Morgunblaðið - 24.04.2020, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 24.04.2020, Qupperneq 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2020 Rithöfundurinn Óttar Norðfjörð mælir með listaverkum sem njóta má innan veggja heimilisins á tím- um samkomubanns. „Ég bý á Spáni, sem hefur verið í hálfgerðri sóttkví í rúman mánuð, svo list og menn- ingarefni hefur sjaldan verið eins mikilvægt og ein- mitt nú. Ég ætla fyrst að mæla með nýj- asta smásagna- safni Davids Sed- aris, Calypso, en ég ákvað að lesa bara eina sögu á dag þótt það væri erfitt, enda frábærar. Eins og fyrri verk hans fjalla þær um líf hans og fjölskyldu, en um leið um okkur öll. Sedaris er ótrúlegur penni sem hef- ur lag á því að finna það fyndna í furðulegustu aðstæðum. Ég ætla að svindla aðeins næst og mæla með framleiðslufyrirtækinu Pixar sem hefur gert 22 tölvugerð- ar teiknimyndir í fullri lengd, hverja annarri betri. Ég á tæplega tveggja ára gamlan son sem fær að glápa meira á sjónvarpið en venju- lega þessar vikurnar og ég horfi oft á Pixar-myndir með honum, enda fær maður í raun aldrei leiða á þeim, því þær eru svo vel gerðar. Fyndnar, hjartahlýjar og merki- lega djúpar. Coco og Inside Out eru í sérstöku uppáhaldi. Og ég ætla að svindla aftur og loks mæla með leikkonunni Reese Witherspoon sem er hugsanlega mest spennandi sjónvarpsleikkona og -framleiðandi í Bandaríkjunum um þessar mund- ir. Fyrst með seríunni Big Little Lies, en í sóttkvínni hef ég verið að horfa á tvær nýjustu seríur hennar. Sú fyrri heitir The Morning Show sem mér fannst bara nokkuð góð, enda þrusuleikarar og áhugaverð saga beint úr samtímanum. Seinni serían heitir Little Fires Every- where sem fjallar um stéttaskipt- inguna í Bandaríkjunum, en á ferskan og svo hófstilltan máta að manni finnst aldrei eins og það sé verið að predika yfir manni. Mælt með í samkomubanni AFP Spennandi Reese Witherspoon er mögulega mest spennandi sjónvarpsleik- kona og -framleiðandi í Bandaríkjunum um þessar mundir, að mati Óttars. Saga á dag, Pixar og Witherspoon Tilfinningaverur Úr Inside Out. Óttar Norðfjörð utan ör-örfáa, að lifa af því að skapa í fullu starfi frumlega og metnaðar- fulla list án stuðnings. Og framúr- skarandi list skapar enginn í auka- vinnu, eftir að mestri orkunni hefur verið varið í annað. Því hefur verið mótað hér vel lukkað og mikilvægt stuðningskerfi hins opinbera, með starfslaunum til listamanna og öðr- um sjóðum sem styrkja fram- kvæmdir í grasrótinni, sköpun verk- anna sjálfra; framkvæmdina sem allir hinir í keðjunni lifa á. Þessi fjögur prósent. Ein króna verður að níu Listamenn hafa fylgst með „að- gerðapökkunum“ sem ríkisstjórnin hefur kynnt og eðlilega hefur hluti þeirra snúist um þann hluta atvinnu- lífsins sem menningin fellur undir. Nú síðast var greint frá því að veita ætti 250 milljónir í aukin lista- mannalaun. Fyrir hafði 1.600 mán- aðarlaunum verið úthlutað, kr. 407 þúsund á mánuði (í verktaka- greiðslu). Það bætast því við um 600 mánuðir til úthlutunar. Þess má geta að eftir bankahrunið 2008 var sett í lög að starfslaunamánuðum lista- manna myndi fjölga á næstu árum, og sætti vitaskuld ekki mótmælum enda höfðu þingmenn eflaust í hönd- um nákvæmar upplýsingar um þau margfeldisáhrif sem stuðningur við listir og menningu hefur. Í ítarlegu samtali við Katrínu Jak- obsdóttur forsætisráðherra hér í blaðinu á miðvikudag var hún spurð út í þá fullyrðingu sína við kynningu aðgerðanna að „listamannalaun skil- uðu sér með margföldunaráhrifum út í hagkerfið“. Hvort þau áhrif væru meiri en í tilfelli annarra starfa samfélagsins? „Nei, en stundum er talað um að listir leiði ekki af sér neina verð- mætasköpun og að þetta séu bara dúsur frá hinu opinbera. Það er ekki rétt, og það var það sem ég vildi leggja áherslu á í kynningunni,“ svaraði Katrín. „Þessi aðgerð er í sama anda og árið 2009 þegar við fjölguðum fólki á listamannalaunum. Þessi stuðningur hefur skipt veru- legu máli því fjárfesting í skapandi greinum hefur stækkað þennan geira og haft mikil afleidd áhrif, t.d. í tengslum við ferðaþjónustuna. Menningin skiptir máli rétt eins og náttúran okkar. Listamannalaunin eru ekki dýr en þau hafa margfeldis- áhrif eins og mörg önnur störf og þetta er í raun hluti af stuðningi við þekkingargeirann.“ Óhætt er að taka undir þetta – nema ég vil leiðrétta forsætisráð- herra hvað eitt varðar og byggi þá á rannsókn menningarráðuneytis Evrópusambandsins sem gerð var árið 2013, og þar á meðal á Norður- löndunum. Þá var skorið niður í öllu styrkjakerfi sambandsins nema til menningar og gefið í þar, aukið um heil níu prósent, eins og ég fékk að kynnast þegar átakið var kynnt í Frakklandi um árið. Og þar kom fram, svart á hvítu, að margfeldis- áhrif hverrar krónu sem varið er til menningar eru meiri en í öðrum geirum. Hver evra sem sett var í menningargeirann varð að rúmum níu. Næsta svið samfélagsins var há- tækni- og símageirinn. Þar varð hver evra að rúmlega fimm. Minna annars staðar. En auðvitað þurfa all- ir á stuðningi að halda. Morgunblaðið/Eggert Menningarneysla Listamennirnir eru í senn höfundar og forverðir sjálfsmyndar þjóðarinnar. Um margföldunaráhrif »… margfeldisáhrifhverrar krónu sem varið er til menningar eru meiri en í öðrum geirum. AF LISTUM Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Samkomubannið hefur komið íveg fyrir að fólk í ýmsumgreinum samfélagsins geti sinnt störfum sínum, eða fær enga viðskiptavini eins og raunin er í ferðaþjónustunni. Meðal þeirra sem hafa áhyggjur af afkomunni eru fjöl- margir listamenn. Nánast hver sem listgrein þeirra er, þá hefur harðnað á dalnum af völdum veiruskrattans. Enda flestir einyrkjar sem vinna gjarnan hlutastörf með listsköpun sinni til að ná endum saman. Tónlistarfólk getur nánast hvergi komið fram – margir skemmta okk- ur samt á netinu og það oft án þess að fá greitt fyrir; sýningar á mynd- list fyrir fjöldann hafa lagst af; eng- inn kemst á dans- eða leiksýningar. Og áfram má telja. Listamenn hafa horft til við- bragða stjórnvalda í nágrannalönd- um og bent til að mynda á sem mögulega fyrirmynd sérstakar launagreiðslur þýskra stjórnvalda eftir að samfélagið lamaðist. Við þurfum ekki að velkjast í vafa um mikilvægi menningargeirans í efnahagslífinu; heil fjögur prósent samkvæmt ítarlegum rannsóknum Ágústs Einarssonar um hagræn áhrif menningarinnar. Það vinna fleiri í menningunni en í landbúnaði og stóriðjunni samanlagt. Og þá er talað um listamennina og öll afleiddu störfin: í bókasöfnum, menningar- húsum, forlögum, við kvikmynda- gerð, við innrömmun, hvers kyns hönnun úr verkum, listinn er langur. Á hátíðisstundum er oft talað með upphöfnum hætti um mikilvægi menningar og lista en það er óþarfi að klæða þá staðreynd í spariföt: án sköpunarkrafts öflugra og skapandi listamanna, sem eru svo sannarlega höfundar og forverðir sjálfsmyndar þjóðarinnar, hvers virði væri lífið hér þá? Svari hver fyrir sig, og hafi í huga hvert þeir hafi leitað í afþrey- ingu, huggun og skjól á síðustu vik- um. Væntanlega í tónlist, lestur, kvikmyndir … Allt hugverk lista- manna. Og þar sem við búum í ör- samfélagi með allt of litlum markaði er engin leið fyrir listamenn, fyrir Bókamerkið er heiti nýs bók- menntaþáttar í beinu streymi frá Bókasafni Garðabæjar. Í fyrsta þætti, fyrir viku, var fjallað um ný- leg íslensk skáldverk. Annar þáttur verður sendur út í dag, föstudag, kl. 13 á facebooksíðu bókasafnsins. Í þáttunum munu, eins og segir í kynningu, fróðir og skemmtilegir viðmælendur ræða sín á milli um bækur og ánægjuna við að lesa góð- ar bækur en umræðuefni dagsins er ljóðabækur. Saman koma Rebekka Sif bókmenntafræðingur og gagn- rýnandi hjá Lestrarklefanum, Ás- dís Ingólfsdóttir ljóðskáld og Ásdís Helga bókmenntafræðingur og ræða um íslenskar ljóðabækur og hughrifin við að lesa góð ljóð. Þætt- irnir eru samvinnuverkefni Bóka- safns Garðabæjar og Lestrarklef- ans en þættirnir eru ætlaðir til að stytta stundir í samkomubanni. Ræða um ljóðabækur í Bókamerkinu Morgunblaðið/Kristinn Bókmenntir Að þessu sinni verður fjallað um ljóðaútgáfuna hér á landi í streyminu. Það að slaka eigi á hörðum sóttkvíarreglum á Ítalíu þýðir að hægt verður að halda kvik- myndahátíðina í Feneyjum í sept- ember, segir Roberto Cicutto, forseti stofnunar sem stendur fyrir ýmsum fjölsótt- um menningarhátíðum í borginni, svo sem kvikmyndahátíðinni og tvíæringunum í myndlist og arki- tektúr. Cicutto ræddi við tíðinda- mann Ansa-fréttaveitunnar og kom fram eindreginn vilji hans til að halda hátíðina en ferðamenn eru al- veg horfnir frá Feneyjum vegna kórónuveirunnar. Hann sagði að mögulega yrði hluti kvikmyndanna sýndur á net- inu, samhliða sýningum í kvik- myndahúsum. Stungið hefur verið upp á mögu- legu samstarfi hátíðanna í Fen- eyjum og í Cannes, sem venjulega er í maí en hefur verið blásin af. Cicutto tekur fálega í þá hugmynd. Vill halda kvikmyndahátíð í Feneyjum Frá Feneyjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.