Íþróttablaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 7
Fjórir júdómenn
eiga möguleika
Júdókeppnin verður 16. til
22. september og öðlast að
hámarki 400 karlar og konur
keppnisrétt en keppt verður í
sjö mismunandi þyngdar-
flokkum karla og kvenna.
Fjórir íslenskir júdómenn,
Vernharð Þorleifsson í 100 kg
flokki, Þorvaldur Blöndal í 90
kg flokki, Bjarni SkúLason í
80 kg flokki og Gísli Jón
Magnússon i +100 kg flokki,
taka þátt í viðurkenndum
stigamótum í Evrópu frá jan-
úar til vors í þeirri von að
komast á Ólympíuleikana. Tíu
mót eru í boði og mega
keppendur velja sex þeirra en
þeir þurfa að vera á meðal
átta efstu í lokin til að
öðLast þátttökurétt í Sydney,
með þeirri undantekningu að
aðeins einn frá hverri þjóð
kemst áfram í hverjum
þyngdarfLokki.
Einn skotmaður í eldlínunni
ALfreð ALfreðsson er eini ís-
lenski skotmaðurinn á lista
Skotsambandsins vegna
Ólympíuleikanna en eins og í
öörum greinum þurfa skot-
menn að ná árangri á ólymp-
íuári. Skotkeppnin í Sydney
fer fram 16. til 23. septem-
ber og geta í mesta lagi 410
keppendur verið með í grein-
unum 17.
Flestir í sundi
Ólympíuhópur íslenskra sund-
manna tekur mið af árangri
undangenginna 12 mánaða
og getur því tekið örum
breytingum. Eins og staðan
er nú er Örn Arnarson eini
íslenski sundmaðurinn sem
hefur synt undir Lágmarki en
hann þarf að endurtaka leik-
inn á ólympíuári eins og aðr-
ir sundmenn.
TiL að komast í ólympíu-
hóp Sundsambandsins þarf
sundmaður að vera undir B-
Lágmarki alþjóðasambands-
ins. Átta sundmenn eru í
hópnum um þessar mundir.
Eydís Konráðdóttir er næst
Lágmarkinu i 100 m fLug-
sundi, Lára Hrund Bjargar-
dóttir í 200 m skriðsundi og
200m fjórsundi, Örn Arnarson
í 100 m og 200 m baksundi
Sydney-hópur FRÍ.
Frá vinstri: Vésteinn Haf-
steinsson þjálfari, Vala
Flosadóttir, Jón Arnar
Magnásson, Þórey Edda
Elísdóttir, Magnús Aron
HaUgrímsson, Vigdís Guð-
jónsdóttir og Einar Kart
Hjartarson. Auk þeirra eru
Martha Ernstsdóttir og
Guðrún Arnardóttir í
hópnum.
og 200 m skriðsundi, Ómar
Snævar Friðriksson í 400 m
skriðsundi, HjaLti Guðmunds-
son í 100 m bringusundi,
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir í
50 m og 100 m skriðsundi og
100 m baksundi, Ríkharður
Ríkharðsson í 100 m
fLugsundi og Jakob J. Sveins-
son í 100 m og 200 m
bringusundi. Þá eru Friðfinn-
ur Kristinsson og Elín
Sigurðardóttir alveg við hóp-
inn í 50 m skriðsundi.
Sundkeppnin í Sydney fer
fram 16. september til 1.
október.
IBM Thinkpad 600E. Pentium II 300MHz PE örgjörvi, 256Kb flýtiminni, 32MB minni (288MB mest), 4GB diskur, 13,3" TFT skjár, geisladrif, diskettudrif, hljóökort, hátalarar, hljóönemi, Lion rafhlaöa, Trackpoint IV mús - 4 hnappa,
56Kb alþjóölegt modem (V90), IrDa þráðlaus samskipti 4Mbps. Þyngd aðeins 2,5kg, 3 ára alþjóðleg ábyrgð. Hugbúnaöur: Windows 98, Norton Antivirus, Configsafe, SmartSuite Millennium. Verö 289.900 kr. m.vsk.
Sölu- og þjónustuaðilar Nýherja: Suðurland: Tölvu- og rafeindaþjónustan Selfossi, Tölvun Vestmannaeyjum. Austurland: Tölvusmiðjan Egilsstöðum og Neskaupsstað. Norðurland: Nett Akureyri, Element Sauðárkróki, Ráðbarður
Hvammstanga. Vestfiröir: Tölvuþjónusta Helga Bolungarvík.