Fréttablaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 6
Afgreiðslutímar á www.kronan.is Ódýrt Þessi gula króna ... Ódýrt SPARAR þÉ R A U R IN N Ód ýrt Ódý rt Ódýrt Ef vara er merkt ódýr þýðir það að þetta sé ódýrasta varan í þessum vöruflokki Pssst ... elt’ana BRETLAND Hlé hefur verið gert á réttarhöldunum sem skera úr um það hvort Julian Assange verði framseldur til Bandaríkjanna eða ekki. Starfsmaður úr lögfræðiteymi hans veiktist og dómari ákvað að fresta þinghaldinu fram yfir helgi á meðan COVID-19 próf verður gert. Réttarhöldin hafa staðið yfir í viku og búist er við því að þau takið þrjár vikur til viðbótar. Verði Assange framseldur bíður hans ákæra í 18 liðum fyrir njósnir tengdar gögnum bandaríska hersins sem birt voru á síðunni Wikileaks. Alls er um að ræða 750 þúsund skjöl og myndbönd, aðallega tengd hernaðinum í Írak og Afganistan. Uppljóstrarinn og fyrrverandi her- maðurinn Chelsea Manning var handtekin árið 2010 og dæmd til 35 ára fangelsisvistar árið 2013. Banda- ríkjaforsetinn Barack Obama mild- aði dóminn yfir Manning niður í sjö ár í janúar árið 2017, sem var eitt af hans síðustu embættisverkum. Verði Assange dæmdur fyrir öll hin meintu brot gæti hann átt yfir höfði sér allt að 175 ára fangelsisdóm. Stuðningsmenn og verjendur Ass- ange hafa lagt mikla áherslu á heilsu hans sem sé bágborin, bæði líkam- lega og andlega, eftir áralangar ofsóknir og f lótta. Sumarið 2012 fékk hann hæli í sendiráði Ekva- dors í Lundúnum, en þá hafði hann einnig verið kærður fyrir nauðgun í Svíþjóð. Í þrjú ár vaktaði breska lögreglan sendiráðið. Þetta hæli missti hann sjö árum seinna og var hann þá handtekinn í sendiráðinu. Sænska kæran var hins vegar látin niður falla þar sem hún þótti ekki líkleg til sakfellingar. Af ljósmyndum að dæma virðist sá maður sem gekk inn í sendiráðið 2012 mun heilsuhraustari en sá sem var dreginn út úr því árið 2019. Ass- ange var engu að síður mjög virkur í baráttu sinni í sendiráðinu og eignaðist bæði unnustu og börn. Aðstandendur hans halda því fram að vist hans í breskum fang- elsum gæti hæglega orðið honum að aldurtila, sérstaklega í ljósi þess að COVID-19 faraldurinn hafi þar blossað upp. Þá er því einnig haldið fram að ef hann verði framseldur Prófsteinn á fjölmiðlafrelsi heimsins Julian Assange gæti átt yfir höfði sér 175 ára fangelsi fyrir njósnir verði hann framseldur til Bandaríkjanna. Réttarhöld um framsals- kröfu fara nú fram í London. Lögfræðingar Assange halda því fram að málið snúist um fjölmiðlafrelsi og segja kærurnar pólitískar. Tímalína aðgerða Julian Assange Árið 2010 – Gögn Manning birt hjá Wikileaks. Ágúst 2010 – Tvær konur kæra Assange fyrir nauðgun. Maí 2012 – Breskur dómstóll úrskurðar að Assange skuli framseldur til Svíþjóðar. Júní 2012 – Assange biður um pólitískt hæli í sendiráði Ekva- dor í London. Ágúst 2013 – Manning dæmdur í 35 ára fangelsi. Janúar 2017 – Obama styttir dóm Manning. Apríl 2019 – Assange hand- tekinn í sendiráðinu. Maí 2019 – Assange kærður í Bandaríkjunum. Júní 2019 – Bandaríkjamenn biðja um framsal. Nóvember 2019 – Sænsk stjórn- völd fella niður nauðgunarmál. September 2020 – Framsals- réttarhöldin hefjast. Assange gæti átt von á 175 ára fangelsi verði hann framseldur og síðan dæmd- ur í Bandaríkjunum. til Bandaríkjanna væri það í raun dauðadómur, því óttast er að þar yrði hann pyndaður. Málstaður lögfræðinga Assange í réttarhöldunum sjálfum byggist hins vegar aðallega á að sýna fram á að kærurnar séu af pólitískum toga. Einnig að málið sem slíkt sé prófsteinn á fjölmiðlafrelsi og upp- lýsingar almennings. Kallaðir hafa verið til sérfræðingar og fræði- menn til að styrkja þennan málstað, svo sem Paul Rogers, fyrrverandi prófessor við Bradford háskóla, sem benti á mikilvægi gagnanna í að sýna heiminum fram á þann skaða sem hernaðurinn hefði valdið hinum tveimur áðurnefndu löndum. Rogers benti einnig á að vel hefði verið hægt að rétta yfir Assange án þess að hann væri við- staddur. Það að Bandaríkjamenn vilji hafa hann á staðnum sýni fram á að kærurnar séu af pólitískum toga og það henti núverandi stjórn- völdum í Bandaríkjunum vel. Annað sérfræðivitni, Trevor Timm hjá blaðamannasamtökun- um Freedom of the Press Founda- tion, varaði við því að framsal og síðar réttarhöld yfir Assange í Bandaríkjunum hefðu verulega slæm áhrif á fjölmiðlafrelsi á heims- vísu. Annað fjölmiðlafólk muni ótt- ast að fá sömu meðferð og Assange. Bandaríkjamenn byggja hins vegar sitt mál á því að Assange hafi skipulega og með aðstoð netglæpa- manna, eða hakkara, komist yfir gögnin á ólöglegan hátt, auk þess að hafa gert samsæri með bandaríska uppljóstraranum Chelsea Manning. Assange hafi lokkað þá til sín, suma barnunga, á ráðstefnum í Asíu og Evrópu. Með því að opinbera nöfn í skjölunum hafi hann ógnað öryggi fólks og þjóðaröryggis. Búist er við að aðalmeðferðinni ljúki í byrjun október. Þá mun dóm- ari taka sér vikur eða mánuði til að úrskurða í málinu. Þar með verður málinu þó sennilega ekki lokið því nær öruggt er talið að sá aðili sem tapar því muni áfrýja til hærra dóm- stigs. kristinnhaukur@frettabladid.is Julian Assange, stofnandi Wikileaks var orðinn annar maður eftir sjö ár í sendiráði Ekvador í London. MYND/GETTY 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.