Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Blaðsíða 22
SAKAMÁL Í janúar árið 2016 kynntust þau Angela Connell og Ian Diaz, aðstoðarfógeti hjá alríkislögreglu Bandaríkj- anna. Viku seinna voru þau gift og stuttu seinna sagðist hún vera ólétt. Næst tók við sambúð í blokkaríbúð Ians í borginni Anaheim í Kali- forníu-fylki. Sjúklegur eltihrellir Allt virtist vera í blóma þangað til Angela, nú kennd við nafnið Diaz, byrjaði að fá óhugnanlegar hótanir í gegnum vefsíðuna Craigslist. Hún gerði lögreglu viðvart um að eltihrellar umkringdu hús hennar og segðust ætla að nauðga henni, þá fékk hún sendar myndir af ógeð- felldum hlutum eins og líkum af börnum. Lögreglan hélt að einn eltihrellirinn væri búinn að upplýsa marga aðra um heimilisfang Angelu og gönguferðir hennar. Í júnímánuði sama ár hringdi hún á lögregluna og sagði að ókunnugur maður hefði reynt að nauðga sér. Lögregla kom í kjölfarið að Angelu. Föt hennar voru rifin og hún var með rautt mar á hálsinum. Talið var að Mic- helle Hadley, fyrrverandi kærasta Ians Diaz, bæri ein- hverja sök í málinu en þau höfðu verið par á árunum 2013 til 2014. Málið virtist skothelt Angela hafði beðið um nálg- unarbann af hendi Michelle vegna ógnandi tölvupósta sem virtust koma frá henni. Ekki nóg með það heldur var einn helsti netaðgangurinn sem hrellti Angelu á Craigs- list skráður á nafnið „Lilith Hadley“. Notandi þess að- gangs hvatti til þess að An- gelu yrði nauðgað. Gert var ráð fyrir að skilaboðin kæmu frá Michelle, en hún var handtekin samdægurs. Lög- reglan taldi sig hafa skothelt mál í höndunum. Michelle eyddi heilum þremur mánuðum í fangelsi, á meðan lögreglan rannsak- aði málið. Aðstæðurnar voru ekki góðar í fangelsinu og er því haldið fram að kvenfang- ar sakaðir um kynlífsglæpi fái ekki góða meðferð. Nálgunarbann á manneskju sem þú hefur aldrei hitt Handtakan kom Michelle mikið á óvart. Hún og Ian, fyrrverandi unnusti hennar, höfðu átt í erjum vegna blokkaríbúðarinnar í Ana- heim, sem þau deildu er þau voru í sambúð. Það mál hafði meira að segja endað fyrir dómi. Að því undanskildu hafði hún átt í litlu sem engu sambandi við Ian eftir að þau hættu saman. Hadley hefur greint frá því að hún hafi fyrst heyrt af Angelu í pósti er varðaði íbúðarmálið, sem hún hafi talið fullkomlega eðlilegt. Annað skiptið hafi hins vegar verið sérstakt, þá hafi Michelle fengið bréf er varðaði nálgunarbannið sem Angela vildi fá. Michelle vissi ekki hvers vegna Angela vildi nálgunarbann, enda hafði hún aldrei hitt eða séð kon- una með eigin augum. Þá hafði Michelle einnig tekið eftir óvenjulegum at- burðum. Hún fékk tölvupósta um netaðganga stofnaða í sínu nafni og tölvupósturinn hennar virtist vera notaður án hennar vitneskju. Ekki allt sem sýnist Lögreglan komst að áhuga- verðri niðurstöðu við rann- sókn málsins. Svo virtist vera að hótanirnar og skila- boðin sem virtust koma frá Michelle Hadley, væru í raun ekki frá henni. Við nánari athugun kom í ljós að skila- boðin og póstarnir höfðu komið frá IP-tölu íbúðar Diaz-hjónanna. Við þessar upplýsingar breyttist málið til muna. Angela Diaz hlaut fimm ára fangelsisdóm fyrir að ljúga upp á Michelle Hadley, fyrr- verandi unnustu eiginmanns síns. Hún á að hafa þóst vera Michelle og sent sjálfri sér hótanir og önnur ógeðfelld skilaboð. Málinu var fyrir dómi lýst sem „nauðgunar- fantasíu“. Dómur Angelu varðaði einnig rán og ávís- anafölsun. Í dag er hún talin vera sjúklegur lygari, en hún á að hafa logið um fleiri hluti eins og fjölskyldu sína, vinnu og áðurnefnda óléttu, sem ekki var raunveruleg. Ætlaði að græða á lygum Þá hafa einnig fundist vís- bendingar um að Angela hafi ætlað sér að græða á ótrúlegri sögu sinni. Í Word- skjali sem notað var sem sönnunargagn fyrir dómi, má finna hugmynd Angelu að heimildaþætti sem hún virðist hafa ætlað sér að selja til sjónvarpsstöðvar. Hún hafði gefið þættinum nafnið „Myrkrið að innan: Saga An- gelu Diaz“ og/eða „Dætur Guðs: Saga Angelu Diaz“. Þráði að hún myndi sofa hjá öðrum karlmanni Michelle Hadley er þó ekki alsátt við niðurstöðu máls- ins. Hún telur að Ian Diaz eigi stærri þátt í málinu. Það hafi verið hann sem ákvað að koma sök á sig. Í réttarsal fjallaði Michelle um samband þeirra, sem byggði á miklu valdaójafn- vægi. Þá lýsti hún sérstak- lega löngun, eða blæti hans, sem gekk út á að hún myndi sofa hjá öðrum karlmanni. Hann hafi ítrekað beðið hana um að gera það, en hún aldrei viljað. Einu sinni á valentínusardegi hafi hún þó „samþykkt“ það. Þá hafi hún sofið hjá ókunnugum manni á meðan Ian tók athæfið upp. Daginn eftir hafi hún séð gríðarlega eftir því og grát- beðið hann um að eyða mynd- bandinu. Hann hafi neitað því, þar sem þetta hafi verið hennar ákvörðun: „Það mið- aði enginn byssu á þig,“ á hann að hafa sagt. Telur lögregluna hafa verndað hann Michelle hefur opinberlega velt því upp að staða Ians, sem er aðstoðarfógeti hjá alríkislögreglunni, hafi sett strik í reikning rannsóknar- innar. Angela hlaut dóm fyrir gjörðir sínar, en Ian sitji eft- ir, alveg ósnertanlegur, þar sem lögreglan verndi hann. Michelle hefur einnig lýst áhrifunum sem þetta mál hafi haft á sig. Bæði á hún erfitt með að finna vinnu og fara á stefnumót vegna þess að hún er alltaf gúggluð og þá lesi fólk um mál hennar og hafi áhyggjur. Mannorð hennar sé því svert til fram- búðar, þrátt fyrir að hún sé fórnarlambið í málinu. n Hjónaband Angelu og Ian Diaz virtist blómstra þar til Angela greindi frá því að eltihrellar sætu um hana. Spjótin beindust fljótt að fyrverandi kær- ustu Ians sem við rann- sókn málsins sagði að Ian hefði dreymt um að hún svæfi hjá öðrum karl- manni. Snargalnir eltihrellar eltu hana á röndum – uns hið rétta kom í ljós Angela Diaz gerði lögreglu viðvart um að eltihrellar umkringdu hús hennar og segðust ætla að nauðga henni. Ekki leið á löngu þar til fyrrverandi kærasta eiginmanns Angelu var handtekin og var vistuð í fangelsi í þrjá mánuði. Angela Diaz hafði samband við lögreglu vegna eltihrella sem gerðu henni lífið leitt. MYND/TV2.NO Jón Þór Stefánsson jonthor@dv.is Angela Connell og Ian Diaz höfðu ekki verið gift lengi þegar Angela, nú kennd við nafnið Diaz, byrjaði að fá óhugnanlegar hótanir í gegnum vefsíðuna Craigslist. 22 FÓKUS 28. ÁGÚST 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.