Fréttablaðið - 02.09.2020, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 02.09.2020, Blaðsíða 40
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Bjarna Karlssonar BAKÞANKAR OPIÐ mán.–lau. kl. 11–18 Úrval nýrra og notaðra bóka! BÓKAMARKAÐUR ÁRMÚLA 42 SLOW COW MIND COOLER 330 ML 299 KR/STK 906 KR/L Fyrir svanga ferðalanga Ég er fjarri því stoltur af öllu sem ég hef sagt og gert. Það veit Guð, konan mín og ýmsir f leiri. Ágallarnir eru margir. Öll vita að ég er hvatvís og ómann- glöggur en færri þekkja hrokann og yfirganginn sem í mér blundar. Margt f leira mætti nefna. Þó er það svo að þegar ég horfi um öxl sé ég að mannkostir mínir hafa orðið mér verra fótakef li en gall- arnir. Þótt ég hafi margvíslega hrasað í ágirnd og yfirgangi hafa stærstu mistök mín orðið þegar ég hef keyrt mannkosti mína úr hófi fram. Ég er nefnilega frekar rétt- sýnn, á auðvelt með að setja mig í annarra spor og vil vera góður við fólk. Almennt eru þetta taldir mannkostir. Auk þess get ég verið duglegur og drífandi. Og einmitt þá, þegar réttlætiskennd mín hefur verið vakin eða samúð með fólki og driftin virkjuð, hef ég átt það til að valta yfir aðra af því að ég taldi mig vera handhafa sann- leikans. Eða ég hef vanrækt þau sem áttu að njóta krafta minna af því mér þótti heimurinn þurfa svo mikið á mér að halda. Jesús benti á þetta þegar ungur og sjálfumglað- ur maður ávarpaði hann með orð- unum Góði meistari! – Af hverju kallar þú mig góðan? ansaði hann. Enginn er góður nema Guð einn. Hin síðari ár hef ég reynt að hætta að rembast og læra betur á lífið. Þá hef ég meðal annars notað það ráð að horfa á aðstæður dagsins frá sjónarhóli dánar- beðsins. Ég hef ímyndað mér að ég lægi níræður með höfuð á kodda, öllum teningum lífsins kastað og dauðinn fram undan. Síðan hef ég spurt sjálfan mig: Hvernig myndi ég þá vilja að ég hefði brugðist við núna? Persónugallarnir gera lítinn usla en mannkostina ber ég í brot- hættu keri því ég er ekki handhafi sannleikans. Af sjónarhól dánarbeðs Nýjar hetjur í Sjónvarpi Símans Premium Yfir þrátíu nýjar þáttaraðir af barnaefni eru að bætast við í Sjónvarp Símans Premium. Gamlir vinir verða á sínum stað ásamt nýjum hetjum og ævintýrum fyrir börn á öllum aldri. Svona á sjónvarp að vera. Pantaðu áskrift á siminn.is.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.