Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Side 22
SAKAMÁL
Í janúar árið 2016 kynntust þau Angela Connell og Ian Diaz, aðstoðarfógeti hjá
alríkislögreglu Bandaríkj-
anna. Viku seinna voru þau
gift og stuttu seinna sagðist
hún vera ólétt. Næst tók við
sambúð í blokkaríbúð Ians
í borginni Anaheim í Kali-
forníu-fylki.
Sjúklegur eltihrellir
Allt virtist vera í blóma
þangað til Angela, nú kennd
við nafnið Diaz, byrjaði að
fá óhugnanlegar hótanir í
gegnum vefsíðuna Craigslist.
Hún gerði lögreglu viðvart
um að eltihrellar umkringdu
hús hennar og segðust ætla
að nauðga henni, þá fékk
hún sendar myndir af ógeð-
felldum hlutum eins og líkum
af börnum. Lögreglan hélt
að einn eltihrellirinn væri
búinn að upplýsa marga aðra
um heimilisfang Angelu og
gönguferðir hennar.
Í júnímánuði sama ár
hringdi hún á lögregluna og
sagði að ókunnugur maður
hefði reynt að nauðga sér.
Lögregla kom í kjölfarið að
Angelu. Föt hennar voru rifin
og hún var með rautt mar á
hálsinum. Talið var að Mic-
helle Hadley, fyrrverandi
kærasta Ians Diaz, bæri ein-
hverja sök í málinu en þau
höfðu verið par á árunum
2013 til 2014.
Málið virtist skothelt
Angela hafði beðið um nálg-
unarbann af hendi Michelle
vegna ógnandi tölvupósta
sem virtust koma frá henni.
Ekki nóg með það heldur var
einn helsti netaðgangurinn
sem hrellti Angelu á Craigs-
list skráður á nafnið „Lilith
Hadley“. Notandi þess að-
gangs hvatti til þess að An-
gelu yrði nauðgað. Gert var
ráð fyrir að skilaboðin kæmu
frá Michelle, en hún var
handtekin samdægurs. Lög-
reglan taldi sig hafa skothelt
mál í höndunum.
Michelle eyddi heilum
þremur mánuðum í fangelsi,
á meðan lögreglan rannsak-
aði málið. Aðstæðurnar voru
ekki góðar í fangelsinu og er
því haldið fram að kvenfang-
ar sakaðir um kynlífsglæpi
fái ekki góða meðferð.
Nálgunarbann á
manneskju sem þú hefur
aldrei hitt
Handtakan kom Michelle
mikið á óvart. Hún og Ian,
fyrrverandi unnusti hennar,
höfðu átt í erjum vegna
blokkaríbúðarinnar í Ana-
heim, sem þau deildu er þau
voru í sambúð. Það mál hafði
meira að segja endað fyrir
dómi. Að því undanskildu
hafði hún átt í litlu sem engu
sambandi við Ian eftir að þau
hættu saman. Hadley hefur
greint frá því að hún hafi
fyrst heyrt af Angelu í pósti
er varðaði íbúðarmálið, sem
hún hafi talið fullkomlega
eðlilegt. Annað skiptið hafi
hins vegar verið sérstakt, þá
hafi Michelle fengið bréf er
varðaði nálgunarbannið sem
Angela vildi fá. Michelle vissi
ekki hvers vegna Angela vildi
nálgunarbann, enda hafði
hún aldrei hitt eða séð kon-
una með eigin augum.
Þá hafði Michelle einnig
tekið eftir óvenjulegum at-
burðum. Hún fékk tölvupósta
um netaðganga stofnaða í
sínu nafni og tölvupósturinn
hennar virtist vera notaður
án hennar vitneskju.
Ekki allt sem sýnist
Lögreglan komst að áhuga-
verðri niðurstöðu við rann-
sókn málsins. Svo virtist
vera að hótanirnar og skila-
boðin sem virtust koma frá
Michelle Hadley, væru í raun
ekki frá henni. Við nánari
athugun kom í ljós að skila-
boðin og póstarnir höfðu
komið frá IP-tölu íbúðar
Diaz-hjónanna. Við þessar
upplýsingar breyttist málið
til muna.
Angela Diaz hlaut fimm ára
fangelsisdóm fyrir að ljúga
upp á Michelle Hadley, fyrr-
verandi unnustu eiginmanns
síns. Hún á að hafa þóst vera
Michelle og sent sjálfri sér
hótanir og önnur ógeðfelld
skilaboð. Málinu var fyrir
dómi lýst sem „nauðgunar-
fantasíu“. Dómur Angelu
varðaði einnig rán og ávís-
anafölsun. Í dag er hún talin
vera sjúklegur lygari, en hún
á að hafa logið um fleiri hluti
eins og fjölskyldu sína, vinnu
og áðurnefnda óléttu, sem
ekki var raunveruleg.
Ætlaði að græða á lygum
Þá hafa einnig fundist vís-
bendingar um að Angela
hafi ætlað sér að græða á
ótrúlegri sögu sinni. Í Word-
skjali sem notað var sem
sönnunargagn fyrir dómi,
má finna hugmynd Angelu
að heimildaþætti sem hún
virðist hafa ætlað sér að selja
til sjónvarpsstöðvar. Hún
hafði gefið þættinum nafnið
„Myrkrið að innan: Saga An-
gelu Diaz“ og/eða „Dætur
Guðs: Saga Angelu Diaz“.
Þráði að hún myndi sofa
hjá öðrum karlmanni
Michelle Hadley er þó ekki
alsátt við niðurstöðu máls-
ins. Hún telur að Ian Diaz
eigi stærri þátt í málinu. Það
hafi verið hann sem ákvað að
koma sök á sig.
Í réttarsal fjallaði Michelle
um samband þeirra, sem
byggði á miklu valdaójafn-
vægi. Þá lýsti hún sérstak-
lega löngun, eða blæti hans,
sem gekk út á að hún myndi
sofa hjá öðrum karlmanni.
Hann hafi ítrekað beðið
hana um að gera það, en hún
aldrei viljað. Einu sinni á
valentínusardegi hafi hún þó
„samþykkt“ það. Þá hafi hún
sofið hjá ókunnugum manni
á meðan Ian tók athæfið upp.
Daginn eftir hafi hún séð
gríðarlega eftir því og grát-
beðið hann um að eyða mynd-
bandinu. Hann hafi neitað
því, þar sem þetta hafi verið
hennar ákvörðun: „Það mið-
aði enginn byssu á þig,“ á
hann að hafa sagt.
Telur lögregluna
hafa verndað hann
Michelle hefur opinberlega
velt því upp að staða Ians,
sem er aðstoðarfógeti hjá
alríkislögreglunni, hafi sett
strik í reikning rannsóknar-
innar. Angela hlaut dóm fyrir
gjörðir sínar, en Ian sitji eft-
ir, alveg ósnertanlegur, þar
sem lögreglan verndi hann.
Michelle hefur einnig lýst
áhrifunum sem þetta mál
hafi haft á sig. Bæði á hún
erfitt með að finna vinnu og
fara á stefnumót vegna þess
að hún er alltaf gúggluð og
þá lesi fólk um mál hennar
og hafi áhyggjur. Mannorð
hennar sé því svert til fram-
búðar, þrátt fyrir að hún sé
fórnarlambið í málinu. n
Hjónaband Angelu og Ian
Diaz virtist blómstra þar
til Angela greindi frá því
að eltihrellar sætu um
hana. Spjótin beindust
fljótt að fyrverandi kær-
ustu Ians sem við rann-
sókn málsins sagði að Ian
hefði dreymt um að hún
svæfi hjá öðrum karl-
manni.
Snargalnir eltihrellar eltu hana á
röndum – uns hið rétta kom í ljós
Angela Diaz gerði lögreglu viðvart um að eltihrellar umkringdu hús hennar og
segðust ætla að nauðga henni. Ekki leið á löngu þar til fyrrverandi kærasta
eiginmanns Angelu var handtekin og var vistuð í fangelsi í þrjá mánuði.
Angela Diaz hafði samband við lögreglu vegna eltihrella sem
gerðu henni lífið leitt. MYND/TV2.NO
Jón Þór
Stefánsson
jonthor@dv.is
Angela
Connell og
Ian Diaz höfðu
ekki verið gift
lengi þegar
Angela, nú
kennd við
nafnið Diaz,
byrjaði að fá
óhugnanlegar
hótanir í
gegnum
vefsíðuna
Craigslist.
22 FÓKUS 28. ÁGÚST 2020 DV