Fréttablaðið - 02.09.2020, Blaðsíða 22
Við stefnum hátt
og ætlum að vaxa
hratt.
Karl Ágúst Matthíasson,
rekstrarstjóri DTE
Það hefur komið
mörgum á óvart að
litlu fyrirtæki á Íslandi hafi
tekist þetta. Áliðnaðurinn
hefur beðið lengi eftir
þessari tækni.
Sveinn Hinrik Guðmundsson,
framkvæmdastjóri DTE
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Sprotafyrirtækið DT Equip-ment (DTE) fékk 5,5 millj-óna Bandaríkjadollara fjármögnun, jafnvirði um 760 milljóna króna, frá kanadíska vísisjóðnum
Chrysalix Venture Capital og
Brunni vaxtarsjóði sem fjármagn-
aður er af lífeyrissjóðum og Lands-
bankanum.
Sveinn Hinrik Guðmundsson,
annar stofnandi DTE og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir
að engum hafi tekist að þróa sam-
bærilega lausn áður en margir hafi
reynt. DTE þróar sjálfvirkrar efna-
greiningarlausnir fyrir áliðnað og
álendurvinnslu.
Greina fljótandi málm
„Við þróuðum tækni sem greinir
f ljótandi málmsýni og við það
styttist greiningartími á efnainni-
haldi framleiðslunnar verulega.
Það hefur komið mörgum á óvart
að litlu fyrirtæki á Íslandi hafi
tekist þetta. Áliðnaðurinn hefur
beðið lengi eftir þessari tækni enda
hafa fjölmörg fyrirtæki varið miklu
fjármagni, tugum milljarða sam-
tals, í að reyna að þróa sömu tækni.
Okkur tókst að gera það fyrir til-
tölulega lítið fjármagn,“ segir hann.
Fram að þessu hafi greiningin
kallað á að starfsmenn taki sýni úr
allt að þúsund gráðu heitu fljótandi
áli sem síðan sé steypt, verkað og
loks efnagreint. „Þetta ferli getur
tekið allt upp í nokkrar klukku-
stundir sem hægir á framleiðslunni
og ákvarðanatöku. Nú verður hægt
að stilla framleiðsluferlið af jafn-
óðum. Því fylgir mikill ábati fyrir
álverin enda fá þau lægra verð fyrir
ál sem ekki uppfyllir ákveðnar
kröfur um efnisinnihald. Auk þess
er þetta mun öruggara fyrir starfs-
menn,“ segir Sveinn Hinrik.
Karl Ágúst Matthíasson, hinn
stofnandi DTE og rekstrarstjóri
fyrirtækisins, segir að það hafi
verið mikilvægt fyrir DTE að vinna
náið með starfsmönnum Brunns
vaxtarsjóðs varðandi fjármögnun-
ina. „Þeir studdu við sókn í erlenda
fjárfestingu og tengdu okkur meðal
annars við Chrysalix Venture Capi-
tal og aðra sjóði.“
Chrysalix Venture Capital er
sérhæft í f járfestingum á sviði
snjalllausna og skynjaratækni
fyrir málm- og námuiðnað. Sjóður
Chrysalix, RoboValley Fund, sem
komið var á fót á síðasta ári, er 120
milljónir dollara að stærð, jafnvirði
um 16,5 milljarða króna. Fjöldi
alþjóðlegra fyrirtækja í málmiðnaði
lagði sjóðnum til fé.
Vilja vaxa hratt
Karl Ágúst segir að fjármunirnir
verði nýttir til að framleiða tækja-
búnað og hefja sölu á þjónustunni.
„Við stefnum hátt og ætlum að vaxa
hratt,“ segir hann. Í því skyni sé
stefnt á að ráða fimm starfsmenn í
ár en nú starfa tíu manns hjá DTE.
Sveinn Hinrik segir að nú sé stefnt
að því að semja við álverin þrjú á
Íslandi og valda erlenda álfram-
leiðendur til að ná betur utan um
tæknilausnina og frekari þróun.
DTE hefur þróað tvenns konar
efnagreiningarbúnað. Annars vegar
alsjálfvirkan búnað sem á að vera á
lykilstöðum í steypuskálum og hins
vegar lítinn færanlegan búnað til
að greina álið í framleiðslukerjum
í kerskála. „Það eru hundruð kera í
hverju álveri,“ segir Sveinn Hinrik.
Framleiðsluferli áls hefst í kerskála
og færist yfir í steypuskála hvar það
er steypt.
„Í stað þess að þurfa að safna
tugum eða hundruðum sýna úr
kerjunum og greina á rannsókna-
stofu má framkvæma efnagreining-
una samstundis við hvert ker. Þann-
ig gefst einnig möguleiki á að fjölga
greiningum og bæta eftirlit með
framleiðslunni,“ segir Karl Ágúst.
Sveinn Hinrik segir að Norðurál,
sem veitt hafi DTE mikinn stuðning
í gegnum árin, hafi samið um inn-
leiðingu á fyrsta sjálfvirka grein-
ingartækinu. „Við erum einnig í
viðræðum við Rio Tinto ISAL um
greiningartæki fyrir kerskála og
steypuskála. Jafnframt eigum við í
viðræðum við nokkra stóra aðila í
iðnaðinum, eins og til dæmis Norsk
Hydro sem rekur tugi álvera um
allan heim,“ segir hann.
Tíu þúsund tæki
Karl Ágúst segir að viðskiptavinir í
áli séu tiltölulega fáir. Það séu innan
við 300 álver í heiminum sem flest
séu í eigu fárra samsteypa. Auk þess
séu um þrjú þúsund álsteypuskálar
í melmisblöndun og endurvinnslu.
„Við munum ekki selja tækin í
massavís heldur bjóða upp á verð-
mæta þjónustusamninga. Að okkar
mati er þó tækifæri fyrir um tíu þús-
und tæki í áliðnaðinum í dag.“
Sveinn Hinrik segir að þegar fram
í sækir sé til skoðunar að taka inn
aukið fjármagn til að þróa sambæri-
lega lausn fyrir stáliðnað og bendir
á að ál sé einungis einn málmmark-
aður af mörgum.
Til að bræða stál þurfi, að sögn
Karls Ágústs, hitastigið að vera allt
að tvöfalt hærra en við bræðslu á áli.
Það séu auk þess mun meiri óhrein-
indi í stálframleiðslu.
Sveinn Hinrik telur að í grunn-
inn þurfi ekki að gera miklar breyt-
ingar á tækjabúnaðinum. Efla þurfi
kælinguna og tækin þurfa að þola
hærra hitastig. „Aðferðafræðin er
sú sama en það þarf líka að þróa
öflugan hugbúnað sem getur efna-
greint stálið sem er að sumu leyti
f lóknari málmur að efnagreina.“
Karl Ágúst segir að DTE hafi nú
þegar hafið samstarfsviðræður við
leiðandi þjónustuaðila í stáliðnaði
til að hefja þá vegferð. „Það var þó
stefnumótandi ákvörðun sem við
tókum að einbeita okkur fyrst um
sinn að áliðnaði,“ segir hann.
Kynntust álverum hjá Verkís
Karl Ágúst og Sveinn Hinrik unnu
áður hjá verkfræðistofunni Verkís
við að veita íslenskum áliðnaði
tæknilega aðstoð. Þar kynntust
þeir því hve greiningarferlið á áli
er seinlegt og flókið og sáu fyrir sér
að hægt væri að f lýta þeirri vinnu
umtalsvert. „Það var háleitt mark-
mið á þeim tíma,“ segir Karl Ágúst.
Árið 2013 stofnuðu þeir fyrir-
tæki til að vinna að slíkri lausn og
ári síðar tóku þeir þátt í viðskipta-
hraðl inum Startup Energy Reykja-
vík. Í kjölfarið fékk DTE þriggja
ára styrk frá Tækniþróunarsjóði til
að staðfesta að hægt væri að efna-
greina fljótandi ál.
„Þegar það var staðfest, árið 2016,
fjárfesti Brunnur vaxtarsjóður í
fyrirtækinu. Fjármagnið var nýtt
til þess að hanna frumgerð af sjálf-
virku vörunni og í kjölfarið hófst
samstarf við Norðurál um prófanir.
Það hefur verið ómetanlegt að hafa
tök á því að gera slíkar prófanir í
raunumhverfi,“ segir Karl Ágúst.
Þá fékk DTE 1,5 milljóna evra
styrk eða jafnvirði um 245 milljóna
króna frá Evrópusambandinu til að
þróa færanlega búnaðinn.
Aðspurður segir Karl Ágúst að
það hafi verið lærdómsríkt að ræða
við alþjóðlega fjárfesta. „Það þurfti
að finna réttu fjárfestana. Annars
vegar varð að finna fjárfesta sem
skildu tæknina og markaðinn sem
við vinnum á. Hins vegar fjárfesta
sem vilja fjárfesta í þróun á vélbún-
aði. Við höfum rætt við fjölmarga og
margir verið áhugasamir, til dæmis
þeir sem starfa í stáliðnaði.“
Sveinn segir að þeir hafi að vissu
leyti notið góðs af því að koma
blautir á bak við eyrun að þróun
hárnákvæmrar efnagreiningar-
tækni. DTE hafi því nálgast verk-
efnið með öðrum hætti en áður
hafði verið gert.
Hann segir jafnframt að ef það
væri ekki áliðnaður á Íslandi hefði
hugmyndin að fyrirtækinu aldrei
kviknað. „Það hefði jú þýtt að við
hefðum aldrei unnið fyrir álver.“
Karl Ágúst bætir við að án stuðn-
ings frá íslenskum áliðnaði hefðu
þeir aldrei komist jafn langt með
tækniþróunina og raun ber vitni.
Margar aðrar tilraunir á sama sviði
séu því marki brenndar að vera „of
rannsóknarstofulegar“ eða unnar
án samstarfs við álver. Það hafi oft
verið vísindamönnunum fjötur um
fót.
„Norðurál, Nýsköpunarmiðstöð
og Rannís hafa allt verið ómetan-
legir hlekkir í þessari keðju að þróa
tækni DTE áfram,“ segir hann.
Hann segir að fyrirtækið hafi
fengið samtals á annað hundrað
milljónir króna í formi styrkja frá
Rannís og skattaívilnana vegna
rannsóknar- og þróunarkostnaðar
á undanförnum sex árum.
Vel hægt á Íslandi
Þeir segja að nýsköpunarumhverfið
hérlendis hafi reynst þeim vel og
DTE hafi notið góðs af aðstöðunni
til tækniþróunar og -rannsókna
hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Sveinn segir að það sé hægt að
þróa tæknilega f lókinn búnað á
Íslandi, eins og dæmin með Össur
og Marel sýni. „Það væri gaman ef
f leiri myndu horfa til tækifæra í
nýsköpun í hátæknibúnaði. Það
eru til dæmis mýmörg tækifæri í að
auka sjálfvirkni í áliðnaði. Það þarf
bara að fara á eftir þeim.“
DTE fær 760 milljóna fjármögnun
Kanadískur vísisjóður og Brunnur leggja sprotanum til fé. DTE greinir fljótandi málmsýni í rauntíma. Engum hefur áður tekist að
þróa sambærilega lausn en margir reynt. DTE mun nýta fjármagnið til að hefja framleiðslu á tækjabúnaði og sölu á þjónustunni.
Aflið samsvarar lítilli virkjun
Tækni DTE byggir á litrófsgrein-
ingu, þar sem öflugum leysigeisla-
púlsi er skotið á yfirborð fljótandi
málmbráðarinnar. Ljósafl ið í
púlsinum er 20 megavött, sem
samsvarar lítilli virkjun, en varir
aðeins í örfáa milljarðshluta úr
sekúndu. „Við þetta hitnar örlítill
hluti yfirborðsins upp í allt að
30.000 gráður á Cels ius, margfalt
hærra en hitastig á yfirborði sólar.
Við svo hátt hitastig geislar hvert
frumefni frá sér ljósi með ein-
stakt fingrafar sem búnaður DTE
greinir með nákvæmni og stöðu-
leika sem ekki hefur verið sýnt
fram á áður fyrir fljótandi málm.
Með þessari aðferð má greina
efnainnihald álsins á nokkrum
sekúndum, jafnvel aðskotaefni
sem aðeins eru til staðar í milljón-
ustu hlutum,“ segir Sveinn.
Karl Ágúst Matthíasson og Sveinn Hinrik Guðmundsson stofnuðu fyrirtækið DTE fyrir sjö árum. Sveinn Hinrik segir að ef það væri ekki áliðnaður á
Íslandi hefði hugmyndin að fyrirtækinu aldrei kviknað. „Það hefði jú þýtt að við hefðum aldrei unnið fyrir álver,“ segir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN