Fréttablaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 29
Melissa Dream er vísinda-lega samsett jurtablanda, hönnuð til að stuðla að djúpri slökun og værum svefni. Blandan inniheldur jurtir, amínó- sýrur, vítamín og steinefni sem hafa ekki sljóvgandi áhrif. Svefninn er okkur gríðarlega mikilvægur til þess að við getum tekist á við eril dagsins og staðist þá streitu sem fylgir daglega lífinu. Svefninn er að stærstum hluta eins upp byggður og á sama formi hjá öllum sem sofa eðlilega og ótruflað. Álitið er að REM-svefn og djúp- svefn séu mikilvægustu svefnstigin en þau ætti að ná yfir um það bil 45-50% af öllum nætursvefni. Fullorðinn einstaklingur þarf að meðaltali 7-8 klukkustunda svefn og ef það gengur ekki eftir getur það haft neikvæð áhrif á almenna líðan, fjölskyldu-, félags- og atvinnulíf. Loksins góður nætursvefn Soffía Káradóttir notar Melissa Dream og ber því vel söguna: „Ég hef lengi verið með fótaóeirð sem hefur aukist með árunum og mér hefur reynst erfitt að sofa nógu vel vegna þess. Eftir að ég byrjaði að taka Melissa Dream hefur þetta algjörlega breyst. Ég tek tvær töflur fyrir svefninn og innan hálftíma er öll óeirð farin og ég fæ góðan nætursvefn. Að mínu mati eru þetta töfratöflur sem ég gæti ekki verið án og hef ég nú tekið Melissa Dream reglulega í nokkur ár.“ Orsakir svefnleysis Af hverju sofnum við ekki, erum andvaka eða vöknum upp um miðjar nætur og getum ekki sofnað aftur? Það eru fjölmargar ástæður fyrir því að við getum ekki sofnað eða sofið þannig að við hvílumst og vöknum endurnærð. Vakta- vinna, ferðalög, kvíði og áhyggjur eru algeng orsök svefnleysis en ýmsir sjúkdómar geta einnig haft mikil áhrif á svefninn. Streita er mjög algeng orsök en það er allt of algengt að fólk vinni of mikið, sé með fjárhagsáhyggjur, vanti hreyf- ingu og/eða eigi í erfiðum sam- böndum, hvort sem er við maka, vini eða aðra. Mataræði, upptaka næringarefna og venjur geta líka átt stóran þátt í svefnleysi. Einbeitingarskortur og offita Langvarandi röskun á svefni og svefnmynstri getur haft mjög alvar- legar heilsufarslegar afleiðingar í för með sér. Einkenni svefnleysis eru meðal annars þreyta yfir dag- inn, skapsveiflur og jafnvel þung- lyndi og kvíði. Einbeiting versnar, slysahætta eykst og ýmis andleg og líkamleg vandamál. Sum einkenni geta líka dregið þann dilk á eftir sér að þau ýti undir frekara svefnleysi sem þýðir að við erum komin í vítahring sem þarf einhvern veginn að rjúfa. Vilt þú sofa betur? Það er ýmislegt sem hægt er að gera til að vinna bug á svefnleysi og gott að byrja á því að breyta einföldum hlutum í nærumhverfi okkar ef það á við. Gott getur verið að borða ekki tveimur til þremur tímum áður en lagst er til hvílu og passa að drekka ekki of mikinn vökva, bæði til að gefa meltingarfærunum pásu og að losna við klósettferðir. Ekki taka tölvur eða síma með í rúmið og lág- marka alla notkun rafmagnstækja í svefnherberginu sem á að vera vel loftað, myrkvað og hljóðlátt. Nátt- úruleg bætiefni reynast mörgum vel og hefur Melissa Dream alveg slegið í gegn. Þetta bætiefni hefur meðal annars fengið viðurkenn- ingu frá National Nutrition í Kanada í flokki bestu fæðubótar- efna gegn streitu. Amínósýra sem stuðlar að slökun Melissa Dream inniheldur sítrónumelissu sem hefur verið notuð í aldaraðir meðal annars til að bæta svefn. Þar er einnig að finna L-theanine, amínósýru sem finnst í svörtu og grænu tei og hafa rannsóknir* sýnt að hún hefur bein áhrif á heilann þar sem hún stuðlar að slökun án þess að hafa sljóvgandi áhrif. Melissa Dream inniheldur einnig fjölda vítamína og steinefna, þar á meðal: B-6 vítamín sem stuðlar að því að halda reglu á hormónastarfsemi. B-12 sem stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins sem og eðlilegri sálfræðilegri starfsemi ásamt B1, B2, og B3. Magnesíum sem stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi sem og viðhaldi eðlilegra beina. Svefnleysi getur þó verið alvar- legra vandamál en svo að einföld ráð dugi. Þá er best að ráðfæra sig við lækni. Þess ber þó einnig að geta að rannsóknir hafa sýnt að bestur árangur næst með hugrænni atferlismeðferð (HAM) sem er nokkurra vikna námskeið sem fólk getur sótt. Fótaóeirðin er alveg horfin og ég fæ góðan nætursvefn Soffía Káradóttir hafði lengi verið með fótaóeirð sem jókst með árunum og hún átti erfitt með að sofa vegna þess. Eftir að hún byrjaði að taka inn Melissa Dream er vandamálið úr sögunni. Það er ýmislegt sem hægt er að gera til að vinna bug á svefnleysi og gott að byrja á einföldum breytingum. KETÓ PAKKANUM HÁMARKAÐU ÁRANGURINN MEÐ Ketógenískt mataræði (KETÓ) er lágkolvetna- og fituríkt mataræði. Það felur í sér að draga úr kolvetnaneyslu og skipta henni út fyrir fitu. Keto pakkinn inniheldur tvær vörur, KRILL OIL OG KETO ÞVAGSTRIMLA, ásamt fróðleik og uppskrift frá Hönnu Þóru matarbloggara sem geta hjálpað þér að ná góðum árangri. Fæst: í Fjarðarkaup og Nettó KRILL OIL – öflugustu omega-3 fitusýrurnar og nauðsynlegar á ketó. KETÓ þvagstrimlar – greina fljótt og auðveldlega hvort lifrin sé að framleiða ketóna og hvort líkaminn sé kominn í ketósu. Ég tek tvær töflur fyrir svefninn og innan hálftíma er öll fótaóeirð farin og ég fæ góðan nætursvefn. Soffía Káradóttir FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.