Fréttablaðið - 04.09.2020, Blaðsíða 4
Við finnum fyrir
því að það er
aukinn kvíði og félagsfælni
hjá börnum.
Ingibjörg
Karlsdóttir
Það sem þátttakendur uppskera:
• Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu
• Hugrekki til að rétta upp hönd og taka þátt í umræðum
•
Leiðir til að kynnast nýju fólki, bæta samskipti og styrkja sambönd
•
Þor til að koma hugmyndum sínum á
framfæri og hafa áhrif
• Betra skipulag og skýrari markmið
• Jákvætt viðhorf og kvíða/streitustjórnun
Námskeið hefjast:
10 til 12 ára 26. sept. 10.00-13.00 8 skipti með viku millibili
13 til 15 ára 22. sept. 17.00-20.30 8 skipti með viku millibili
13 til 15 ára 12. okt. 17.00-20.30 8 skipti með viku millibili
16 til 19 ára 23. sept. 18.00-22.00 8 skipti með viku millibili
16 til 19 ára LIVE ONLINE 1. okt kl 18.00-21.00 8 skipti með viku millibili 20 til 25 ára 24. sept. 18.00-22.00 8 skipti með viku millibili
20 til 25 ára LIVE ONLINE 8. okt. Kl 18.00-21.00 2x í viku í 4 vikur
18 til 25 ára 9.-11.okt. HELGARNÁMSKEIÐ kl 8.30-16.30
„Ég finn að ég get allt sem mig langar“
Skráning á dale.is eða 555 7080
Ókeypis kynningartími dale.is/ungtfolk
VELFERÐARMÁL Ísland skorar lægst
Evrópuþjóða í félagsfærni barna.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá
Unicef. Fram kemur í skýrslunni að
íslensk börn séu vel undir meðal-
lagi í hinum vestræna heimi þegar
kemur að velferð barna. Er Ísland
aðeins í 24. sæti af þeim 38 löndum
sem rannsóknin náði til. Einu sæti
fyrir neðan Eistland og einu fyrir
ofan Rúmeníu.
Þegar litið er til andlegrar heilsu
segja flest íslensk börn að þeim líði
almennt vel, 81 prósenti af öllum
15 ára börnum. Þrátt fyrir þetta er
sjálfsvígshlutfall 15 til 19 ára með
því allra hæsta sem gerist, eða tæp-
lega tíu á hver 100 þúsund á ári.
Íslensk börn eru í meðaltali
þegar að kemur að offitu barna en
ánægja með líkama sinn er meiri
hjá íslenskum börnum en nokkurs
staðar annars staðar. Heilt á litið
eru stúlkur óánægðari með líkama
sinn en drengir, en munurinn milli
kynjanna er þó minni hér á Íslandi
en víðast hvar.
Erfiðleikar í lestri hafa verið
mikið til umræðu á undanförnum
árum og koma þeir einnig fram í
þessari skýrslu. Aðeins 62 prósent
af íslenskum börnum hafa viðmið-
unarfærni í lestri og stærðfræði við
15 ára aldur.
Félagsfærni er þó enn þá meira
vandamál hér á landi og skorar
Ísland lægst allra Evrópuþjóða.
Aðeins í Japan og Síle segjast börn
eiga erfiðara með að eignast vini.
Ingibjörg Karlsdóttir félagsráð-
gjafi, sem unnið hefur að málefnum
barna og unglinga í tæp þrjátíu ár,
segir stöðu Íslands ekki koma á
óvart. Félagsfærni hafi ekki verið
sinnt nógu vel hér á landi.
Ásamt því að starfa á Barna- og
unglingageðdeild Landspítala
heldur Ingibjörg úti PEERS-nám-
skeiðum í félagsfærni fyrir börn og
unglinga ásamt Guðrúnu Jóhönnu
Benediktsdóttur iðjuþjálfa. „Það er
metaðsókn og við erum með börn
á biðlista. Við finnum fyrir því að
það er aukinn kvíði og félagsfælni
hjá börnum.“
Ing ibjörg seg ir ást æður nar
saman standa af mörgum samverk-
andi þáttum. „Eitt er fjölgun barna
með ýmsar greiningar og raskanir
sem auka líkurnar á skertri félags-
færni. Á bilinu fimm til tíu prósent
barna eru með ADHD-greiningar.
Um tvö prósent eru á einhverfurófi,
það er hægt að setja beint samasem-
merki milli þess og slakrar félags-
færni,“ segir Ingibjörg. „Svo eru það
tæknibreytingar. Við finnum mjög
fyrir því á BUGL að börn eru að
ánetj ast gsm-símanum og tölvunni.
Það getur þróast þannig að tölvan
verður þeirra besti vinur, þá eru þau
síður að hitta börn í raunheimum á
meðan. Þá er hætt við að þau missi
niður hæfnina til félagslegra sam-
skipta.“
Alvarlegar af leiðingar fylgja
félagslegri einangrun barna og
unglinga. „Það er hætta á að þau
þrói með sér alvarlegri geðræn
vandamál. Hættan á skólaforðun
eykst og brottfalli úr námi. Svo
eykst líka hættan á að þau leiðist
út í fíkn af ýmsu tagi. Félagslega
einangruð börn og unglingar eru
líklegri til að verða skotmörk ein-
eltis í skólum og óprúttinna aðila á
netinu.“
Ingibjörg segir að það sé þó ljós
í myrkrinu. „Það er hægt að kenna
börnum, unglingum og ungmenn-
um félagsfærni, við gerum það með
gagnreyndum PEERS-námskeiðum
í félagsfærni þar sem foreldrar taka
þátt í námskeiðinu og læra að verða
félagsþjálfar barnanna.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
arib@frettabladid.is
Staða barna undir meðallagi
Íslensk börn eiga erfitt með að eignast vini og skora lægst Evrópuþjóða þegar kemur að félagsfærni. Þá er
sjálfsvígshlutfall unglinga hér með því hæsta á Vesturlöndum. Félagsráðgjafi segir þetta alvarlega stöðu.
SAMFÉLAG Í gær hófst átaksverkefni
UN Women, Fokk ofbeldi, með sölu
á FO-bolum. Allur ágóði verkefnis-
ins í ár rennur til upprætingar á
of beldi gegn konum og stúlkum í
Líbanon þar sem ríkir mikil neyð
vegna sprengingar sem nýlega varð
í höfuðborg landsins, kórónaveiru-
faraldursins og djúprar efnahags-
kreppu.
Á síðastliðnum þremur árum
hefur Fokk of beldi-verkefnið aflað
47 milljóna króna sem renna beint í
að uppræta of beldi gegn konum og
stúlkum í fátækari ríkjum heims.
„Konur og stúlkur í neyð eru sér-
staklega berskjaldaðar fyrir kyn-
bundnu ofbeldi,“ segir í tilkynningu
frá UN Women.
„Með því að kaupa FO-bolinn
tekur þú þátt í að veita konum og
stúlkum í Líbanon neyðaraðstoð,
vernd, öryggi og kraft til framtíðar.“
– bdj
Selja boli til að
styrkja stúlkur
Á bolnum er ljósmynd eftir Önnu
Maggý og ljóð eftir GDRN.
HEILBRIGÐISMÁL Krabba meins -
fé lagið endurskoðar öll sýni sem
rannsökuð voru á árunum 2017 til
2019. Skjól stæðingur Krabba meins-
fé lagsins var greindur með ólækn-
andi leg háls krabba mein þrátt fyrir
að hafa fengið nei kvæða niður stöðu
í leg háls skimun árið 2018. Fram
kom í fjölmiðlum í gærkvöld að sjö
áþekkar fyrirspurnir hefðu borist
lögmanni konunnar.
Upp komst um málið innan
félagsins í júní, hafa nú 1.800 sýni
verið endurskoðuð af sex þúsund.
Grunur leikur á að f leiri mistök af
sama meiði hafi verið gerð og hafa
á fimmta tug kvenna verið boðaðar
í frekari skoðun. – ab
Á fimmta tug
í skoðun á ný Unicef stóð fyrir göngu í fyrra vegna 30 ára afmæli Barnasáttmálans. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ALÞINGI Atkvæði voru greidd á
Alþingi um breytta fjármálastefnu í
gærkvöldi og lauk afgreiðslu á frum-
varpi Ásmundar Einars Daðasonar,
félags- og barnamálaráðherra, um
hlutdeildarlán og framlengingu á
tekjutengdum atvinnuleysisbótum.
Verður hluta bóta leiðin fram lengd
til ára móta og tíma bil tekju tengdra
at vinnu leys is bóta lengt úr þrem ur
mánuðum í sex.
Í dag er stefnt að því að ljúka
afgreiðslu mála sem tengjast ríkis-
ábyrgðum vegna Icelandair.
Þar á meðal er frumvarp efna-
hags- og viðskiptanefndar sem
lagt var fram síðdegis í gær, um
heimild lífeyrissjóða til að fjár-
festa í af leiðum sem fela aðeins í
sér rétt, en ekki skyldu, til að kaupa
eign eða til áskriftar að henni þótt
þær dragi ekki úr áhættu sjóðanna.
Samkvæmt frumvarpinu er mikil-
vægt að gera þá lagabreytingu áður
en hlutafjárútboð Icelandair fer
fram. Nokkur óánægja er meðal
sumra af þingmönnum stjórnar-
andstöðunnar vegna framgöngu
fyrirtækisins við gerð kjarasamn-
inga við Flugfreyjufélag Íslands.
Allir eru þó meðvitaðir um stöðu
Icelandair þegar kemur að milli-
landasamgöngum.
Stefnt er að því að síðsumars-
þingi verði slitið í kvöld. Haustþing
verður sett 1. október. – aá, ab
Stefnt að því að slíta síðsumarsþingi í kvöld
4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð