Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Qupperneq 30
B irta Abiba Þórhallsdóttir var krýnd Miss Universe Iceland árið 2019.
Hún keppti í kjölfarið í Miss
Universe og lenti í einu af tíu
efstu sætunum. Hún hefur
síðan þá getið sér gott orð sem
fyrirsæta og mun krýna arf
taka sinn í október. Við vorum
forvitin um hvernig venju
legur dagur er hjá henni og
einnig hvað hún borðar.
„Ég veit ekki hvað telst
lengur venjulegur dagur. Ég
byrja samt alltaf á að drekka
vatn áður en ég reyni að temja
á mér hárið og horfi á Tik
Tok,“ segir Birta.
Ekki góður kokkur
Birta hefur verið grænmetis
æta í sjö ár. „Svo ég borða
ekki rautt kjöt, fisk eða fugla
kjöt,“ segir hún.
Aðspurð hvort hún eyði
miklum tíma í eldhúsinu
svarar Birta neitandi.
„Ég eyði ekki miklum tíma
í eldhúsinu, þar sem sann
leikanum samkvæmt er ég
bara alls ekki góður kokkur,
né aðstoðarkokkur. Ég hef
nefnilega þann hæfileika að
gera mikið af klaufavillum
þegar ég elda og eftir að hafa
næstum kveikt í síðast þegar
ég hjálpaði, hef ég verið beðin
um að sjá aðeins um uppvask
ið og setja á borð,“ segir hún.
Þegar kemur að því að velja
uppáhaldsmáltíð vefst svarið
ekki fyrir henni.
„Ég veit að sumir munu ekki
telja þetta sem máltíð en ég
mun allan daginn segja popp,“
segir hún. n
Klassískar kókosbollur
eru í uppáhaldi hjá Birtu
Fegurðardrottningin og fyrirsætan Birta Abiba Þórhallsdóttir hefur verið grænmetis
æta í sjö ár. Hún segist vera sjálfskipaður klaufi í eldhúsinu og eyðir þar litlum tíma,
enda var hún næstum búin að kveikja í þegar hún reyndi síðast fyrir sér sem kokkur.
Matseðill Birtu
Morgunmatur:
Ég elska að fá mér heitan morg-
unmat, sérstaklega ef ég er að
fara í tökur, svo vanalega fæ ég
mér hrærð egg með bitum af
cam embert-osti.
Millimál:
Eplabitar með sterkum hummus
(besti hummusinn er úr Costco).
Hádegismatur:
Ristað brauð með avókadó.
Millimál:
Frosin vínber
Kvöldmatur:
Það er fjölbreytt, en ég elska
góðan vegan-hamborgara.
Kókosbollur -
auðveldur og
skemmtilegur
eftirréttur
Hráefni
2 msk. kakó
2 msk. vatn
1 dl sykur
3 dl haframjöl
1 dl kókosmjöl
Aðferð
1) Hrærið öllu vel og vandlega
saman í skál.
2) Búið til litlar bollur úr deiginu.
3) Setjið kókosmjöl á disk og
veltið bollum upp úr því.
4) Raðið bollunum á lítið fat og
kælið inni í ísskáp.
Fegurðar-
drottningin
Birta Abiba fer
yfir mataræð-
ið sitt. MYND/
ANTON BRINK
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
30 MATUR 28. ÁGÚST 2020 DV