Fréttablaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 60
Unnur hefur vakið athygli síðustu misseri með flutn-ingi sínum á franskri tónlist.
Þar má telja tónleikaröð hennar á
Petersen-svítunni „Frönsk kaffi-
húsastemning“ þar sem hún flytur
lög listamanna eins og Edith Piaf,
Serge Gainsbourg og Véronique
Sanson. „Ég var mjög ánægð með
menntunina sem ég fékk á sínum
tíma í Tónlistarskóla FÍH en mig
langaði til að fara aðeins út fyrir
tónlistina sjálfa í þetta skiptið.
Þessi fög eru náskyld og sviðslistin
er frábær viðbót við tónlistar-
námið,“ segir Unnur Sara.
En hvað er það við Frakkland og
franska tónlist sem heillar hana
svo? „Frakkland vakti fyrst áhuga
minn þegar ég var unglingur og
ég byrjaði að hlusta á franska tón-
list. Ég elska dramatíkina í tónlist
Edith Piaf og öðrum frá sama tíma-
bili. Franska tónlistin er eitthvað
svo laus við alla tilgerð, hún er full
af elegans og fegurð. Það er líka
gaman að hlusta á samsuðu ólíkra
menningarheima eins og einkenn-
ir tónlist listamanna á borð við
Serge Gainsbourg. Mér finnst ég
oft geta heyrt lag og hugsað „mikið
er þetta eitthvað frönsk laglína“.
Það er eitthvað alveg sérstakt ein-
kenni sem ég skynja en kann ekki
alveg að setja puttann á.“
Fegurð í auglýsingaskiltum
„Ég gleymi því aldrei þegar ég fór
í fyrsta skipti til Frakklands með
fjölskyldunni sautján ára gömul.
Við keyrðum frá Bretlandi og ég
fékk fiðring í magann þegar við
vorum komin yfir landamærin
og ég sá fyrsta auglýsingaskiltið á
frönsku. Franska tungumálið er
ótrúlega fallegt og það er alger-
lega þess virði að ná tökum á því.
Frakkarnir eru líka góðir í að njóta
lífsins, gera vel við sig í mat og
drykk og hafa fallegt í kringum sig.
Það er mikil fegurð í náttúrunni og
byggingum hér í Suður-Frakklandi
og fólkið vinalegt.“
Árið 2018 gaf hún út breiðskíf-
una „Unnur Sara syngur Gains-
bourg,“ sem hefur fengið frábær
viðbrögð bæði á Íslandi og erlendis
en vinsælasta lagið „La javanaise“
er til dæmis komið með yfir millj-
ón spilanir á Spotify. Nýjasta lagið
frá Unni Söru heitir „Á Laugavegi“
og er hennar útgáfa af því sem
margir kannast við sem Champs-
Elysées eða Waterloo Road.
Lagið á sér fastan stað í hjarta
Söru. „Ég syng þetta lag alltaf á
frönsku með nemendum mínum
í tónmennt, þau elska þetta! En ég
hef verið að kenna síðustu ár hjá
Tóney, fyrirtæki Guðna Franz-
sonar. Fyrir ári síðan spurði einn
nemandi mig af hverju ég semdi
ekki íslenskan texta við lagið. Ég
hafði aldrei áður íhugað að fara
út í textaþýðingar en nokkrum
dögum síðar fékk ég skyndilega
hugmynd að texta og tveimur
tímum seinna var hann alveg
tilbúinn. Mig langaði ekki til að
þýða upprunalega textann, heldur
vildi ég nota tækifærið til að fjalla
um miðbæ Reykjavíkur í allri sinni
dýrð. Það var alveg kominn tími á
að Laugavegurinn, okkar Champs-
Elysées fengi sitt lag!“ segir Unnur
og hlær. Lagið má nálgast á Spotify
og öllum helstu streymisveitum.
Einnig má nálgast lagið á Face-
book- síðu Unnar og kennsluefni
sem hún hefur útbúið fyrir þá sem
vilja syngja lagið í tónmennt og
öðru barnastarfi. Textinn í laginu
er á þessa leið:
Á Laugavegi
Ég arka um þann fræga stað,
sem kenndur er við gamalt bað.
Og hugsa um allt sem er að ske,
sem gleður mig.
jazzinn dunar út um allt,
og mér finnst það ansi snjallt.
Hér vil ég vera alla tíð, í Reykjavík.
Ó Laugavegur, ó Laugavegur,
kannski verður pínu kalt, en það er
allt í lagi samt,
því stemningin er engu lík á Lauga-
vegi.
Hjólabrettanördarnir og götuleik-
húshóparnir
setja svip á bæinn þegar sumra fer.
Með ís í hönd við Ingólfstorg, líkt og
ég sé í stórborg.
Að fá sér bjór á Austurvell’ er
toppurinn.
Ó Laugavegur, ó Laugavegur,
kannski verður pínu kalt, en það er
allt í lagi samt
því stemningin er engu lík á Lauga-
vegi.
Í gleðigöngu glöð ég fer, því lita-
dýrðin er alger.
Reykjavíkurmaraþon, ég fylgist
spennt með!
Skautadans í desember, jólaljós og
falleg hrós.
Alltaf sömu töfrarnir á Laugavegi.
::Ó Laugavegur, ó Laugavegur,
kannski verður pínu kalt, en það er
allt í lagi samt
því stemningin er engu lík á Lauga-
vegi::
Ný plata í bígerð
Næst á dagskrá hjá Unni Söru er
að gefa út nýja plötu á komandi
mánuðum sem inniheldur franska
tónlist frá sjöunda áratugnum og
var tekin upp í sumar. „Á síðustu
plötu var þemað tónlist Serge
Gainsbourg, en í þetta skiptið tók
ég aðeins aðra nálgun. Þetta er allt
tónlist sem mér finnst ótrúlega
gaman að syngja og kemur frá
söngkonum á borð við France Gall,
Françoise Hardy og Véronique
Sanson. Það fyndna er að stór
hluti þeirra er einmitt það sem var
upphafið að þessu öllu fyrir mig.
Ég féll fyrir franskri tónlist þegar
ég heyrði þessi lög í fyrsta skiptið
fjórtán ára gömul. Þá reyndi ég að
syngja með þótt ég kynni vita-
skuld ekkert í frönsku á þeim tíma.
Mér finnst mikilvægt að halda
í þessa tengingu við fjórtán ára
sjálfið. Að vera ekkert að taka sig
of alvarlega eða ætla sér eitthvað
svakalegt, heldur gera hlutina bara
af því manni finnst þeir skemmti-
legir.“
Fyrsta lagið af þessari plötu
kemur út á öllum helstu streymis-
veitum 23. september. Aðdáendur
Mad Men-þáttanna eiga eflaust
eftir að muna eftir þessu skondna
lagi en Unnur kýs að afhjúpa
ekki meira um það að svo stöddu,
heldur hvetur fólk til að fylgjast
með fimmtudaginn 23. september.
Hlakkar til að drekka
í sig menninguna
Unnur segist hlakka til að kynnast
franskri list og menningu miklu
betur í náminu og njóta þess að
búa í þessari æðislegu borg. „Þetta
er að sjálfsögðu frekar skrítinn
tími að flytja erlendis til að fara
í nám. En ég finn svo sem ekki
mikið fyrir því eins og er. Frakk-
arnir virðast frekar ákveðnir í því
að halda sem mestri starfsemi
gangandi og láta þetta ekki hafa
áhrif á daglegt líf. En hér er reynd-
ar mikil áhersla á grímunotkun og
handsprittun.“
Mikið er þetta frönsk laglína
Tónlistarkonan Unnur Sara Eldjárn er nú stödd í franska bænum Montpellier og við það að hefja
þriggja ára bakkalárnám í sviðslistum. Í lok september kemur út eftir hana nýtt lag af nýrri plötu.
Unnur Sara og samstarfsmenn hennar eftir vel heppnaðan upptökudag í
júní. Frá vinstri: Sindri Freyr Steinsson, Birgir Þórisson, Kjartan Kjartans-
son, Þorvaldur Kári Ingveldarson og Baldur Kristjánsson.
Frakkland, franska og frönsk menning hefur heillað Unni lengi, allt frá því
hún var lítil stelpa að hlusta á franska tónlist. MYND/BIRTA RÁN BJÖRGVINSDÓTTIR
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Áhugasamir hafi samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson
Sími/Tel: +354 512 5429
jonivar@365.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 512 5429 / jonivar@frettabladid.is
ljós og lampar
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um
ljós og lampa kemur út 25. september nk.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
50 5654
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R