Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Side 10
A rnar Hauksson er einn vinsælasti kvensjúk-dómalæknir landsins. Almennt kvíða konur oft fyrir heimsóknum til kven- sjúkdómalæknis þar sem þær afhjúpa sína leyndustu líkamshluta en Arnar leggur ekki síður áherslu á að sinna konum sálrænt. „Ég á auðvelt með að lesa fólk. Það gerir að verkum að þegar ég hitti fólk veit ég oft hvað er að áður en það segir mér það. Ég get séð bak við tjöldin, ég veit ekki hvernig en þetta er líklega eitthvað sem lærist í þessu fagi,“ segir hann. Mikla athygli vakti þegar Arnar lék í raun sjálfan sig í þáttunum Pabbahelgar á RÚV síðasta vetur þegar persóna Nönnu Kristínar Magnús- dóttur fór í skoðun hjá kven- sjúkdómalækni. Í sumar bjó síðan ung kona til óformlega könnun í Facebook-hópnum Mæðra tips og trónaði Arnar á toppnum sem vinsælasti kvensjúkdómalæknir lands- ins. Þrátt fyrir að þetta hafi verið algjörlega óvísindaleg könnun hefur Arnar skorið sig úr meðal íslenskra kven- sjúkdómalækna og þykir ná til skjólstæðinga sinna á ein- stakan hátt. Þetta birtist ekki síst í því að þegar blaðamaður hafði mælt sér mót við Arnar, þar sem hann starfar á Lækna- stöðinni í Austurveri, rekumst við á samstarfskonu hans á ganginum sem byrjar að ausa hann lofi: „Þú ert nú alveg yndislegur, Arnar,“ segir sam- starfskonan og Arnar er eitt spurningarmerki. Hún heldur áfram: „Átján ára dóttir mín var hjá þér í síðustu viku og hún var svo ánægð. Hún sagð- ist hafa lært svo mikið af því að hitta þig og þú hefðir verið með svo miklar praktískar upplýsingar fyrir fótbolta- stelpu eins og hana, varðandi blæðingar og pilluna og allt saman.“ Allt fullt af fílum Arnar segist almennt forðast viðtöl og vilji frekar leyfa öðr- um að skína. „Mér finnst gott að koma með hugmyndir og leyfa öðrum að vinna úr þeim. Ég er lítið fyrir að flagga sjálfum mér,“ segir hann. Enn er óljóst af hverju Arnar sam- þykkti einmitt þetta viðtal en það skal upplýst að blaðamað- ur hefur farið til Arnars sem skjólstæðingur. Þá var hann með aðstöðu í Kringlunni þar sem skrifstofan var yfirfull eftirmynda af fílum en öllu færri fílar eru á skrifstofunni í Austurveri. „Stofan hér er minni og auð- vitað þarf að dusta rykið af fíl- unum reglulega. Þetta byrjaði með því að ég hafði gert lítilli stúlku greiða. Hún hafði farið nokkrum sinnum inn á spítala og enginn vissi hvað amaði að henni. Mér tókst hins vegar að komast að því hvað var að og ráðlagði henni í fram- haldinu. Um hálfu ári seinna hafði hún samband. Þá var hún í Portúgal og sagði við mig: „Þú bjargaðir lífi mínu! Mig langar að endurgjalda þér það.“ Ég sagði að hún væri auðvitað búin að endurgjalda mér þetta með því að borga fyrir viðtölin, en ef hún fyndi fílana sem Hannibal kom með yfir fjöllin þá mætti hún gefa mér einn,“ segir Arnar og vís- ar þar til hershöfðingjans frá Karþagó sem fór með baráttu- glaða fíla yfir Alpana. „Hún þekkti ekki söguna en gaf mér lítinn keramikfíl sem stóð allt- af á borðinu mínu. Eftir það byrjuðu fílarnir að streyma inn þegar fólk vildi þakka mér fyrir eitthvað „extra“. Ég á nú mjög mikið af fílum og er löngu hættur að þiggja þá.“ Arnar lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands árið 1975. Hann stundaði framhalds- nám í kvensjúkdómum og fæðingahjálp, fyrst við Land- spítalann en frá 1979 í Lundi í Svíþjóð þaðan sem hann út- skrifaðist sem sérfræðingur árið 1983. Í doktorsritgerð sinni fjallaði Arnar um þrjár nýjungar í rannsóknum á tíða- verkjum. Hann hefur valist til fjölda trúnaðarstarfa, sat til að mynda í stjórn norrænna kvensjúkdómalækna í tvo ára- tugi og í forsætisnefnd heims- þings kvensjúkdómalækna. Hann á fimm börn á aldr- inum 33–50 ára, sjö barnabörn og eitt á leiðinni. „Þetta er ekki búið enn þá,“ segir hann. Stefndi á hagfræðinám Því fer fjarri að Arnar hafi alltaf ætlað að verða kven- sjúkdómalæknir. „Ég ætlaði alltaf að fara í hagfræði. Í stúdentsferðalaginu okkar í Verzlunarskóla Íslands á Spáni tóku tveir yndislegir kennarar okkur tali eitt kvöld- ið og spurðu hvað við ætluðum að læra. Þeir spurðu fyrst tvo af dúxunum okkar og þeir ætl- uðu báðir í læknisfræði. Kenn- ararnir sögðu: „Það er flott. Þið eruð svo duglegir.“ Þegar þeir síðan spurðu mig kom smá stríðnispúki í mig og ég sagði: „Ég ætla líka í læknis- Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is ÉG Á AUÐVELT MEÐ AÐ LESA FÓLK Arnar Hauksson kvensjúkdómalæknir var brautryðjandi þegar kom að móttöku þolenda kynferðisofbeldis og lyfti grettistaki í málum trans fólks hér á landi. Arnari þykir vænt um þá viðurkenningu sem felst í að mæður vísi dætrum til hans. Ég bauð þeim til að mynda að koma til mín með útigangskonur sem áttu engan pening. Þegar stúlkur og ungar konur koma í fyrsta skipti til Arnars kennir hann þeim allt um blæðingar, allt um kynsjúkdóma, allt um stráka og allt um að þora að segja nei. MYND/VALLI 10 FRÉTTIR 28. ÁGÚST 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.