Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Page 8
Vanræksla á undirbúningi starfsmanna undir verkefnin á Skjóli lýkur ekki þar. Heim- ildarmaður segir að heimilis- menn káfi reglulega á sér og öðru kvenkyns starfsfólki og að engin undirbúi starfsfólk undir þess konar áreiti. „Eng- inn lætur þig vita eða býr þig undir að það sé gripið í kyn- færi þín eða rass og káfað á þér. Viðbrögð yfirmann eru „svona er hann bara,“ eins og það sé ekkert eðlilegra en að það sé káfað á þér í vinnunni. Það hafa allir lenti í því hér enda nánast daglegur við- burðir.“ Lyfjagjafir í ólestri og alvarleg slys óútskýrð Einn heimildarmaður DV segist hafa þá upplifun af starfseminni að fólkinu sé ekki veitt geðmat eða neins- konar lækning við sínum vandamálum. „Það er bara nóg af ró- andi. Fólkinu er ekkert sinnt af læknum. H i n g a ð k e m u r læknir einu sinni í viku og þá er bara skellt í skammt af róandi.“ Enn fremur segja allir þeir sem DV hefur rætt við, að oft komi fyrir að ómenntað starfsfólk í um- önnun sé falið að gefa heim- ilismönnum lyf. Þetta stangist á við verklagsreglur Skjóls að sögn heimildarmanns. Um er að ræða sterk og lyfseðils- skyld róandi lyf. Að sögn við- mælandi á lyfjagjöf að vera sinnt af hjúkrunarfræðingi en aðeins einn hjúkrunarfræð- ingur sé á vakt og verkefna- staðan yfirleitt slík að ekki nokkur leið sé fyrir hjúkrunar- fræðinginn að komast yfir það allt saman, að sögn heimildar- mannsins. Komið hefur fyrir að gefin hafa verið vitlaus lyf og að lyfjagjöf hafi gleymst. „Það hefur gerst frekar oft. Sem betur fer hefur ekkert alvar- legt gerst og sjúklingar aldrei liðið alvarlega fyrir það.“ Slík atvik eru staðfest í atvikaskrá Skjóls. „Þetta starf krefst þolinmæði, og þolinmæðin er algjör- lega þrotin hjá flest- um,“ segir heimildar- maðurinn. Ó þ o l i n - m æ ð i starfsfólks sé fyrir löngu farin að bit n a á heimilis- mönnum. Seg- ist hún hafa orðið var við aukna hörku hjá sumum starfs- mönnum. „Lamaðir einstaklingar eru rifnir á fætur. Tvisvar hefur það komið fyrir að kona hefur lærbrotnað og enginn veit hvað gerðist.“ Í annað skipti var um konu í hjólastól að ræða og því ljóst að um óútskýrðan atburð er að ræða. „Þetta var ekk- ert skoðað neitt betur,“ segir heimildarmaðurinn. Lögregla var ekki kölluð til. Í skriflegu svari stjórnenda Skjóls varðandi lærbrot skjól- stæðinga sinna segir: „Eins og annars staðar í samfélaginu geta slys orðið á hjúkrunar- heimilum. Þau geta borið að með ýmsum hætti, en ástæða slysanna er ávallt greind. Full- yrðing um óþekkta ástæðu á því ekki við rök að styðjast.“ Starfsfólk Skjóls sem DV ræddi við hefur, sem fyrr segir, ekki fengið upplýsingar um ástæður þessa slysa. Fundnir haldir en ekkert breytist Heimildarmenn vanda yfir- mönnum sínum ekki kveðj- urnar. „Starfsfólki er aldrei hrósað eða hampað. Vinnu- andinn sem eitt sinn var góður er núna kominn í algjört rugl. Hér hefur alvarlegt einelti verið liðið og aldrei gripið í taumana á neinu. Nú er svo komið að allir eru þreyttari, búnir á því og fólk er að sinna v i n nu n n i sinni verr en áðu r og færri h e n d u r vinna sömu verkefnin.“ K v a r t a ð hefur verið t i l yfir - s t j ó r n a r vegna ofbeldisins. Fundir hafa verið haldnir, en ekkert gerst. „Starfsfólk upplifir sig yfir- gefið.“ Heimildarmaðurinn segir yf- irstjórnina hafa mestan áhuga á því að allt líti út fyrir að vera í lagi og segir yfirborðs- kennd viðbrögð yfirstjórnar- innar koma niður á gæðum þjónustunnar. „Þá sjaldan sem við hittum yfirmann, þá eru þeir komnir hingað til þess að öskra á okkur og skamma vegna þess að hlutirnir líta ekki út fyrir að vera í lagi, skiptir þá engu hvort við séum að sinna sjúklingunum betur. Hér á allt að líta út eins og það sé allt í himnalagi.“ Þetta „leikrit“ yfirstjórnarinnar er sagt vera til þess að gefa að- standendum sjúklinganna góða tilfinningu þegar þeir koma í heimsókn. Aðstandendum er jafnframt ekki sagt frá of- beldinu sem þeir beita starfs- fólk deildarinnar. „Þau [að- standendurnir] gera sér engan veginn grein fyrir því hvað er í gangi, hversu mikið ofbeldi starfsfólkið er beitt. Svo ef við náum ekki að klára að sinna einstaklingi vegna ofbeldisins þá er það vanræksla af okkar hálfu. Fólk hér (aðstandendur) er í afneitun eða þau vilja ekki trúa manni.“ Mannekla var mikil og versnaði svo Mannekla hefur lengi verið vandamál hjá Skjóli. Þolmörk- um hafi verið náð fyrir löngu síðan og staðan bara versnað eftir það. „Morgunvaktin er ein með um sex manns. Sú vakt klæðir heimilismenn í föt, burstar tennur fólksins, fer með það á klósettið og skiptir á bleyjum eftir þörfum. Ef það gerist að kona fer að gráta eða einhver þarfnast sérstakrar aðhlynningar þá þarf bara að skauta fram hjá þeim einstakl- ingi. Um leið og einstaklingur er kominn á fætur þarf bara að hlaupa í næsta einstakling.“ Skjól langt undir viðmiðum Embættis landlæknis Rekstur Skjóls er háður eftir- liti Embættis landlæknis sem tekur starfsemina reglulega út. Síðasta stóra úttekt á starfsemi Skjóls er dagsett 2012, eða fyr- ir átta árum. Hlutaúttekt var gerð í fyrra. Þar kemur fram að „áhersla sé lögð á að skrá öll atvik.“ Samkvæmt skýrslunni eru í atvikaskrá 2018 13 „lyfja- atvik“ og átta ofbeldisatvik. Í kröfulýsingu velferðar- ráðuneytis fyrir hjúkrunar- rými og dvalarrými er æski- legur fjöldi umönnunarstunda á hvern íbúa sagður vera 5,34 klukkustundir á sólarhring og lágmarksfjöldi 4,65. Sam- kvæmt hlutaúttekt Embættis landlæknis frá því í fyrra stendur fjöldi umönnunar- stunda á hvern íbúa á Skjóli í 3,6. Það er aðeins 67% af því sem talið er æskilegt. Sömu sögu er að segja af mönnunarstöðu Skjóls. Í kröfulýsingu velferðarráðu- neytis er það sagt æskilegt að hlutfall hjúkrunarfræðinga af mannafla sé 27%. Á Skjóli er það aðeins 17%. Enn fremur er það sagt æskilegt að hlut- fall faglærðra í umönnun sé 78% og lágmarkshlutfall 57%. Á Skjóli er það aðeins 41%. Skýrsluhöfundar Embættis landlæknis 2019 tóku viðtöl við starfsfólk og virðast viðmæl- endur Embættis landlæknis að flestu leyti ánægðir með starf sitt og starfsumhverfi. Þó komu þar fram áhyggjur af undirmönnun og tungu- málaerfiðleikum á vinnu- staðnum. Í skýrslunni segir: „Almennt kom fram að starfs- fólki fannst að þjónustunni við íbúa hefði hrakað síðustu árin vegna mönnunarvanda.“ Í við- tölum við íbúa sagði: „það [er] svo mikið að gera í umönnun á morgnana að fólk [fær] stund- um ekki hjálp til að komast fram úr fyrr en um kl. 11 og þá er maður búinn að vera ansi lengi í rúminu sem ekki er gott fyrir skrokkinn.“ Stjórnendur Skjóls vísa ásökunum á bug DV leitaði svara hjá Sigurði Rúnari Sigurjónssyni, for- stjóra Skjóls, sem sagðist ekki geta svarað fyrir ásakanirnar og vísaði á Kristínu Högna- dóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunarsviðs. Í skriflegu svari Kristínar Högnadóttur, framkvæmda- stjóra hjúkrunarsviðs, segir að stjórnendum Skjóls komi væntanleg umfjöllun DV og ásakanir sem koma þar fram mjög á óvart. Landlæknisemb- ættið hafi nýlega gert úttekt á starfseminni og komið með „fáeinar“ athugasemdir sem nú er unnið úr. Þó mannekla sé til staðar, að sögn Kristínar, er það sökum almenns skorts á starfsfólki í umönnunarstétt á Íslandi en hefur aldrei leitt til hættulegra aðstæðna. Kristín segir að nýliðum sé veitt „nýliðafræðsla“ tvisvar á ári þar sem farið er yfir tækni við líkamsbeitingu við um- önnun, og að á fræðslufundum sé farið yfir hvernig vinna skal með „órólega einstaklinga með hegðunarvanda.“ Kristín segir það ekki gerast að starfs- maður sé þvingaður til að búa um lík treysti viðkomandi sér ekki til þess og segir það á ábyrgð hjúkrunarfræðings. Það sama eigi við um lyfjagjöf. Hún sé á ábyrgð hjúkrunar- fræðings á hverri deild fyrir sig. Kristín neitar því þó ekki að ómenntað umönnunarfólk sinni henni. „Varðandi áfalla- hjálp fyrir starfsmanninn, þá er hjúkrunarfræðingur alltaf til staðar á hverri vakt,“ sagði Kristín. Þess má geta að hjúkr- unarfræðingurinn sem Kristín vísar til er jafnframt yfir- maður umönnunarstarfsfólks. Rauði krossinn og fleiri aðilar hafa ítrekað bent á að best sé að áfallahjálp sé veitt af fag- fólki í því, en ekki af kollegum einstaklings sem lent hefur í áfalli eða yfirmönnum. Sam- bærilegt „kerfi“ er til dæmis til staðar hjá slökkviliðinu þar sem slökkviliðsmenn veita sjálfum sér og vinum sínum áfallahjálp, og gagnrýndu slökkviliðsmenn það kerfi í viðtali við DV í kjölfar brun- ans á Bræðraborgarstíg. n það [er] svo mikið að gera í umönnun á morgnana að fólk [fær] stundum ekki hjálp til að komast fram úr fyrr en um kl. 11 og þá er maður búinn að vera ansi lengi í rúminu sem ekki er gott fyrir skrokkinn. 8 FRÉTTIR 28. ÁGÚST 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.