Fréttablaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 37
Sunnulækjarskóli
Vegna fæðingarorlofs vantar umsjónarkennara í
2. bekk í tímabundna ráðningu til vors. Þá vantar
forfallakennara til starfa við skólann.
Í skólanum eru um 730 nemendur og þar er lögð áhersla
á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklings-
miðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða
samvinnu allra sem að skólastarfinu koma. Laun og starfs-
kjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sveitar-
félaga og Kennarasambands Íslands. Starfið hentar jafnt
konum sem körlum.
Leitað er að umsækjendum með kennsluréttindi og sér-
hæfingu á grunnskólastigi, góða íslenskukunnáttu, áhuga
og reynslu af teymiskennslu og góða samskiptahæfni.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu skólans:
http://www.sunnulaekjarskoli.is
og hjá skólastjóra í síma 480-5400.
Umsóknarfrestur er til 18. september 2020.
Sækja þarf um stöðurnar á vef Sveitarfélagsins Árborgar,
http://starf.arborg.is
Skólastjóri
Er þjónusta þitt fag ?
Verslunin GEGNUM GLERIÐ er sérverslun með húsgögn, gjafavörur og
innréttingar í sérflokki.
Við óskum eftir að ráða þjónustulipran og lífsglaðan starfsmann til að sinna
sölustörfum í versluninni, annast móttöku viðskiptavina, ráðgjöf við vöruval og
frágang sölu auk þess að sjá um framsetningu og útstillingar á vörum verslunarinnar.
Viðkomandi annast að auki önnur alhliða dagleg störf er falla til hverju sinni.
Vinnutími er frá kl. 11-18 alla daga auk laugardaga skv. nánara samkomulagi.
Hlutastarf kemur vel til greina.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi marktæka reynslu af sambærilegum störfum
auk þess að hafa næmt auga fyrir framsetningu og uppstillingu á fallegri vöru. Við
leitum að manneskju með brennandi áhuga á hönnun, en menntun á því sviði er
áhugaverð. Áhersla er lögð á þjónustulund, frumkvæði og metnað til árangurs í starfi.
Viðkomandi þarf jafnframt að hafa þekkingu/hæfni til að vinna með aðstoð
samskiptamiðla.
Umsóknarfrestur er til og með 21. september nk. Gengið verður frá ráðningu sem
fyrst. Vinsamlega sendið eigin umsóknir/starfsferilskrár til . Þeir sem eigastra@stra.is
umsóknir fyrirliggjandi hringi eða sendi rafpóst og tilkynni þátttöku.
Guðný Harðardóttir hjá STRÁ ehf. veitir frekari upplýsingar í síma 588 3031, en
símaviðtalstími er frá kl.11-13 alla virka daga meðan á umsóknarferli stendur.
Vinsamlega athugið að fyrirspurnum verður eingöngu svarað hjá STRÁ ehf.
GEGNUM GLERIÐ
VERSLUN FAGURKERANS
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
SPENNANDI
FRAMTÍÐ
Umsóknarfrestur er til og með 27. september nk. Sótt er um starfið á landsnet.is. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá
og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmannsson, forstöðumaður stjórnstöðvar, í síma 563 9300.
Sérfræðingur í stýringu
flutningskerfisins
Við leitum að metnaðarfullum samstarfsfélaga, með brennandi áhuga
á orkugeiranum, í hóp frábærra sérfræðinga í stjórnstöð okkar.
Stjórnstöðin ber ábyrgð á stjórnun raforkukerfisins, samhæfingu
aðgerða í tengslum við truflanir og viðhald auk þess að halda utan um
orkumarkað. Nýju starfsfólki er veitt öflug og markviss þjálfun en um er
að ræða kreandi og ábyrgðarmikið starf. Hluti starfsins er vaktavinna.
Landsnet er þjónustufyrirtæki sem kappkostar
að vinna í takt við samfélagið og hefur það
að meginmarkmiði að tryggja örugga aendingu
á raforku til framtíðar. Við bjóðum upp á fyrsta
flokks aðbúnað, góðan starfsanda, frábært
mötuneyti, aðgengi að líkamsræktaraðstöðu og
stuðning við að viðhalda og sækja sér frekari
þekkingu. Við erum þátttakandi í ölmörgum
rannsóknar- og samvinnuverkefnum innan
Norðurlandanna og Evrópu.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar og geta til að starfa í teymi
• Geta til að starfa undir álagi
• Öguð og nákvæm vinnubrögð
• Sterk öryggis- og jafnréttisvitund
• Háskólamenntun í raungreinum sem nýtist í starfi
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Stýring og vöktun raforkukerfisins
• Aðgerðastjórnun og áætlanagerð um rekstur
flutningskerfisins
• Rekstur jöfnunarorkumarkaðs
• Þátttaka í greiningar- og úrbótaverkefnum
• Þátttaka í nýsköpunarverkefnum