Fréttablaðið - 04.09.2020, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 04.09.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 9 2 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · hekla.is/mitsubishisalur L200 INTENSE FJÓRHJÓLADRIFINN HARÐJAXL 33" breyttur • Sítengt fjórhjóladrif • Hátt & lágt drif • Sjálfskiptur • Breytingapakki • Dráttarbeisli • Heithúðun á palli Tilboðsverð 7.690.000 kr. 35" uppfærsla 1.300.000 kr. DÓMSMÁL „Staða málsins er nú þannig að málsaðilar hafa náð sam­ komulagi um að kanna hvort unnt sé að ná saman um sameiginlega hagsmuni á svæðinu. Samkomu­ lagið gerir ráð fyrir að tíminn fram til 28. október verði nýttur til þess,“ segir Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveit­ arstjóri Borgarbyggðar. Þórdís vitnar í svari til Frétta­ blaðsins til yfirlýsingar sveitar­ stjórnarinnar frá því í byrjun ágúst eftir að Héraðsdómur Vesturlands dæmdi 14. júlí síðastliðinn að bygg­ ingarleyfi sem Borgarbyggð gaf út vegna legsteinahússins væri ógilt og að húsið skyldi fjarlægt fyrir 14. september. Í yfirlýsingunni segir að hagsmunir allra málsaðila séu að landnotkun afmarkaðs svæðis á Húsafelli verði breytt. Í nýju skipu­ lagi verði gert ráð fyrir fjölbreyttri verslun og þjónustu auk frístunda­ byggðar. Samráð sé um þetta við báða aðila legsteinahússmálsins og aðra landeigendur á svæðinu. „Það er öllum til hagsbóta að vinna að sameiginlegri uppbygg­ ingu á þessu fallega og menningar­ ríka svæði hér í Borgarbyggð,“ segir í yfirlýsingu sveitarstjórnarinnar. Páll Guðmundsson á Húsafelli II sem byggði legsteinasafnið þrátt fyrir mikla andstöðu nágranna síns, Sæmundar Ásgeirssonar sem rekur gistihús á staðnum, óskaði í kjölfar fyrrgreinds dóms eftir því að fá leyfi til að rífa bygginguna. Í bréfi sínu vegna niðurrifsins undraðist Páll að sveitarstjórnin hefði ekki gefið út byggingarleyfi fyrir legsteinahús­ inu í þriðja sinn eins og hann hefði óskað eftir áður en fyrrgreindur dómur féll. Enn hefði hann ekkert heyrt frá sveitarfélaginu. „Yrði umsóknin samþykkt fengi mannvirkið lagalega stöðu og kom­ ist yrði hjá því að fjarlægja það,“ skrifaði Páll og minnir á að hann væri ekki í þessari stöðu ef stjórn­ sýsluleg meðferð Borgarbyggðar hefði staðist formkröfur. Honum sé nauðugur einn kostur að sækja um leyfi til að rífa húsið. „Að verki loknu mun undirritaður óska eftir skrif legri staðfestingu byggingar­ fulltrúa á því að mannvirkið hafi verið fjarlægt og dómurinn því fullnustaður.“ Í ljósi fyrrgreindra sáttaumleit­ ana verður legsteinasafnið þó ekki rifið fyrir 14. september heldur fær það að standa að minnsta kosti til 28. október – og jafnvel lengur ef sátt næst. – gar Sáttatónar heyrast frá Húsafelli Páll Guðmundsson á Húsafelli og nágranni hans Sæmundur Ásgeirsson hafa slíðrað sverðin í átökunum um legsteinasafn Páls og reyna að ná saman um sameiginlega hagsmuni fyrir atbeina Borgarbyggðar. Samkomulagið gerir ráð fyrir að tíminn fram til 28. október verði nýttur. Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar Félag kvenna í atvinnulífinu hélt viðburð í gær þar sem fjöldi kvenna gekk saman í Búrfellsgjá í Garðabæ. Um var að ræða táknræna athöfn í upphafi nýs starfsárs félagsins. Í ljósi sam- komutakmarkana var ákveðið að athöfnin færi fram undir beru lofti. Eliza Reid forsetafrú var meðal þeirra sem þátt tóku ásamt um hundrað öðrum félagskonum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VELFERÐARMÁL Íslensk börn eiga erfitt með að eignast vini og skora lægst Evrópuþjóða þegar kemur að félagsfærni. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Unicef. Aðeins í Japan og Síle segjast börn eiga erfiðara með að eignast vini. Ingibjörg Karlsdóttir félags­ ráðgjafi segir ástæðurnar saman­ standa af mörgum samverkandi þáttum. „Við finnum mjög fyrir því á BUGL að börn eru að ánetj­ ast gsm­símanum og tölvunni. Það getur þróast þannig að tölvan verð­ ur þeirra besti vinur, þá eru þau síður að hitta börn í raunheimum á meðan. Þá er hætt við að þau missi niður hæfnina til félagslegra sam­ skipta.“ – ab / sjá síðu 4 Undir Japan og Síle í félagsfærni Ísland skorar lægst allra Evrópuþjóða í félagsfærni barna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.