Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Qupperneq 32
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
Fjölskylduhornið
Sérfræðingur svarar
Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi
svarar spurningum lesenda um málefni
er varða fjölskylduna, börnin og ástina
í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni
svarar Kristín spurningu lesanda um
fjölskyldulífið í fæðingarorlofi
HVENÆR VERÐUR KYNLÍFIÐ
AFTUR Á DAGSKRÁ?
Ég er í fæðingarorlofi og maðurinn minn vinnur endalaust mikið. Við
erum alltaf þreytt, hætt að
stunda kynlíf, gerum ekkert
saman og lífið mitt snýst um
að sjóða ýsu og skipta um
bleyjur. Verður þetta bara
svona?
Ó guð, hvað þetta er allt
skiljanlegt, en þú átt alla
mína samúð. Hundleiðinlegt
tímabil í lífi margra foreldra
en það er ekki þar með sagt
að þið þurfið að sætta ykkur
við þetta.
Flestir foreldrar sem skilja,
skilja á fyrsta æviári barns.
Ég er ekki að fræða þig um
þetta til þess að þú takir
hraðlest niður á sýslumann að
sækja pappírana, heldur til að
benda þér á að þetta er tíma-
bil sem reynir á öll sambönd.
Þið eruð á álagspunkti og það
þýðir ekki að sambandið sé
glatað.
Mér leikur að sjálfsögðu
forvitni á að vita hvað barnið
þitt er gamalt, hvað þið eigið
mörg önnur börn, hvað planið
er og hvað er langt síðan þið
stunduðuð kynlíf, svo eitt-
hvað sé nefnt. En ég ætla
bara að geta í eyðurnar og þú
tekur til þín það sem við á.
Þú spyrð hvort þetta verði
bara svona og ég vildi að ég
gæti svarað þér, en ef þú
vilt ekki hafa þetta svona
lengur viltu þá ekki bretta
upp ermar og breyta til?
Lax er t.d. fín tilbreyting frá
ýsu og barnið mun að öllum
líkindum hætta á bleyju einn
daginn. Ef þú vilt gera meiri
breytingar þá mæli ég með
þessu:
Hefur þú rætt við maka
þinn um þessa líðan þína?
Hafið þið prófað að laga
þetta? Það er alltaf vænlegt
að ræða um líðan sína og
stundum getur það jafnvel
verið nóg. Að þið séuð með-
vituð um á hvaða stað þið
eruð í lífinu, hvert þið viljið
stefna og að þið séuð saman
í liði. Stundum þarf fólk að
kafa aðeins dýpra. Eru þið
bæði að upplifa þetta eins? Er
jafn mikill áhugi á að breyta
þessu? Hvaða væntingar
hafið þið?
Í staðinn fyrir að setja fók-
usinn á allt það sem er búið
að vera leiðinlegt undanfarið,
þá gæti verið ráð að spyrja
sig hvaða litlu skref getið
þið tekið svo næstu misseri
verði ögn skemmtilegri? Á
skalanum 0-10, hvernig líður
þér í sambandinu núna ef 0
er þegar þér hefur liðið verst
og 10 er þegar þér hefur liðið
best? Segjum að þér líði 5,
hvað þarf þá að breytast svo
þér líði 6? Spurðu maka þinn
að því sama. Þarna getið
þið fundið vísbendingar um
hvaða litlu skref þið þurfið
að taka svo ykkur líði betur.
Hvaða markmið getið þið svo
sett ykkur til þess að líða 7?
Þó svo að álagið sé mikið
og þið parið hittist lítið, þá
gæti verið gott að taka frá
tíma fyrir ykkur. Þið þurfið
ekki að redda pössun eða
fara í þyrluflug. Tveir tímar
eftir kl. 20.00 á virkum degi
er glæsilegt. Bara elda ykkur
góðan mat þegar krakkarnir
eru sofnaðir, spila skemmti-
legt spil, horfa saman á Net-
flixþátt eða hita te og ræða
saman í rólegheitum. Aðra
hverja viku stýrir þú hver
dagskrá kvöldsins verður,
aðra hverja viku stýrir hann.
Þessi tími er að sjálfsögðu
hugsaður til þess að breyta
út af vananum, gera eitt-
hvað skemmtilegt saman
og hittast, en hann er fyrst
og fremst skuldbinding. Þið
eruð að rækta sambandið,
hugsa hvort til annars og gefa
ykkur tíma.
Samkvæmt fræðunum
líða að meðaltali tvö ár frá
fæðingu barns þar til kyn-
lífshegðun pars er orðin eins
og áður, eða komin á skrið
sem þau eru sátt við. Tvö
ár?!! Góðan daginn… hugsa
margir. En þá minni ég á að
það stendur „að meðaltali“,
sem merkir að hjá mörgum
tekur þetta lengri tíma.
Meðvituð um þessa stað-
reynd léttir mögulega aðeins
á ykkur, þið getið andað léttar
og tekið ykkur tíma til að
finna út úr kynlífinu. Sumir
þurfa að skipuleggja sig bet-
ur eftir barneignir, aðrir nýta
annan tíma sólarhringsins en
áður til þess að stunda kynlíf.
En það er nú yfirleitt þannig
að báðir aðilar þurfa að vera
á staðnum svo kynlíf milli
pars geti átt sér stað, svo þið
gætuð byrjað á að finna tíma
þar sem þið eruð bæði heima
og bæði vel upplögð.
Svo eru það umhverfis-
þættirnir sem geta verið svo
flóknir og umfangsmiklir
en stundum er auðveldara
að breyta þeim en öðru, þar
sem tilfinningar spila stærri
rullu.
Ég ætti t.d. að vera á pró-
sentum hjá fyrirtækinu
Eldum rétt. Ástæðan er sú
að mörg pör eru að rífast um
praktísk mál eins og hvað
á að vera í matinn, hver á
að kaupa inn og hver eldar.
Þessu er hægt að sleppa með
því að kaupa Eldum rétt (tek
það fram að þetta er ekki
#samstarf). Eru einhver mál
sem þið getið einfaldað ykkur
á sambærilegan hátt og Eld-
um rétt? Getið þið aðstoðað
hvort annað betur? Getið
þið fengið aðstoð frá öðrum?
Getið þið forgangsraðað öðru-
vísi? Þarf þvottakarfan alltaf
að vera tóm? Er hægt að fara
með þvott í þvottaþjónustu?
Nei ég bara spyr… stundum
geta svona mál bætt sambönd
til muna, gert fólk ánægðara
og jafnvel bætt líðan barna
og fjölskyldunnar í heild.
Ef ég á að pakka þessu
saman: Lífið þarf ekki að
vera leiðinlegt og það er hægt
að gera litla hluti til þess að
einfalda og bæta lífsgæði.
Taktu stöðuna á maka
þínum, ræðið um líðan og
þarfir hvors annars á þessum
tímapunkti og mögulegar að-
gerðir í átt að „bata“. Ég hef
massa trú á ykkur, einfald-
lega vegna þess að ég hef séð
annað eins gerast á hinum
bestu bæjum. Áfram þið. n
Kvöldstund úti á svölum er notaleg. MYND/GETTY
Þó svo að álagið
sé mikið og þið
parið hittist lítið,
þá gæti verið gott
að taka frá tíma
fyrir ykkur.
32 FÓKUS 28. ÁGÚST 2020 DV