíuleikum í
München árið 1972. Eflaust kom
árangurinn mörgum á óvart því Vi-
rén var ekki mjög þekktur. Árið
áður hafði hann hafnað í 7. og 17.
sæti í þessum greinum á EM á
heimavelli í Helsinki. Eftir EM
hafði hann hins vegar áttað sig á
að betur mætti ef duga skyldi og
fór til Keníu í æfingabúðir áður en
hann gerði atlögu að ólympíu-
lágmarkinu fyrir leikana 1972. Í 5
þúsund metrunum í München sigr-
aði hann á tímanum 13:26,42 mín-
útum og í 10 þúsund metrunum á
27:38,35 mínútum.
Stutt dvöl í Utah
Virén fæddist 22. júlí árið 1949
og heitir fullu nafni Lasse Artturi
Virén. Hann fæddist í Myrskylä,
norðaustur af Helsinki, en þar búa
innan við tvö þúsund manns. Eftir
að hafa keppt fyrst og fremst í
Finnlandi hélt hann til Bandaríkj-
anna og nam við Brigham Young-
háskólann í Utah. Hann hætti hins
vegar í námi eftir eitt ár og var þá
19 ára gamall. Hóf hann æfingar
undir handleiðslu Rolf Haikkola í
heimalandinu og gegndi einnig
herþjónustu. Tveimur árum síðar
keppti hann á EM eins og áður
segir.
Virén varð auðvitað mjög þekkt-
ur eftir afrek sín í München. Hann
var fjórði maðurinn til að ná að
vinna báðar greinarnar á sömu Ól-
ympíuleikunum. Á þessum tíma
þurftu menn að fara í undanrásir í
10 þúsund metra hlaupinu og
hlaupa þá vegalengd þar af leið-
andi tvisvar. 5 þúsund metra
hlaupið var eftir það og æfingarnar
í Kenía skiluðu sér greinilega.
Furðumeiðsli á milli leikanna
Tímabilið eftir München var ekki
gott hjá Virén. Hann lagði ekki eins
hart að sér við æfingar og hann var
vanur að gera en sinnti á hinn bóg-
inn ýmsum verkefnum sem tengd-
ust þeirri frægð sem hann hafði
öðlast. Veturinn 1973-1974 æfði
hann aftur af krafti en hann varð
fyrir furðulegum meiðslum sumarið
1974. Rak þá lærið í borð þegar
hann spratt á fætur til að svara
símanum.
Þessi óvenjulegu meiðsli áttu eft-
ir að draga dilk á eftir sér og Virén
fór í aðgerð vegna þeirra snemma
árs 1975 þegar ljóst var að hann
myndi ekki lagast án inngrips. Svo
heppilega vildi til að ekki voru nein
stórmót á dagskrá um sumarið sem
Virén þurfti að velta fyrir sér.
Hann hafði því nægan tíma til að
jafna sig og byggja sig upp á ný
fyrir leikana í Montréal 1976. Gerði
hann það samviskusamlega.
Ýmsar kenningar á lofti
Þetta tímabil á milli Ólympíu-
leikanna 1972 og 1976 var því mjög
dauft fyrir jafn mikinn afreksmann
og Virén. Hefur þetta rennt stoðum
undir kenningar um að hann hafi
fyrst og fremst verið vel gíraður
þegar kom að Ólympíuleikum. Lær-
meiðslin hafa stundum týnst í sögu-
skýringum og ef til vill lítið gert úr
því hvernig hann eyddi tímanum
fyrsta árið eftir leikana 1972. En
ljóst er að þá sinnti hann ekki æf-
ingum eins og hann var vanur.
Meira að segja er til viðtal við föð-
ur hans frá árinu 1973 þar sem
hann hefur áhyggjur af því hvernig
frægð sonarins hafi truflandi áhrif
æfingar og einbeitinguna.
Einnig hafa lengi verið sögusagn-
ir um að Virén hafi stundað blóð-
skipti þegar mikið lá við til að
hjálpa sér í keppni. Hann hefur
ávallt neitað því og hefði kannski
ekki verið stórmál fyrir hann að
játa slíkt því það varð ekki ólöglegt
í íþróttakeppnum fyrr en áratug
síðar.
Virén mætti vel undirbúinn til
Montréal árið 1976 og tókst að
endurtaka leikinn. Hann hljóp 10
þúsund metrana á 27:40,4 og hafði
minnst fyrir þeim gullverðlaunum
af þeim fjórum sem hann vann á
Ólympíuleikum. Samkeppnin í 5
þúsund metra hlaupinu var miklu
meiri, en þar tók Virén forystuna
þegar 600 metrar voru eftir og hélt
henni. Allt var það samkvæmt dag-
skipun þjálfarans, en Virén bjó yfir
miklum andlegum styrk og gekk
vel að framfylgja áætlunum þegar
allt var undir. Hljóp á 27:40,38.
Daginn eftir skellti Finninn sér í
maraþonkeppni leikanna eins og
menn gera. Náði meira að segja
mjög góðum tíma og hljóp á 2:13:00
klukkustundum.
Keppti á þriðju leikunum
Virén er þrefaldur ólympíufari
því hann keppti í Moskvu árið 1980
áður en hann hætti keppni í
hlaupum. Hafnaði hann í 5. sæti í
10 þúsund metra hlaupinu í
Moskvu. Þegar upp er staðið er
úrslitahlaupið í 10 þúsund metra
hlaupinu á leikunum í München
1972 frægasta hlaup hans. Þegar
hlaupið var tæplega hálfnað féllu
þrír keppendur, þar á meðal Virén,
eftir að hafa rekist saman á braut-
inni.
Virén tapaði þar um fimm sek-
úndum en var fljótur að vinna þær
upp og tókst að sigra. Er það mikið
afrek því í hlaupum sem þessum er
takturinn mikilvægur fyrir hlaup-
arana. Ef þeir verða fyrir því að
detta geta þeir jafnframt fengið
hálfgert áfall. Þetta beit hins vegar
ekki á Virén. Merkilegt er hvernig
íþróttasagan getur endurtekið sig
því Mo Farah sigraði í 10 þúsund
metra hlaupinu í Ríó 2016 eftir að
hafa dottið í hlaupinu.
Virén starfaði um tíma á yngri
árum sem lögregluþjónn. Síðar á
lífsleiðinni, árið 1999, fannst honum
ekki nóg að hafa framfylgt lögunum
heldur vildi hann einnig koma að
lagasetningunni sjálfri. Gaf hann
kost á sér í þingkosningum og
komst inn. Sat hann á finnska
þinginu frá 1999 til 2007 og aftur
frá 2010 til 2011 en þá lét hann gott
heita.
Hann hljóp inn á þing
Lasse Virén tók við keflinu af Finnanum fljúgandi og varð sá fyrsti sem vann bæði 5 og
10 þúsund metra hlaup á tvennum Ólympíuleikunum í röð Furðuleg meiðsli höfðu áhrif
AP
Montréal Lasse Virén kemur fyrstur í mark í 5.000 m hlaupinu á Ólympíu-
leikunum 1976. Dick Quax frá Nýja-Sjálandi (691) varð annar og Klaus
Hildenbrand frá Vestur-Þýskalandi náði bronsinu með því að kasta sér fram.
Sögustund
» Áður hefur verið fjallað um:
John Daly, Wayne Gretzky,
Mike Powell, Mark Spitz, Nadiu
Comaneci, Hermann Maier,
Önu Fideliu Quirot, Ben John-
son, Charles Austin, Alberto
Juantorena, Helmuth Ducka-
dam, Matti Nykänen, Jack
Nicklaus, Heysel-harmleikinn,
Ben Crenshaw, David Beck-
ham, Milfred „Babe“ Didrik-
son, knattspyrnulandslið N-
Kóreu 1966 og Alsírs 1982,
Eddie Eagan, Roberto Cle-
mente, Larisu Latininu,
Tórínó-flugslysið, Jarmilu Kra-
tochvílóvá, Martinu Navratil-
ovu, Wilt Chamberlain og Kat-
arinu Witt.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2020
Enska knattspyrnufélagið Arsenal
hefur aðvarað fjóra leikmenn sína fyrir
að brjóta reglur bresku ríkisstjórnar-
innar um útivistarbann. Nicolas Pépé
sást í fótbolta með vinum sínum í
norðurhluta London, Granit Xhaka og
David Luiz voru gómaðir við sömu iðju
í almenningsgarði í Southgate og
Alexandre Lacazette var í samræðum
við bílaþvottamann í innkeyrslunni hjá
sér.
Jan Vertonghen, varnarmaður
enska knattspyrnufélagsins Totten-
ham, mun að öllum líkindum yfirgefa
félagið í sumar þegar samningur hans
rennur út. Vertonghen er orðinn 32
ára gamall og hefur belgíski landsliðs-
maðurinn ekki viljað framlengja samn-
ing sinn í London þrátt fyrir að félagið
hafi lagt mikið kapp á að halda honum.
„Ég vil spila áfram í Evrópu og læra
nýtt tungumál. Bæði Spánn og Ítalía
koma til greina. Það skiptir líka máli
fyrir mig hversu langur samningur er í
boði fyrir mig,“ sagði hann við belg-
íska fjölmiðla.
Brasilíski knattspyrnumaðurinn
Willian gæti gengið í raðir Liverpool
fyrir næstu leiktíð á frjálsri sölu frá
Chelsea. Sport á Spáni greindi frá. Illa
hefur gengið hjá Chelsea og Willian að
semja á ný, þar sem leikmaðurinn vill
þriggja ára samning en félagið er að-
eins tilbúið að bjóða honum tveggja
ára framlengingu.
Enska knattspyrnufélagið Arsenal á
í viðræðum við spænska félagið Atlé-
tico Madrid um kaup á miðjumann-
inum Thomas Partey. Partey hefur
verið lykilmaður hjá Atlético Madrid á
tímabilinu og skorað tvö mörk í 21
byrjunarliðsleik.
Þýski markvörðurinn Loris Karius
er ósáttur við tyrkneska félagið Besik-
tas þar sem hann hefur verið að láni
frá Liverpool í tæp tvö ár. Hefur Karius
ekki fengið greitt frá félaginu síðan
tímabilið í Tyrklandi fór í frí vegna
kórónuveirunnar og vill hann rifta
samningi sínum, sem á að gilda út
leiktíðina.
Enski knattspyrnumaðurinn Ashley
Young hefur samþykkt eins árs fram-
lengingu á samningi sínum við ítalska
félagið Inter Mílanó. Young gekk í raðir
félagsins frá Manchester United í jan-
úar og gerði þá sex mánaða samning.
Young spilaði sjö leiki fyrir Inter áður
en tímabilinu var frestað, en hann
heillaði forráðamenn og þjálfarateymi
liðsins og hefur verið verðlaunaður
með nýjum samningi.
Timo Werner, framherji þýska
knattspyrnufélagsins Leipzig, mun að
öllum líkindum ganga til liðs við Liver-
pool í sumar þegar félagaskiptaglugg-
inn verður opnaður. Jürgen Klopp,
knattspyrnu-
stjóri Liverpool,
er mikill aðdá-
andi Werner og
hefur mikið
verið rætt og
ritað um fund
þeirra félaga
sem mun að öll-
um líkindum
eiga sér stað á
næstu vikum.
Werner hefur
skorað 21 mark í
24 byrjunarliðs-
leikjum í þýsku 1.
deildinni
á tíma-
bilinu.
Eitt
ogannað
Eric Dier hefur verið kærður af
enska knattspyrnusambandinu fyr-
ir hegðun sína eftir leik Tottenham
og Norwich í enska bikarnum í síð-
asta mánuði. Dier stökk yfir auglýs-
ingaskilti og fór upp í stúku eftir
leikinn þar sem hann virtist stefna
á einn tiltekinn áhorfenda, án þess
þó að ná til hans þar sem aðrir
áhorfendur komu í veg fyrir það.
Er áhorfandinn sagður hafa beint
niðrandi ummælum til yngri bróður
Dier. Leikmaðurinn hefur til 8. maí
til að svara kærunni, en hann gæti
átt yfir höfði sér sekt og/eða bann.
Kærður og fer
mögulega í bann
AFP
Reiður Eric Dier var bálreiður
í leikslok og óð upp í stúku.
Þjóðverjar vonast til þess að geta
hafið leik í efstu tveimur knatt-
spyrnudeildum sínum í karlaflokki
snemma í maí. Ljóst er að gjaldþrot
blasir við mörgum félaganna í efstu
deildunum ef ekki tekst að klára
tímabilið. Byrji deildirnar í maí
mega ekki vera fleiri en 203 áhorf-
endur á leikjum og ekki fleiri en
109 starfsmenn. Allir leikmenn
verða prófaðir daginn fyrir leikdag
og ef leikmaður greinist með veir-
una verður liðið hans ekki sett í
sóttkví heldur verða allir sem koma
að leiknum hitamældir á leikdegi.
Þjóðverjar vilja
byrja í maí
AFP
Þýskaland Alfreð Finnbogason
leikur með Augsburg í Þýskalandi.