Fréttablaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 16
Fatahönnunarsamfélagið á Íslandi er frekar lítið og þekkjumst við all-f lest innanborðs. Hug-myndin að Kiosk fæðist árið 2010, svo eftir tíu ára
rekstur hefur það sýnt sig að þetta
rekstrarform er að ganga upp. Það
að hönnuðir taki sig saman og reki
verslun sjálfir virðist virka,“ segir
fatahönnuðurinn Eygló Margrét
Lárusdóttir.
Hún segir það ekki bara vera
praktíkina sem endilega ráði för,
heldur hin góða og innilega sam-
staða sem myndast við að vera
partur af teyminu og tengslanetinu.
„Það er svo ótrúlega gott að fá
ráðleggingar frá samstarfsfélögum
og stuðning. Við sáum þetta rými
auglýst í vor og ákváðum að slá til
og sækja um, en það er bókstaflega
slegist um þessi rými úti á Granda,
enda svæðið í svo ótrúlega mikilli
grósku,“ segir hún.
Viðtökurnar hafa verið frábærar
að sögn Eyglóar.
„Við erum að sjá að okkar kúnnar
kunna vel að meta nýju staðsetning-
una. Framkvæmdirnar stóðu yfir í
allt sumar og við erum ótrúlega
sáttar við útkomuna,“ segir hún.
Í dag fer fram opnunarhóf í versl-
uninni við Grandagarð 35, en það
hefst kl. 15 og stendur til 18. Ilmsér-
fræðingurinn Andrea Maack verður
á svæðinu og veitir ilmráðgjöf.
steingerdur@frettabladid.is
Kiosk
opnað á ný á
Grandanum
Fatahönnuðir á Íslandi hafa sýnt mik-
inn dugnað núna á flóknum tímum. Fimm
hönnuðir standa nú að enduropnun hinnar
vinsælu hönnunarbúðar Kiosk úti á Granda.
Hlín Reykdal
Hlín Reykdal hefur vakið mikla
athygli fyrir einstaka og fallega
skartgripahönnun. Hún út-
skrifaðist frá Listaháskóla Íslands
sem fatahönnuður 2009. Allar
götur síðan hefur Hlín
starfað sem sjálf-
stætt starfandi
hönnuður
undir eigin
nafni. Aðal-
lega hefur
Hlín fengist
við hönnun
skartgripa og
fylgihluta.
BAHNS
Helga Lilja Magnúsdóttir stofnaði
BAHNS, eða Bið að heilsa niður í
Slipp árið 2013. Hún lærði fata-
hönnun í LHÍ og Gerrit Rietweld
í Amsterdam. Árið 2010 stofnaði
hún fatamerkið Helicopter.
Bið að heilsa niður í Slipp
eða BAHNS byrjaði sem
undirmerki Helicopter en
þróaðist hratt í að vera
aðalmerkið sem Helga
vinnur að. Merkið saman-
stendur af ullarfötum
og fallegum settum. Hún
aðlagaðist breyttum að-
stæðum í heimsfaraldrinum og
hóf framleiðslu hérna heima.
MAGNEA
MAGNEA var stofnað af Magn-
eu Einarsdóttur árið 2013. Hún
útskrifaðist frá Central Saint
Martins. MAGNEA er þekkt fyrir
frumlegar og fallegar prjóna-
vörur þar sem hún nýtir alltaf
hina íslensku ull. Hún segist fá
innblástur frá öllu og engu og
vill halda í hefðir þegar kemur að
hönnun, en gera það á frumlegan
og öðruvísi hátt.
EYGLO
Eygló Margrét Harðardóttir,
sem útskrifaðist sem fatahönn-
uður frá Listaháskóla Íslands, er
þekkt fyrir skemmtilega nálgun
í hönnun sinni á fatnaði þar sem
húmorinn er aldrei langt undan.
Hún hefur unnið með mörg
ólík þemu í línum sínum, eins
og sjónvarpsþættina „Mur-
der She Wrote“ og núna seinast
kristna trú.
ANITA HIRLEKAR
Anita Hirlekar útskrifaðist úr
Central Saint Martins-háskólanum
í London 2014. Hönnun Anitu
einkennist af blómamynstrum,
kvenlegum sniðum og handbró-
deruðum textíl. Aðaláhersla
merkisins er textíllinn, mynstrin
eru handmáluð og textíllinn
handunninn og framleiddur á Ís-
landi. Sjálfbærni er höfð að leiðar-
ljósi í hönnun og framleiðslu.
MYND/MAGNÚS ANDERSEN
1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN