Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2020, Síða 38
Aron – Sagan mín
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði
íslenska karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu, segir frá ferli sínum sem
atvinnumaður í knattspyrnu. Hann
leiðir lesandann allt frá sínum
fyrstu skrefum á ferlinum yfir í
lokakeppni EM og HM. Bókin kom
út árið 2018 og hefur notið mikilla
vinsælda.
AFÞREYING FYRIR
ÁHUGAFÓLK UM
KNATTSPYRNU
Knattspyrnuáhugi er oft mikil ástríða. Að horfa á
fótbolta er bara ekki nóg. Fyrir ykkur sem elskið
fótbolta er hér spennandi afþreyingarefni.
Dr. Football
Í hlaðvarpsþættinum Dr. Football
fer þáttastjórnandinn Hjörvar Haf-
liðason yfir það sem er að gerast
í knattspyrnuheiminum. Hann
fjallar um boltann bæði hérlendis
og erlendis ásamt góðum gestum.
Þátturinn hefur notið gríðarlegra
vinsælda.
Diego Maradona
Diego Maradona er heimildamynd sem gefin var út árið 2019. Myndin fjallar
um argentíska knattspyrnumanninn Diego Maradona. Í myndinni kemur
fyrir áður óséð myndefni af Maradona. Í myndinni er fjallað um þann tíma
þegar Maradona fór frá Barcelona til Napoli árið 1984. Þar varð hann bæði
Ítalíumeistari og Evrópudeildarmeistari.
Sara Björk – Óstöðvandi
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrir-
liði íslenska kvennalandsliðsins í
knattspyrnu, hefur náð mjög góð-
um árangri á knattspyrnuvellinum
og skrifaði nýverið undir samning
við eit t besta knattspyrnulið
heims, Lyon. Sara gaf út bókina
Óstöðvandi árið 2019. Þar segir
hún meðal annars frá ferlinu og
átökum innan vallar og utan.
HLAÐVARPSÞÆTTIR:
BÆKUR
SJÓNVARPSEFNI:
A life to short – The tragedy
of Robert Enke
Landsliðsmarkvörður Þjóðverja
tók sitt eigið líf árið 2009, 32 ára
að aldri. Út á við virtist Robert
Enke vera með allt á hreinu. Hann
var atvinnumaður í fótbolta sem
hafði spilað fyrir nokkur af bestu
liðum Evrópu.
Heimavöllurinn
Í þættinum fjalla þær Mist Rún-
arsdóttir og Hulda Mýrdal um
kvennaknattspyrnu. Fjallað er
um allar kvennadeildir á Íslandi og
íslenskar atvinnukonur erlendis.
Þátturinn er sá eini á landinu sem
fjallar eingöngu um kvennaknatt-
spyrnu.
Steve Dagskrá
Félagarnir Vilhjálmur Freyr Halls-
son og Andri Geir Gunnarsson
ræða knattspyrnuna út frá öðrum
vinklum en gengur og gerist. Þó
að knattspyrnan sé aðal um-
ræðuefnið eiga þeir það til að fara
með umræðuna í þá átt sem á við
hverju sinni.
She‘s the man
She‘s the man er gamanmynd frá
árinu 2006. Unglingsstelpan Viola
mætir í heimavistarskóla bróður
síns, í hans stað, sem strákur.
Hún vill reyna að komast í fót-
boltaliðið eftir að liðið í skólanum
hennar var lagt niður. Að lokum er
það rómantíkin sem tekur öll völd
á vellinum.
Sunderland ´Til I die
Sunderland ´Til I die eru sjón-
varpsþættir á Netflix sem fjalla
um enska knattspyrnufélagið
Sunderland. Komnar eru út tvær
þáttaraðir og samtals 14 þættir.
Fyrsta serían fjallar um tímabilið
2017-2018 þegar félagið spilaði í
annarri efstu deild á Englandi eftir
að hafa fallið úr deild þeirra bestu
árið áður. Eftir góð viðbrögð við
fyrstu þáttaröðinni var ákveðið að
gera aðra þáttaröð. Þá var fjallað
um tímabilið 2018-2019. Þætt-
irnir hafa hlotið góða gagnrýni frá
gagnrýnendum og aðdáendum.
All or nothing: Tottenham Hotspur
All or nothing: Tottenham Hotspur eru heimildaþættir sem fjalla um nýaf-
staðið tímabil hjá Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Þættirnir koma út
næstkomandi mánudag, þann 31. ágúst. Tottenham er að feta í fótspor
Manchester City, Sunderland og Leeds með því að hleypa myndavélum inn
í klefa. Margt gekk á hjá Tottenham á tímabilinu eftir gott gengi árið áður.
Þættirnir All or nothing voru fyrst gerðir með liðum í ameríska fótboltanum
og hafa hlotið mikilla vinsælda.
38 SPORT 433 28. ÁGÚST 2020 DV